Morgunblaðið - 26.04.2000, Síða 54

Morgunblaðið - 26.04.2000, Síða 54
54 MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 2000 J3-------------------------- MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ SIGRIÐUR ÁSGEIRSDÓTTIR + Sigríður Ásgeirs- ddttir fæddist í Hnífsdal 17. maí 1921. Hún lést á Landspítalanum 15. apríl síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Ásgeir Krist- jánsson, f. 14. maí 1891, d. 15. desember 1964, og Rannveig Vilhjálmsdóttir, f. 7. september 1900, d. _ 21. mars 1991. Syst- 'f kini Sigríðar eru Guðrún, f. 1920, d. 1995; Gunnrún, f. 1922, d. 1989; Margrét Vilhelm- ína, f. 1924, d. 1925; sveinbarn óskírt, f. 1925, d. sama ár; Krist- ján, f. 1926; Guðni Jóhannes, f. 1930; Margeir, f. 1931, d. 1993; Jón, f. 1933, d. 1953; Hinrik, f. 1937; Elenóra, f. 1942, og Halldór, f. 1943. Sigríður giftist 13. nóvember 1945 Kristjáni V. Jóhannessyni, f. 5. október 1922, foreldrar hans voru Jóhannes Andrésson, f. 25. júní 1894, d. 3. desember 1978, og Jóna Ágústa Sigurðardóttir, f. 1. TÖ* Elsku amma, þá ertu farin frá okkur eftir mjög erfið veikindi síð- ustu daga. Ég vona að þú hafir það gott þar sem þú ert, þvi þú átt aðeins það besta skilið. Ég hef síðustu daga hugsað mikið til baka og rifjað upp öll þau sumur sem ég dvaldi hjá þér og afa á Flateyri en þau voru ófá á uppeldisárum mínum. Alltaf var jafn gaman að koma til ykkar afa og að sama skapi var erfitt að kveðja ykkur þegar sumarið var búið en jýað var oft ansi fljótt að líða. Ég á erfitt með að lýsa þakklæti fyrir að vera svo heppinn að fá að dvelja hjá þér og afa á sumrin því það var mér ómetanleg lífsreynsla sem aldrei gleymist. Elsku amma mín, ég þakka fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig og guð geymi þig. Elsku afí og aðrir ástvinir, megi guð gefa okkur styrk í sorginni og varðveita allar minningar um ömmu í hjarta okkar. Margt er það og margt er það sem minningamar vekur, og þær eru það eina sem enginn frá mér tekur. (Davíð Stef.) Sævar Þór Ásgeirsson. janúar 1897, d. 9. janúar 1981. Sigríður og Krist- ján ólu upp tvo fóst- ursyni: 1) Jóhannes Jónsson, f. 1944, kona hans Sigrún Sigurðardóttir, f. 1947, börn þeirra Helga Bjarklind, f. 1964, maður hennar Guðmundur Bender og eiga þau þrjú börn. Elísabet, f. 1966, maður hennar Óðinn Eymundsson og eiga þau tvö börn. Kristján Vigfús, f 1973, sambýlis- kona hans Guðrún Svava Sveins- dóttir og eiga þau tvö börn. 2) Ás- geir Magnússon, f. 1948, kona hans Svanfríður Sigurðardóttir, f. 1950, þeirra synir Kristján Vig- fús, f. 1972, Sævar Þór, f. 1975, sambýliskona Anna María Vald- imarsdóttir og á hann tvö börn, Guðmundur, f. 1981, Ásgeir, f. 1983. Útför Sigríðar fór fram frá ísa- fjarðarkirkju laugardaginn 22. apríl og jarðsett var í kirkjugarð- inurn í Hnifsdal sama dag. Elsku amma á Flateyri. Núna ertu komin þangað sem allir fara á endanum. Þú varst búin að vera mikið veik síðustu vikur og varst á sjúkrahúsi í Reykjavík síðustu daga ævi þinnar og þegar mamma hringdi í mig laugardagsmorguninn 15. apríl og sagði mér að þú hefðir dáið um nóttina setti mig hljóðan og hugurinn reikaði aftur í tímann. Þau voru ófá sumrin sem ég var hjá þér og afa vestur á Flateyri. Ég hlakk- aði alltaf til þegar skólanum lauk á vorin svo ég gæti