Morgunblaðið - 26.04.2000, Síða 53

Morgunblaðið - 26.04.2000, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 2000 5 3 ------------------------< MINNINGAR KRISTIN SIGUR- BJÖRNSDÓTTIR + Kristín Sigur- björnsdóttir fæddist 28. febrúar 1921 að Fremra Nýpi i Vopnafírði. Hún lést á Landspítalanum mánudaginn 17. apríl síðastliðinn. Hún var dóttir hjónanna Sig- urbjörns Arngríms- sonar, bónda á Fremra Nýpi,_ og Guðbjargar Olafs- dóttur, konu hans. Systkini hennar voru Óskar sem bjó á Höfn í Hornafirði, Málfríður sem búsett var í Minne- sota í Bandaríkjunum og Margrét Ollý sem bjó í Reykjavi"k. Þau eru öll látin. Kristín giftist Friðriki Kristjáni Sigfússyni 3. október 1946 og eignuðust þau dótturina Olmu Díiv/d . Ingev Ó/nfuv Útfnrarstj. Utfararstj. Útfararstj. LÍK KISTUVIN NUSTO FA EYVINDAR ÁRNASONAR Karen 27. janúar 1947 en hún lést 25. nóvember 1994. Alma giftist Jóni Andrési Snæland og eignuðust þau þrjú börn, þau heita Kristín Guðbjörg, Friðrik Kristján og Sigurbjörn Arnar. Kristín og Friðrik eignuðust einnig son sem fæddist and- vana 1948. Kristín ólst upp á Norðfirði og Seyðisfirði. Hún vann m.a. á sjúkra- húsinu og apótekinu á Seyðisfirði. Kristín og Friðrik bjuggu lengst af í Keflavík. Þar vann hún í apó- tekinu um nokkurra ára skeið. Kristín verður jarðsungin frá Fossvogskapellu í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Ég kynntist elskulegri tengda- móður minni 1965 er við hjónin byrj- uðum að vera saman. Mér var strax tekið eins og einum í fjölskyldunni. Ég kom í fyrsta skipti til þeirra er þau bjuggu á Háaleitisbrautinni í Reykjavík. Þá var ég hálf uppburð- arlítill en mér var strax boðið inn í eldhús í kaffi og þar leið mér strax vel, enda einstaklega vel tekið á móti mér. Strax og við Alma vorum búin að trúlofa okkur var farið að huga að búskap og hvöttu þau hjónin okkur til að kaupa okkur frekar íbúð heldur en að fara að leigja. Stóðu þau dyggi- lega við hliðina á okkur þegar við keyptum okkar fyrstu íbúð í Hafnar- firði. Þá fæddist okkur þar elskuleg dóttir sem að sjálfsögðu var látin heita Kristín í höfuðið á ömmu sinni. Annað fannst okkur ekki koma til greina. Fljótlega fluttu Kristín og Friðrik aftur til Keflavíkur og skömmu síðar fluttum við einnig þangað. Við bjuggum í sama húsi og þau í þrjú ár. Þar fæddist okkur son- ur sem að sjálfsögðu var skírður í höfuðið á afa. Það var mikil gæfa að fá að vera undir sama þaki og tengdaforeldrar mínir á þessum tíma því að tengdamamma var ein- staklega blíð og góð við okkur öll á neðri hæðinni og sóttum við mikið til hennar og Friðriks. Bömin gátu ekki fengið betri ömmu. Hún var þeim einstaklega ljúf og góð alla tíð. Þegar Sigurbjöm fæddist vora hann og Alma mikið veik. A þeim tíma vora börnin okkar hjá afa sínum og ömmu í nokkra mánuði og nutu mikillar hlýju. Margar yndislegar stundir áttum við saman, t.d. í sumar- bústaðnum sem þau hjónin áttu við Þingvallavatn, við veiðimennsku og aðra útivera. Oft fóram við saman í ferðalög og m.a. dvöldum við nokkr- um sinnum í bústað Tollvarðafélags Islands í Munaðamesi og áttum ynd- islega daga þar. Þá má ekki gleyma laxveiði þeirra hjóna en hún var þeim mikil ástríða. Þau nutu þess í hvívetna að veiða í góðum laxveiði- ám, víða um land. Yfirleitt var sum- arfríið notað í