Morgunblaðið - 04.07.2000, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 04.07.2000, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐ JUDAGUR 4. JÚLÍ 2000 11 FRÉTTIR Sj óvá-Almennar hækka iðgjöld á bifreiðatryggingum um 29% að meðaltali SJÓVÁ-Almennar hækkuðu í gær iðgjöld lögboðinna ökutækjatrygg- inga um að meðaltali 29% og iðgjöld vegna kaskótrygginga hækkuðu um 15%. Hækkanirnar eru nokkuð mis- munandi eftir landsvæðum en um mánaðamótin var áhættusvæðum vegna ökutækjatrygginga breytt og áhættusvæðum fjölgað úr tveimur í þrjú. Á Austurlandi og í dreifbýli hækka iðgjöldin ekki. Iðgjöld þeirra sem búa á þeim svæðum sem færast úr áhættuflokk tvö yfir í hæsta áhættuflokk hækka mun meira en meðaltalið gefur til kynna eða um 60%. Hærri iðgjöld munu skila Sjó- vá-AImennum um 600-700 milljón- um króna í auknum tekjum. Önnur tryggingafélög boða einnig hækkan- ir á næstunni. Neytendasamtökin og FÍB undr- ast þessar hækkanir og telja fulla ástæðu til þess að Fjármálaeftirlitið og Samkeppnisstofnun kanni málið. Hækkanir nauðsynlegar Einar Sveinsson, framkvæmda- stjóri Sjóvá-Almennra, segir fyrir- tækið knúið til að hækka iðgjöldin. „Tjónum hefur fjölgað umfram fjölgun bifreiða í umferðinni en auk þess hefur annar tjónakostnaður hækkað til muna,“ segir Einar. Hann segir hvert tjón nú dýrara en áður. Góðærið eigi m.a. þátt í því. , Alhir tilkostnaður hefur aukist. Bíl- ar eru nýrri í umferðinni og þeir eru dýrari og um leið hækkar viðgerðar- kostnaður. Slysabætur hafa einnig hækkað, m.a. vegna kaupmáttar- aukningar," segir Einar. Hann bendir á að bætur vegna örorku hafi líka hækkað án þess að slysin hafi endilega orðið alvarlegri. „Stærstur hluti þeirra tjóna sem við greiðum eru bætur vegna slysa á fólki. Þegar örorkustigið hækkar leiðir það að sjálfsögðu til hærri tjónabóta.“ Allt valdi þetta vaxandi kostnaði sem nú sé verið að bregðast við. Iðgjöldin hækkuðu um 35% í fyrra Á síðasta ári hækkuðu trygginga- félögin iðgjöldin um 35%. Einar seg- ir að þær hækkanir hafi einkum ver- ið til þess að mæta breytingum á skaðabótalögum. Hækkanirnar núna stafi af aukinni tjónatíðni og hærri tjónakostnaði. Sjóvá-Almenn- ar létu nýlega vinna fyrir sig grein- argerð á kostnaði vegna ökutækja- trygginga. Einar segir hana sýna greinilega fjölgun á tjónum og hækkun á tjónakostnaði. „Lögboðn- ar ökutækjatryggingar hefðu þurft að hækka um 40%. Við stígum skref- ið upp í 29% og teljum að það megi ekki styttra vera,“ segir Einar. „Þetta má ekki vera minni hækkun að okkar mati. Auðvitað vonum við að ástandið batni og það dragi úr hækkunum á tjónakostnaði. Við munum að sjálfsögðu endurskoða okkar iðgjöld með reglulegu milli- bili,“ segir Einar. Breytt áhættusvæði Jafnframt því sem iðgjald var hækkað var áhættusvæðum í lög- boðnum ökutryggingum einkabíla breytt og í stað tveggja áhættu- svæða eru þau nú þrjú. Áhættu- hér á landi sé hins vegar ekki eðli- legt. „Svo virðist sem þessi félög sem hafa um 95% af markaðnum tali oftar en ekki einum rómi,“ segir Runólfur og telur forsendur fyrir því að Fjármálaeftirlitið rannsaki samráð á tryggingamarkaðnum. Runólfur segir eðlilegt að áhættu- svæðum og flokkum sé fjölgað. Slag- orð FÍB „Iðgjöld í samræmi við áhættu" sé í fullu gildi. Menn eigi að njóta þess ef þeir valda ekki tjónum en Runólfur telur að það muni fær- ast í vöxt að iðgjöld séu miðuð við hve mikla áhættu tryggingafélögin séu í raun að taka. Samvinna trygginga- fyrirtækja hefur lengi verið til athugunar Ásgeir Einarsson yfirlögfræðing- ur