Morgunblaðið - 04.07.2000, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
AÐALS TEINN MÁR
BJÖRNSSON
+ Aðalsteinn Már
Björnsson fædd-
ist á Akureyri 17.
ágúst 1979. Hann
lést í bílslysi hinn
25. júní síðastliðinn.
Foreldrar Aðal-
steins eru; Björn
Aðalsteinsson, f.
13.7. 1956 og kona
hans, Sólveig Brynj-
arsdóttir, f. 11.2.
1959. Systkini Aðal-
steins Más eru; Elm-
ar Þór, f. 21.8. 1981
og Anna Sigríður, f.
8.9. 1986. Föðurafi
Aðalsteins Más er Aðalsteinn
Á fögrum sóh'íkum sumarmorgni
var mér tilkynnt um andlát bróður-
sonar míns, Aðalsteins Más Björns-
sonar. Þetta hræðilega bflslys þar
sem tveir ungir menn létu lífið vakti
mig til umhugsunar, einu sinni enn,
um það hversu líf okkar allra getur
breyst á einu augnabliki. Aðalsteinn
Már, eða AJli eins og við kölluðum
þig í daglegu tali, var fyrsta barn for-
eldra sinna og var skírður eftir föð-
urafa sínum. Aðalsteinn afi þinn
þreyttist aldrei á því að láta mig
fylgjast með þér á þínum uppvaxtar-
árum. Sökum fjarveru minnai’ frá
íslandi voru samverustundir okkar
aldrei langar. En ég fylgdist með þér
úr fjarlægð og vissi að ég átti mjög
efnilegan ungan frænda. Tónlistin
var þér mjög hugleikin og man ég vel
þegar þú varst enn smástrákur að þú
fluttir fyrir okkur fjölskylduna klass-
ískan gítai'leik í jólaboði sem ég var
stödd í heima á Akureyri. Fylgdumst
við öll vel með og vorum auðvitað
mjög hreykin af þér. Eftir því sem að
þú eltist frétti ég oft af þér gegnum
Alla afa þinn. Ég frétti að þú værir
einnig farinn að setja saman eigin
texta og semja heilu lögin sjálfur
ásamt því að útsetja og flytja verkin.
Hlustaði ég á eitt slíkt lag nú sl. vetur
heima hjá mér, en mér hafðist borist
geisladiskur með lögum eftir þig og
fluttum af þér. Man ég að þegar disk-
inum lauk, og ég auðvitað alveg að
rifna úr monti yfir að eiga svona efni-
legan frænda, benti ég viðstöddum á
að hér væri á ferðinni ungur maður
sem hefði svo sannarlega góða hæfi-
leika og ætti eftir að ná langt á
hljómlistarbrautinni. Það er mjög
sárt og erfitt að sætta sig við að ung-
ur og frískur maður með allt lífið
fram undan skuli vera tekinn burtu
frá okkur á svo sviplegan hátt. AIU
minn, þín á eftir að verða sárt saknað
af okkur öllum í fjölskyldunni því að
þar gegndir þú mjög stóni hlutverki.
Aðeins eru átta mánuðfr liðnir síðan
að við fjölskyldan misstum annan
ungan frænda úr sviplegu slysi í
Noregi en þið ungu frændur létuð
báðir lífið á nákvæmlega sama tíma
sólarhringsins og báðir á sunnudags-
morgni. Elsku Bjössi bróðir, Solla,
Elmar, Anna og Alli afi, það er búið
að höggva stórt skarð í hópinn okkar.
Skarð sem aldrei verður bætt, aðeins
tíminn mun græða hina miklu sorg
sem við eigum sameiginlega.
Minningin um þig, Alli minn, mun
ávallt lifa með okkur og fylla okkur
hlýhug. Far þú í friði ungi vinur.
Þín frænka,
Anna Aðalsteinsdóttir.
í dag er heimurinn fátækari því
hann Alli, þessi yndislegi og frábæri
strákur, er ekki lengur á meðal okk-
ar og hefur kvatt þennan heim.
Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins
degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist
eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast
þér.
(Ingibj.Sig.)
Að kveðja þig Alli er eitt það erfið-
asta sem ég hef gert um ævina, að
hugsa um það að þú sért ekki lengur
á meðal okkar er ein erfiðasta hugs-
un sem ég hef þurft að hugsa og það
að vita að ég geti ekki fengið að tala
Hjaltason og föður-
amma Kristbjörg
Björnsdóttir, d.
30.1. 1992. Móður-
afi Aðalsteins Más
er Brynjar Sigurðs-
son og móðuramma
Sigríður Sigurjóns-
dóttir. Systkini
Björns eru Anna,
Freyr og Lilja.
Systkini Sólveigar
eru Elín og Bessi.
