Morgunblaðið - 04.07.2000, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 2000 1 5
AKUREYRI
Minjasafnið á Akureyri
Sögugöngur
verða sífellt
vinsælli
SÖGUGÖNGUR á vegum Minja-
safnsins á Akureyri eiga vaxandi
vinsældum að fagna en á síðustu ár-
um hafa ijölmargir tekið þátt í slík-
um göngum um Innbæinn og Odd-
eyrina. Famar em tvær slíkar
ferðir í hvora bæjarhluta á sumri,
en í fyrrasumar var bætt við sögu-
göngu um Glerárþorp og tók fjöl-
menni þátt í henni. Önnur slík
ganga var í boði eitt góðviðris-
kvöldið fyrir skömmu og voru þátt-
takendur rúmlega 50 talsins.
Leiðsögumaður var Hörður
Geirsson, starfsmaður á Minjasafn-
inu á Akureyri. Ferðin hefst við
húsið Ós í Sandgerðisbót, en það
var reist árið 1908 og var fyrsti
skólinn sem reistur var utan Gler-
ár. Hann var starfræktur til ársins
.
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Eitt fyrsta steinhúsið sem reist var í Glerárþorpi var Ós í Sandgerðisbót, en þar var fyrsti barnaskóli þorpsbúa,
byggður árið 1908 og var starfræktur til 1938.
Rúmlega 50 manns tóku þátt f sögugöngu Minjasafnsins á Akureyri um
Glerárþorp og fræddust um býli sem þar stóðu áður fyrr en sum þeirra
standa raunar enn. Hörður Geirsson starfsmaður safnsins var leiðsögu-
maður en hann er fyrir miðri mynd.
1938. Fram kom í máli Harðar að
fyrst var farið að byggja utan Gler-
ár á sfðari hluta síðustu aldar og
vom einkum hinir efnaminni sem
reistu sér þar hús. Glerárþorpið til-
heyrði á þeim tíma ekki Akureyri
og náði byggingarreglugerð bæjar-
ins ekki yfir þetta svæði þannig að
menn höfðu frjálsari hendur með
efni í byggingar sínar en inni á Ak-
ureyri.
Fólk fræðist um gamla tíma
Frá Ósi er haldið sem leið liggur
upp Stórholt og Höfðahlíð og upp á
stífluna yfír Glerá og gerð grein
fyrir býlum sem þar stóðuáður fyrr
og sum hver raunar enn. Á bökkum
Glerár er gerð grein fyrir rafvæð-
ingu bæjarins en þar var reist raf-
stöð og stifla á ámnum 1921 og
1922 sem sá bæjarbúum fyrir raf-
magni.
„Megintilgangur þessara ferða
er að gefa fólki kost á að fræðast
um gamla tíma og upplifa and-
rúmsloft hins liðna,“ sagði Hörður,
en hann sagði sögugöngur Minja-
safnsins sffellt verða vinsælli þann-
ig að greinilegt væri að al-
menningur hefði áhuga fyrir
sögunni.
■
ill II
“lifí
.
■
' ■ -/ ; ■1 /■’ ■ _; ■ ■ ■ . ■
ISliisÍlfiSSIiBI
MUNAR ENGU NEMA
395.000 KR. Á VERÐI
Þér er óhætt að bera nýjan Accent saman
við bíla af svipaðrí stærð. Hann gefur þeim
ekkert eftir og er betur búinn ef eitthvað
er. Og þegar verðið er skoðað hefur hann
alltaf vinninginn.
Accent
7^0Q kr. á mánuði*
S&pSg&SSB&SA
meö öUum V
___
.. ■■
HYUnDRI
Hyundai söludeild, s(mi 575 1280
20«
»ir* *o*vs tw
NYR
VWGOLF
Vél 1,5 1,6
Hestöfl 102 100
Dyr 5 5
Lengd mm 4200 4149
Breidd mm 1670 1735
Hæð mm 1395 1439
Skottrými 480 330
ABS Já Já
Loftpúðar 2 4
CD Já Já
Álfelgur Já Nei
Samlitir stuðarar Já Já
Fjarstýrðéir samlæsingar Já Já
Rafmagn í rúðum Já Já
Verð 1.195.000 1.590.000
Grjóthálsi 1, siml 575 1200
; % %&%%%: