Morgunblaðið - 04.07.2000, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 4, JÚLÍ 2000 63,
FÓLK í FRÉTTUM
Heimildarmyndin „Hvað leynist í Snæfellsjökli?“ sýnd í Sjónvarpinu í kvöld
Undir áhrifum frá
Snæfellsjökli
Leyndardómar Snæfellsjökuls eru til um-
fjöllunar í mynd Asgeirs hvítaskálds sem
frumsýnd verður í Sjónvarpinu í kvöld.
Sunna Ósk Logadóttir sló á þráðinn til
Kaupmannahafnar þar sem hann hefur
búið undanfarin ár.
ÁLFAR og tröll, hetjur og leyndar-
mál Snæfellsjökuls eru meðal
þeirra viðfangsefna sem rithöfund-
urinn og leikstjórinn Ásgeir Þór-
hallsson, nefndur hvítaskáld,_hefur
fjallað um í myndum sínum. Ásgeir
er búsettur í Kaupmannahöfn og
verður mynd hans „Hvað leynist í
Snæfellsjökli?" frumsýnd í Sjón-
varpinu í kvöld. I henni er þess
freistað að leita svara við spurning-
um um leyndarmál Snæfellsjökuls;
hvers vegna er staðurinn sveipaður
dulúð? og hvert er raunverulega
leyndarmálið?
Óvæntir atburðir
„Ég reyndi að kafa ofan í jökulinn
og finna lausnina og það sem kom í
ljós kom mér á óvart. Þessu reyni
ég svo að segja frá í kvikmyndinni,"
útskýrir Ásgeir.
Snæfellsjökull er án efa eitt fræg-
asta náttúruundur á íslandi og
jafnvel þótt víðar væri leitað og hafa
heimsþekktir rithöfundar á borð við
Jules Verne og Halldór Laxness
gert hann að yrkisefni sínu.
Ásgeir er handritshöfundur
myndarinnar og leikstjóri en auk
þess er hann sögumaður. Annað
slagið birtist hann því í myndinni á
sögufrægum stað, sjálfum Garði þar
sem m.a. Jón Sigurðsson og Fjölnis-
menn bjuggu er þeir dvöldu í Kaup-
mannahöfn. „Þar er nú bókasafn og
þar ríkir mjög sérstakt andrúms-
loft. „Það var rétt eins og Jón Sig-
urðsson og Fjölnismenn hafi verið á
staðnum. Mjög athyglisvert,“ rifjar
Ásgeir upp.
Það var árið 1997 sem fyrstu upp-
tökurnar af heimildarmyndinni
voru gerðar. Þá tóku við tvö ár í að
klippa myndina og snurfusa. „Ég
fékk styrk frá danska kvikmynda-
sjóðnum og fór við þriðja mann til
Islands. Við dvöldum svo í fjórtán
daga við jökulinn og upplifðum
margt mjög skrítið og trúum á
furðuhluti og hvað eina eftir dvölina
við jökulinn. Ljósmyndarinn sem
var með í för er berdreyminn og
hann dreymdi á hverri nóttu hvað
Bárður Snæfellsás lifir góðu lífi
í hugum manna.
myndi gerast við upptökur næsta
dag og það gekk allt saman eftir.“
Ásgeir segist ekki hafa þekkt alla
sögu jökulsins áður en á staðinn var
komið og þótti t.d. mikið til um sögu
Bárðar Snæfellsás. „Ég var með
ákveðna hugmynd um hvað ég ætl-
aði að gera og er ég kom á staðinn
tók hún að mótast og á hana kom
mynd.“ Hvað leynist í Snæfellsjökli
byggist mikið upp á viðtölum við
fólk sem býr undir jökli og aðra að-
ila sem segja söguna. „Það var mjög
athyglisvert að tala við fólkið sem
býr við jökulinn. Það er greinilega
undir áhrifum frá honum. Bárðar-
saga Snæfellsáss kemur síðan inn í
myndina; hvernig hann kemur til
sögunnar en samkvæmt þjóðtrúnni
er hann enn sofandi í jöklinum. Mér
fannst athyglisvert að finna að sú
saga er vöknuð á ný, ég hafði ekki
búist við því. Fólkið sem býr undir
jöklinum trúir á mátt hans. Sjómað-
Ásgeir hvítaskáld fetar í fótspor Fjölnismanna og segir sögu Snæfells-
jökuls frá bókasafninu á Garði í Kaupmannahöfn.
urinn skírir bátinn Bárð, heitir á
jökulinn og aflar vel.“
Lausnin kom upp úr jöklinum
Myndin var frumsýnd í kvik-
myndahúsi í Kaupmannahöfn og
einnig hefur hún verið sýnd í
dönsku sjónvarpi. En af hverju
ákvað Ásgeir að gera heimildar-
mynd um Snæfellsjökul? „Ég er
ekki viss,“ svarar hann og hlær. „Ég
var að gramsa í gömlum bíómynd-
um og bókum og rakst þar á Jules
Verne. Ég las söguna og áhuginn
kviknaði. Eg vissi alltaf að það væri
kraftur í jöklinum en vissi ekki
hvers kyns hann væri fyrr en ég fór
að rannsaka málið. Þá kom ýmislegt
í ljós sem ég vissi ekkert um.
Lausnin kom bara upp úr jöklinum
eins og gamall draugur. Því meira
sem við vorum á svæðinu og því
fleiri viðtöl sem við tókum við fólk,
varð þetta ljósara. Bæði ég og
danski ljósmyndarinn sem var með í
för urðum fyrir miklum áhrifum og
það er óhætt að segja að þessi dvöl
þarna undir jökli hafi bæði breytt
lífi mínu og hans. Því að bæði ljós-
myndarinn og ég hétum á aflið í
jöklinum og draumur hans er búinn
að rætast og minn draumur er að
rætast."
Er gott að vera kvikmyndagerð-
armaður í Kaupmannahöfn nú ti¥
dags? „Bæði og. Það eru margar
krónur í umferð en margir sækjast
eftir þeim. En ég er frá íslandi og
skrifa öðruvísi handrit og þeir virð-
ast hafa svolítinn áhuga á því.“
Nýverið var frumsýnd í Kaup-
mannahöfn önnur heimildarmynd
eftir Ásgeir sem ber heitið „Trúir
þú á álfa?“
„Hún er nokkurs konar framhald
af myndinni um jökulinn, fjallar um
álfatrú á íslandi. Danir trúa nú
fæstir á svona lagað. Það er allt
malbikað í Kaupmannahöfn og því
ekkert pláss fyrir álfana."
Um þessar mundir vinnur Ásgeir
að stuttmyndaseríu, „Natten er
farlig“ sem fjalla á um glæpi. „Ég er'"
búinn að framleiða fyrstu myndina
af þremur. Það byggir að hluta til á
smásögum eftir mig, „Morðinginn
gengur laus“ og „Svarti hundur“.“
Einnig er Ásgeir að vinna að
heimildarmynd um Jens Kangkniv
sem var nokkurs konar Hrói Höttur
á Jótlandi á miðöldum. En Ásgeir
hefur langt frá því sagt skilið við
ísland og langar mikið til að gera
leikna mynd á íslandi. „Það er
draumurinn í framtíðinni," segir
Ásgeir að lokum.
Kr. 1.795,-
Slönguhjól Claher
Málband Stanley 5 nietrar
T779ÍL
Sláttuvél Murray 20’’ 3.5 hp
Skráðu þig %>
í vefklúbbinn
www.husa.is
HÚSASMIÐJAN
Sími 525 3000 • www.husa.is