Samkeppnisstofnunnar segir að samstarf tryggingafélaga hafi lengi verið til athugunar. Engin niður- staða sé hins vegar komin úr þeirri rannsókn. „Það er ekki hlutverk okkar að hafa skoðun á ákvörðunum einstakra fyrirtækja um verð,“ segir Ásgeir. Þó eitt tryggingafélag til- kynni hækkun hringi það engum viðvörunarbjöllum. Ef vísbendingar koma fram um að fyrirtækin hafi haft einhverskonar samráð um verð- hækkanir eða önnur viðskiptakjör muni Samkeppnisstofnun rannsaka málið. Ásgeir segir að of snemmt sé að segja til um viðbrögð Samkeppn- isstofnunnar á þessu stigi. Frekari hækkanir fyrirhugaðar Gunnar Felixson, forstjóri Trygg- ingamiðstöðvarinnar, segir að ið- gjöld muni hækka á næstunni en hann segir að enn sé ekki ljóst hve miklar hækkanirnar verði. Trygg- ingamiðstöðin muni hins vegar breyta áhættusvæðum sínum til samræmis við þær breytingar sem verða á þeim hjá Sjóvá-Álmennum. Eggert Þór Sverrisson, fram- kvæmdastjóri einstaklingstrygg- ingasviðs Vátryggingarfélags Is- lands, segir að búast megi við hækkun iðgjalda VÍS á næstu vik- um. Fyrirtækið hafi verið að vinna að endurskoðun iðgjalda en of snemmt sé að fullyrða um hve mikl- ar hækkanirnar verði. Eggert gerir ráð fyrir því að VÍS muni breyta sín- um áhættusvæðum. Baldvin Hafsteinsson, fram- kvæmdastjóri tjónaskoðunarsviðs FÍB-trygginga, vildi ekki tjá sig um hækkanir einstakra tryggingafélög- um. „Ef þau telja að þau þurfi þessi iðgjöld til að reka sína starfsemi hafa þau örugglega sínar forsendur fyrir því,“ sagði Baldvin. „Ég geri hins vegar fastlega ráð fyrir því að iðgjöld FÍB-trygginga verði hækkuð en hver hækkunin verður liggur ekki fyrir.“ Hann á þó ekki von á því að þær verði jafn miklar og hjá Sjó- vá-Almennum. „Viðræður standa yf- ir við okkar vátryggjendur erlendis. Við erum ekki tryggingafélag sem slíkt heldur tryggingamiðlarar og okkur ber skylda til að láta vá- tryggjendur okkar erlendis vita af þeim hreyfingum sem verða hér á markaðnum. Þeir skoða síðan málin í ljósi þeirra hreyfinga,“ segir Baldvin. Aukin tíðni tjóna ein helsta skýringin Önnur tryggingafélög boða hækkanir á næstunni aa Dæmi um ársiðgjöld meðalstórs einkabíls með fullan bónus og Stofn-afslátt hjá Sjóvá-Almennum. Tryggingataki er 25 ára eða eldri. Var Verður Hækkun Áhættusvæði 1: kr. 41.300 kr. 53.236 kr. 11.936 28,9% Áhættusvæði 2: 33.178 42.701 9.523 28,7% Áhættusvæði 3: 33.178 33.189 11 - Kaskótrygging: Dæmi um ársiðgjöld fyrir nýlegan meðalstóran einkabíl með fullan bónus og kr. 95.700 sjálfsábyrgð. Verður Hækkun Áhættusvæði 2: kr. 22.600 kr. 25.316 kr. 2.716 12% Áhættusvæði 1: 22.600 27.341 4.741 21% svæði eitt er dýrast en fyrir breyt- inguna var suðvesturhornið og Akureyri innan þess. Nú bætast við Akranes, Hveragerði, Selfoss, Stokkseyri, Eyrarbakki og Þorláks- höfn. Minni þéttbýlisstaðir falla yfir- leitt í áhættusvæði tvö en það vekur athygli að ekkert bæjarfélag á Aust- urlandi er í þeim flokki. Á áhættu- svæði eitt og tvö hækka iðgjöld en í dreifðustu byggðunum og á Austur- landi standa þau í stað. „Það er auð- vitað réttlætismál að iðgjöldin séu látin endurspegla slysatíðni á hverju svæði,“ segir Einar. í greinargerð- inni sem var unnin fyrir Sjóvá-Al- mennar kemur einnig fram að ungir ökumenn valda hlutfallslega lang- flestum tjónum. Einar segir erfitt að bregðast við því. Ungir ökumenn greiði þegar hærri iðgjöld en brögð séu að því að bíllinn sé einfaldlega skráður á nafn foreldra til að sleppa undan hærri greiðslum. „Við náum hreinlega ekki að koma þeim