Morgunblaðið - 26.04.2000, Side 22
22 MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Mögulegt að stjórnvöld krefjist þess að Microsoft verði skipt í fleiri fyrirtæki
REUTERS
Róttæk tillaga um
ónauðsynlegar aðgerð
ir að mati Microsoft
Niðurstaða í rannsókn á málefnum Micro-
soft fékkst í byrjun apríl þegar dómsúr-
skurður þess efnis að fyrirtækið hefði gerst
brotlegt við lög um hringamyndun var
kveðinn upp. Bandarísk stjórnvöld hafa
frest til föstudags til að leggja fram tillögur
að réttarúrræðum gegn Microsoft.
New York, Seattle. AP, Reuters.
Húsakynni Nasdaq-markaðarins í New York, en
fréttir af Microsoft hafa jafnan mikil áhrif á Nas-
daq-vísitöluna.
TALSMAÐUR Microsoft hefur lýst
hugsanlegri tillögu bandarískra
stjómvalda um að skipta fyrirtæk-
inu upp sem róttækri og öfga-
kenndri. Forsaga þess að tillögur um
réttarúrræði gegn hugbúnaðarfyrir-
tækinu Microsoft verða lagðar fram
nær allt aftur til ársins 1991 þegar
opinber rannsókn hófst á því hvort
Microsoft einoki markað fyrir tölvu-
stýrikerfi.
Árið 1997 stefndi bandaríska
dómsmálaráðuneytið Microsoft fyrir
að dreifa netvafra sínum með stýri-
kerfinu Windows.
Samkomulag náðist að hluta í árs-
byrjun 1998, þar sem tölvuframleið-
endur fengu þann möguleika að fela
eða fjarlægja netvafrann. í apríl
sama ár gaf Microsoft út Windows
98, nýja útgáfu af stýrikerfinu, en
gaf tölvuframleiðendum ekki ofan-
greindan möguleika. Mánuði síðar
var gefin út umfangsmikil ákæra á
hendur Microsoft af hálfu dóms-
málaráðuneytisins og 20 ríkja. Þar
er Mierosoft sakað um að nota yfir-
burði sína á hugbúnaðarmarkaði til
að bola keppinautum burt.
í nóvember árið 1999 úrskurðaði
dómari að Microsoft einokaði mark-
aðinn fyrir stýrikerfi í PC-tölvur og
að aðgerðir fyrirtækisins sköðuðu
neytendur. Eftir fjögurra mánaða
samningaviðræður Microsoft og
ákæruvaldsins kvað Thomas Pen-
field Jackson dómari upp úrskurð
sinn þess efnis að Microsoft hefði
brotið lög um hringamyndun með
því að nýta sér einokunarvald til að
hindra samkeppni. 5. apríl sl. birti
dómarinn áætlun þess efnis að innan
60 daga skyldi ljóst til hvaða réttar-
úrræða yrði gripið gegn hugbúnað-
arrisanum. Stjórnvöld hafa frest til
föstudags í þessari viku til að leggja
fram tillögur þess efnis.
Microsoft hefur frest til 10. maí til
að bregðast við tillögum stjómvalda
og koma með gagntillögur og stjóm-
völd skulu bregðast aftur við fyrir
17. maí. Hlutaðeigendur munu flytja
REUTERS
Bill Gates, stofnandi Microsoft.
mál sitt fyrir Jackson dómara 24.
maí en 60 daga fresturinn rennur út
5. júní.
Netvafri ekki aðskilinn
frá stýrikerfinu
Sagt var frá því í bandarískum
fjölmiðlum á mánudag að hugsanlegt
væri að stjórnvöld gerðu það að til-
lögu sinni í þessari viku að Microsoft
yrði skipt í tvö fyrirtæki í því skyni
að bæta samkeppnisumhverfi í hug-
búnaðariðnaði. Dómsmálaráðuneyt-
ið og ríkin hafa þó ekki komist að
samkomulagi um sameiginlega til-
lögu en margir kostir eru sagðir í
stöðunni. Engir þeirra fela þó í sér
að Microsoft skuli aðskiija netvafra
sinn frá Windows-stýrikerfinu. í
málaferlunum gegn Microsoft var
það þó aðalatriðið. Tillögumar eru
sagðar ganga út á að stofna þurfi
sérstakt fyrirtæki um Windows-
stýrikerfið og annað um starfsemi
tengda Netinu. Önnur hugmynd
gengur út á að Microsoft selji hug-
búnaðarhluta fyrirtækisins, þ.e. Off-
ice-hugbúnaðinn. Einnig íhuga
ákærendur að gera að tillögu sinni
að Microsoft verði beitt tímabundn-
um viðskiptahindranum þar til málið
verður tekið fyrir hjá áfrýjunardóm-
stólum.