Útför Aðalsteins
Más Björnssonar
fer fram í Glerár-
kirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 14.
við þig eða hitta í bráð gerir mig að
einni sorgmæddustu manneskju í
þessum heimi.
Kallið erkomið,
kominernústundin,
vinaskilnaðurviðkvæm stund.
Vinimirkveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðasta blund.
Margseraðminnast,
margterhéraðþakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margseraðminnast,
margseraðsakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Farþúífriði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
GekkstþúmeðGuði,
Guðþérnúfylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt
(V. Briem.)
Við höfðum ákveðið að tala saman
um helgina en þegar þú sendir mér
sms-ið á föstudagsnóttinni var ég
lögst undir saeng enda alveg búin eft-
ir vikuna. „Ég hringi á morgun“,
hugsaði ég með mér um leið og ég
sofnaði. Nýr dagur kom en vegna
þess að það var svo mikið að gera hjá
mér náði ég ekkert að hringja. Ég
hlýt að hafa hugsað tuttugu sinnum
yfir daginn: „best að senda Alla
minnsta kosti sms til að láta vita af
hveiju ég hef ekki hringt og að ég
muni gera það við fyrsta tækifæri".
En ekkert varð úr því. „Ég hringi um
leið og ég get, í seinasta lagi á sunnu-
deginum“, hugsaði ég.
Þegar Kristján hringdi síðan í mig
á sunnudeginum og sagði mér hvað
hafði gerst fann ég eitthvað bresta
inn í mér. Fyrst varð ég reið og mig
langaði að öskra á hann að maður
ætti ekki að grínast með svona hluti
en svo áttaði ég mig á því að þetta var
ekkert grín, þú varst í alvörunni dá-
inn. Ég fann tárin byrja að renna nið-
ur kinnarnar og fljótlega gaf allur
líkaminn sig undir sorgina. Minning-
arnar helltust yfir mig og gráturinn
varð sái’ari og sárari. Ég blótaði
sjálfri mér að hafa ekki hringt en ég
vissi að það þýddi ekkert. Þú varst
þegar farinn og kominn á betri stað.
Þú varst svo frábær og svo góður
Alli, oft svo kátur og hress. Alveg
bókað einn yndislegasti persónuleiki
sem ég hef þekkt. Allir brandararnir
og allt bullið sem kom út úr þér og
þér datt í hug. Já, þú hafðir sko unun
af því að bulla og rugla í fólki svo
mikið er víst. Ég veit samt og vissi
alltaf að það var margt sem þjakaði
þig, elsku vinur. Þú varst oft svo ein-
mana og leiður þegar við töluðum
saman og ég reyndi alltaf að gera
mitt besta til að hressa þig við og allt-
af varstu jafnþakklátur fyrfr það. En
þrátt fyrir þennan einmanaleika sem
fyllti þig allt of oft varstu alveg á því
að lífið væri það dýrmætasta sem við
hefðum og maður ætti að njóta þess.
Ég mundi eftir því í gær eftir að ég
hafði talað við Kristján þegar við vor-
um eitt sinn að tala saman um lífið og
dauðann. Þú sagðir mér að þú hefðir
alltaf fundið á þér að þú ættir ekki
eftir að lifa lengi og verða gamall eins
og við hin, ég býst við því að þú hafir
haft rétt fyrir þér með það. Ég er
bara svo þakklát að hafa fengið að
kynnast þér og fengið að njóta þeirra
foréttinda að kalla þig vin.
Þú kenndir mér svo margt, Alli
minn og hjálpaðir mér meir en þú
gerðir þér nokkum tímann grein fyr-
ir. Það varst þú sem sagðir mér að
hverfa ekki frá vandamálunum held-
ur láta vandamálin hverfa frá mér og
þessu gleymi ég aldrei. Veistu Alli,
ég held að það viti enginn nema við
tvö hversu sérstakt sambandið okkar
á milli og vinátta var. Við þig gat ég
talað um allt, lífið og dauðann, Guð
og trúna, hamingjuna og sorgina og
bara allt og þú þreyttist aldrei á að
hlusta á mig og gefa mér ráð ef þess
þurfti. Það er svo margt sem við
sögðum hvort öðru sem enginn ann-
ar vissi eða veit, margt hlutir sem við
hvorugt bjuggumst við að trúa ein-
hverjum fyrir. Ég veit að ég mun
aldrei gleyma öllu því sem þú sagðir
mér og að ég mun aldrei gleyma þér.
Ég vildi bara að ég hefði verið dug-
legri við að sýna þér og segja hversu
mikið mér þótti vænt um þig. Ég
vona bara að þú hafir þegar vitað það
og gert þér grein fyrir því.