komist vestur til ykkar og róið á trillunni hans afa og man ég vel eftir þegar þú ræstir okkur snemma á morgnana til að fara á sjóinn búin að búa til vel úti- látið nesti handa okkur svo við yrð- um ekki svangir þann daginn. Og margar sögurnar sem þú sagðir mér eru mér enn í fersku minni. Það var oft mikið brallað á Flateyri og sér- staklega þegar Kristján frændi var þar líka en við vorum ábyggilega ekki auðveldustu barnabörn sem hægt var að hafa en þú hafðir góð tök á okkur og oft þurftirðu að ná í okkur niður á bryggju, þar sem við vorum að veiða, til að koma okkur í bælið. + Vegna okkar ástkæru NÍNU BJARKAR ÁRNADÓTTUR verður sálumessa í Landakotskirkju fimmtu- daginn 27. apríl kl. 13.30. Ari Gísli Bragason, Sigríður Hjaltested og Ragnheiður Björk Aradóttir, Valgarður Bragason, Ragnar ísleifur Bragason, Bragi Kristjónsson, Lára Hólmfreðsdóttir, Ólafur Þór Árnason, Halldór Gísli Guðnason. Elskulegur sonur okkar, bróðir og mágur, ÞÓRÓLFUR ALVIN GUNNARSSON, Höfðabraut 19, Hvammstanga, lést á heimili sínu fimmtudaginn 20. apríl. Jarðarförin auglýst síðar. Gunnar Þorvaldsson, Unnur Elva Gunnarsdóttir, Gréta Jósefsdóttir, Þorsteinn Austri Björnsson. Það var oft gestkvæmt á Ránar- götu 3 og þá sá maður að þú varst höfðingi heim að sækja og sást til þess að enginn fór svangur út frá þér. Ég þakka þér fyrir allar stundirn- ar sem við áttum saman. Minning- arnar eru ótal margar og verða allt- af hjá mér svo lengi sem ég lifi. Og langar mig að koma með þessa bæn sem þú fórst oft með áður en þú breiddir ofan á mig sængina á kvöldin. Vertu yfir og allt um kring, með eilífri blessun þinni. Sitji guðs englar saman í hring, sænginni yfir minni. Ég bið guð að styrkja afa og okk- ur hin í þessari sorg. Amma, blessuð sé minning þín. Kristján Ásgeirsson. „Er amma þá komin til Guðs?“ spurðu langömmubörnin þegar þeim var sagt að hún amma á Flat- eyri væri dáin. Og svo sannarlega er hún hjá Guði, en minningin um ömmu lifir í hjörtum okkar því hún gaf okkur svo mörg tilefni til að gleðjast. A hverju vori, þegar síðasta próf- inu í skólanum lauk, var eitthvert okkar komið um borð í flugvél og á leið vestur til ömmu og afa þar sem svo gott var að vera. Svo gott að þegar við vorum orðin það fullorðin að við máttum velja á milli þess að fara til sólarlanda með foreldrum okkar eða fara vestur til ömmu og afa, þá var það engin spurning í okkar huga, við völdum Flateyri, þar sem við vorum alltaf aðalpers- ónurnar. Einhvern veginn tókst ömmu allt- af að draga fram það besta í okkur enda eru eflaust ekki margar ömm- ur sem bretta upp buxnaskálmarn- ar og vaða með barnabörnin út í sjó eða troða þeim upp í efstu hillu í fataskáp þegar þau vantar stað til að fela sig í feluleik, skellihlær þeg- ar barnabörnin vaða inn á renn- blautum stígvélum og segist hafa allan veturinn til að þrífa upp óhreinindin. Og margir eru þeir eflaust mar- hnútarnir og kolarnir sem hún amma setti í frystikistuna til að gleðja ungu veiðimennina sem höfðu verið að dorga á bryggjupoll- anum, allt þetta datt henni ömmu á Flateyri í hug að gera og ótal margt fleira sem eflaust væri efni í heila barnabók. Við systkinin erum þakk- lát og rík af svo góðum minningum um ömmu og hennar verður sárt saknað. Elsku afi, megi góður Guð styrkja þig í sorg