Morgunblaðið - 04.07.2000, Blaðsíða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Tilraunastöðin á Keldum mikilvægur öryggishlekkur að mati landbúnaðarráðherra
Mikil aukn-
ing á rann-
sóknum
Morgunblaðið/Porkell
Guðmundur Georgsson, forstöðumaður Tilraunastöðvarinnar kynnti Guðna Ágústssyni starfsemina.
NÝIR sjúkdómar hafa valdið því að
þörfin fyrir rannsóknir hjá Til-
raunastöð Háskólans í meinafræði á
Keldum hefur stóraukist. Guðni
Agústsson landbúnaðarráðherra
segir Tilraunastöðin einn mikilvæg-
asti hlekkinn í öryggiskeðju íslensks
landbúnaðar en hann heimsótti stöð-
ina sl. miðvikudag.
Guðni segir að vísindamenn á
stöðinni hafí þegar sýnt fram á að
þeir séu í fremstu röð en Guðni telur
nauðsynlegt að Tilraunastöðin fái
nægilegt fjármagn til rannsókna.
„Það er mikilvægt hverri þjóð að
sinna undirstöðurannsóknum og vís-
indum,“ sagði Guðni.
Á Tilraunastöðinni á Keldum
vinna um 45 manns við ýmis rann-
sóknarstörf sem öll lúta á einhvern
hátt að landbúnaði. Tilraunastöðin
vinnur m.a. ýmiskonar þjónustu-
rannsóknir fyrir landbúnaðinn s.s.
eftirlit með slátur- og mjólkurafurð-
um. Slíkar rannsóknir verða sífellt
umfangsmeiri en fjöldi þeirra hefur
tvöfaldast á einu ári. Nýir sjúkdóm-
ar s.s. salmonella og campylobacter
hafa aukið mjög þörfína á eftirliti
með sláturafurðum. Opinberar
stofnanir og neytendur geri einnig
auknar kröfur til matvæla.
Mæðiveiki á sér langa sögu hér á
landi en mæði- og visnuveiran barst
til íslands með karakúlfé sem hing-
að var flutt til kynbóta árið 1933.
Vonuðust bændur eftir því að með
kynblöndun íslensku sauðkindarinn-
ar við karakúlfé mætti fá verðmæt-
ari ull, en ull af karakúlfé var þá
mjög í tísku. Islenskir visindamenn
sem hafa lengi rannsakað veiruna
hafa hlotið alþjóðlegar viðurkenn-
ingar fyrir rannsóknir sínar. Mæði-
veiran er af sama flokki og HIV-
veiran sem veldur eyðni en rann-
sóknir á mæðiveirunni haf nýst við
rannsóknir á HIV-veirunm. Vís-
indamönnum á Keldum hefur tekist
að klóna mæðiveiruna en það auð-
veldar mjög rannsóknir á því að
rannsaka gerð og hlutverk hvers og
eins gens í veirunni. Aukin þekking
á uppbyggingu veirunnar eykur
vonir um að hægt verði að finna sem
flesta staði þar sem hægt er að rjúfa
lífsferil hennar.
Miklar vonir bundnar við rann-
sókn á sumarexemi
Umfangsmikil rannsókn á sumar-
exemi í hrossum er nú hafm á Til-
raunastöðinni. Stefnt er að því að
innan þriggja ára megi hefja til-
raunabólusetningar gegn sumarex-
emi en sjúkdómurinn hefur herjað á
íslensk hross sem hafa verið flutt
erlendis. Vilhjálmur Svansson dýra-
læknir segir að það sem einkum
valdi því að menn séu bjartsýnir á
árangur sé ný tegund bólusetning-
ar, svokölluð DNA bólusetning.
Sýnt hafí verið fram að slíkar bólu-
setningar séu afar árangursríkar í
baráttu við ofnæmi en sumarexem
stafar af ofnæmi fyrir próteini sem
berst í hross við bit mýflugna af
ættkvíslinni Gulicoides. Vilhjálmur
segir mikið verk fyrir höndum og
ekki gefið að árangur náist á aðeins
þremur árum. Hins vegar sé ljóst að
rannsóknirnar verði til þess að
menn öðlist mun meiri þekkingu á
ofnæmi í hrossum. Um 82 milljónum
verður varið til rannsóknarinnar.
