Morgunblaðið - 04.07.2000, Síða 25

Morgunblaðið - 04.07.2000, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 2000 25 Endalok hins „fullkomna einræðis“ hagslífíð hafi náð að rétta úr kútn- um á furðulega skömmum tíma. En þótt Zedfllo hafi tekizt að koma hjólum efnahagslífsins aftur í gang og hann hafi staðið fyrir opnu prófkjöri um forsetafram- bjóðanda PRI, því fyrsta í sögu flokksins, reyndist það ekki nóg til að þjóð sem var búin að fá sig fullsadda af einræði eins flokks gæfi honum eitt tækifæri enn. Skipbrot kerfisins SJÖTÍU og eins árs valdatíð PRI- flokksins í Mexíkó lauk loks með ósigri frambjóðanda hans í for- setakosningunum á sunnudag. Það kom Mexíkóbúum almennt mjög á óvart hve afgerandi sigur stjórnarandstöðuframbjóðandans Vicente Fox reyndist vera en yfir- gnæfandi meirihluti íbúa landsins hafa aldrei þekkt annað fyrir- komulag á landstjórninni en al- ræðisvald PRI (Partido Revol- ucionario Institucional). „Ég trúi þessu ekki. Alla mína ævi hef ég lifað undir stjórn PRI. Eftir áratugi í myrkri PRI hefur sólskin lýðræðisins loks risið yfir Mexíkó," tjáði skáldið og stjórn- málaskýrandinn Homero Aridjis Reutens-fréttastofunni. Francisco Labastida, forseta- frambjóðandi PRI, hlaut aðeins um þriðjung atkvæða en slíkt atkvæðahlutfall þýðir algjört hrun fyrir flokk sem fram á síðasta áratug var vanur því að fá um 90% atkvæðanna, jafnvel meira, og hafði alltaf fengið hreinan meiri- hluta. Þetta eru tímamót sem minnir marga á hrun kommúnismans í Austur-Evrópu fyrir réttum ára- tug og marka endalok eins flokks kerfis sem perúski rithöfundurinn Mario Vargas Llosa nefndi eitt sinn „hið fullkomna einræði". Einstakt fyrirbrigði „PRI-flokkurinn er einstakt fyr- irbrigði og með lífseigari pólitísk- um „apparötum" sem sögur fara af,“ segir í fréttaskýringu Ásgeirs Sverrissonar um hrakfarir PRI í þing- og sveitarstjórnarkosningum fyrir þremur árum. „Flokkurinn hefur verið lengur við völd en kommúnistar í Kína og Kommún- istaflokkur Sovétríkjanna náði ekki þessum aldri. Fídel Castro, einræðisherra á Kúbu, er nánast byrjandi í faginu samanborið við „byltingarsinnana" í Mexíkó. Nafn PRI-flokksins (sem er ill- þýðanlegt á íslenzku) gefur ágæta mynd af þeirri mótsagnakenndu stjórnspeki sem hann fylgir. All- tjent kann að virðast sérkennilegt að kenna flokk við „stofnanavæð- ingu byltingarinnar“ en þannig mætti ef til vill þýða „Partido Revolucionario Institucional“.“ Flokkurinn hefur tæpast nokk- urn tímann haft nokkra áþreifan- lega, skýra stefnu frá því til hans var stofnað árið 1929 en það skýr- ist a.m.k. að nokkru með uppruna hans. Flokkurinn var stofnaður til að koma á friði með þeim fjöl- mörgu hópum sem barizt höfðu í mexíkósku byltingunni á árunum 1910-1917 og þvinga þá til sam- starfs. Á sex ára fresti komu hóp- ar þessir saman og náðu sam- komulagi um hver skyldi gegna embætti forseta, sem fengið var alræðisvald. Sú ákvörðun var síðan jafnan staðfest með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða í kosningum. Þetta fyrirkomulag