Morgunblaðið - 26.04.2000, Side 44

Morgunblaðið - 26.04.2000, Side 44
44 MIÐVTKUDAGUR 26. APRÍL 2000 J Rauðir dagar Hvorki varhægt að kaupa í matinn, fara út að borða né sækja söfn eða kvik- myndahús. Það varhvergi hægt að kaupa sig nokkurs staðar inn á almennum frídegi. Við slikt ástand leiddistsumu fólki hins vegarsvo að búa að til vandræða horfði. Dugnaður hefur lengi talist til dýrustu dyggða í þessu landi. Stundum hef- ur jafnvel verið litið fram hjá óþrifnaði, siðleysi og smekkleysi í skjóli vinnuseminnar - ef hægt er að segja um mann- eskju í eftirmælum að henni hafi aldrei fallið verk úr hendi, þá er orðstír hennar borgið. Vinnusemi er dyggð en iðjuleysi löstur og leti svo sannarlega synd. Þetta var enn einu sinni staðfest í niðurstöðum VIÐHORF könnunar sem Hagstofan kynnti nýlega. Þar kom í Ijós að 157.300 Eftir Sigurbjörgu Þrastardóttur manns eru starfandi á íslenskum vinnumarkaði, sem er 4% aukning frá fyrra ári, og þetta fólk vinnur lengur en áður hefur þekkst. Vinnustundir í viðmiðunarvikunni voru 44,2 klukkustundir, tæplega fimmtíu mínútna lenging frá við- miðunarvikunni í aprfl í fyrra. Þar sem hér er um að ræða meðallengd vinnutíma má ljóst vera að margir vinna lengur en níu tíma á degi hverjum - eru með öðrum orðum ailtaf í vinnunni. Af sjálfu leiðir að frídagar hljóta að koma slíku fólki í opna skjöldu. Þeir vita ekkert hvað á að gera við níu tíma frí á degi sem líkams- klukkan segir að sé vinnudagur. Vandamál þetta verður hvað áþreifanlegast yfir páska, þar sem saman koma óheyrilega margir frídagar í röð. Mörgum hreinlega leiðist yfir páskana og vita ekkert hvað þeir eiga af sér að gera. Af fréttaflutningi að dæma eru sumir þó duglegri en aðrir að finna sér eitthvað til dundurs. Einhverjir nota páskaleyfið til þess að brenna sinu, brjótast inn, sveifla hnífum eða ganga í skrokk á liggjandi rnörmum. Svo eru aðrir sem fara á skíði og enn aðrir sem ganga til kirkju. Allt þetta fólk ratar í fréttimar því um páska gerist ekkert annað fréttnæmt, enda lokað hjá Alþingi og Verð- bréfaþingi (og hjá múrurum en þeir eru líka alltaf í fríi, eins og góður maður sagði þegar hann heyrði fyrst um Frímúrararegl- una...). Ekkert gerist sem sagt á skrif- stofum og stofnunum svo dögum skiptir og sumum þykir þvi helst til undarlegt að hafa lokað á slík- um stöðum um páska. Það eru þeir sem muna ekki að í eina tíð var allt lokað á páskum. Rétt eins og allt var lokað flesta aðra rauða daga á almanakinu. Hvorki var hægt að kaupa í matinn, fara út að borða né sækja söfn eða kvik- myndahús. Það var hvergi hægt að kaupa sig nokkurs staðar inn á almennum frídegi. Við slíkt ástand leiddist sumu fólki hins vegar svo að búa að til vandræða horfði. Því gerðist það að starfsfólk í sjopp- um, veitingastöðum, kvikmynda- húsum og víðar tók sig til og fór að mæta í vinnuna á helgidögum til þess að hafa nú eitthvað fyrir stafni. Og fyrst það var á annað borð opið fór almenningur að mæta líka því það var ómögulegt að láta þetta starfsfólk sitja að- gerðalaust í vinnunni sinni. Önnur útgáfa af þessari sögu er þannig að fyrirtæki hafi neyðst til þess að opna á frídögum vegna eftirspurnar almennings. Sú skýr- ing verður þó að