Morgunblaðið - 04.07.2000, Blaðsíða 6
6 þriðjudaglír 4. j ui-ii isouu
MORGUNBLABIÐ
FRÉTTIR
Forseti fslands opnar sýningu Vesturfarasetursins um ferðir mormóna til Utah
Morgunblaðið/Júlíus
„Hofsósveður“ var þegar fjöldi gesta frá Utah auk íslenskra fagnaði opnun sýningar á
ferðum íslenskra mormóna til Utah í lok síðustu aldar.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti íslands, nýtur aðstoðar J. Brent Haymond, heiðursræðis-
manns íslands í Utah og Valgeirs Þorvaldssonar, framkvæmdastjóra Vesturfarasetursins.
Hofsósi. Morgunblaðið.
NÝJUM áfanga í uppbyggingu
Vesturfarasetursins á Hofsósi var
fagnað í gær, opnun sýningarinnar
Fyrirheitna landið sem fjallar um
ferðir íslenskra mormóna til Utah.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti
Islands, opnaði sýninguna sem er í
nýjum húsakynnum Vesturfaraset-
ursins, Frændgarði, við höfnina á
Hofsósi.
Sýningin er samstarfsverkefni
Vesturfarasetursins, Byggðasafns
Skagfirðinga og íslendingafélags-
ins í Utah. Auk ráðherra, þing-
manna og annarra íslenskra gesta
var viðstaddur opnun hennar tæp-
lega 60 manna hópur fólks af ís-
lenskum ættum frá Utah, þar á
meðal forystumenn Islendingafé-
lagsins, einnig forystumenn mor-
mónakirkjunnar, trúboðar og hóp-
ur íslenskra mormóna.
Fram kom við athöfnina í gær
að eftir að Ólafur Ragnar Gríms-
son, forseti íslands, var viðstaddur
100. íslendingadaginn í Spánska
forki í Utah fýrir þremur árum
hafi komist á samband milli Islend-
ingafélagsins og Vesturfaraseturs-
ins. Gat Valgeir Þorvaldsson, for-
stöðumaður Vesturfarasetursins,
þess að athöfnin væri ekki síður til
að minnast nýrra sambanda vestur
um haf en fagna nýjum áfanga í
uppbyggingu setursins. Valgeir
líkti samstarfinu yfir hafið við
undirbúning sýningarinnar við
brúargerð. Smíðin hafi hafist frá
Konur féllu af hestbaki
og slösuðust alvarlega
TVÖ slys urðu um helgina þegar
konur féllu af hestbaki og slösuðust
mikið. Hið fyrra varð á laugardags-
kvöld, skammt frá Blönduósi. Kona
var flutt, höfuðkúpubrotin, með
þyrlu Landhelgisgæslunnar til
Reykjavíkur. Seinna slysið átti sér
stað á sunnudagskvöld við bæinn
Vorsabæjarhjáleigu í Gaulverja-
hreppi. Konan sem féll af baki var
flutt á Heilbrigðisstofnun Selfoss og
síðan sótt af þyrlu Landhelgisgæsl-
unnar og flutt á sjúkrahúsið í Foss-
vogi. Á gjörgæsludeild fengust þær
upplýsingar í gær að henni væri
haldið sofandi í öndunarvél.
á árunum 1852 til 1914 fluttu yfir
400 íslendingar til Utah. Rakin er
sagan af erfiðu ferðalagi fyrstu ís-
Iensku Utah-faranna yfir sjó og
land og lífi þeirra og afkomenda
þeirra vestra fram til þessa dags.
Hönnuður sýningarinnar, Árni
Páll Jóhannsson, vann að verkefn-
inu í samvinnu við Sigríði Sigurð-
ardóttur, safnstjóra Byggðasafns
Skagfirðinga og fuiltrúa íslend-
ingafélagsins í Utah. Ýmsar upp-
lýsingar og munir koma frá Utah,
meðal annars stór afsteypa af
styttunni Kristur eftir Bertel
Thorvaldsen en minni afsteypur
sjást víða á heimilum mormóna. Þá
er á sýningunni gyllt stytta af
englinum Mormoni sem vitraðist
Josep Smith en hún er tákn mor-
mónakirkjunnar.
I Frændgarði, hinu nýja húsi
Vesturfarasetursins, verður auk
sýningaraðstöðu ættfræðisetur,
bókasafn og fjölnotasalur.
báðum endum fyrir um það bil ári
og nú hafi smiðirnir mæst í miðj-
unni. Þakkaði hann samstarfs-
mönnum sínum í Utah fyrir að-
stoðina, svo og iðnaðarmönnum,
listamönnum og öðrum sem að
undirbúningnum komu.
J. Brent Haymond, heiðursræð-
ismaður Islands í Utah, sagði að
tvennt hefði ávallt sameinað þá
410 íslendinga sem Iögðu í erfítt
ferðalag frá fslandi til Utah undir
lok síðustu aldar, trúin á Krist og
ástin á Islandi. Það hafi afkomend-
ur þeirra einnig gert. Rolfe Kerr,
forseti norðaustursvæðis Kirkju
Jesú Krists hinna síðari daga heil-
ögu í Evrópu, David Asby, for-
maður Islendingafélagsins í Utah
og Jón Baldvin Hannibalsson,
sendiherra fslands í Banda-
ríkjunum, ávörpuðu samkomuna
og Sigrún Magnúsdóttir, varafor-
maður borgarráðs Reykjavíkur,
afhenti Vesturfarasetrinu styttu
Einars Jónssonar af Þorfinni
karlsefni til varðveislu í eitt ár.
Styttan hefur staðið fyrir utan
Hrafnistu.
Þorfinnur var frá Höfða á
Höfðaströnd og lagði upp frá Hofs-
ósi þegar hann fiutti til Amerfku
og Snorri sonur hans var fyrsta
evrópska barnið sem þar fæddist.
Óskráður kafli
Islandssögunnar
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti
Islands, sagði að sá kafli íslands-
sögunnar sem tekinn væri fyrir á
sýningunni hefði ekki enn verið
skráður af íslenskum fræðimönn-
um eða viðurkenndur af forystu-
mönnum þjóðarinnar eða
kirkjunni. Sagði hann það vel við
hæfi að daginn eftir íslensku
kristnihátíðina væri heiðruð minn-
ing þess fólks sem yfírgaf Island af
trúarástæðum, fólks sem lengi hafi
verið gagnrýnt og fordæmt fyrir
brottförina. Sagði forsetinn að
sýningin væri fyrsta tilraunin til
að sýna Islendingum þessa merku
sögu.
Á sýningunni Fyrirheitna landið
er sagt frá ferðum Islendinga til
Utah þar sem þeir námu land á
slóðum mormóna. Fram kemur að
Fyrsta tilraunin til
að segja merka sögu
Morgunblaðið/Eggert Jóhannesson
ÍSLAND
Kortabók
Máls og menningar
er ómissandi
í bílinn
• Nákvæm landshlutakort
• Hentug blaðskipting
• Fjöldi þéttbýliskorta
• Söfn og sundlaugar
• ítarleg nafnaskrá
Mál og menning j
malogmonnlng.is I
Laugavegi 18 • Sími 515 2500 • Sfðumúla 7 • Sfmi 510 2500
KORTABÓK
ROAO ATtAS
STRAÖIÍNATtAS
ATIAS ROUTIER
1 : 500 000
Sumarbústaður brann til grunna í Húsafelli á sunnudag og voru eldsupptök rakin til óboðinna gesta.
Olæti og ölvun í
Húsafelli um helgina
MIKIÐ var um að vera í Húsafelli
um helgina og minnti ástandið á
„venjulega stóra íslenska útisam-
komu,“ eins og lögreglan í Borgar-
nesi orðaði það. Að mati lögreglunn-
ar voru gestir í það minnsta á sjötta
þúsund en gert er ráð fyrir að svæð-
ið ráði með góðu móti við 3-4.000
manns í sumarbústöðum og á fjöl-
skyldutjaldsvæði. Tjaldað var niður
með flugvellinum og golfvellinum
auk hefðbundinna tjaldstæða.
Fjöldi gesta kom lögreglu og að-
standendum svæðisins í opna
skjöldu. Fimm lögreglumenn voru á
vakt og höfðu að sjálfsögðu í nógu að
snúast en erfiðlega gekk að fá aðstoð
úr öðrum lögregluumdæmum, þar
sem umframlið hafði verið lánað til
ríkislögreglustjóra vegna kristnihá-
tíðar. Einhverjir björgunarsveita-
menn voru þó kallaðir á vettvang.
Ölvun var almenn og voru 14 öku-
menn teknir fyrir meintan ölvunar-
akstur. Lögreglan tók einnig bfllykla
af mörgum ökumönnum. Mikið var
um slagsmál og að sögn lögreglu var
engu líkara en hópur unglinga stæði
að skipulegum árásum á fólk. Ekki
tókst að hafa hendur í hári þeirra.
Bifreið fór út af veginum skammt
frá Borgarnesi snemma á sunnu-
dagsmorgun með þeim afleiðingum
að farþegi kastaðist út og lærbrotn-
aði. Töluvert var um önnur umferð-
aróhöpp, mörg tengd ölvunarakstri.
Sumarbústaður brann
til kaldra kola
Þá brann sumarbústaður í Húsa-
felli til grunna á sunnudaginn. Að
sögn lögreglu er talið að eldsupptök
megi rekja til fólks sem dvaldi í bú-
staðnum í óleyfi. Ekki liggur fyrir
hvort íkveikjan var viljandi en lög-
reglu vantar upplýsingar um máls-
atvik. Slökkvilið kom fljótt á vett-
vang en náði ekki að bjarga
bústaðnum frá því að brenna til
kaldra kola. Mannfjöldi safnaðist við
brunann og hafði að sögn gaman af.