Morgunblaðið - 26.04.2000, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 26.04.2000, Blaðsíða 36
36 MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 2000 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Hvít Jónsmessunótt Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Mesta athygli vakti þó eflaust um fimm metra há krínólína og pils Títan- íu álfadrottningar, en undir því pilsi fór ýmsu fram, segir m.a. í umfjöll- uninni. LEIKLIST ÞjóAleíkhilsiA DRAUMURÁ JÓNS- MESSUNÓTT Höfundur: William Shakespeare. ís- lensk þýðing: Helgi Hálfdanarson. Leikstjóri: Baltasar Kormákur. Lcikarar: Atli Rafn Sigurðarson, Bergur Þór Ingólfsson, Bessi Bjarnason, Bjöm Jömndur Frið- bjömsson, Brynhildur Guðjónsdótt- ir, Guðrún S. Gísladóttir, Gunnar Eyjólfsson, Herdís Þorvaldsdóttir, Hilmir Snær Guðnason, Nancy Ko- ne Panthasis, Róbert Arafinnsson, Rúnar Freyr Gíslason, Stefán Karl Stefánsson og Steinunn Ólína Þor- steinsdóttir. Leikmynd: Vytautas Narbutas. Búningar: Vytautas Nar- butas og Filippía I. Elísdóttir. Lýs- ing: Páll Ragnarsson. Listrænn samstarfsmaður leikstjóra og dans- höfundur: Aletta Collins. Tónlist: Skárren ekkert. Hljómsveit: Eirík- ur Þórleifsson (kontrabassi), Frank Þórir Hall (gítar), Guðmundur Steingrímsson (harmonika), Guð- mundur Hafsteinsson (trompet). Stóra sviðið, fimmtudagskvöldið 20. apríl. ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ hélt upp á fimmtugsafmælið sitt með pomp og prakt á sumardaginn fyrsta og lauk afmælisveislunni með frumsýningu á Draumi á Jónsmessunótt eftir Shakespeare í leikstjóm Baltasars Kormáks. Valið á verkinu er í alla staði gott því hér er um að ræða eitt af skemmtilegri leikverkum klass- ískrar leiklistarsögu auk þess sem það gefur leikstjóranum, og öðmm listamönnum sem að sýningunni koma, mikið svigrúm í framsetningu og túlkun þar sem Shakespeare þurrkar mjög ákveðið út mörk draums og veruleika í leiknum og gefur fantasíunni lausan tauminn. Verkið er þannig sannkallaður draumur leikhúslistamanna enda þykir efni þess og margræðni skír- skota mjög til eðlis leikhússins sjálfs og þeirrar listar sem þar er framin. Sú staðreynd að verkið gerist öðr- um þræði „úti í skógi“ í draumaver- öld þar sem álfar og önnur óræð kvikindi ráða ríkjum opnar túlkunar- rými textans upp á gátt og það hafa ýmsir leikstjórar nýtt sér í gegnum tíðina, eins og rakið er í ágætri grein Melkorku Teklu Ólafsdóttur í leik- skrá. Eigi að síður skapaðist snemma á 19. öld ákveðin hefð í uppsetningu sem ríkt hefur sem viðmið allt fram á okkar daga og leggjast frávik frá þeirri hefð misjafnlega í menn, eins og gengur og gerist. Hin hefðbundna sýn á verkið er af rómantískum toga, ákveðin sveitasælustemmning ríkir í skóginum, álfamir eru bams- og trúðslegir og Bokki fjörugur hrekkjalómur. Dans- og tónlistara- triði eru ætíð stór hluti af hinni hefð- bundnu uppfærslu og þónokkur íburður í leikmynd og skógurinn lauf- mikill og raunsæislegur. Eitt fræg- asta „uppbrot" á þessari hefð er sýn- ing breska leikstjórans Peters Brooks sem hann setti upp í heima- bæ Shakespeares árið 1970. í skógar stað var komin einföld, hvít og kassa- laga sviðsmynd, sem vakti að vonum mikla athygli, og uppfærslan þótti taka mið af sirkuslist. Vera kann að ýmislegt í sýningunni sem hér um ræðir sé vísun í þessa frægu sýningu Brooks. Það kemur ekki á óvart að Baltas- ar Kormákur og hans ágæta sam- starfsfólk leiti nýrra leiða í túlkun og umgjörð leiksins. Hann hefur lýst þeirri skoðun sinni að í leikhúsinu verði „stöðugt að leita hins óþekkta", svo vitnað sé til viðtals í leikskrá, og jafnframt hefur hann gengist við áhrifum Litháans Rimas Tuminas á leikstjómaraðferð sína, en leikhús- gestir minnast eflaust flestir áhrifa- ríkra (og umdeildra) uppsetninga hans í Þjóðleikhúsinu á undanfömum ámm. Baltasar Kormákur fer allt aðra leið að Draumi á Jónsmessunótt en hann gerði þegar hann sviðsetti Hamlet fyrir þremur ámm. Þá valdi hann að taka mið af samtímanum og gerði það m.a. með tónlist, búningum og leikrænum áherslum. Engar slík- ar samtímaskfrskotanir er um að ræða að þessu sinni; enda hefur hið draumkennda og ævintýralega efni verksins yfir sér ákveðið tímaleysi. Leikmynd Vytautas Narbutas og búningar þeirra Filippíu Elísdóttur hafa einnig yfir sér yfirbragð tíma- leysis og reyndar má segja að í leik- myndinni sé gerð tilraun til að leysa upp rými ekki síður en tíma. Hér er enginn skógur heldur alhvítt rými sem er afmarkað af færanlegum langborðum, púðum og slæðum. Allt er þetta hvítt og eins er um flesta búninga, aðeins bætt við bleiku, fjólubláu og gulu og gylltu hjá ein- staka persónu. Mikið er því undir lýs- ingu Páls Ragnarssonar komið en hún bregður ljósi og lit á sviðið en þó er afar sparlega með litinn farið. Þó sviðið verði á stundum mjög fagurt á að líta í tærleika hvíta litarins og fögrum formum slæðna og tjalda þá eru heildaráhrifin fremur „steril" og vinna fremur á móti hinum „litríka“ og auðuga texta Shakespeares/Helga Hálfdanarsonar. Þótt búningamir séu einhæfir hvað litaval snertir bæta búningahönnuðir það upp með sundurgerð í efnum og formum. Mesta athygli vakti þó eflaust u.þ.b. fimm metra há krínólína og pils Tít- aníu álfadrottningar, en undir því pilsi fór ýmsu fram. Vera kann að ýmsum finnist ég hafa verið full langorð um hinn ytri umbúnað sýningarinnar en fyrir því er gild ástæða: Það er umbúnaðurinn sem er í aðalhlutverki í þessari sýn- ingu. Mjög fáir leikarar njóta sín að marki pakkaðir inn í þessi hvítu tjöld og púða, skríðandi undir og ofan á borðum. Hinn gáskafulli texti allt að því týnist á köflum, því umbúðimar bera efnið ofurliði hvað eftir annað. Sýningin verður furðu máttlaus á köflum, mjög ólíkt Hamlet-upp- færslu sömu listrænu stjómenda sem einkenndist af hrífandi krafti og orku. Ágæt tónlist Skárren ekkert bætti hér lítið úr skák. Hún hefði að mínu mati mátt vera fjömgri. Á stundum unnu texti, umgjörð og tónl- ist svo illa saman að furðu vakti, t.a.m. í öðm atriði sýningarinnar (fyrsta atriði leikritsins eins og það er skrifað). Þá ber að geta um þann þátt sýn- ingarinnar sem er undanskilinn flestu því sem hér hefur verið sagt að ofan og það er þáttur „leikritsins í leikritinu", þáttur handverksmann- anna og þeirra kostulega leiksýning. Öll útfærsla á þessum þætti verksins var óborganlega skemmtileg og ágætlega til fundið hjá leikstjóra að láta sýninguna hefjast á þeirra þætti. Hér er það elsta kynslóð leikara hússins sem fer á kostum: Gunnar Eyjólfsson, Bessi Bjamason, Róbert Amfinnsson og Herdís Þorvaldsdótt- ir. Hinir tveir fyrsttöldu slógu í gegn í frábæmm kómískum töktum sín- um, enda bjóða þeirra rallur upp á rneiri kómík en rallur hinna tveggja. Ekki er ástæða til að kvarta sér- staklega yfir frammistöðu hinna yngri leikara hússins og margir unnu afbragðsvel úr sínum hlutverkum. Sérstaklega má geta Stefáns Karls Stefánssonar í hlutverki Bokka. Hér er bragðið skemmtilega á leik með hlutverkið, hinar dekkri hliðar Bokka ýktar og dregið úr þeim ærslameiri. Raddbeiting Stefáns Karls