í undangengnum málaferlum kom
í Ijós að Windows stýrikerfið hafði
85% markaðshlutdeild og Office-
hugbúnaðarpakkinn 90% hlutdeild
af markaði fyrir slíkar vörar. Pró-
fessor við Harvard-háskólann segir í
samtali við vefútgáfu New York
Times að ef stofnuð yrðu sérstök fyr-
irtæki um annars vegar Windows og
Office hins vegar, yrði samkeppnin
af öðra tagi, líkt og á milli Microsoft
og Intel, sem væri æskilegt. Á sama
stað kemur einnig fram að sem sér-
stakt fyrirtæki, væri hugsanlegt að
Office yrði framleitt fyrir stýrikerfið
Linux sem er í samkeppni við Wind-
ows. Tvö fyrirtæki úr Microsoft yrðu
eftir sem áður stór og arðvænleg.
Því hefur nú þegar verið lýst yfir
af hálfu Microsoft að úrskurðinum
verði áfrýjað og talið er að málið geti
farið fyrir Hæstarétt Bandaríkj-
anna.
Ef af verður, era kröfur af þessu
tagi um uppstokkun fyrirtækis þær
fyrstu í Bandaríkjunum síðan árið
1984 þegar símafyrirtækinu AT&T
var gert að skipta fyrirtækinu upp
eftir réttarhöld.
Fulltrúar dómsmálaráðuneytisins
hittu efnahagsráðgjafahóp forseta
Bandaríkjanna í gær á óformlegum
fundi til að gera ráðgjöfunum grein
fyrir tillögunni. Clinton forseti var
ekki viðstaddur.
Starf smenn fá kauprétt á
lokagengi mánudagsins
Steve Ballmer, aðalframkvæmda-
stjóri Microsoft, lýsti því yfir í gær
að ekkert réttlætti að Microsoft yrði
skipt upp. Hann tilkynnti einnig að
allir starfsmenn Microsoft fengju
kauprétt á hlutabréfum í félaginu á
lokagengi bréfanna á mánudag.
Lögmenn Microsoft hafa lýst því
yfir að hugsanleg uppstokkun á fyr-
irtækinu hafi mikið fordæmisgildi
þar sem bandarísk yfirvöld hafi ekki
áður skipt upp fyrirtæki sem hafi
áunnið sér stöðu sína á markaðnum,
eins og fram kemur í Financial
Times. Lögmennimir hafa lýst
þeirri áætlun sinni við dómarann að
þeir muni krefjast réttarhalda með
vitnum og gagnspurningum, að því
er fram kemur í Wall Street Journal
í gær. Slík réttarhöld gætu tekið
marga mánuði. Lögmennirnir munu
aðeins fallast á að hraða ferlinu ef
viðskiptahindranir verða ekki víð-
tækar, nái aðeins til netvafra Micro-
soft og Windows 98 sem þegar era á
markaði en munu brátt víkja fyrir
nýrri útgáfum. Lögmenn Microsoft
telja sölu á Office-starfseminni ekki
við hæfi þar sem sá hugbúnaður var
ekki aðalatriði í hinum 77 daga rétt-
arhöldum. Talsmenn dómsmála-
ráðuneytisins hafa ekki tjáð sig um
málið.
Jim Cullinan, talsmaður Micro-
soft, sagði á mánudag að slæmt væri
ef tillagan næði fram að ganga, fyrir
Microsoft, neytendur og iðnaðinn í
heild. Hann sagði ekkert í dómsúr-
skurðinum frá 3. aprfl réttlæta svo
öfgafull og róttæk réttarúrræði.
Robert Herborld, rekstrarstjóri hjá
Microsoft, telur réttarúrræði sem
þessi ekki endurspegla það sem fer
fram á markaðnum, að því er fram
kemur í Wall Street Journal.
Markaðsverðmæti 45%
minna en um áramót
Microsoft var stærsta fyrirtæki
heims í ársbyrjun en markaðsvirði
þess hefur minnkað um
45% frá þeim tíma og er
nú um 345 milljarðar
bandaríkjadala eða
rúmir 25 þúsund millj-
arðar íslenskra króna.
Fyrirtækið er sam-
kvæmt lokatölum frá
mánudegi fjórða verð-
mætasta fyrirtæki
Bandaríkjanna, á eftir
General Electric, Cisco
og Intel.
Hlutabréf Microsoft
lækkuðu um meira en
15% í viðskiptum á
mánudag í kjölfar
frétta um hugsanlega
uppstokkun en einnig
vegna þess að fyrirtæk-
ið gaf út tilkynningu
þess efnis að vöxtur
rekstrartekna næsta
árið yrði ekki í sam-
ræmi við áætlanir.
Sérfræðingar höfðu
spáð um 20% vexti
hagnaðaðar næsta árið
en talsmenn Microsoft
segja 15% vöxt nær
lagi. Ársfjórðungsupp-
gjör Microsoft var þó
nokkuð umfram vænt-
ingar.
