Morgunblaðið - 04.07.2000, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 2000 29
LISTIR
Partítur í Lista-
safni Sigurjóns
Christopher Czaja Sager píanóleikari.
CHRISTOPHER Czaja
Sager píanóleikari kemur
fram á tónleikum í Lista-
safni Sigurjóns Olafsson-
ar sem helgaðir eru
Johanni Sebastian Bach í
kvöld, þriðjudagskvöld,
kl. 20.30. Christopher
leikur verk úr Die Kla-
vierúbung: Partíta I í b-
dúr, BWV 825, Partíta II
í c-moll, BWV 826 og Par-
títa III í a-moll, BWV
827.
Christopher Czaja Sag-
er sem er af enskum og
pólskum ættum er fædd-
ur í New York. Hann hóf
nám í píanóleik hjá
Frances Moyer Kuhns
sem hafði verið nemandi
hjá hinum frægu píanó-
leikurum Cortot og Matt-
hay. Framhaldsnám
stundaði hann meðal ann-
ars hjá Emil Danenberg
sem var aðstoðarmaður
Arnolds Schoenberg.
Ungur vann Christop-
her Czaja Sager til fjölda
verðlauna og hlaut meðal annars
styrk, kenndan við Van Cliburn, til
að stunda nám við Juilliard-skól-
ann.
Eftir vel heppnaða debut-tón-
leika í Lincoln Center í New York
fluttist Christopher til Vínarborg-
ar en þar tók hann meðal annars
þátt í námskeiðum hjá Paul Bad-
ura-Skoda, Alfred Brendel og Jörg
Demus sem leiddi til þess að hann
hlaut styrki til að vinna að list
sinni og vera í framhaldsnámi.
Christopher hefur hlotið mikið
lof gagnrýnenda bæði í Evrópu og
Bandaríkjunum. Virtur þýskur
gagnrýnandi, Gottfried Eberle,
komst þannig að orði í Der Tages-
spiegler. „Hinn óvenju gáfaði
píanóleikari Christopher Czaja
Sager sem kemur frá Bandaríkj-
unum hlaut menntun sína þar sam-
kvæmt bestu tónlistarhefðum og
hjá honum sameinast öll þau gildi
sem eru orðin sjaldgæf hjá hans
kynslóð: Fullkomin tækni sem er
eðlileg undirstaða fyrir leik hans
en umfram allt frjóar hugmyndir
um hið ljóðræna og sérkenni klass-
ísku píanóverkanna frá 19. öld.
Það þýðir að túlkun hans hefur
margar víddir og að í leik sínum
ræður hann yfir ótrúlegum sveigj-
anleika sem leyfir tónlistinni að
lifa og anda í stórum dráttum."
Hann hefur leikið einleik undir
stjórn þekktra stjórnenda, til
dæmis James Levin, Leif Seger-
stam og Dirk Vermeulen og hann
hefur haldið einleikstónleika í öll-
um helstu borgum Evrópu og
Bandaríkjanna. A síðari árum hef-
ur hann lagt sérstaka rækt við
píanóverk J.S. Bach og upptökur
hans á heildarútgáfum eins og
„Die Klavierubung" komu út árið
1985 og hafa verið kynntar um alla
Evrópu.
í tilefni þess að 250 ár eru liðin
frá því að J.S. Bach lést hefur
Christopher Sager tekið þátt í
Bach-hátíðum víða á meginlandi
Evrópu, nú síðast í Búkarest og
Enkhuizen í Hollandi.
M-2000
Þriðjudagur 4. júlí
Sólveig Birna Stefánsdóttir sýnir akrýlmyndir
af hestum á Landsmóti hestamanna.
HÁSKÓLABÍÓ KL.
20.30.
STOMP
STOMP er al-
þjóðlegur hópur
listamanna sem far-
ið hefur vítt og breitt
um heiminn. Þeir
nota hvorki hljóðfæri
né texta, dansa
hvorki né syngja en
halda þó uppi stans-
lausu fjöri í tvær
klukkustundir og slá
aiisstaðar í gegn.
Þau ieika á það sem
hendi er næst,
berja, blása og
skapa ótrúlega hljóð-
veislu úr pottum og
pönnum, öskutun-
num, hjólbörðum,
slöngum, vöskum,
vatnskönnum - eða
hverju öðru sem
hendi er næst.
STOMP verður hér á
landi til 9. júlí og
verður með átta tón-
leika á tímabilinu.
