Morgunblaðið - 04.07.2000, Blaðsíða 16
16 ÞRIÐ JUDAGUR 4. JÚLÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Morgunblaðið/Kristj án
Sverrir Haukur Gunnlaugsson ráðuneytisstjtíri í utanríkisráðuneytinu
t.h. heilsar upp á Sigurð Steinar Ketilsson skipherra á Tý.
Morgunblaðið/Kristján
Veðrið lék við erlendu gestina í Eyjafirði í gær en hér eru þeir komnir um borð í varðskipið Tý á Akureyri en
skipið sigldi með hópinn til Hríseyjar og Dalvíkur.
Fulltrúar erlendra ríkja
í heimsókn í Eyjafírði
TÆPLEGA 50 erlendir sendiherr-
ar og sendifulltrúar, makar og aðr-
ir gestir, alls rúmlega 80 manns,
heimsóttu Eyjaljörð í gærmorgun í
blíðskaparveðri. Sverrir Haukur
Gunnlaugsson ráðuneytisstjóri í ut-
anríkisráðuneytinu fór fyrir hópn-
um en á Akureyri kynntu gestirnir
sér starfsemi nokkurra fyrirtækja
og Háskólans á Akureyri.
Frá Akureyri var haldið upp úr
hádeginu til Hríseyjar með varð-
skipinu Tý, þar sem gestimir skoð-
uðu sig um. Frá Hrísey var haldið
til Dalvíkur þar sem fýrirtæki vom
heimsótt auk þess sem gestimir
þáðu kaffi bæjarstjómar Dalvíkur-
byggðar áður en haldið var aftur
til Akureyrar. Þar bauð bæjar-
stjórn Akureyrar gestum til kvöld-
verðar á Hótel KEA en hópurinn
hélt svo aftur til Reykjavíkur í
gærkvöld.
Að sögn Guðna Bragasonar
protókollstjóra í utanrfldsráðu-
neytinu em tíu sendiráð í Reykja-
vík, þannig að flestir sendiherrar
og sendifulltrúar erlendra ríkja á
íslandi sem hér eru á ferð, em með
aðsetur í öðmm löndum. Guðni
sagði að heimsóknin að þessu sinni
tengdist kristnitökuhátíðinni. Á
laugardag var dagskrá fyrir gest-
ina í Reykjavík en á sunnudag fóru
þeir til Þingvalla. Á morgun mun
svo hluti hópsins verða við setn-
ingu Iandsmóts hestamanna í Víði-
dal í Reykjavík og sagði Guðni að
breski sendiherrann á íslandi,
James McCulloch, myndi taka þátt
í hópreið við setningu mótsins.
Stressið
burtí
Nauðsynlegt í
nuddpottinní
Éjheilsuhúsið
Skólavöröustíg, Kringlunni og Smáratofgi
Fjölmenntí
Vaglaskógi
MIKIL mannfjöldi var saman kom-
inn í Vaglaskógi í Fnjóskadal um
nýliðna helgi. Að sögn Ketils
Tryggvasonar umsjónarmanns
svæðisins vom 1000-1200 manns í
skóginum þegar mest var um helg-
ina. Veðrið lék við gesti svo um
munaði og vom þeir flestir mjög
léttklæddir frá morgni og fram á
kvöld. Kctill sagði að allt hafi farið
vel fram og gestir verið til fyrir-
myndar en þó hafi lögreglan þurfti
að hafa einhver afskipti af ung-
lingum á svæðinu.
Morgunblaðið/Kristján
Fagnrtón-
leikar í
Deiglunni
FAGURTÓNLEIKAR verða í
Deiglunni á Akureyri þriðjudaginn
4. júlí kl. 20. Jóna Fanney Svavars-
dóttir syngur við undirleik Láru S.
Rafnsdóttur.
Dagskráin sem þær flytja er
blönduð og þar má nefna þýsk ljóð,
íslenskar og skandinavískar perlur,
aríur og söngleikjalög. Aðgangseyrir
1.000 kr.
Rólegt hja lögreglu
HELGIN var með rólegasta móti í
umdæmi lögreglunnar á Akureyri
og áfallalaus en þó voru nokkuð
margir teknir fyrir að stíga of fast
á bensíngjöfina, eða á milli 50 og
60 ökumenn frá því á föstudag.
Lögreglan var með hert eftirlit á
þjóðvegum við Akureyri og því
voru óvenju margir teknir fyrir
hraðakstur á svæðinu. Mikil um-
ferð var til og frá Akureyri um
helgina.
Morgunblaðið/Kristján
Saga Jónsdóttir í hlutverki sínu í sýningunni um Skækjuna Rósu.
„Skækjan
Rósa“ til
Færeyja
AÐSTANDENDUR leiksýning-
arinnar Skækjan Rósa, eftir José
Luis Martín Descalzo, hafa þegið
boð um sýna verkið í Norður-
landahúsinu í Færeyjum og verð-
ur sýningin í Þórshöfn þann 18.
júlí nk.
Verkið er einleikur og fer Saga
Jónsdóttir með hlutverk skækj-
unnar Rósu. Sýningin fékk mikið
lof gagnrýnenda og áhorfenda en
frumsýning var í febrúar sl. í
Samkomuhúsinu á Akureyri.
Leikstjóri er Helga E. Jónsdóttir,
leikmynd og búninga gerði
Edward Fuglö sem er einn af
þekktustu myndlistarmönnum
Færeyinga af yngri kynslóðinni.
Ömólfur Árnason þýddi leikritið
úr spænsku. Lýsingu hannaði
Ingvar Bjömsson og hljóðmynd
Kristján Edelstein. Þetta er sam-
starfssýning leikhópsins Norðan-
ljósa og Leikfélags Akureyrar.
Sækjan Rósa segir frá vændis-
konu sem býr ein á háalofti í
gömlu hórahúsi sem búið er að
loka. Rósa hefur stóra styttu af
Kristi inni hjá sér og segir stytt-
unni frá draumum sínum, sorgum
og ástinni í lífi sínu. Rósa talar
einnig tæpitungulaust um prest-
ana og nunnunar sem hún hefur
ekki mikið állit á. Þrátt fyrir erf-
iða ævi er Rósa lífsglöð og kraft-
mikil og gamansemin er ekki
langt undan.
Höfundurinn var prestlærður
en vann sem ritstjóri stærsta
blaðsins í Madrid í mörg ár. Einn-
ig var hann heimspekingur og vel
þekktur í heimalandi sínu, Spáni.