í morgunpunktum Kaupþings í
gær kemur m.a. fram að fréttir af
Microsoft hafi jafnan mikil áhrif á
Nasdaq-vísitöluna. 3. aprfl lækkaði
Nasdaq um 349 punkta, sama dag og
dómari kvað upp úr um sekt fyrir-
tækisins. Goldman Sachs lækkaði
spá sína um rekstrartekjur Micro-
soft á ársfjórðungnum 12. apríl og
Nasdaq lækkaði um 286 punkta. I
fyrradag lækkaði Nasdaq svo um
160 punkta í kjölfar frétta um hugs-
anlega uppstokkun og breyttar
væntingar um hagnað Microsoft.
Mikil viðskipti vora að baki lækkun-
inni en 156 milljón hlutir skiptu um
hendur. Það er þriðja mesta velta
með hlutabréf bandarísks félags á
einum degi frá upphafi, að því er
fram kom í Morgunkorni FBA í gær.
Lækkun á bréfum Microsoft olli
tíundu mestu lækkun á Nasdaq-vísi-
tölunni sem orðið hefur á einum degi
frá upphafi. Önnur tæknifyrirtæki
fóra því ekki varhluta af lækkun á
bréfum Microsoft. Nasdaq-vísitalan
hefur nú lækkað um rúmlega 30%
frá þeim toppi sem hún náði 10.
mars, tæpum 5.049 stigum. Sérfræð-
ingar notuðu fyrsta tækifæri á
mánudaginn til að lækka mat sitt á
hlutabréfum Mierosoft sem fjárfest-
ingarkosti en sjóðstjórar vora á báð-
um áttum og töldu sumir þeirra
lækkunina gefa gott kauptækifæri.
Gengi hlutabréfanna fór allt niður í
65 dollara á mánudag sem er hið
lægsta síðan árið 1998. Um miðjan
dag í gær var gengið farið að þokast
upp á við og komið í rúma 68,75 doll-
ara á hlut. Gengið fór upp í tæpa 120
dollara í desember síðastliðnum.
Bill Gates rétt svo ríkasti
maður heims
Miðað við markaðsgengi bréfa
Microsoft á mánudag era hlutabréf
Bill Gates, aðaleiganda Microsoft,
49,4 milljarða dollara virði. Upphæð-
in samsvarar tæpum 3.600 milljörð-
um íslenskra króna. Fyrir fjóram
mánuðum nam markaðsvirði eignar-
hlutar Gates tæpum 89 milljörðum
bandaríkjadala eða tæpum 6.500
milljörðum króna. Bill Gates hefur
þó ekki misst titilinn „ríkasti maður
heims“ en heldur honum naumlega,
að því er fram kemur á fréttavef
BBC. Gates hefur fjárfest í öðram
fyrirtækjum og byggist auður hans
því ekki eingöngu á Microsoft, en
hann á 15% hlutafjár í fyrirtækinu.
Aðrar fjárfestingar Gates era um 35
milljarða bandaríkjadala virði, um
2.500 milljarða króna, og nægja til að
halda honum í efsta sæti auðkýfinga
heimsins. Helsti keppinautur Gates
er Larry Ellison, aðaleigandi tölvu-
fyrirtækisins Oracle. Hlutabréf hans
í Oracle era 48 milljarða bandaríkja-
dala virði eða um 3.500 milljarða
króna en gengi á hlutabréfum Oracle
hefur hækkað um 544% síðastliðið
ár, að því er fram kemur á fréttavef
BBC.
©
Sálfræðistöðin
Námskeið
Sjálfsþehking - Sjálfsönyggi
A námskeiðinu kynnast þátttakendur:
• Hvaða persónulegan stíl þeir hafa í samskiptum
• Hvernig má greina og skilja samskipti
• Hvernig ráða má við gagnrýni
• Hvernig finna má lausnir í árekstrum
• Hvernig læra má samskipti sem auka sjálfsöryggi
Leiðbeinendur eru sálfræðingarnir
Álfheiður Steinþórsdóttir og Guðfinna Eydal
Innritun og nánari upplýsingar í símum
Sálfræðistöðvarinnar 562 3075 og 552 1110 frá kl. 11-12
Miele
uppþvottavélin
- einstök hnifaparagrind efst i vélinni.
- hljó>íátari en flú hef>ir fLora> a> vona.
- afkastar 20% meira en sambæríLegar vélar.
ara a
Miele
fmæli
í tilefni af 100 ára
afmæli Miele hafa Eirvík
og Miele ákveðið að efna til
happadrættis. í verðlaun er
hinn glæsilegi Mercedes-
Benz A-lína frá Ræsi.
EIRVIK,
Suðurlandsbraut 20 - 108 Reykjavík - Sími 588 0200 - www.eirvik.is