laxveiðina. Fljótlega eftir að ég kynntist tengdaforeldram mínum var ég drifinn í laxveiði. Ég komst þó aldrei með tæmar þar sem hún Kristín hafði hælana, enda hafa gamlir laxveiðimenn sagt mér að ef það væri bara einn lax í ánni myndi hún veiða a.m.k. tvo! Laxveiðin var það sem hún saknaði mest eftir að Friðrik dó og heilsan fór að gefa sig. Hún bætti sér það upp með því að horfa á laxveiðiþættina í sjónvarp- inu. Arið 1987 dimmdi yfir tilvera hennar er Friðrik tengdapabbi lést snögglega á leið heim úr vinnu. Þau ætluðu að fara í sumarfrí þann sama dag. Eftir lát Friðriks hugsaði Alma einstaklega vel um móður sína og gerði allt sem hægt var til að gleðja hana. Eftir að Alma lést tók ég að mér það hlutverk og reyndi að vera henni eins hjálplegur og hægt var. Stína tengdamamma mín var mér eins og móðir og sakna ég hennar mikið en veit að í dag er hún hinum megin í faðmi fjölskyldu sinnar sem hún hefur saknað mikið. Guð blessi minningu þeirra allra. Jón A. Snæland. Nú er Stína amma horfin á braut og við systkinin rifjum upp liðnar stundir. Alltaf var vel tekið á móti okkur þegar við komum til ömmu. Hún var alveg einstök húsmóðir. Aldrei sást rykarða hjá henni og allir sem hafa smakkað kökurnar hennar vildu fara aftur í kaffi til hennar. Gaman var það að börnin hans Frið- riks kölluðu hana: amma sem býr til kökumar! Við eigum öll eftir að sakna þess að kíkja í heimsókn og spjalla við ömmu yfir Ijúffengum veitingum. Fyrstu minningar Krist- ínar og Friðriks era af Hringbraut- inni þar sem við bjuggum á neðri hæðinni. Það var einstaklega þægi- legt að tipla upp á efri hæðina til að athuga hvað var í matinn svo maður gæti reynt að sníkja sér bita ef það var áhugaverðara en maturinn hjá mömmu. Einnig læddist maður oft upp eftir matinn til að fá eftirrétt hjá ömmu því það klikkaði aldrei að maður gæti fengið Ijúffengan graut eða súpu í eftirrétt ef maður bað vel. Við munum einnig eftir risastóra jólatrénu sem var alltaf í hominu á bakvið hurðina inn í stofuna. Maður stóð orðlaus og horfði upp eftir trénu í lotningu. Amma hafði engla hang- andi neðst í jólatrénu og enn þann dag í dag finnst okkur engin jól án þess að hafa engla neðst í trénu. Þeg- ar við höfðum verið úti að leika var gott að kíkja til ömmu og fá mandar- ínur og kandís. Við fórum oft á sumr- in í sumarbústaðinn við Þingvalla- vatn og undum okkur þar hið besta. Stundum fengum við að veiða með afa og ömmu og varð þá að hafa al- veg þögn sem gat reynst krakka- ormum erfitt. Aldrei dirfðist maður samt að trufla fiskana fyrir ömmu. Við munum líka vel eftir Citroénin- um sem hægt var að hækka og lækka. Þetta fannst okkur eins og að vera í tívolí, rosa spennandi. Afi og amma fengu sér litasjónvarp á und- an okkur og það var ákaflega spenn- andi að fara í heimsókn og horfa á Prúðuleikarana í lit. A jólunum feng- um við alltaf ákaflega veglegar gjafir frá afa og ömmu. Það var mikill spenningur að opna þær og aldrei brást það að eitthvað spennandi væri þar að finna. Eftir að við urðum full- orðin leyndust ýmsir nytsamlegir og ákaflega smekklegir munir í pökk- unum. Það var ákveðinn spenningur að opna pakkana frá ömmu því inni- haldið var ávallt vel metið og kom að góðum þörfum. Ömmu var mjög um- hugað um Sibba vegna þess hve hann hafði