Morgunblaðið - 04.07.2000, Page 26

Morgunblaðið - 04.07.2000, Page 26
26. ÞjRJÖJUÐÁliUK 4. juik Z0)M ERLENT ívíuKGUNBuAÐJU íranskir gyðing- ar dæmdir Sakaðir um „víð- tækar njósnir“ Tehcran, New York. AFP, AP. ÍRANSKIR gyðingar sem fundnir voru sekir um njósnir í þágu ísraels voru flæktir í víð- tæka njósnastarfsemi er beind- ist að herstöðvum, iðnaði og seðlabankanum að því er emb- ættismaður í íranska dóms- kerfinu sagði í gær. Gyðingamir tíu voru á laug- ardaginn dæmdir í fangelsi í borginni Shiraz í suðurhluta ír- an. Embættismaðurinn sagði enn fremur í viðtali við íranska blaðið Jomhuri Eslami að hluta dómsins yrði haldið leyndum af öryggisástæðum. Sakbomingamir vom dæmdir í fjögurra til þrettán ára fangelsisvistar. Þá vora tveir múslimar fundnir sekir. Þrír gyðingar og tveir múslim- ar vora sýknaðir. Samkvæmt dómsúrskurðinum tóku hinir sakfelldu þátt í starfsemi njósnahrings sem hóf starfsemi fyrir rúmlega tuttugu áram. Leiðtogar gyðinga í Banda- ríkjunum hvöttu til harðari refsiaðgerða gegn Iran í kjölfar dómsúrskurðarins. „íran verð- ur að gjalda þessa,“ var haft eftir Eliot Engel frá New York sem ásamt 150 öðram gyðinga- leiðtogum mótmælti við bæki- stöðvar sendinefndar Iran hjá Sameinuðu þjóðunum. Courtney Ravenscrough, Qögurra laug í sundhöllinni í Leawood í horfur á að breyting verði á því ára, reynir með takmörkuðum ár- Kansas í Bandaríkjunum. Þar var blíðviðri næstu daga. Ef eitthvað er angri að fá sér vatnssopa í buslu- sólskin og 34 stiga hiti í gær og ekki mun hlýna um fáeinar gráður. Blíðviðri í Kansas Rjósendur í Mongólíu sýna óánægju sína með umbótaáætlun stjórnarinnar Fyrrverandi kommún- istar vinna stórsigur Úlan Bator. AP, Reuters. FYRRUM ráðamenn úr röðum kommúnista unnu mikinn kosninga- sigur í þingkosningum í Mongólíu um helginaoghafanú heitið því að hægja á því hraða umbótaferli sem lýðræðissinnar hrintu í fram- kvæmd fyrir fjór- um árum. Sigur Byltingarflokks mongólsku þjóð- arinnar (MPRP), sem hélt um stjómartaumana frá 1920 til 1996, er talinn benda til útbreiddrar óánægju með umbótaáætlun ríkisstjómar síð- ustu ára auk þess sem ýmis hneykslismál fráfarandi stjórnarliða spilltu fyrir árangri þeirra. Ríkisútvarp Mongólíu sagði frá því í gær að MPRP hafi unnið 72 af 76 þingsætum á mongólska þinginu. Talningu allra atkvæða hafði þó ekki verið lokið og töldu kosningaeftirlits- menn að endanlegra úrslita yrði ekki að vænta fyrr en í dag. Kosningabarátta í anda Blairs Stjómmálaskýrendur sögðu í gær að líklegt væri að MPRP myndi hægja á öllum markaðsumbótum sem stjóm Lýðræðisbandalagsins beitti sér fyrir í stjómartíð sinni. Undan- farin ár hafa verið einkar erfið fyrir 2,4 milljónir íbúa landsins og er al- menn fátækt orðin afar útbreidd. MPRP hefur hagnast á almennri reiði í garð stjómarflokkanna en samstarf þeirra hefur að undanfomu einkennst af mikilli sundrungu. Þá hefur þeim verið kennt um miklar efnahagslegar þrengingar sem komið hafa í kjölfar tilmæla Aiþjóðagjaldeyrissjóðsins. Úrslit kosninganna era talin mikill persónlegur sigur fyrir N. En- khbayar, einn leiðtoga flokksins, og þykir hann líklegur til að taka við stjómartaumunum. Enkhbayar hef- ur stundað nám í Bretlandi og Rúss- landi og þótti kosningabarátta hans bera nokkum keim af stefnumiðum breska verkamannaflokksins undir stjóm Tonys Blairs. Enkhbayar full- yrti í sigurræðu í gær að MPRP myndi ekki beina Mongólíu á braut kommúnisma og líkti framtíðarstjóm við stjómarsetu jafnaðarmanna í Frakklandi og Bretlandi. „MPRP hefur lært mikið á undanfomum fjór- um áram. Á næstu fjórum áram mun- um við vinna náið með mongólsku þjóðinni. Mongólíubúar era að átta sig á að galdraþulur líkt og einkavæð- ing leiða ekki sjálfkrafa af sér aukin lífsgæði," sagði Enkhbayar í gær. Strax í gær er víst þótti að MPRP myndi vinna stórsigur lýstu leiðtogar flokksins því yfir að munaðarlaus böm og böm hirðingja myndu njóta ókeypis skólagöngu. Ganga Oraníumanna á Norður-Irlandi bönnuð Belfast. AP. YFIRVÖLD á Norður-írlandi lýstu því yfir í gær að Óraníugangan, skrúðganga mótmælenda um hverfi kaþólskra í Portadown sem fyrirhug- að var að halda nk. sunnudag, skyldi ekki fara fram í ár og kom ákvörð- unin í kjölfar átaka lögreglusveita og