Morgunblaðið - 04.07.2000, Qupperneq 47
iviUJttii u ;n juLAuiu
i'iuiiJuutiuun 'i. j uui zuuu 4J.
Mikið
úrval af
bakpokum
í ýmsum
stærð
BRIDS
Norðurlandamót
HÓTEL ÖRK
Norðurlandamótið í brids var
haldið á Hótel Örk í Hveragerði
dagana27.júnítil l.júlí. Nánari
upplýsingar um mótið eru á
hcimasíðu Bridssambands
fslands, www.bridge.is.
ÍSLENDINGAR enduðu í 3. sæti í
opnum flokki á Norðurlandamótinu í
brids, sem lauk í Hveragerði á laug-
ardag. Svíar urðu Norðurlandameist-
arar og Norðmenn hrepptu silfur-
verðlaunin. í kvennaflokki urðu
íslendingar hins vegar í 5. sæti af sex
þjóðum. Finnar urðu Norðurlanda-
meistarar, Danir urðu í 2. sæti og
Svíar í því þriðja.
Spiluð var tvöfóld umferð á mótinu
og íslensku liðunum gekk verr í þeirri
síðari. Þannig tapaði íslenska liðið í
opna flokknum ekki leik í fyrri um-
ferðinni, þótt sigramir væru ekki allir
stórir, en í þeirri síðari vannst aðeins
einn leikur, gegn sænsku Norður-
landameisturunum, 18-12. Lokastað-
an í opna flokknum varð þessi:
Svíþjóð 201,5 stig
Noregur 179,5 stig
ísland 153 stig
Danmörk 136,5 stig
Finnland 121,5 stig
Færeyjar 102 stig
í kvennaflokki tóku Finnar forust-
una þegar í fyrstu umferð og héldu
henni allt til loka. Finnamir voru með
leikreynt lið í Hveragerði, sem hefúr
áður verið nálægt því að sigra á al-
þjóðlegum mótum og nú tókst það
loks. Islenska liðinu gekk hins vegar
afleitlega í síðari hluta mótsins og
fékk m.a. aðeins 11 stig úr fjómm síð-
ustu leikjum sínum. Lokastaðan varð
þessi:
Finnland 196 stig
Danmörk 184stig
Svíþjóð 179 stig
Noregur 165stig
ísland 92stig
Færeyjar 56 stig.
íslenska liðið á réttri leið
Guðmundur Páll Amarson lands-
liðsþjálfari íslenska liðsins í opnum
flokid segir að lokastaðan þar hafi
orðið nokkum veginn eins og búast
hefði mátt við fyrir mótið. Sænska lið-
ið hafi verið sterkt: í því spilaði m.a.
Anders Morath, sem er einn leik-
reyndasti spilari Svía, og einnig var
nýtt ungt par í liðinu, sem vakið hefur
töluverða athygli að undanfomu.
Guðmundur sagði að Svíar héldu vel
utan um sín landsliðsmál, þeir hefðu
20 para hóp sem stundaði reglulegar
æfingar og gætu þess vegna stillt upp
3-4 mismunandi liðum, öllum vel
frambærilegum. Hópurinn í Hvera-
gerði hefði verið vel samansettur og
liðið því sigurstranglegt.
Einnig hefði verið Ijóst að Norð-
menn myndu blanda sér í bai'áttuna
um sigurinn. Annað norska parið,
Boye Brogeland og Erik Sælensmin-
de, em atvinnumenn og því Ijóst að
þeir myndu skila sínu. Hitt norska
parið hefði einnig spilað vel.
Nokkur endumýjun hefur orðið í
íslenska landsliðshópnum að undan-
fomu. Guðmundur sagði að árangur
íslenska liðsins í Hveragerði hefði
verið samk\'æmt væntingum, enda
væri undirbúningur landsliðshópsins
miðaður við lengri tíma og liðið ekki
komið nægilega langt áleiðis til að
hægt hefði verið að gera kröfur um
sigur. Guðmundur sagðist hins vegar
vera sannfærður um að liðið væri á
réttri leið og hann hefði verið ánægð-
ur með framgöngu íslensku spilar-
anna í Hveragerði. Gert er ráð fyrir
að svipað lið keppi fyrir hönd Islands
á Ólympíumótinu í brids, sem fram
fer í Hollandi í haust, og síðan á
Evrópumótinu sem fram fer á næsta
ári þar sem sex efstu sætin gefa þátt-
tökurétt á heimsmeistaramóti.
Mótið var reiknað út í tvímenningi
og þar urðu sænsku konumar Pia
Andersson og Catarina Midskog efst-
ar með 0,86 stig að meðaltali í spili. í
öðra sæti urðu finnsku konumar Rai-
ja Koistinen og Sari Kulmala með
0,81 stig í spili og í 3. sæti Svíarnir
Peter Strömberg og Frederik Ny-
ström með 0,81 stig í spili.
