Morgunblaðið - 04.07.2000, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 04.07.2000, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 2000 43 MINNINGAR SIGRÍÐUR PÉTURS- DÓTTIR BLÖNDAL + Sigríður Péturs- dóttir Blöndal fæddist í Reykjavík 5. september 1915 og lést 29. júní. 2000 á Dvalar- og hjúkr- unarheimilinu Selja- hlíð 29. júní síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru Pétur Þ.J. Gunnarsson, f. 28.3. 1955, og Svanfríður Hjartardóttir, f. 5.12. 1975. Sigríður var elst sex systkina og lifði hún þau öll. Þau voru: Gunn- ar Sverrir og Þorbjörg sem dóu í æsku, Gunnar, Hjördís og Hjört- ur. Sigríður lauk verslunarskóla- prófi í Reykjavík 1932 og hélt síð- an utan til náms í Englandi. Hún starfaði alla tíð við ýmis skrif- stofu- og verslunarstörf. Sigríður giftist árið 1944 Haraldi Hans Jósepssyni Blöndal, f. á Siglufirði 29.3. 1917, d. í Reykjavík 22.6. 1964. Sigríður og Haraldur eign- uðust fimm börn, þar af tvenna tvíbura. Þau skildu. Börn þeirra eru 1) Svanfríður, f. 24.6. 1944, maki Þorsteinn Pétursson, þeirra barn er Lára. Áður átti Svanfríð- ur þrjú börn: Sigríði, Egil og Ingibjörgu Örlygsbörn. 2) Pétur, f. 24.6. 1944, hans börn eru: Dav- íð, Dagný, Stefán Patrik og Stella Marfa, móðir Mon- ika Dworczak; Bald- ur og Eydís, móðir Birna G. Guðmunds- dóttir. 3) Kristín Sigríður, f. 9.12.1946, maki Karl Örn Karlsson. Þeiwa börn eru Haraldur, Breki, Þeba Björt og Bjart- ur. 4) Hjörtur, f.22.6. 1950, hans börn eru: Þóra, móðir Anna Þórunn Sveinsdóttir, Kris, móðir Gitte Larsen, Johannes, móðir Kristine Wamberg og 5) Lárus. f. 22.6. 1950, maki Valgerður Baldurs- dóttir, börn: Lísa Björg, Stefán Andri og Kristín Lovísa. Barna- barnabörn Sigríðar eru níu. Sigríður ólst upp í miðbæ Reykjavíkur en gerðist ein af frumbyggjum Kópavogs árið 1948 og bjó þar meðan börnin uxu úr grasi. Hún fluttist siðan aftur til Reykjavfkur þar sem hún bjó við Hringbrautina. Meðal barnabarnanna var hún fyrst kölluð „amma kók“ og síðan „amma hring“, allt eftir búsetu. Síðustu árin bjó hún í Seljahlíð. Útför Sigríðar fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík í dag og hefst athöfnin klukkan 15. í bæ og kaupa ís. Allt var leyft og ekkert bannað. Þegar við eltumst bjuggum við mjög mikið hjá þér og þá var nú kátt í höllinni. Við höfum alltaf haft mikil samskipti og það hefur alltaf verið svo gott að koma til þín, meira að segja bara til að sitja og finna nærveru þína. Oft spilaðir þú á píanóið og var þá stundum sungið og dansað með, öllum til mikillar skemmtunar. Tungumálakunnátta þín var hreint með ólíkindum enda hafðir þú hlotið góða menntun í Verzlun- arskóla íslands og varst þar að auki mikil málamanneskja. Það kom sér að góðum notum því þú hafðir alltaf haft gaman af að ferð- ast og gerðir það eins mikið og lengi og hægt var. Elsku amma, þó við kveðjum þig í dag þá lifir minn- ingin um þig og verður þú ávallt í minningu okkar og allar skemmti- legu stundirnar sem við áttum með þér. Guð geymi þig. Sigríður (Sigga), Egill og Ingibjörg. j iiiiimxiiimy H H H H H H H H H H H H H H H Erfisdrykkjur P E R L A N Sími 562 0200 Elsku amma. Okkur langar að kveðja þig með örfáum orðum. Ein af okkar fyrstu minningum um þig er þegar þú fórst með okkur öll þrjú upp á Akranes með Akraborg- inni einn sunnudagsmorgun á góðviðrisdegi. Að sjálfsögðu gátu Ingibjörg og Egill ekki verið stillt og þegar við gengum fram hjá spítalanum sagðir þú: „Þið verðið að vera stillt því hér eru sjúkling- ar.“ Þessu var tekið mjög hátíðlega og þegar heim var komið var matur á borðum og kjúklingar í matinn. Þetta gátu Ingibjörg og Egill ekki skilið, að fyrst mátti ekki hafa hátt hjá kjúklingunum og koma svo heim og borða þá. Mamma, pabbi og amma vorum lengi að útskýra að kjúklingur og sjúklingur er ekki það sama. Alltaf öðru hverju síðan hefur þú rifjað upp þessa sögu og hlegið mikið eins og þér einni var lagið. Ekki var hægt annað en að hlæja með þér í hvert skipti enda var hlátur þinn smitandi og engum líkur. Uppátæki þín voru ótrúleg, þú leyfðir okkur að príla upp um þig alla og dansaðir fyrir okkur ballet þó þú værir með staurfót. Þú varst líka alltaf til í að taka strætó niður Blómastofa