Morgunblaðið - 04.07.2000, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 04.07.2000, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 2000 23 ÚRVERINU Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörns Ahöfnin á Júlíusi Geirmundssyni við komuna til ísafjarðar á sunnudaginn. ON Fimm milljónir á dag Júlíus Geirmunds- son fiskaði fyrir 133 milljónir í júní ÁHOFN Júlíusar Geirmundssonar, frystitogara Hraðfrystihússins Gunnvarar hf., fékk hlýjar móttökur við komuna til ísafjarðar á sunnu- dag. Skipið hefur aldrei aflað eins mikilla verðmæta á einum mánuði, þrátt fyrir bilun í miðjum túr. Aflaverðmætið úr tveimur túrum í júnímánuði var um 133 milljónir króna á 27 úthaldsdögum eða um 5 miiljónir á dag að meðaltali. Stjórn- endur útgerðarinnar fóru á báti á móti togaranum við heimkomuna og færðu áhöfninni kampavín, gos- drykki og tertu með áletruninni „Til hamingju með metmánuð". Ómar Ellertsson var skipstjóri í fyrri túrnum en Gunnar Amórsson í seinni túrnum. Júlíus fór út eftir sjómannadag og var við veiðar á svokölluðu „Hamp- iðjutorgi“ djúpt vestur af Látra- bjargi. Þar veiddi hann nánast ein- göngu grálúðu. Þrettánda júní bilaði spilmótor og togarinn varð að koma í land til að fá annan mótor. Fjórtánda júní var landað úr skipinu og var afl- inn um 186 tonn upp úr sjó eða um 146 tonn af afurðum, að verðmæti um 40 milljónir. Sama kvöld hélt skipið aftur til veiða og byrjaði túrinn á Hampiðju- torginu en endaði á Vestfjarðamið- um. Júlíus kom til hafnar á ísafirði um þrjúleytið á sunnudag og var landað úr skipinu á mánudag og þriðjudag. Aflinn úr seinni túrnum er um 430 tonn upp úr sjó eða um 315 tonn af afurðum að verðmæti um 93 milljónir. Uppistaðan er grálúða og um 120 tonn upp úr sjó af þorski. Alls gerir þetta um 133 milljónir króna á 27 úthaldsdögum í júnímán- uði eða um 5 milljónir á úthaldsdag. Morgunblaðið/Halldór Sveinbjöms Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri HG, og skipstjórarnir Óm- ar Ellertsson og Gunnar Arnórsson við heiðurstertuna við skipshlið. Arsfundur Alþj óðahvalveiðiráðsins Deilt um verndar- svæði fyrir hvali Tillaga um veiðar innan 200 milna lögsögu liggur fyrir fundinum DEILURNAR um hvalveiðar halda áfram á ársfundi Alþjóðahvalveiði- ráðsins, sem hófst í Adelaide í Astralíu í gær. Japönum mistókst að úthýsa Grænfriðungum á fundinum, en fyrir honum liggja meðal annars tillögur um vemdarsvæði fyrir hvali í Suðurhöfum og um hvalveiðar und- ir eftiliti innan 200 mflna lögsögu viðkomandi ríkja. Talin er hætta á því að náist ekki samkomulag um takmarkaðar veiðar á hvölum, liðist hvalveiðiráðið í sundur. Nauðsyn- legt sé að brúa bilið milli hvalveiði- þjóða og þeirra sem vilji friða hvali til að ráðið verði starfhæft og njóti trausts og trúnaðar í störfum sínum. Mistókst að útiloka Grænfriðunga Japanir reyndu í gær að útiloka Grænfriðunga sem áheyrnarfull- trúar frá fundinum á þeim forsend- um að tilraunir þeirra til að stöðva veiðar Japana í Suðurhöfum væru bæði ólöglegar og hefðu stofnað lífi veiðimanna og vísindamanna í hættu. Tillaga Japana um að vísa Grænfriðungum út af fundinum var felld, enda voru Bandaríkin, Bret- land og aðrar Iykilþjóðir á móti henni. Japanir hafa stundað veiðar á hrefnu í vísindaskyni í Suðurhöfum og veiddu þeir alls um 500 dýr á síð- asta ári. Vísindanefnd Alþjóða hval- veiðiráðsins telur sig nú ekki búa yf- ir upplýsingum til að meta fjölda hrefna á þessum hafsvæðum. Hann geti í raun verið mun minni en 76.000 eins og Japanir hafa haldið fram til að réttlæta veiðar sínar. Því gæti framvinda þessara veiða verið óljós. Ástralir sakaðir um tvöfeldni Japanir snerust gegn tillögu Ástr- ala og Nýsjálendinga um verndar- svæði fyrir hvali í Suðurhöfum. Sögðu þeir tillöguna alls ekki byggj- ast á vísindalegum forsendum. Talið er ólíklegt að tillagan verði sam- * Hrefnan skutluð við Noreg. þykkt, enda þarf 75% atkvæða til að hún öðlist gildi. Japanir ásökuðu Ástrali einnig um tvöfeldni. Þeir vildu banna hval- veiðar, en leyfðu veiðar á milljónum kengúra á hverju ári. Minoru Morimoto, fulltrú Japana, sagði að líklega myndu Ástralir fallast á sjálf- bæra nýtingu hrefnunnar, ef hún yrði kölluð kengúra hafsins. Hann naut stuðnings Norðurskautssam- takanna, High North Alliance, Nor- egs, Kanada, íslands og Færeyja, þegar hann sagði að Átrölum væri nær að yfirgefa hvalveiðiráðið í stað þess að reyna að breyta stöðu þess úr því að stjórna hvalveiðum í hvala- friðunarsamtök. „Þetta er ráð til að stjórna hvalveiðum, ekki til að skipuleggja hvalaskoðun," segir Rune Frovik, framkvæmdastjóri HHA. Robert Hill, umhverfisráðherra Ástralíu, segir að vissulega geti orð- ið erfitt að afla tillögunni um hvala- verndarsvæði í Suðurhöfum fylgis. „Hvalveiðiráðið verður í framtíðinni að endurspegla mikla hnattræna andstöðu gegn hvalveiðum. Ljóst er að baráttan milli þeirra sem leggja áherzlu á hvalveiðar og hinna sem vilja friða þá mun standa í nokkur ár enn,“ sagði Hill. Japanir drógu þessa fullyrðingu Hills í efa og sögðu vaxandi skilning á hvalveiðum um allan heim, meðal annars í Banda- ríkjunum og Ástralíu. # m&m a betra verði BT Horft á sjónvarp Morgun- matinn Unnið Slappaö af Sofið Lesið Einnig fylgir öllum einbreiðum, stillanlegum rúmum 20” sjónvarp frá BT í júlí. Þú eyðir 1/3 hluta ævinnar í rúminu! Með því einu að snerta takka getur þú stillt rúmið í hvaða stellingu sem er. Með öðrum takka færð þú nudd sem þú getur stillt eftir eigin þörfum og látið þreytuna eftir eril dagsins líða úr þér. Með stillanlegu rúmunum frá Betra Bak er allt gert til þess að hjálpa þér að ná hámarks slökun og þannig dýpri og betri svefni. ...gerðu kröfur um heilsu & þægindi Betra £*frffv $nma *$ Faxafeni S • 108 Reykjavík • Simi S88 8477 Opíð; Mán. - fös kl. 10-18
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.