þinni. Helga, Elisabet og Kristján. Okkur systurnar langar til þess að minnast Siggu ömmu og kveðja góða konu sem átti stóran þátt í bernsku okkar. Sigga amma sagði oft að hún hefði „stolið“ okkur með því að venja okkur á, strax á fyrstu æviárum okkar, að kalla hana ömmu. En í huga okkar var hún sannarlega Sigga amma, gædd öll- um þeim kostum sem lítið barn get- ur hugsað sér í fari ömmu. Leið okk- ar systra lá oft vestur á firði til Flateyrar og fyrst í stað nutum við jólanna á Ránargötunni hjá ömmu og afa. Þegar sú hefð var lögð niður leið ekki það sumar í bernsku okkar að við færum ekki til Flateyrar og nutum samvistar við Ijúfa og hjarta- hlýja konu, sem tók því með jafnað- argeði þótt litlar stelpur kæmu sjó- blautar heim, jafnvel þrisvar sama daginn. Þegar við fengum að vera hjá ömmu og afa á Ránargötunni og amma var ekki að vinna í frystihús- inu þá hófst dagurinn á gönguferð. Fyrst lá leiðin niður á Oddatá þar sem nokkrum steinum var kastað í sjóinn og kerlingum fleytt ef veðrið var gott. Því næst var Kamburinn genginn með viðkomú hjá Rönku og púddunum hennar sem auðvitað fengu eitthvað gott í gogginn, amma sá fyrir því. Hún gætti þess einnig að eiga eitthvað að gefa lömbunum í hlíðinni og hrafninum, og fleiri fer- fætlingar, hundar og kettir, nutu góðs af matarleifum gærdagsins. Sigga amma kenndi okkur þannig að vera góðar við dýrin og bera virð- ingu fyrir lífinu í heild sinni. Stund- um lá leiðin í átt að kartöflugörðun- um í hlíðinni en þar fengu húsrústir það hlutverk að vera fyrrverandi hýbýli „Gíslinu gömlu“. Sigga amma sagði okkur oft söguna af þeirri mis- skildu konu sem hafði það hlutverk í samfélaginu að hirta óþekk börn sem brúkuðu munn við foreldra sína og við systurnar þreyttumst aldrei á að heyra þessa sögu. Sigga amma hafði þannig einstakt lag á að gæða þúfur og steina lífi með því að gefa þeim eitthvert hlutverk og gera þannig umhverfið í huga barnsins ævintýri líkast. Gönguferðin endaði gjarnan í fjörunni og ef við fundum fallegar skeljar þá tókum við þær heim til þess að raða þeim í kringum sumarblómin í garðinum, „ef kind- urnar höfðu þá ekki étið þau á með- an við vorum í burtu“ eins og amma sagði stundum. Þessar minningar auk margra annarra sækja á þegar við hugsum til ömmu okkar og við erum Guði þakklátar fyrir að hafa fengið að njóta samvistar við konu sem var svo næm á barnssálina og bar virð- ingu fyrir henni. Hún gætti einnig alltaf að barninu í sjálfri sér og miðlaði stórkostlegri upplifun sinni af lífinu sem fallegu ævintýri til okkar systra. Slíkt er gott veganesti fyrir ungar mæður í dag og það þökkum við Siggu ömmu. Blessuð sé minning hennar. Elsku afi, við samhryggjumst þér innilega og biðjum góðan Guð að vera með þér. Guðný og Sigríður. Amma. Ég man hvað mér þótti alltaf gaman að fara til ömmu og afa á Flateyri, þetta var fastur liður á sumrin hjá okkur bræðrunum. Amma, manstu þegar afi var í vinn- unni og við sátum í stofunni og spil- uðum Rakka og Rússa? Það sem við gátum spilað. Og þegar þú náðir í mig niður á bryggju og fullyrtir að ég væri búinn að veiða alla mar- hnútana í höfninni. Eftir að þið afi voruð flutt á ísa- fjörð var alltaf jafngaman að koma til ísafjarðar og keppa við KFÍ vit- andi það að maður mundi ekki koma að tómum