ið- gjöldum á unga ökumenn sem við þurfum,“ segir Einar. Kallar á rannsókn Fjármálaeftirlits og Sam- keppnisstofnunnar Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, segir hækk- anir Sjóvár-Almennra koma sér spánskt fyrir sjónir, sérstaklega í ljósi þess að skammt sé liðið frá síð- ustu hækkunum sem hafi verið mjög miklar. „Mig grunar að það muni fleiri hækkanir koma í kjölfarið. Ég minni á að hér er fákeppnismarkað- Morgunblaðið/Ingólfur Umferðarslysum hefur fjölgað að undanlornu og því verður að hækka iðgjöldin, segir Einar Sveinsson framkvæmdastjóri Sjóvá-Almennra. ur sem krefst mikils eftirlits af hálfu Fjármálaeftirlits og samkeppnisyf- irvalda," segir Jóhannes. „Ef ekki koma viðbrögð frá þessum aðilum, til hvers eru þeir þá?“ spyr Jóhann- es. „Því miður virðist hvorugur þess- ara aðila sjá ástæðu til þess að skoða þennan fákeppnismarkað. Það er hins vegar ljóst að afkoma trygg- ingafélaganna er með þeim hætti að þau eru síst á flæðiskeri stödd,“ seg- ir Jóhannes og spyr hvort hækkanir á bifreiðaiðgjöldum skapi ekki svigr- úm til að lækka önnur tryggingaið- gjöld. Uppgjöf hjá Sj ó vá-Almennum „Hækkunin er mjög mikil og langt umfram það sem við áttum von á,“ segir Runólfur Ólafsson, fram- kvæmdastjóri FÍB. „Ég tel að það þurfi að skoða allt ferlið og grund- völl þess að fara út í þessar gífurlegu hækkanir í kjölfar þess að trygging- arnar hækkuðu um 40% íyrir ári síð- an. Þessar hækkanir eru mikið áfall fyrir neytendur," segir Runólfur. „Maður spyr sig hvort þetta sé ákveðin uppgjöf hjá Sjóvá-Almenn- um og skilaboð til markaðarins um að þeir vilji ekki lengur þessa teg; und trygginga," segir Runólfur. „í eðlilegu markaðsumhverfi væru nú komin sóknarfæri fyrir aðra aðila á markaðnum." Markaðsumhverfið Miklar annir í innanlandsflugi hjá Flugfélagi Islands Urðu eftir vegna yfírbókana NOKKRIR viðskiptavinir Flugfé- lags íslands sem ætluðu að fljúga til Akureyrar á sunnudagskvöldið urðu fyrir þeim óþægindum að verða eftir í Reykjavík þar sem vélin var yfir- bókuð. Gerist slíkt einstaka sinnum en miklar annir hafa verið í innan- landsflugi að undanförnu. Um var að ræða síðustu ferð til Akureyrar þann dag og neyddust ferðalangarnir því til að útvega sér gistingu og bíða næsta morguns til að komast á áfangastað. Þeir komust til Akureyrar með fyrsta flugi í gær- morgun, en þar sem sú vél var einnig fullbókuð þurftu enn aðrir að bíða næstu vélar. Að sögn Árna Gunnarssonar, sölu- og markaðsstjóra Flugfélags ís- lands, var um að ræða fimm einstak- linga sem þurftu að verða eftir. Þar sem þetta var síðasta vél urðu þeir að bíða næsta dags. Ástæðu yfirbókana segir Árni þá að gjarnan sé fjöldi sæta frátekinn fyrir stóra hópa, m.a. á vegum ferða- skrifstofa. Oft er ekki alveg ljóst hve mörg sætanna verði nýtt. Nýtingar- hlutfall af slíkum bókunum er reikn- að út miðað við ákveðnar reynslutöl- m-. Það geti komið fyrir að þær gangi ekki alveg eftir. Arni segir það í sjálfu sér ekki á ábyrgð flugfélagsins að útvega fólkinu gistingu. Hins veg- ar hafi verið komið til móts við alla þá sem urðu fyrir óþægindunum með einhvers konar skaðabótum. Sumir farþeganna fljúgi oft með Flugfélagi íslands og buðust þeim bætur, m.a. í formi fargjalda. Að sögn Árna kemur það einstaka sinnum fyrir að farþegar þurfi að sitja eftir. Þar sem þetta var síðasta vélin þennan dag var þetta óvenju slæmt dæmi. Morgunblaðið/Kristinn Fimm farþegar urðu eftir þar sem vélin til Akureyrar var yfirbókuð.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.