Miðasala er í verslunum Skífunnar
í Kringlunni og á Laugaveginum.
www.stomponline.com
VÍÐIVELLIR
Landsmót 2000
Landsmót 2000 er alþjóðiegt
hestamannamót sem verður nú í
fyrsta sinn haldið á Víðivöllum í
Reykjavík. Á hestasýningunni verð-
ur teflt fram bestu kynbótahrossum
landsins og fremstu gæðingar ís-
lands etja kappi saman, farið verð-
ur í tvöþúsund hesta hópreið og
slegið upp dansleik. Það verða
daglegar kappreiðar og hestvagnar
á ferð í Elliðaárdal í samvinnu við
Árbæjarsafn auk þess sem hægt
verður að leigja hesta og fara í
reiðtúra í nágrenni Reykjavíkur.
Landsmótið stendur til 9. júlí. Að-
gangur verður ókeypis fyrstu daga
Landsmótsins.
MÁLVERKASÝNING Á LANDSMÓTI
/ tengslum við Landsmótið opnar
Sólveig Birna Stefánsdóttir frá
Kagaðarhóli sýningu á tólf akrýlmál-
verkum í veitingasal Reiðhallarinn-
ar. Sólveig Birna stundaði nám í
Myndlista- og handíðaskóla íslands
en lauk prófi í Noregi. Hún hefur
haldið sýningar hér heima, í Noregi
og Pétursborg.
Hestar hafa ævinlega verið henni
hugleikið myndefni og eru þessi
myndverk tengd íslenska hestinum
á ýmsan hátt.
Sýningin stendur landsmótsdag-
ana.
www.landsmot.is
SKAGAFJÖRÐUR - HÓP
Búðirnar í Hópi - skagfirskt kvöld
Skagfirðingar hafa reist tjaldbúðir
sem ætlað er að sýna lifnaðar-
hætti landkönnuðanna og bjóða
upp á mat líkan þeim sem ætla má
að hafi verið á borðum þeirra. í
kvöld kl. 20.30 verða flutt ávörp,
nikkan þanin og bragðað á íslensk-
um skrínukosti við búðirnar.
www.skagaQordur.is
www.reykjavik2000.is, wap.olis.is
Pétur
Behrens
opnar
sýningu á
vatnslita-
myndum
PÉTUR Behrens opnar sýn-
ingu á vatnslitamyndum í
kvöld kl. 20 í Galleríi Reykja-
vík, Skólavörðustíg 16. Pétur
nam myndlist í Meisterschule
fur grafik í Berlín og lauk
þaðan prófi árið 1960.
Pétur fluttist til Islands ár-
ið 1962 og hefur verið stunda-
kennari við Myndlistarskól-
ann í Reykjavík og
Myndlista- og handíðaskóla
íslands. Pétur Behrens hefur
haldið margar einkasýningar
og tekið þátt í samsýningum
hérlendis og erlendis. Síðasta
einkasýning hans var í
Stöðlakoti síðastliðið haust.
Pétur hefur um árabil feng-
ist við hestatamningar og hef-
ur inntak verka hans oft haft
skírskotun til hesta og þess
landslags er fyrir augu hefur
borið á ferðum hans.
Röð af hestamyndum
Að þessu sinni sýnir Pétur
stórar vatnslitamyndir sem
allar eru málaðar á þessu ári,
margar hverjar í lok nýliðins
vetrar er fannbreiður í hlíð-
um sköpuðu sterkar andstæð-
ur sem gera fjöllin „grafísk"
og „dramatískari“ en ella.
í tilefni Landsmóts hesta-
manna í Víðidal sem haldið er
nú í fyrsta sinn í Reykjavík
sýnir Pétur röð af hesta-
myndum og myndskreyting-
ar.
Sýningin er opin virka daga
frá kl. 10-18, laugardaga kl.
11-16 og sunnudaga kl. 14-
17. Auk þess verður opið
þriðjudag, fimmtudag og
sunnudag landsmótsvikuna
4.-9. júlí frá kl. 20-22.
Verð nú aðeins
2290000
Sjálfskiptur - Bensín eða Dísil
Einstakur fjölskyldu- og ferðabíll!
KIA Carnival er sannkallaður Ijölnotabíll. Hann tekur allt að sjö manns ísæti. Að innan
má sveigja hann að þörfum flestra, hvort sem þeir eru einirá ferð eða með stórfjöt-
skylduna og allt hennar hafurtask. Sætunum ersnúið, rennt og raðað á hvem
þann veg sem heppilegastur þykir hverju sinni. Það spillirsíðan ekki fyrir
að rennihurðimar að aftan eru tvær.
Stærð bílsins, kraftur vélarinnar og öryggisbúnaðurinn
gerirKIA Carnival að ákaflega heillandi
ferðabil, um leið og lipurð hans og fjöl-
breyttur staðalbúnaðurinn búa hann
kostum hins ríkulega fólksbíls.