Riðuveiki stafar af
smitandi próteini
Á Tilraunastöðinni á Keldum hef-
ur lengi verið unnið að rannsóknum
á riðuveiki í sauðfé. Rannsóknirnar
beinast m.a. að áhrifum erfða á riðu-
smit en komið hefur í ljós að erfða-
eiginleikar hafa mikið að segja um
hvort sauðfé smitist af riðu eða ekki.
Ástríður Pálsdóttir, lífefnafræðing-
ur hjá Tilraunastofnuninni, segir
það sé nú almennt viðurkennt að
riða stafi af smitandi próteini en
ekki af veirusýkingu. Hún vinnur nú
að því að rannsaka svonefnt príon
gen en það ræður því hversu næmt
sauðfé er fyrir riðusmiti.
Miklar framfarir hafa orðið í rann-
sóknum á fisksjúkdómum hér á landi
en á tíu árum hefur tekist að fækka
laxadauða í eldisstöðvum úr 25% í
0,5-2%. Sigurður Helgason, fisksjúk-
dómafræðingur segir að bóluefni hafi
hér ráðið mestu en einnig hafi þekk-
ing á fiskeldi aukist mjög hér á landi
á síðustu árum. Sigurður segir að
verkefni rannsóknardeildar fisksjúk-
dóma felist einkum í eftirliti og þjón-
ustu við fiskeldisstöðvar og rann-
sóknum taki oft mið af þörfum
fiskeldisins. Sigurður segir eftirtekt-
arvert hve vel hafi tekist til við að
rækta lúðuseyði en á síðasta ári hafi
300.000 lúðuseyði komið frá einni eld-
isstöð sem sé afar góður árangur.
Leitað að jurtum til lækninga
Sigurður H. Richter dýrafræðing-
ur sem flestir þekkja sem umsjónar-
mann hinna sívinsælu sjónvarps-
þátta, Nýjasta tækni og vísindi,
hefur um langt skeið viðað að sér
heimildum um sjúkdóma í íslensku
sauðfé. Alls hefur Sigurður fundið
um 300 greinar og rit sem spanna
tímabilið frá árinu 1200 til dagsins í
dag. Meðal þess sem Sigurður vinnur
að er að safna upplýsingum um notk-
un jurta sem samkvæmt þjóðtrúnni
áttu að virka gegn ormasýkingum í
mönnum og búfé. Sigurður segist
vonast til að finna einhverjar jurtir
sem geti komið að gagni þó vissulega
megi búast við því að margar jurt-
anna sem þjóðtrúin sagði geta lækn-
að reynist gagnslausar eða jafnvel
hættulegar. Sigurður telur miklu
varða að reyna að finna náttúruleg
lyf gegn ormasýkingum í sauðfé,
ekki síst vegna þeirrar auknu
áherslu sem nú sé lögð á lífrænan
landbúnað.
Undirbúa
fræðsluátak í
forvarnaskyni
Morgunblaðið/Árni Sæberg
René Lambert (t.v.) franskur prófessor í meltingarsjúkdómum og Ásgeir Theodórs, sér-
fræðingur í meltingarsjúkdómum, telja að forvarnir séu þýðingarmiklar í baráttunni við
sjúkdóma.
UNNIÐ er að undirhúningi fræðsluátaks
hér á landi um forvarnir gegn krabba-
meini í ristli og endaþarmi og vélinda-
bakfiæði. Ásgeir Theodórs, sérfræðingur í
meltingarsjúkdómum, er í forsvari fyrir
átakinu fyrir hönd Félags sérfræðinga í
meltingársjúkdómum og segir hann báða
þessa sjúkdóma algenga meðal Islendinga.
Hann segir að vaknað hafi áhugi meðal
lækna og annarra í heilbrigðiskerfinu um
að hrinda slíku átaki af stað og í því skyni
fengu þeir hingað til lands franskan
læknaprófessor til skrafs og ráðagerða,
René Lambert.
Prófessorinn starfar við alþjóðlegu
krabbameinsstofnunina í Lyon í Frakk-
landi og er ráðgjafi Alþjóða heilbrigðis-
stofnunarinnar í ýmsum málum er varða
fyrirbyggjandi aðgerðir við sjúkdómum í
meltingarvegi. Lambert er einnig vísinda-
legur ráðgjafi fyrir samtök meltingar-
sérfræðinga í Evrópu.
Staðan áþekk
víða í Evrópu
„Staða heilbrigðismála í fiestum
Evrópulöndum er nokkuð áþekk og víðast
hvar greiða stjórnvöld stærstan hlut af
kostnaði við hana eða á bilinu 70 til 100%,“
segir Lambert í samtali við Morgunblaðið.
„Þessi útgjöld fara vaxandi og er ástæðan
annars vegar að þjóðirnar eldast og kostn-
aður er meiri við að veita hækkandi hlut-
falli aldraðra heilbrigðisþjónustu og hins
vegar vegna meiri fjárfestinga í rannsókn-
um og þróun lyfja, sem stjórnvöld bera að
lokum mestan kostnað af því þótt lyfjafyr-
irtækin leggi stórfé í rannsóknir má segja
að reikningurinn endi hjá stjórnvöldum
þar sem þau bera stærstan hluta lyfja-
kostnaðarins. Þess vegna eru þau sífellt að
skoða hvernig draga megi úr kostnaði og
eitt af því er að auka fræðslu og forvarnir
þannig að síður komi til sjúkdóma og
keppt er að því að alvarlegir sjúkdómar,
eins og krabbamein, greinist sem fyrst til
að meðferð þeirra verði ódýrari."
Ásgeir Theodórs segir að Lambert hafi
dvalið hér í nokkra daga og sett sig inn í
íslensk heilbrigðismál. í framhaldi af þess-
ari heimsókn er vonast til að koma megi á
formlegu starfi í því skvni að auka al-
menningsfræðslu sem Ásgeir segir Ijóst að
inuni skila sér margfalt fyrir þjóðfélagið
þegar litið sé til lengri tíma. Krabbamein í
ristli og endaþarmi segir Ásgeir erfiðan
sjúkdóm og því brýnt að greina það
snemma og vélindabakfiæði segir hann
skerða lífsgæði og starfsorku fólks.
ísland hefur
sérstöðu
„í mörgum Evrópulöndum er erfitt að
ná til almennings og þar er líka oft erfitt
að fá almennilegar skrár um sjúkdóma.
Ég get nefnt sem dæmi að krabbameins-
skráin í Frakklandi tekur aðeins til um 4%
sjúkdómanna og í Þýskalandi 2%,“ segir
Lambert. „Þá er oft erfitt að gera víðtæk-
ar rannsóknir hjá þessum stóru þjóðum
sem eru samsettar úr mörgum þjóðarbrot-
um og tölfræði er oft ekki nógu nákvæm
þar sem í mörgum löndum er mikið um
ólöglega innflytjendur sem komast livergi
á skrá.
Á íslandi cr staðan allt önnur og sér-
staðan felst í því að þjóðin er fáinenn og
einsleit, hér geta heilbrigðisyfirvöld náð
til nánast allra landsmanna á cinu bretti
og almenningur er vel upplýstur. Varð-
andi þessa tilteknu sjúkdóma vitum við að
margt getur haft áhrif á þá og þannig má
til dæmis minnka líkur á krabbameini með
því að ástunda hreyfingu, leggja áherslu á
neyslu grænmetis og ávaxta en draga úr
neyslu feitmetis. Þessum upplýsingum á
að vera auðvelt að koma á framfæri og ég
vil leggja mitt af mörkum til að hvetja
stjórnvöld hér til að efna til víðtæks
fræðsluátaks og ég mun líka nota ísland
sem dæmi um hvernig haga megi slíku
forvarnastarfi og hvetja önnur lönd til að
leggja meiri áherslu á slíkt starf.“
Fræðslan brýn
Lambert segir að þrátt fyrir mikla þró-
un og rannsóknir í læknisfræði undan-
farna áratugi og trúlega áfram verði
áfram mjög brýnt að leggja aukna áherslu
á fræðslu fyrir almenning í baráttu við
sjúkdóma. „Þið hafið gott heilbrigðiskerfi,
hæft starfsfólk sem hefur tengsl við er-
lendar stofnanir og háskóla og þið getið
verið fijót að koma á breytingum og upp-
lýsingum til fiestra landsmanna. Þess
vegna eru hér kjöraðstæður til að ráðast í
svona átak og sýna öðrum þjóðum með því
hversu árangursríkt það getur orðið.“