Með tárin í augunum kveð ég þig
elsku vinur og bið þig um að vaka yfir
mér. Ég veit að seinna munum við
hittast aftur og þá verður allt eins og
var. Ég veit ekki hvenær það verður
en ég veit að ég mun hlakka til þess
dags eins lengi og ég lifi og að þú
munt alltaf lifa í huga mínum og
hjarta. Þangað til við hittumst á ný
bið ég Guð um að geyma þig og varð-
veita. Takk fyrir allt elsku Alli minn,
þín verður sárt saknað. Þín vinkona,
Hanna.
Undarlegt hvemig manni finnst að
þeir sem manni þykir vænt um verði
alltaf hjá manni, næstum því eilífir.
En svo er nú víst ekki. Á mánudags-
kvöldið opnaði ég Morgunblaðið og
rak augun í mynd af Alla, mér brá
mjög mikið og satt að segja er ég
ekki enn búin að ná því hvað gerðist,
ég bíð alltaf eftir því að síminn hringi
og hinum megin sé Alli.
Ég kynntist Alla fyrir nokkrum
mánuðum. Með okkur varð strax
ágætis vinskapur og áttum við auð-
velt með að tala saman. Ég man enn
eftir ýmsu sem hann sagði við mig í
einu af mörgum samtölum okkar í
símann og hversu erfitt það var að
hætta þó svo að það væri vinna
snemma daginn eftir. Einu samtal-
inu á ég þó seint eftir að gleyma. Alli
hringdi í mig einhveija nóttina eftir
að hafa verið að skemmta sér um
kvöldið. Hann bað mig að segja sér
sögu svo hann gæti sofnað. Eg var
ekki byrjuð á sögu þegar ég heyrði
hrotur hinum megin. Alli var með
þroskaðri og yndislegri strákum sem
ég hef nokkurn tímann kynnst. Það
var eitthvað við hann, einhver út-
geislun sem gerði hann eins yndis-
legan og góðan strák og hann var.
Hann var góður, skilningsríkur, allt-
af til í að hlusta á vandamál manns og
vinur vina sinna. Ég hefði viljað geta
hitt hann og kynnst honum miklu
betur en ég gerði. Þú munt alltaf eiga
sérstakan stað í hjarta mínu.
Ég kveð þig, vinur minn, með
þessum orðum og votta foreldrum,
systkinum, ættingjum, vinum og öll-
um öðrum sem þótti vænt um Alla
samúð mína. Megir þú hvfla í friði og
Guð blessi minningu þína. Þín
ÁstaS.
SVSií'*f8i*
SOLSTEINAR vlð Nýbýlaveg, Kópavogl
Sími 564 4566
6raníí
HELLUHRAUN 14
220 HAFNARFJÖRÐUR
SÍMI: 565 2707 FAX: 565 2629
HEIMASÍÐA: www.granit.is
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga
er andlát verður
Útfararstjórar okkar búa yfir áratuga reynslu af störfum við
útfararþjónustu.
Sjáum um útfarir á allri landsbyggðinni.
Sverrir
Eimrsson
útfararstjóri,
sími 896 8242
895 9199
Útfararstofa íslands, Suðurhlíð 35, Fossvogi.
Sími 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn.
www.utfararstofa.ehf.is
y
t
Elsku bróðir okkar og mágur,
SIGURÐUR HALLDÓRSSON,
frá ísafirði,
lést laugardaginn 1. júlí á Landspítalanum í Kópavogi.
Jarðsett verður frá Kópavogskirkju föstudaginn 7. júlí kl. 15.00.
Systkini, makar og aðrir aðstandendur.
t
Eiginmaður minn,
BALDUR ÞÓRISSON,
Tjaldanesi 13,
er látinn.
Útförin fer fram í kyrrþey.
Fyrir hönd aðstandenda,
Erla Bech Eiríksdóttir.
ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 2000 45
‘Kjossar á (eiði
ðtyðfrítt stáí - varanlegt ejríi
‘Krossamir em jramíeiddir
úr íwítfúðuðu, ryðjfíu stáCi.
íMinnisvarði sem endist
um ótfpmna tíð.
" ,
Sóíkfoss (tálqiar eiúft (íf).
tHœð 100 smfrájörðu.
t
thíefðSundinn (ross
m/munstruðum endum. húeð
100 smfrájörðu.
“Hringið í síma 4311075 og
fáið (itabceffing.
BLIKKVERKsf
Dalbraut 2, 300 Akranesi.
Síml 431 1075, fax 431 1076
Æ
\ G ARÐHEIM/' ABÚD STEKKJAKBA SÍMI 540 3320 P
Varanleg
minning
er meitlub
ístein.
!| S. HBfiASONHF
ISTEINSMIÐJA
Skemmuvegi 48, 200 Kóp.
Sími: 557-6677 Fax: 557-8410
Netfang: sh.stone@vortex.is