verið veikur þegar hann var lítill. Þá hafði amma mikið yndi af ferðinni sem Sibbi, pabbi, mamma og hún fóra hringinn í kringum land- ið 1988. Amma hafði ákaflega mikið yndi af afskornum blómum og þá sérstaklega rósum. Það besta sem maður gat gefið henni var blómvönd- ur. Enginn gat látið þau lifa eins lengi og hún. Nú er hún komin til afa, sonar síns, mömmu, foreldra sinna og systkina og við eram sannfærð um það að hún er ánægð. Við munum sakna hennar mikið en huggum okk- ur við það að einn góðan veðurdag munum við öll hittast aftur. Þín bamabörn Kristín (Stína), Friðrik og Sig- urbjöm (Sibbi) og fiölskyldur. t Ástkær eiginkona mín, INGUNN ÞORVARÐARDÓTTIR, Grænugötu 12, Akureyri, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri, föstu- daginn langa, 21. apríl. Fyrir hönd barna og annarra aðstandenda, Kristján Einarsson. t Elskuleg móðir mín, GUÐBJÖRG ÁRNADÓTTIR, sem lést þriðjudaginn 18. apríl, verður jarðsungin frá Langholtskirkju fimmtudaginn 27. april kl. 13.30. Harpa Guðmundsdóttir. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, NJÁLL INGJALDSSON, Hagamel 33, Reykjavík, lést á Landspítalanum miðvikudaginn 19. apríl. Útför fer fram frá Neskirkju miðvikudaginn 3. maí ki. 13.30. Hjördís Jónsdóttir, Edda Njálsdóttir, Örn Kr. Arnarson, Sigrfður Hulda Njálsdóttir, Gunnar Guðni Tómasson, Laufey Ása Njálsdóttir, Helga Bestla Njálsdóttir, Ragnheiður Njálsdóttir, Þóra Hrönn Njálsdóttir, Guðrún Njálsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. Baldvin Valtýsson, Björn Hermannsson, Magnús R. Dalberg, Sigurjón Pétursson, t Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, systir, mágkona og amma, GUÐRÚN PÉTURSDÓTTIR, Naustahlein 30, Garðabæ, lést á líknardeild Landspítalans laugardaginn 22. apríl. Útför hennar fer fram frá Dómkirkjunni föstu- daginn 28. apríl kl. 15.00. Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Krabbameinsfélagið. Guðmundur Rafn Guðmundsson, Ásdís Guðmundsdóttir, Jón Bjarnarson, Pétur Guðmundsson, Hólmfríður Ómarsdóttir, Guðmundur Kr. Guðmundsson, Svanlaug Sigurðardóttir, Magnús Karl Pétursson, Ingibjörg Pétursdóttir og barnabörn. t Ástkær móðir mín, systir okkar og mágkona, KRISTÍN ÁSTHILDUR LÚTHERSDÓTTIR, Bæjartúni 6, Kópavogi, andaðist á St. Jósefsspítala, Hafnarfirði, föstudaginn 21. apríl. Snorri Kjartansson, Ingibjörg Árnadóttir, Svava Lúthersdóttir, Jón Lúthersson, Petrea Lúthersdóttir, Óli Lúthersson, Svana Svanþórsdóttir, Pétur Lúthersson, Brigitte Lúthersson. + Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, THEODÓRA M. STELLA GRÍMSDÓTTIR, Stórholti 32, Reykjavík, andaðist á Landakotsspítala mánudaginn 24. april sl. Ágústa Hjálmtýsdóttir, Hafsteinn Sigurðsson, Hjálmtýr Hafsteinsson, Stephanie Smith, Ágúst Hafsteinsson, Anna Jóhannesdóttir, Theodóra Stelia Hafsteinsdóttir, Bergur Sandholt, Hafsteinn Sv. Hafsteinsson, Sigurlaug K. Jóhannsdóttir og barnabörn. t Móðir okkar, ÁSTA STEINGRÍMSDÓTTIR frá Vestmannaeyjum, síðast til heimilis á Lindargötu 57, Reykjavík, andaðist á páskadag. Útför hennar verður gerð frá Seltjarnarnes- kirkju miðvikudaginn 3. maí kl. 15.00. Blóm og kransar afþakkaðir, en bent á Heimahlynningu Krabbameins- félags islands. Arnar og Hermann Einarssynir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.