Friðfinns Suðurlandsbraut 10, 108 Reykjavík, sími 553 1099. Opið öll kvöld til kl. 22 - einnig um helgar. Skreytingar fyrir öll tilefni. Gjafavörur. rfisdrykkjur í Veislusalnum Sóltúni 3, Akógeshúsinu, fyrir allt aó300 manns. EINNIG I.ETriJR HADEGISMATUR MEÐKAFFI OG TERTU A F.ITIR - SAMA VERD . Stoðíá b6 °kkur ° notínu! VEISLAN G3 Glœsilegar veitingar frá Veislunni Austuislrönd 12 «170SehjaniamK »Slmi:561 2031 • Fax:561 2008 VEITINGAELDHCS www.veislan.is 03 + GUÐBJÖRG GfSLADÓTTIR fré Árbæjarhelli, lést á Sjúkrahúsi Suðurlands sunnudaginn 2. júlí. Fyrir hönd aðstandenda, Sigurbjörg Guðmundsdóttir. t Elskuleg móðir okkar, amma, langamma og tengdamóðir, GUÐBJÖRG PÉTURSDÓTTIR, Krummahólum 19, Reykjavík, lést föstudaginn 30. júní. Jarðarförin fer fram frá Fossvogskirkju föstu- daginn 7. júlí kl. 10.30. r Svanhvít Bragadóttir, Ásta Haraldsdóttir, Benedikt Sveinsson, Valur Bragason, Bergljót Bragadóttir, Óskar Bragason, og aðrir aðstandendur. Tara Kristín Kjartansdóttir, Hjálmar Sveinsson, Sif Haraldsdóttir, Fjóla Einarsdóttir, Örn Magnússon, Dóra Sigurðardóttir, + Ástkær eiginmaður minn, sonur, bróðir, mágur og frændi, VALDIMAR ÁRNASON, Bjarkalandi, Vestur-Eyjafjallahreppi, lést á Landspítalanum I Fossvogi aðfaranótt föstudagsins 30. júní. Þórný Guðnadóttir, fsleif I. Jónsdóttir, Sigurður Árnason, Connie M. Cuesta, Trausti Árnason, Erna Markúsdóttir, Bragi Árnason, Edda Traustadóttir, Árni Traustason. + Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HELGI Ó. H. ÞÓRÐARSON, Stórholti 18, Reykjavík, er látinn. Jarðarförin auglýst síðar. Skarphéðinn Þ. Helgason, Þórunn Gunnarsdóttir, Guðrún B. Helgadóttir, Steinar I. Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabarn. II ||| | p| f'' úf' s' * liissses RAÐAUGLYSINGAR Fasteignasala Rótgróin fasteignasala í fullum rekstri er til sölu af sérstökum ástæðum. Góð aðstaða og tæki til rekstrar. Vinsamlegast sendið nafn og símanúmertil auglýsingadeildar Mbl., merkt: „F — 9828". VEIÐI Veiðimenn ath! Nokkrar stangir lausar í Mýrarkvísl, Suð- ur-Þingeyjasýslu í júlí. Upplýsingar í síma 466 1193. PJOIMUSTA Raf-vit Löggiltur rafverktaki Nýlagnir, endurnýjun eldri lagna ofl. Stór og smá verk. Upplýsingar í símum 896 2284 og 897 8510. TILBOÐ / UTBOÐ Útboð Mosfellsbær Mosfellsbær ósksr eftir útboðum í gatna- og stíga- gerð í Höfðahverfi, 5. áfanga, í Mosfellsbæ. Um er að ræða jarðvegsskipti ásamt lagnavinnu. Helstu magntölur: Uppúrtekt 23.000 m Fylling 21.700 m Holræsalagnir 1.020 m Vatnslagnir 650 m Hitaveitulagnir 700 m Verklok skulu vera 1. júlí 2001. Útboðsgögn verða afhent á tæknideild Mosfells- bæjar, Völuteigi 2, frá og með miðvikudeginum 5. júlí. Tilboðum skal skila til tæknideildar Mos- fellsbæjar, Völuteigi 2, fyrir kl. 11.00 þriðjudaginn 18. júlí þar sem þau verða opnuð í viðurvist þeirra bjoðenda sem þess óska. Bæjarverkfræðingur Mosfellsbæjar. FÉLAGSLÍF I kvöld kl. 20.30: í kvöld kl. 20.00 verður 30 manna lúðrasveit frá Hjálpræðishernum í Drammen með lokatónleika í Hvitasunnukirkjunni, Hátúni 2. Leikin verður bæði gömul og ný Hjálpræðisherstónlist. Flutt verða einleiksverk, m.a. fyrir kornett, trombónu og bassa. Magne Heimark syngur ein- söng. Allir hjartanlega velkomnir. H.illvrigð'Stig 1 • stmi 56 Laugardagur 8. júlí kl. 08.00. Hekla (aukaferð), 250 ár frá fyrstu Heklugöngunni. Helgarferðir 7.-9. júlí. 1. „Með sínu lagi" í Básum. Tilvalin fjölskylduferð. 2. Fimmvörðuháls. Brottför föstud. og laugard. Upplýs. og miðar á skrifst. Lifandi heimasíða: utivist.is TILKYNNINGAR Sálarrannsóknarfélag Islands Sálarrannsókn- , arfélagið Sáló 1918-2000, Garðastræti 8, Reykjavík Vinsamlega athugið að lokað er hjá Sálarrannsóknar- félagi (slands frá og með 1. júlí til og með 25. ágúst vegna sumar- leyfa. Hægt er að ná í miðlana og huglæknana Þórunni Maggý Guðmundsdóttur í síma 552 9400 , Bjarna Kristjánsson í sfma 421 1873 og Kristínu Karlsdóttir i síma 551 3550. Hittumst heil í lok ágúst, bestu sumarkveðjur. DULSPEKI Huglækningar/Heilun Sjálfsuppbygging. Samhæfing líkama og sálar. Áran. Fræðslumiðlun. Halla Sigurgeirsdóttir, andlegur læknir. Uppl. í síma 562 2429 f.h.jf
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.