mótmælenda við hverfi kaþólskra um helgina. Nefnd sú sem tekur ákvörð- un um framgang árlegra gangna mótmælenda og kaþólskra sagði í gær að þótt Óraníugangan hefði ver- ið bönnuð gæti verið að mótmælend- um yrði leyft að ganga fylktu liði um Garvaghy-stræti ef Öramumenn létu af mótmælum sínum og hefðu sam- ráð við kaþólska í Portadown. Tony Holland, formaður göngu- nefndarinnar, sagði í gær að ákvörð- unin hafi verið tekin með hliðsjón af því að Óraníumenn hafi ítrekað huns- að tilmæli um samráð við íbúa Gar- vaghy-strætis og að þeir bæra að hluta til ábyrgð á aukinni spennu í Portadown. Á sunnudag bratust út átök milli hóps mótmælenda og lögreglusveita nærri Dramcree kirkju eftir að Ór- aníumenn vora hindraðir í göngu sinni um Garvaghy-stræti. Sjö lög- reglumenn særðust í átökunum eftir að um 500 manns hentu grjóti, flösk- um og öðra lauslegu að lögreglunni. „Röng ákvörðun" .Ákvörðunin er í grandvallaratrið- um röng og mun gefa íbúum Garvag- hy-strætis færi á að sitja með hendur í skauti og aðhafast ekkert," sagði David Jones, talsmaður Óraníu- manna í gær. Sagði hann að ákvörð- unin skapaði valdatóm sem auðveld- lega yrði fyllt af fólki sem gripi til ofbeldisaðgerða. Harold Gracey, leiðtogi Óraníumanna, sagði stuðn- ingsmönnum sínum eftir átökin á sunnudag að baráttan muni fram halda eins lengi og nauðsyn krefði. Portadown-gangan, þar sem þess er minnst er Vilhjálmur af Óraníu sigraði kaþólikka árið 1690, hefur valdið átökum hvort sem lögregluyf- irvöld hafa leyft göngu Óraníumanna eða ekki. Árin 1996 og 1997 urðu lög- reglusveitir að fjarlægja kaþólikka af Garvaghy-stræti sem leiddi til ákafra mótmæla þeirra. Bannað hefur verið að ganga upphaflegu leiðina síðan 1998 og hafa mótmælendur tekið því afar illa. Hvarf Castros vekur furðu MIKLAR bollaleggingar hafa verið um það á Kúbu undan- fama daga hvers vegna ekki hafi sést til ferða Fidels Castros um nokkurt skeið. Hefur það vakið mikla furðu að Castro lét ekki sjá sig er tugþúsundir Kúbveija fögnuðu endurkomu drengsins Elians Gonzales eftir veru hans í Bandaríkjunum en heimkoma hans er talin vera mikill sigur fyrir Kúbuleiðtoga. Á meðan Elian var í Bandaríkj- unum mætti Castro nokkram sinnum í viku í sjónvarpsútsend- ingu og ræddi mál drengsins en til hans hefur ekki sést í meira en viku. Þá lét hann ekki sjá sig er Elian og fjölskylda hans lentu í Havana. Segja fréttaskýrend- ur að þetta megi rekja til þess að Castro sé í mun að sýna Banda- ríkjamönnum fram á að hann hyggist ekki nota drenginn í póUtískum tilgangi. Ofbeldi veld- ur áhyggjum TONY Blair, forsætisráðherra Bretlands, lýsti í gær yfir stríði á hendur ofbeldishneigðum drykkjumönnum á glæparáð- stefiiu þar sem ætlunin er að endurvekja traust umheimsins á Bretlandi sem landi laga og reglna. Kemur yfirlýsingin í kjölfar fréttaflutnings í banda- rískum fjölmiðlum um að í Bret- landi ríki mikil glæpaalda sem líkja megi við Bandaríkin og of- beldisverka þeirra er breskar fótboltabuUur hafa staðið fyrir í tengslum við Evrópukeppni landsUða í knattspymu á megin- landinu. Segjast stjómarliðar vera opnir fyrir öllum tilmælum lögregluyfirvalda um hvemig taka beri á vaxandi tíðni ofbeld- is. Illviðráðan- leg veira SJÖ manns hafa látist í Japan að undanfomu eftir að hafa sýkst af sömu veiranni eftir legu á sjúki-ahúsi í Osaka. Að sögn yf- irlæknis sjúkrahússins í Osaka lést fólkið eftir að hafa sýkst af veirunni á undangengnum tveimur mánuðum. Sagði hann að staðfest hafi verið að sjö aðrir sjúklingar sem vistaðir séu á sjúkrahúsinu hafi serratia marcescens-veiruna og væra í gjörgæslu vegna þessa. Ekki er enn ljóst hvemig veiran breidd- istút. Powell utanríkis- ráðherra? COLIN PoweU, einn virtustu hershöfðingja Bandaríkjahers, mun verða skipaðui’ í stöðu ut- anríkisráðherra Bandaríkjanna ef George W. Bush sigrar í for- setakosningunum síðar á árinu að sögn háttsettra manna í bandaríska repúblikanaflokkn- um. Er talið að fyrirhuguð skip- an Powells í stöðuna muni þagga niður í þeim gagnrýnisröddum sem kveðið hafa að Bush skorti reynslu í utanríkismálum auk þess sem sá hetjuljómi sem um Powell leikur muni koma sér vel í kosningaslagnum fram undan.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.