teljast hæpnari því ef almenningi bjóðast dagar sem veita honum lausn frá hinu slítandi og krefjandi hlutverki neytandans hlýtur hann að taka slíku boði fagnandi. Honum dettur varla í hug upp á eigin spýtur að heimta að afþreyingarmiðstöðvar bæjarins verði opnaðar, þvert á helgi daganna. I hjarta sínu veit umræddur al- menningur nefnilega að það er gott að hafa einhveija daga á ári sem eru öðruvísi en hinir. Þeir gefa náttúrubömum færi á að komast út í sveit, þeir gefa vinnu- fíklum færi á að lækka í verkefna- bunkanum, þeir gefa letingjum færi á að sofa út. Þeir fá mann tfl þess að hugsa um aðra hluti, hugsa öðruvísi, jafnvel hugsa ekki neitt, sem er ekíd verra en hvað annað. Maður hugsar þá kannski af meiri krafti á eftir. Frídagar eru þannig sérstakir í sjálfu sér, þó ekki væri nema vegna þess að þeir gera virku dag- ana sérstaka að sínu leyti. Þeir bjóða upp á öðruvísi mynstur en gerist og gengur og tilbreytingin getur falist í ýmsu; ferðalagi, heimsóknum, afslöppun, tiltekt, skrúðgöngu, sólbaði eða jafnvel gluggaþvotti. Það þarf eiriri stór- brotna ráðagerð tfl þess að fá hvfld frá hversdagslegu amstri, jafnvel smávægileg breyting á dagleið getur rofið doðann, lítið verk sem krefst nýrrar líkams- beitingar getur hreyft við nýjum taugum. Til þessa brúks höfum við góðu heilli páska, jól, áramót, sumar- daginn fyrsta, sautjánda júní, fyrsta maí, fyrsta des., upp- stigningardag, hvítasunnu, frídag verslunarmanna og alla sunnu- daga ársins, ef út í það er farið. Auðvitað eiga allir þessir dagar sér önnur og merkari tilefni og þeim er sjálfsagt að fagna eftir at- vikum eftir því sem hugur stendur til. En hlutverk rauðu daganna er líka að brjóta upp þéttan vef end- urtekninga og amsturs sem hver og einn spinnur í kringum sig þangað til hann fær sig ekki leng- ur hrært. Þessi virkni hefur að sönnu far- ið fram hjá þeim sem reglulega rísa upp og leggja til að almennum frídögum verði fækkað þar sem þeir séu þjóðhagslega óhagkvæm- ir. Því er til að svara að frí getur verið líkamlega og ekki síður and- lega hagkvæmt og það hlýtur að skila sér í aukinni velferð þegn- anna. Það hafa allir gott af því að taka sér frí, ekld síst þeir sem halda að vinnan, námið eða leik- skólinn sé lífið sjálft. Að fá gefins nokkra daga á ári til þess að sofa út, klæða sig uppá, labba út í buskann, velja sér fé- lagsskap, láta sér leiðast, faðma fjölskylduna, vaka frameftir - það hlýtur að gera öllum gott og vera þjóðhagslega hagkvæmt þegar á allt er litið. MORGUNBLAÐIÐ _________UMRÆÐAN________ Endurnýjun og vöxtur einkabifreiðaflotans HIN mikla fjölgun einkabifreiða á götum höfuðborgarsvæðisins og annarra sveitarfé- laga landsins undanfar- in ár hefir vart /arið fram hjá neinum. Á ein- ungis fjórum árum hefir einkabifreiðum lands- manna fjölgað um lið- lega fjórðung eða úr 119 þúsundum í árslok 1995 í 151 þúsund í lok liðins árs. Þetta tímabil hefur nýskráning einkabif- reiða farið stöðugt vax- andi eða úr tæpum sjö þúsundum á árinu 1995 í Uðlega sautj- án þúsund á síðasta ári. Á fyrmefndu tímabili hafa á hveiju ári verið af- skráðar á milli fjögur þúsund og sex hundruð og sjö þúsund og átta hundr- uð bifreiðir. Til frádráttar þeim