vakti furðublandna aðdáun á köflum. Aðrir leikarar stóðu sig ágætlega, en ég held að leikstjórinn hefði mátt leggja meiri rækt við pers- ónusköpun hvers og eins og jafnvel raddbeitingu stöku leikara því, eins og áður sagði, vildi textinn stundum týnast eða kafna í umgjörðinni. Miklar væntingar hafa verið til þessarar afmælissýningar Þjóðleik- hússins og leikhússstjóri á heiður skilinn fyrir að leyfa tilraunum að blómstra innan veggja hússins. Þessi sýning er hins vegar nokkuð mistæk og stendur kannski ekki undir öllum væntingunum. Hún er eigi að síður athyglisverð og vel þess virði að leggja leið sína í Þjóðleikhúsið til að sjá hana. Soffía Auður Birgisdóttir Kór MR syngur í Lista- safni Islands KÓR Menntaskólans í Reykjavík heldur sína árlegu vor- tónleika í kvöld, miðvikudagskvöld, í Listasafni Islands. Á efnisskrá era þjóðlög frá ýmsum löndum nær og fjær, madrígalar og íslensk kórlög. Eins og undanfarin ár flytur kórinn eitt stærra verk og í ár hafa nemendur MR æft „Missa brevis í D-dúr“ eftir W.A. Mozart. I verkinu leika nemendur skólans á strengjahljóðfæri. Einnig syngja kunnir einsöngvarar með kórnum, Ólöf Kolbrún Harðardóttir, Björk Jónsdótt- ir, Guðlaugur Viktorsson og Bergþór Pálsson. Eftir tónleikana fara kórsöngvararnir í hefðbundin vorpróf en að þeim loknum fer kórinn í tónleikaferð til Kaupmannahafnar. Stjómandi kórsins er Marteinn H. Friðriksson. Kór Menntaskólans í Reykjavík syngur í Listasafni Siguijóns Ólafssonar í kvöld. f ' f ' t á, gkt Jórukórinn á vortónleikum JÓRUKÓRINN heldur fyrri vortónleika sína miðvikudaginn 26. apríl kl. 20.30 í sal Fjölbrautaskóla Suðurlands. Tónleikarnir verða með kaffihúsasniði eins og undan- farin ár. Seinni tónleikar kórsins verða haldnir í Selfosskirkju föstudaginn 5. mai kl. 20.30. Sextett skipaður kórfélögum syngur nokkur lög á báðum tónleikunum. Á tónleikunum er boðið uppá fjöl- breytta dagskrá innlendra og erlendra laga, auk þess sem flutt vcrður syrpa þekktra Abba-laga (útsetningu Helenu R. Káradóttur, stjórnanda kórsins. Undir- Ieikarar eru Þórlaug Bjarnadóttir, pi'anó, Helgi E. Kristjánsson, píanó, Óðinn Burkni Helgason, bassi, og Ólafur Þórar- insson, gítar. Jórukórinn mun taka þátt í sameigin- legum tónleikum með fjórum öðrum kvennakórum í Skálholtskirkju laugar- daginn 29. aprfl kl. 16. Vetrarstarfi kórs- ins lýkur með tónleikum í sal Tónlistar- skóla Hafnarfjarða laugardaginn 6. maí ásamt Kvennakór Hafnarfjarðar og Kvennakórnum Ljósbrá í Rangárvalla- sýslu. Mosfells- kórinn í Islensku óperunni ÁRLEGIR vortónleikar Mosfells- kórsins verða haldnir í Islensku óperanni í kvöld, miðvikudags- kvöld, kl. 20:30. Stjórnandi kórsins er Páll Helgason. Kórinn er bland- aður kór og flytur tónlist sem ekki er talin hefðbundin kórtónlist. Lög á efnisskrá eru m.a. How deep is your love (Bee Gees), Dancing Queen (Abba), Fagra blóma (fær- eyskt lag og texti), Hver minning um þitt bros (The shadow of your smile), I’m gonna sing (gospel), Ástarljóð (Perhaps Love), Proud Mary o.fl. en mörg af lögum kórs- ins að þessu sinni eru helguð ást- inni. Einsöngvarar kórsins eru þær Ann Andreasen og Kristín Runólfsdóttir, sem báðar starfa í kórnum. Mosfellskórinn var stofn- aður fyrir 12 árum af áhugafólki um létta tónlist og hefur sungið ýmsa swing- og rokkstandarda í gegnum árin. Páll Helgason hefur stjórnað kórnum frá upphafi. Miðar verða seldir við inngang- inn og kosta 1.200 kr., aðgangur er ókeypis fyrir börn yngri en 12 ára.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.