kofunum á Hlíf, það var nóg að hringja á undan sér og mað- ur gat búist við stórsteik þegar maður leit inn til ykkar svona rétt áður en maður flaug suður aftur. Amma, manstu þegar ég kom til ykkar um páskana þegar skíða- svæðið þurrkaðist út á einni nóttu? Ég man hvað okkur tveim fannst það ferlegt að ég gæti ekki skíðað þarna aftur í bráð, en það var ekki grátið Björn bónda heldur bara gripið í spil. Amma, við tvö eigum ótal skemmtilegar minningar sem ég mun muna svo lengi sem ég lifi og ég veit að þú munt geyma þínar hjá þér. Það er sorglegt að núna muni vanta helminginn í ömmu og afa á Flateyri sem búa á ísafirði. Ég vil biðja Guð að vera með afa í þessari sorg og styrkja hann og okkur hin. Amma, ég mun sakna þín. Guðmundur Ásgeirsson. Ég ætla að fljúga vestur í dag. Það verður samt öðruvísi í dag. Ég er ekki full af tilhlökkun og ég mun ekki sjá inn á Flateyri áður en við lendum með augun full af tárum af gleði yfir því að ég sé komin í sum- arfrí til Siggu frænku og Stjána frænda. Nú er ég víst orðin stór og hætt að geta leikið mér í ástkærum faðmi þeirra alveg ábyrgðarlaus. Ég mun samt aldrei gleyma hvað þau hjónin dekruðu við mig og voru mér einstök alla tíð. Frænka alltaf í góðu skapi, alltaf góð og sagði aldrei styggðaryrði um nokkurn mann. Þegar ég mætti var hún allt- af búin að kaupa Cocoa puffs því hún vissi hvað mér þótti það gott og ég var búin að borða svo mikið af því þegar ég fór heim að mér var sama þótt ég fengi það ekki allan veturinn á eftir. Það var ekki bara líkamlega næringin sem maður var fylltur af meira en góðu hófi gegndi, það var líka sú andlega, og þá er ég ekki að tala um Beethoven eða Bach heldur okkur og tilver- una. Ég veit ekki hvað ég hafði frænku margar stundir þolinmóða frammi á baðherbergi og ég var að greiða henni og setja rúllur í hár hennar og ekki há í loftinu, en hún lét sér alltaf vel líka og sagði að ég ætti að verða hárgreiðsludama. Fyndin var frænka líka alltaf og með kímnigáfuna í lagi eins og þeg- ar hún hrinti mér í sjóinn, „bara af því að ég ló svo vel við“. Af öllu góðu sem frænka var finnst mér þó bera af og hafa verið hennar aðalsmerki hvernig hún tal- aði og kom fram við háa sem lága þannig að allir fundu til sín og leið afskaplega vel í návist hennar. Þessa kærleiksríku, góðu og skemmtilegu frænku kveð ég með miklum trega en veit þó ef Guð er til hvar hún er. Elsku frændi, ég votta þér og fjölskyldu þinni mína dýpstu samúð. + Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, dóttir, tengdadóttir, systir, mágkona og frænka, KRISTÍN ÞORSTEINSDÓTTIR, Viðarrima 44, Reykjavík, verður jarðsungin frá Háteigskirkju föstu- daginn 28. apríl og hefst athöfnin kl. 13.30. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á sjóð í minningu hennar nr. 60-90-10, Islandsbanka Kringlunni. Pálmar W. Magnússon, Hólmfríður Hulda Pálmarsdóttir, Sigfríður Arna Pálmarsdóttir, Jóhanna Wium Pálmarsdóttir, Ingibjörg Anna Pálmarsdóttir, Hólmfríður S. Jakobsdóttir, Þorsteinn S. Jónsson Sigfríður Pálmarsdóttir, Magnús Wíum Vilhjálmsson, systkini og fjölskyldur. Eiginmaður minn, + JAMES J. BALAMENTI, andaðist föstudaginn 19. apríl f Phönix, Arizona. Helga Kristjánsdóttir Balamenti. Kristín Sigríður.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.