Morgunblaðið - 04.07.2000, Side 46

Morgunblaðið - 04.07.2000, Side 46
46 ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 2000 .i ...... MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR PÉTURSDÓTTIR BLÖNDAL, lést á heimili sínu fimmtudaginn 29. júní sl. Jarðsungið verður frá Dómkirkjunni í dag, þriðjudaginn 4. júlí, kl. 15.00. Svanfríður H. Blöndal, Þorsteinn Pétursson, Pétur H. Blöndal, Kristín H. Blöndal, Karl Örn Karlsson, Hjörtur H. Blöndal, Lárus H. Blöndal, Valgerður Baldursdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær eiginkona mín og elskulega góða mamma okkar, HENNY ARNA HOVGAARD, Kaplaskjólsvegi 91, Reykjavík, lést á Landspítalanum 29. júní. Jarðarförin verður gerð frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 5. júlí kl. 15.00. Jakob Nikulásson, Davíð Jakobsson, Óskar Jakobsson, Þórhildur Jakobsdóttir. Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR KRISTMUNDSSON (Siggi kokkur), til heimilis í Heiðmörk 20H, Hveragerði, lést á Sjúkrahúsi Suðurlands laugardaginn 24. júní sl. Útförin fer fram frá Grafarvogskapellu í dag, þriðjudaginn 4. júlí, kl. 13.30. Hrefna Sigurðardóttir, Steingrímur Long, Kristmundur Sigurðsson, börn og barnabörn. + Móðir mín, KRISTÍN SIGURGEIRSDÓTTIR, Siglufirði, lést á heilbrigðisstofnuninni Siglufirði miðviku- daginn 28. júní. Útförin fer fram frá Siglu- fjarðarkirkju fimmtudaginn 6. júlí kl. 14.00. Erla Jóhannesdóttir. + V Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, GUNNAR B. KRISTINSSON, Fífumýri 3, Garðabæ, lést á Landspítalanum laugardaginn 1. júlí. Ellen Þorkelsdóttir, Kristinn Gunnarsson, Jónína Helgadóttir, Ingvar Helgi Kristinsson, Sylvía Björg Kristinsdóttir. Systir okkar, + KRISTÍN WHITE SKÚLADÓTTIR, lést á heimili sínu í Bandaríkjunum laugardaginn 1. júlí. Sigurjón Skúlason, Ingólfur Skúlason, Ólafur Skúlason, Valdís Skúladóttir, Eiríkur Skúlason, Kolbrún Skúladóttir, og aðrir aðstandendur. SIGURÐUR KRISTMUNDSSON + Sigurður Krist- mundsson var fæddur í Reykjavík 20. júlí 1920. Hann lést á Sjúkrahúsi Suð- urlands 24. júní síð- astliðinn. Foreldrar hans voru Hrefna Einarsdóttir, f. 11.3.1895, d. 14.5.1945, og Krist- mundur Guðjónsson læknir, f. á Hömrum í Grímsnesi 16.6.1890, d. 19.5.1929. Hálf- systir Sigurðar var Helga Kristmunds- dóttir, f. 1917. Hún lést 24 ára gömul. Sigurður var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Ásta Ólafsdóttir, f. í Reykjavík 8.7.1915, d. 26.6.1969. Börn þeirra eru: 1) Hrefna Krist- björg Sigurðardóttir, f. 12.6.1951, maki Steingrímur Long , f. 5.6.1951. Böm þeirra eru Ásta Björk, f. 12.4.1969, Árni, f.11.5.1976, Eygló, f. 8.7.1987. 2) Axel Kjartan Sig- urðarson, f. 29.7.1955, d. 22.11.1974. 3) Krist- mundur Sigurðar- son, f. 4.6.1958. Hans börn eru Anna Stef- anía, f.16.8.1981, Sigurður Freyr, f. 6.6.1982, Jónína Guðný, f. 27.2.1983, og Kristmundur Axel, f. 26.10.1993. Seinni kona Sigurðar var Jóhanna Magnúsdóttir, f. 15.5.1940, d. 13.12.1992. Útför Sigurðar fer fram frá kapellu Grafarvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. + Móðir okkar, dóttir og amma, JÚLÍANA GÍSLADÓTTIR, Bogahlíð 9, Reykjavík, lést föstudaginn 30. júní. Útförin auglýst síðar. Helga Dóra Jóhannesdóttir, Emilía Brynhildur Jóhannesdóttir, Magnús Jóhannesson, Guðlaugur Halldór Einarsson, Salóme Halldóra Magnúsdóttir, Jón Helgason, og barnabörn. + Elskulegur eiginmaður minn, GUÐMUNDUR HALLDÓR GUNNLAUGSSON fyrrv. deildarstjóri Flugmálastjórnar, Móavegi 11, Njarðvík, varð bráðkvaddur að morgni laugardagsins 1. júlí. Jarðarförin auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda. Ruth Vita Gunnlaugsson. + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ASTRID ÞORSTEINSSON hjúkrunarfræðingur, lést á Hrafnistu DAS í Hafnarfirði laugardaginn 