Morgunblaðið - 04.07.2000, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ
I DAG
ÞRIÐ JUDAGUR 4. JÚLÍ 2000 6 }
BRIDS
Umsjón: Kuómundur Páll
Arnarson
SIGUR Svía í opna flokkn-
um á NL í Hveragerði var
sérlega sannfærandi og
skor þeirra er það hæsta í
langan tíma, 201,5 stig í tíu
leikjum, eða 20,2 stig að
meðaltali í leik. Svíar töp-
uðu aðeins einum leik, 12-
18 gegn íslandi í síðari
umferð. Hér er fallegt
slemmuspil úr þeirri við-
ureign, sem féll í sjö tígl-
um:
Vestur gefur; enginn á
hættu (áttum snúið).
Noj-ður
* AK83
v A6
* D6
* AK875
Norður
Vestur Austur
4 975 4 D62
* DG103 »9742
♦ 42 ♦ 9753
* G963 4 102
Suður
* G104
y K85
* ÁKG108
* D4
I opna salnum voi'u
bræðurnir Anton og Sig-
urbjörn Haraldssynir í NS
gegn Nilsson og Eriksson:
Vestur Norður Austur Suður
Nilsson Sigurbjöm Eriksson Anton
Pass llauf Pass 2 tíglar
Pass 2spaðar Pass 2grönd
Pass 3 tíglar Pass 3grönd
Pass 4 lauf Pass 4 tíglar
Pass 4 hjörtu Pass 4grönd
Pass 7 tíglar Allirpass
Þeir bræður spila eðli-
legt kerfl (Standard) og
eftir laufopnun krefui'
Anton í geim með stökki í
tvo tígla. Sigurbjörn sýnir
fyrst styrk í spaða en styð-
ur síðan tígulinn yflr
tveimur gröndum og held-
ur áfram þegar Anton
slær af í þremur gröndum.
Eftir fyrirstöðusagnir á
fjórða þrepi sýnir Anton
tvö lykilspil með fjórum
gi'öndum og það dugir Sig-
urbirni til að stökkva í sjö
tígla. Alslemman er mjög
góð og einfaldasta leiðin til
vinnings er að trompa
hjarta á tvílitinn í borði.
Á hinu borðinu sögðu
Strömberg og Nyström
einnig sjö tígla, svo spilið
féll. Það var aðeins á þess-
um tveimur borðum sem
alslemma var sögð. Aðrir
spiluðu ýmist sex tígla eða
sex grönd.
E.S. Lesandinn gæti
haft gaman af að velta fyr-
ir sér spilamennskunni í
sjö gröndum en þann
samning má vinna með
tvöfaldri þvingun: Vestur
þarf að valda laufið en
austur spaðann, svo hvor-
ugur getur staðið vörð um
hjartað.
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynning-
ar þurfa að berast með
fveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyrir-
vara fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmælistil-
kynningum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og síma-
númer. Fólk getur hringt í
síma 569-1100, sent í bréf-
síma 569-1329, eða sent á
netfangið ritstj @mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1,103
Reykjavík
Árnað heilla
O A ÁRA afmæli. í dag,
O v þriðjudaginn 4.
júlí, er áttræður Haukur
S. Guðmundsson, Skúla-
götu 20, Reykjavík. Hann
og eiginkona hans, Jó-
hanna Hálfdánardóttir,
taka á móti ættingjum og
vinum í Skíðaskálanum í
Hveradölum milli kl. 15 og
18 sunnudaginn 9. júlí.
pT A ÁRA afmæli. í dag,
tl v/ þriðjudaginn 4.
júlí, er fimmtug Krist-
björg Birna Guðjónsdótt-
ir fiskvinnslukona, Vest-
urbergi 74, Reykjavík.
Ég skil ekki hvað fólk
hefur á móti róandi
pillum. Nú er ég ekk-
ert hræddur lengur.
Sjáðu til, hér er ég
með 50 króna vinn-
ing á skafmiða.
17 A ÁRA afmæli. Nk.
I V/ fimmtudag, 6. júlí,
verður sjötugur Sigurður
R. Guðmundsson, fv.
skólastjóri Heiðarskóla,
Flétturima 4, Reykjavík.
Sigurður og Laufey, sam-
býliskona hans, taka á
móti gestum í Félagsheim-
ilinu Heiðarborg í Leirár-
sveit á afmælisdaginn frá
kl. 19. Ferð verður frá
Hópferðamiðstöðinni,
Hesthálsi 10 (við hliðina á
Bifreiðaskoðun) kl. 18.30.
SKÁK
llmsjnn Helgi Áss
Grétarsson
STAÐAN kom upp í úr-
slitakeppni hollensku
deildakeppninnar í Breda
sem lauk fyrir nokkru.
Frægasta lið Hollands, Pan-
fox Breda, hefur borið höfuð
og herðar yfir önnur lið þar í
landi enda tefla margar
þekktar kempur fyrir það og
má þar m.a. nefna Loek Van
Wely, Jan Timman, Michael
Adams og Ivan Sokolov.
Arftaki Tigrans Petrosjans
sem besti skákmaður Árm-
ena, Rafael Vaganjan
(2618), er einnig í liðinu og
hafði hvítt í stöðunni gegn
hollenska alþjóðlega meist-
aranum Rudy Douven
(2389). 34. Hd8+! Bxd8 35.
Dxd8+ He8 36. Dd6+ He7
36. ...Kg8 gengur ekki upp
sökum hins einfalda 37.