hefur sagn- fræðingurinn Enrique Krauze nefnt „hið konunglega forsetaem- bætti“. Mexíkó virtist vera lýðræðisríki Út á við virtist Mexíkó vera lýð- ræðisríki. „Sú yfirborðsmynd var hins vegar röng og kjarninn rotinn og spilltur," segir í fréttaskýringu Ásgeirs. „PRI stjórnaði verkalýðs- félögum og fjölmiðlum. Sendi- sveinar flokksins komust oft til áhrifa í röðum stjórnarandstöð- unnar. Styrkjum var dreift til að kaupa vinsældir og niðurgreiðslum var óspart beitt til að vinna hylli ákveðinna hópa. Spillingin gegn- sýrði samfélagið og pólitísk morð voru tíð. Kosningasvik þóttu sjálf- sögð og niðurstöðum á kjördag var oft breytt teldust þær óhagstæðar. Atkvæði voru keypt með beinum eða óbeinum hætti. Og þannig var unnt að gefa flokkseinræðinu lýð- ræðislegt yfirbragð." Hrikta tók í stoðum þessa valda- kerfis undir lok sjöunda áratugar- ins. Óánægja almennings fór jafnt og þétt vaxandi, einkum vegna efnahagsörðugleika sem riðu yfir. Stjórnarandstaðan tók að styrkj- ast. Fátæktin jókst og misskipting auðsins varð sífellt hróplegri. Árið 1994, eftir sex ára forsetatíð Carlos Salinas de Gortari, var efnahagslífið komið í þrot. Hrunið varð algjört. Um ein og hálf milljón manna missti vinnuna og Bandaríkjamenn þurftu að grípa inn í til að bjarga gjaldmiðli lands- ins. Næsti forseti, Ernesto Zedillo, boðaði strangt aðhald sem krafðist mikilla fórna af hálfu alþýðu manna. Kaupmátturinn féll um 30% og félagsleg spenna jókst. Hún er enn viðvarandi þótt efna- Á sunnudag beið „kerfið“ skip- brot, „risaeðlurnar" - gömlu PRI- kempurnar sem Zedillo fékk upp á móti sér með umbótatilraunum sínum - hafa misst öll áhrif. Mexíkó hefur náð stórum áfanga á leiðinni frá hinu „fullkomna ein- ræði“ til þess sem margir vonast til að verði „fullkomið lýðræði". SumQrbílar SinriQTbllar í TinotsVurn 1 Nýjar álfelgur 2 Ný rodíal siimordekk 3 Nýr geislaspilari 4 Vandlega gfirfarnir -imgir í armaó sinn Sumarbílar Bílalands hafa endurheimt fríshleiha og eldmóó æshunnar. heir eru meó ngjum geislaspilara, álfelgum, sumardekkjum og vandlega gfirfarnir af fagmönnum svo þeir eru nánast eins og ngir. Skelltu þér í Bílaland og fáðu þér flottari bíl á frábæru verói. Grjóthálsi 1 Sími 575 1230 www.bl.is b, L |Qb lor noioó r tonor 1 8L, Kír w HYUNDAl PONY LSl nýskr. 2/94, árg. 1 994, ek 68 þðs. /æggaraaejKjua Verð 450.000 HYUNDAl SONATA GlSl nýskr. 1 0/96, árg.l 996, ek 55 þús. Verð 1.090.000 HYUNDAl ACCENT GSl nýskr. 6/95, árg. 1995, ek 92 þús. Verð 510.000 HYUNDA1 SCOUPEISI nýskr 5/92, árg. 1 992, ek 82 þús. itmsismsmDi Verð 490.000 HYUNDAl SCOUPH LSl ngskr 8/94, árg. 1 994, ek.88 þús. Verð 670.000 RENAUIT CUO RT ngskr. 8/97, árg.l 998, ek61 þús Verð 790.000 HYUNDAl SONATA GlSl ngskr.3/94, árg. 1 994, ek 1 08 þus. Verð 630.000 HYUNDAl ACCENT ISl ngskr. 6/96, árg. 1 996, ek 63 þús Verð 650.000 HYUNDAl ACCENT LSl ngskr. 4/97, árg. 1 997, ek 46 þús. Verð 750.000 HYUNDAl COUPÉFX_____ ngskr. 9/97, árg. 1 997, ek52þús. Verð 1290.000

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.