reikn- ast endurskráðar bifreiðar er hafa ár- lega numið nokkrum hundruðum. Raunveruleg afskrift er því afskrift að frádreginni endurskráningu. Bættur efnahagur almennings og greiðari aðgangur að lánsfjármagni hafa stuðlað að auknum innflutningi nýrra bifreiða, almennt lækkandi verði notaðra bifreiða og aukinni af- skráningu gamalla bifreiða þannig að bifreiðir sem þóttu rekstrarhæfar áð- ur eru það ekki lengur vegna lækk- andi fjármagnskostnaðar nýlegra bif- reiða. Innflutningnr einkabifreiða undanfama áratugi Á meðfylgjandi línuriti sést hvem- ig bifreiðainnflutningur hefur ein- kennst af sveiflum allt frá seinni heimsstyijöldinni þar sem skipst hafa á tímabil milrils innflutnings sem síð- an hefir lokið með mismiklum sam- drætti í lengri eða skemmri tíma þótt langtíma leitni hafi verið til stöðugs vaxtar. Árið 1947 var lengi í minnum haft vegna kaupmáttar sem átti rætur sín- ar að rekja til hás raungengis krón- unnar. Eitt af einkennum þess var mikill innflutningur bifreiða sem síð- an tók snöggan endi þegar gjaldeyris- sjóður eftirstríðsáranna var uppur- inn. Næsta skeið milrils innflutnings bifreiða var árið 1955 þegar rýmkað var um hann til tekjuöflunar fyrir rík- issjóð. Strax á næsta ári dróst bif- reiðainnflutningur hins vegar vem- lega saman. Með viðreisninni jókst verslunarfrelsi sem leiddi tíl veru- legrar aukningar bifreiðainnflutnings fram á árið 1966 en lauk þremur árum síðar eftir að íslenska krónan hafði fallið um helming eftir tvær gengis- fellingar haustin 1967 og 1968 vegna samdráttar útflutnings sjávarafurða sökum aflabrests og verðfalls ýmissa frystra afurða. Strax á árinu 1970 var innflutningur bifreiða orðinn milrill og fór vaxandi fram á árið 1974 þrátt fyr- ir olíukreppuna fyrri því viðskipta- kjör héldust hagstæð. I bakseglin sló með versnandi viðskiptakjörum árið 1975 og samdrætti þjóðartekna. Árið 1978 hafði innflutningur náð fyrra hástigi að mestu. í kjölfarið fylgdu tvö slök ár og loks önnur tvö í Ifldngu við metárið 1974. Aftur sló í bakseglin árið 1983 þegar innflutningur einka- bifreiða minnkaði vegna þess mis- gengis sem myndaðist á milli launa og verðlags við afnám verðbótavísitölu sem var liður í aðgerðum stjómvalda til stöðvunar víxlhækkana þeirra. Ár- in 1986 til 1988 jókst innflutningur einkabifreiða gríðarlega. Á því tíma- bili nam hann alls um 70 milijörðum króna á núgildandi verðlagi. Verður hann rakinn til stóraukins kaupmátt- ar og lækkunar aðflutningsgjalda varanlegra neysluvara. Árið 1989 minnkaði innflutningur einkabifreiða um helming að raun- gfldi frá árinu áður og hélst svipaður frá ári tfl árs allt fram tfl ársins 1996 ef undan er skilið árið 1991. Frá árinu 1996 tfl ársloka 1999 nam innflutning- ur einkabifreiða um áttatíu og fimm miljörðum króna á verðlagi hvers árs. Þar af er talið að verð- mæti nýrra einkabif- reiða árið 1999 hafi ver- ið hátt á þriðja tug milljarða króna. Endurnýjunarþörf bifreiðaflotans Skiptar skoðanir eru um árlega endumýjun- arþörf einkabifreiða- flotans. Meðalaldur hans er um 8,2 ár miðað við skráningarár. Til sam- anburðar er álitið að meðalaldur einkabif- reiða nágrannaþjóða okkar sé nokkru lægri eða 7,5 ár. At- hugun á meðalævi bifreiðaflotans hef- ir þó leitt í ljós að hún sé ríflega tvö- faldur meðalaldur stofnsins, er þá miðað við úrfall allra bifreiða sem vom á skrá í árslok 1995 til 1999. Það sem ræður mestu um að meðalaldur- inn er nokkm lægri en hálf meðal- ævin em hinir hlutfallslega stóra ár- gangar undanfarinna ára sem valda því að flotinn hefir verið að yngjast og einnig hvemig afskriftir taka breyt- ingu með ámnum. Úrfall elstu bif- reiðanna í könnuninni lýtur sérstöku lögmáli þar sem um fombifreiðir er að ræða og notkun þeirra og umhirða með öðrum hætti en annarra. Samkvæmt reynslu áranna 1995 til 1999 er úrfall bifreiða fyrstu fimm ár eftir skráningu nánast ekkert eins og fram kemur á mynd 2. Þótt nokkuð sé um stórtjón slíkra bifreiða em þær yfirleitt viðgerðarhæfar en sú hæfni minnkar með aldri samhliða því að bifreiðir falia í verði. Samkvæmt reynslu má búast við að í lok 10. árs frá skráningu séu enn um áttatíu af hundraði einkabifreiða á skrá. Þetta hlutfall fer þó hratt lækkandi eins og sést á mynd 2. í lok tólfta árs ættu enn að vera um sextíu af hundraði bif- reiða eftir á skrá. Á næstu árum hverfa önnur tuttugu af hundraði en í lok átjánda árs frá skráningu er um einn fimmti hluti einkabifreiða í rekstri sem kemur nokkuð vel heim og saman við það að nú em um fjórtán hundmð bifreiðar á skrá af árgerð 1981 en sú árgerð var um sjö þúsund og fjögur hundrað bifreiðar í ársbyrj- un 1982. Bílar Fullvíst má telja, segir Kristjón Kolbeins, að nú sé að draga verulega úr innflutmngi einkabifreiða. Ef litið er til reynslu liðinna ára, má gera ráð fyrir að á þessu ári verði af- skráð nokkuð á áttunda þúsund bif- reiða. Flestar af árgerðunum 1987 og 1988 eða um fimmtán hundrað bif- reiðir af þeirri fyrri og ellefu hundmð af þeirri síðar en alls vora eftir á skrá um tuttugu og þrjú þúsund bifreiðir þessara árgerða í lok liðins árs. Á fyrstu þremur mánuðum þessa árs hefir nýskráning bifreiða dregist saman um níu af hundraði frá fyrra ári, um tólf af hundraði í marsmánuði einum. Fullvíst má telja að nú sé að draga veralega úr innflutningi einkabifreiða og búast megi við slökum innflutningi nokkur komandi ár miðað við fyrri reynslu. Það sem helst bendir til þess að bifreiðainnflutningur muni minnka er fram líða stundir er hversu bif- reiðaeign er orðin almenn eða um fimm hundruð og fjöratíu bifreiðir í eigu hverra þúsund íbúa landsins. I annan stað era íslensk heimili orðin afar skuldsett á alþjóðlegan mæli- kvarða og farið að reyna á þanþol þeirra. I þriðja laga má gera ráð fyrir að uppsafnaðri innflutningsþörf áranna 1992 tfl 1995 hafi nú verið fulinægt. Gæðabreytingar, bæði bifreiða, rekstrarvara og vegakerfis auk rekstrarkostnaðar hafa áhrif á inn- flutning bifreiða. Að lokum er inn- flutningur bifreiða næmur fyrir breyttu efnahagsástandi. Þótt þær raddir hafi heyrst að erlend skulda- söfnun sé fyrst og fremst vandi fyrir- tækja og einstaklinga er óljóst hversu lengi sá halli erlendra viðskipta sem nú er, geti varað og hvort ráðist verði gegn honum með aðgerðum sem dragi úr innlendri eftirspum og að- gengi lánsfjár. Höfundur er viðskiptafræðingur. Kristjón Kolbeins

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.