1. júlí. Útförin verður auglýst síðar. Kjartan Jóhannsson, Ingigerður María Jóhannsdóttir, María Kjartansdóttir, Jóhann Guðni Reynisson, Birna Reynisdóttir Biagioli, Astrid María Reynisdóttir Browne, David Browne og barnabarnabörn. Irma Karlsdóttir Reynir Guðnason, Þorkell Guðmundsson, Elínborg B. Benediktsdóttir, Fernando Biagioli, Faðir okkar og afi, + JÓHANNES HELGI JENSSON, Sólvallagötu 66, Reykjavík, lést sunnudaginn 2. júlí. Útförin auglýst síðar. Jens Karl Magnús Jóhannesson, Brynjar Halldór Jóhannesson, Gunnlaug Olsen Jóhannesdóttir, Helga Dóra Jóhannesdóttir, Emilía Brynhildur Jóhannesdóttir, Magnús Jóhannesson og barnabörn. Nú er rúnturinn hans Sigga kokks á enda. Þeir eru margir hér í Hvera- gerði sem sakna hans en hann var vanur að fara á stjá upp úr hádegi og koma við hér og þar í bænum á bíl- num sínum. Essóstöðin, Kaupfélag- ið, Eden, bókasafnið og heimili undirritaðrar voru meðal helstu við- komustaða hans nær daglega og stundum oftar. Ég kynntist Sigga fyrir milligöngu Eggerts Laxdals listmálara sem lést fyrir skömmu. Þá var ég nýflutt, íyr- ir þremur árum, og þekkti nær eng- an í bænum. Upphaflega var ætlunin að Siggi passaði hundinn minnþegar ég þyrfti að fara að heiman í ein- hvern tíma. Ekki leið þó á löngu þar til við Siggi urðum bestu vinir, ekki síst vegna sameiginlegs áhuga okkar á dýrum, skemmtilegum sögum, bröndurum, tilverunni og sérkenni- legu fólki. Kímnigáfa Sigga kom svo berlega í ljós við ótrúlegustu tæki- færi og þrátt fyrir skerta talgetu kom hann alltaf skemmtilegum sög- um úr daglega lífmu á framfæri. Það leið ekki sá dagur að ég fengi ekki að heyra sögur um hvað hefði gerst daginn eða kvöldið áður, hveija hann hefði talað við og lék hann þá oft heilu símtölin og samtölin fyrir mig með sinni hásu röddu. Við skiptumst á bröndurum, mannlífssögum og dýrasögum yfir kaffibolla eða kvöld- máltíð. Þessar stundir eru mér ógleymanlegar og þegar klukkan fer að nálgast tvö á daginn nú, fer ég ósjálfrátt að búast við léttu banki á hurðina. Ég sakna sárt þessarar smátruflunar á vinnu minni hér heima. Þegar Siggi fékkst loks til þess að fara í rannsókn og ég hafði fyrst hringt í lækni og síðan á sjúkrabíl, hvarflaði ekki að mér að hann myndi ekki koma heim aftur. Við höfðum verið að undirbúa einhvers konar af- mælishátíð en hann hefði orðið átt- ræður nú í sumar. Það er svo margt sem ótalað og ógert var. Með Sigurði Kristmundssyni er fallinn frá einn af yndislegustu mönnum sem ég hef kynnst og einn besti vinur minn. Kisurnar hans Sigga, Lady og Pjakkur, eru nú farn- ar á hans fund eins og ég lofaði ein- hvern tíma þegar við ræddum um líf og dauða. Eftir sitjum við hér, hund- urinn minn og ég og eigum erfitt með að sætta okkur við svo snöggt fráfall. Ég vil að lokum votta fjölskyldu Sigurðar samúð mína, missirinn hjá okkur, sem þekktum Sigga hér í Hveragerði, er mikill ekki síður en fjölskyldu hans. Eva Hreinsdóttir. Frágangur afmælis- og minn- ingar- greina MIKIL áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vél- rituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk- lingur fylgi útprentuninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Þá er enn fremur unnt að senda greinamar í símbréfi (5691115) og í tölvupósti (minn- ing@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/send- anda fylgi. Um hvern látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöðu- grein af hæfilegri lengd, en aðr- ar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfi- lega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blað- inu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú er- indi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnamöfn sín en ekki stuttnefni undir grein- unum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.