Rf6+ og hvítur verður
manni yflr. 37. Dh6+! Ke8
38. Rf6+ og svartur gafst
upp þar sem fátt er til varn-
ar eftir 38.... Kd8 39. Df8+.
LJOÐABRÖT
ÍSLANDS MINNI
Þið þekkið fold með blíðri brá
og bláum tindi fjalla
og svanahljómi, silungsá,
og sælu blómi valla,
og bröttum fossi, björtum sjá,
og breiðum jökulskalla. -
Drjúpi’ hana blessun drottins á
um daga heimsins alla.
Jónas Hallgrímsson.
STJÖRNUSPÁ
eftir Franees Drake
KRABBI
Afmælisbarn dagsins: Þér
hættir tii að horfa á málin
um of frá eigin sjónarhóli.
Munduað aðrir hafa
líka sitt að segja.
Hrútur
(21. mars -19. apríl)
Þú þarft að skapa þér betri
yfirsýn yfir verkefni þitt. Að
öðrum kosti áttu það á
hættu að geta ekki lokið við
það.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þér fmnast of margir sækja
að þér í einu og vilt því leita
uppi einveruna. Gættu þess
þó að brenna ekki allar brýr
að baki þér.
Tvíburar __
(21. maí - 20. júní) Wfl
Þér hefur gengið vel að
vinna aðra til liðs við þig og
nú reynir á forystuhæfileika
þína að leiða málið til lykta.
Krabbi
(21.júní-22. júlí)
Þegar allt kemur til alls er
það vináttan sem skiptir
mestu máli. Sinntu því vin-
um þínum og gefðu þér tíma
til að hlusta á þá.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú hefur engar efasemdir
varðandi markmið þín og átt
því auðveldara með að fá
fólk til samstarfs við þig.
Rómantíkin blómstrar.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Það er engin skömm að því
að skipta um skoðun ef öll
rök hníga til þess. Fjörug
skoðanaskipti eru ailtaf til
ánægju.
(23. sept. - 22. okt.) m.
Þú ert glaðlyndur og öll
samskipti ganga vel bæði í
starfi og einkalífi. Nú er
rétti tíminn til að ganga að
samningaborði.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú munt komast að því að
hæfileikar þínir liggja á
mörgum sviðum. Finndu
þeim því farveg þar sem
þeir fá notið sín.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.) rttO
Hugmyndaauðgi þín dregur
langt í samkeppni við aðra.
Búðu þig samt undir harða
samkeppni sem þú þó átt að
geta sigrast á.
Steingeit
(22. des. -19. janúar)
Nú þarftu að taka á honum
stóra þínum í fjármálunum.
Gættu sérstaklega að út-
gjöldunum og dragðu þau
saman eftir mætti.
Vatnsberi f
(20. jan. -18. febr.) eib
Þú veltir fyrir þér lífinu og
tilverunni þessa dagana.
Gefðu þér tíma til að njóta
fegurðar náttúrunnar með
þínum nánustu.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Það er svo sem gott og
blessað að gera áætlanir en
gakktu ekki svo langt að þú
hafir ekkert svigrúm fyrir
sjálfan þig.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindaiegra staðreynda.
M11
HOGSKQT
J2j óíti -\y
Brúðkaupsmyndatökur
Nethyl 2, sími 587 8044
Kristján Sigurðsson, Ijósmyndari
Umhverfisauglýsingar
Til sölu er vaxandi fyrh'tæki sem er sérhæft í umhverfisauglýs-
ingum, skiltum, ljósaskiltum, plaggötum, bílamerkingum,
gluggamerkingum, risaskiltum og veitir alhliða þjónustu, enda
með allar þær vélar sem til þarf og þær nýjustu og bestu.
Tækjalisti fyiirliggjandi. Fyrirtækið sér um allt, viðskiptavin-
urinn þarf ekki að láta vinna verkið hjá mörgum aðilum. Frá-
bær vinnuaðstaða. Traustir og góðir viðskiptavinir. Góð skrif-
stofuaðstaða. Fyrirtæki sem skilar góðri framlegð.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
SUÐURVERI
SlMAR 581 2040 OG 581 4755. REYNIR ÞORGRÍMSSON.
vetur
Opið laugardag frá kl. 10-16
Mörkinni 6, s. 588 5518
Bflastæði við búðarvegginn.
Fræðsluauglýsing frá Landlæknisembættinu www.landlaeknir.is
iT
Lífið er línudans
Okkur getur auðveidlega skrikað
fótur á lífsins leið, en
þurfa ekki að vera alvarlegar,
því mikill munur er á fífldirfsku
og fyrirhyggju.
Áhætta er eðlileg í daglegu
umhverfi okkar.
Hafðu vaðið fyrir neðan
þig og hugsaðu um
afleiðingar gerða þinna:
• Snertu ekki fíkniefni.
Ein tilraun getur gert
útaf við þig
• Spenntu beltin og aktu hægar
en þig langar til
• Njóttu kynlífs með fullri
meðvitund og notaðu smokkinn
• Óvissuferðir eru frábærar en ekki án fyrirhyggju
• Reykingar eru aldrei áhættunnar virði *
• Ef þú notar áfengi notaðu það í hófi
• Ekki gleyma hvíldinni, reglubundinn svefn er öllum nauðsynlegur
Lifðu lífinu lifandi og njóttu þess!
Landlæknisembættið