Af íslensku pörunum vora Magnús
Magnússon og Þröstur Ingimarsson
efstir með 0,56 stig að meðaltali í spili
og urðu í 6. sæti í heildina. Hin ís-
lensku pörin enduðu öll undir meðal-
skori.
Framkvæmd mótsins gekk
snurðulaust fyrir sig undir stjórn
Stefaníu Skarphéðinsdóttur fram-
kvæmdastjóra Bridssambands ís-
lands. Sveinn Itúnar Hauksson sá um
keppnisstjórn og ísak Örn Sigurðs-
son og Rebekka Aðalsteinsdóttir um
mótsblað. Þá hafði Jakob Kristinsson
umsjón með sýningartöflunni. Siv
Friðleifsdóttir umhverfisráðhema og
norrænn samstarfsráðherra var heið-
ursgestur í lokahófi.
Tækifærið nýtt
Svíar og Norðmenn spiluðu hrein-
an úrslitaleik í síðustu umferð um
Norðurlandameistaratitilinn í opnum
flokki. Þar sýndu Svíamir styrk sinn
svo um munaði og leikurinn var nán-
ast einstefna til þeirra, og endaði
23-7. í þessu spili sýndu þó bæði liðin
góða takta.
Suður gefur, allir á hættu
Nofður ♦ ÓD74 v AG82 ♦ 53 + AK9
Vestur Austur
* KG982 ♦ 1065
v 1094 v D73
♦ 864 ♦ 10952
♦ 82 Suður ♦ 3 v K65 ♦ ÁKG7 + D10543 * G76
í nánast öllum öðrum leikjum varð
lokasamningurinn sex grönd í NS
sem unnust þegar laufið lá 3-2. Á
sýningartöflunni sáu Norðmennimir
Boye Brogeland og Erik Sælensmin-
de hins vegar að spilið bauð upp á
aðra möguleika:
Vestur Norður Austur Suður
_ - - llauf
pass 1 I\jarta pass 21yortu
pass 2grönd pass 3 tíglar
pass 41auf pass 4 tiglar
pass 4grönd pass ötíglar
pass 5hjörtu pass Ikuf//
Eftir eðlilega byrjun voru 2 grönd
krafa og spurðu um skiptinguna og 3
tíglar sýndu 1-3-4-5. Norður setti þá
laufið sem tromplit og spurðu síðan
um ása og laufadrottninguna með 4
gröndum og 5 hjörtum.
í sýningarsalnum veltu menn því
fyiir sér hvort alslemman myndi
vinnast, töldu að sagnhafi yrði að
velja spaðasvíninguna frekar en
Morgunblaðið/Amór
Það var glatt á hjalla hjá finnska kvennalandsliðinu, aðstoðarmönnum og fyrirliða þegar ljóst var að titillinn
var í höfn. Konurnar sem spiluðu voru fjúrar. Fyrir miðri mynd er Pirkko Savolainen, þá Raija Koistinen og sitj-
andi þeim á hægri hönd Birgit Barlund og lengst til hægri Sari Kulmala.
hjartasvíninguna til að fá þrettán
slagi. En Sælensminde var fljótur að
finna betri leið. Hann fékk út tromp,
sem hann drap heima. Síðan spilaði
hann spaða á ás, trompaði spaða heim
og spilaði laufi á ás. Þegar laufið lá 3-2
gat sagnhafi nú ti-ompað spaða, spilað
hjarta á ásinn í borði, trompað síðasta
spaðann með drottningu, farið inn í
borð á tíguldrottningu og tekið síð-
asta trompið með laufakónginum.
Heima biðu síðan þrír tígulslagir.
Hafi Norðmennirnir gert sér vonir
um að græða á þessu spili hafa þeir
orðið fyi-ir vonbrigðum því við hitt
borðið léku Svíamir Ulf Nilsson og
Magnus Eriksson þetta eftir: spiluðu
7 lauf og fengu þrettán slagi með því
að spila upp á öfugan blindan.
Guðm. Sv. Hermannsson
Svíar urðu Norðurlandameist-
arar í brids en mútið fúr fram í
síðustu viku og lauk sl. laugar-
dag. Yngri spilaramir skelltu
sér í laugina að múti loknu, talið
frá vinstri: Frederik Nyström,
Peter Strömberg, Daniel Auby
fyrirliði og Magnús Eriksson.
Eldri spilararnir í húpnum,
Andres Morath og Márten
Gustawsson létu sér nægja að
koma út á svalimar og fylgjast
með galsanum í hinum yngri.
Islendingar í
3. sæti á NM