Morgunblaðið - 04.07.2000, Blaðsíða 58
58 ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
é6 SKREPP í HEIMSÓKN TLL MÖMMU.
Ferdinand
Ég trúi því ekki en í raun
sakna ég þess að vera
ekki í skólanum.
I KNOU) UJHAT VOli MEAK.,
OF C0UR5E, IF UJE OJERE IN
5CH00LRI6HT N0U),Y0U'P
PROBABLY BE A5LEEP...
Ég veit hvað þú átt við.
Ef við værum í skólanum
einmitt núna þá værir þú
líklega sofandi.
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Klúður, klúður
- Svona gera
menn ekki
Frá Arnari Pálssyni:
SÓLBJARTUR laugardagur hinn
1. júlí ... Kristnitökuhátíð ... Um
15 þús. manns mætt fyrri dag há-
tíðarhalda, til að staðfesta kristni-
töku þjóðarinnar á helgasta stað
þjóðarinnar, Þingvöllum. Fórnfúsir
listamenn leggja fram framlag sitt
til að fullkomna þessa hátíð, „þjóð-
hátíð fólksins“ eins og hr. biskup
orðaði það svo snyrtilega í út-
varpsviðtali fyrr um daginn og gat
eigi gert upp á milli atriða hátíðar-
innar. „Gospel“-tónleikar á stóra
sviði hátíðarinnar, haldnir kl. 20:30
í beinni útsendingu Ríkissjónvarp-
sins. Fríður flokkur kvenradda
leggur af stað frá Reykjavík, kl.
16:30 frá Háteigskirkju til að
leggja fram sinn skerf til kristni-
hátíðar með þá vissu eina í fartesk-
inu að einungis sé tryggt far til
helgasta staðar þjóðarinnar, Þing-
valla, og með bros á vör til maka
sinna, að þeir sjái til þess að þeir
nálgist þessar elskur að athöfn
lokinni. Engillinn kvaddur og síð-
ast talast um að einkabíllinn verði
notaður til að ná í viðkomandi
elsku að athöfn lokinni vegna óvis-
sunnar um far til baka.
Kl. 20:30 er lagt af stað til að
uppfylla óskir elskunnar og haldið
sem leið liggur til Þingvalla. Við
Þingvallaafleggjara við Mosfells-
sveit. STOPP! „Svartstakkur"
þjóðkirkjunnar þessa helgi (í dag-
legu tali nefndur ríkislögregla)
meinar alla umferð til Þingvalla.
Aðspurð, fyrirskipun frá kristni-
tökuhátíðarnefnd. Bendir kurteis-
lega á, að símanúmer kristnitöku-
hátíðarnefndar, 5752000, gefi leyfi
til undanþágu fyrir þá sem þurfa
að komast til Þingvalla. Hringt á
staðnum, símsvari svarar að skrif-
stofan sé opin frá kl. 9:00 til 12:00
og frá kl. 13:00 til 17:00. Vísað er á
síma umferðarráðs varðandi um-
ferð til og frá Þingvöllum. Svar hjá
þeim að lokað sé til Þingvalla á öll-
um leiðum frá kl. 16:00 til 23:00
þennan dag og eingöngu heimiluð
umferð frá Þingvöllum þessar sex.
Enginn fulltrúi kristnitökuhátíðar-
nefndar til að svara um leyfi. Eng-
inn til að gefa undanþágu um inn-
komu á svæðið. Góð ráð dýr,
engillinn ástsæli veglaus á kristni-
tökuhátíð, hefur þá þegar lagt
fram sinn skerf til „þjóðhátíðar"
kristnitökuhátíðarefndar og hr.
biskups þjóðkirkjunnar, en er veg-
laus til baka.
Makinn eirðarlaus yfir að geta
ekki staðið við gefin loforð til elsk-
unnar sinnar. Niðurbrotinn yfir því
að hans elskaða land er allt í einu
hertekið af kristnitökuhátíðar-
nefnd og frelsi hans sem einstakl-
ings til athafna og fijálsra ferða
um sitt ástkæra þjóðland heft á
hinn helgasta stað, þjóðarinnar,
Þingvelli. Upp í hugann kemur
orðið klúður! Svona gera menn
ekki. Síðan bankar systir „reiði"
upp á í huganum þegar hugleiddur
er sá kostnaður sem hann og sam-
borgarar hans munu þurfa að
greiða af skattfé sínu. Yfir 300 mil-
ljónir ... Klúður og aftur klúður ...
er fyrsta hugsun við afneitun full-
trúa kristnitökuhátíðarnefndar.
Aðgöngumiðinn! Miðað við fyrstu
gesti „þjóðhátíðar" hr. biskups og
kristnitökuhátíðarnefndar 20.000
kr. að minnsta kosti. Dýr myndi
Hafliði allur kveðinn vera. Var ein-
hver að tala um hátt verð á tón-
leika Eltons John á dögunum? Og
svo getur kristnitökuhátíðamefnd
ekki tryggt flytjendum „englar-
adda kristnitökunnar" öruggt far
til heimkynna sinna að afloknum
flutningi. Klúður, dæmalaust klúð-
ur er orðið, sem hægt er að við-
hafa yfir þessa sjálfumdæmdu há-
tíð kristinna manna á íslandi. Er
nema von að þjóðarsálin hafi haft
fyrirvara um að nema land þessa
helgi á Þingvöllum og samfagna
stjórnendum þjóðarinnar um stað-
festu kristnitöku á íslandi. Það
sem að ofan er ritað er lítil dæmi-
saga samborgara sem hann upp-
lifði, vegna loforðs sem hann hafði
gefið elskunni sinni í góðri trú að
geta uppfyllt. Þegar þessi grein er
rituð nálægt miðnætti þessa ann-
ars sólbjarta dags hefur elskan
hans enn ekki gefið sig fram á
heimilinu, en í tilbeiðslu til almætt-
isins að vel muni enda framlag
hennar og heimkoma vegna „þjóð-
hátíðar" hr. biskups, leggst bréf-
ritari til hvílu og biður systur
„reiði" að hemja sig, fullviss að
Guðs útvaldir fulltrúar þjóðkirkj-
unnar hafi greinargóð svör sem og
aðrir ábyrgir ráðamenn þessarar
þjóðar.
Bréfritari skorar á kristnitöku-
hátíðarnefnd og ráðamenn að birt-
ar verði opinberlega niðurstöður á
kostnaðardreifingu þess fjár sem
þjóðin og skattborgarar hafa lagt í
þessa „þjóðhátíð" kristinna manna
á íslandi. Guð fyrirgefi ykkur
bruðlið, ráðamenn, ef rétt reynist
með 300 milljónirnar. Efasemdir
hvíla í huga bréfritara að þetta sé
„Drottni, hinum hæsta“, þóknan-
legt, meðan fréttir berast um neyð
og bágindi minnihlutahópa, s.s. ör-
yrkja og aldraðra, svo einhverjir
séu nefndir. Sælir eru auðmjúkir,
stendur í góðri bók. Mér hins veg-
ar sárnaði að fá ekki uppfyllt lof-
orð.er géfið var elskunni minni
fyrr um daginn og upplifa heftingu
á ferðafrelsi mínu sem borgari
þessa lands. Ég mun auðmjúkur
sætta mig við svör ráðamanna
hirði þeir að svara opinberlega og
mun ekki munnhöggvast frekar.
Auðmjúkur sætti mig við orðinn
hlut. Svona gera menn ekki.
ARNAR PÁLSSON,
Laufrima 16, Reykjavík.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.