Morgunblaðið - 04.07.2000, Qupperneq 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 2000
0-----------------------
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
V arasöm efni í okkar
’daglega umhverfí
UMRÆÐA um
hættuleg efni í vörum
sem eru ætlaðar til
daglegra nota hefur
verið nokkuð áberandi
undanfarið. Þekking á
áhrifum efna eykst sí-
fellt og aðferðir til mæl-
inga og rannsókna hafa
-"^batnað. Einnig er nú
horft til fleiri áhættu-
þátta en fyrr við hættu-
flokkun efna. Tæknin
gerir okkur kleift að
greina sífellt minna
magn efna og einnig á
stöðum eða í hlutum
þar sem áður var erfitt
að mæla. Þetta leiðir til
þess að fréttir berast um að í ljós hafi
komið að efni sem lengi hafa verið í
notkun gætu verið hættuleg eða að
hættuleg efni finnast þar sem menn
áttu ekki von á þeim.
Þalöt
Undanfarið hafa svokölluð þalöt
(en. phthalates) talsvert verið til um-
ræðu. Þalöt eru hópur efna sem eru
efnafræðilega skyld en þau hafa mis-
munandi eiginleika. Algengasta
notkun þalata er í plastiðnaði þar
sem þau eru notuð sem mýkingarefni
en þau finnast einnig í öðrum fram-
leiðsluvörum, t.d. í snyrtivörum.
Þalöt eru ódýr og einföld í fram-
leiðslu. Þau hafa verið notuð frá því á
fimmta áratugnum og lengi vel var
gert ráð fyrir því að þau væru skað-
laus. Mikil vinna hefur nú verið lögð í
að meta hættuna af völdum þalata.
-■'Menn hafa einkum haft áhyggjur af
krabbameinsvaldandi áhrifum, áhrif-
um á æxlun og hormónastarfsemi
sem og umhverfisáhrifum. Ljóst er
að ekki er hægt að setja öll þalötin
undir sama hatt og eru sum þeirra
skaðlegri en önnur. Ekki er talin
stafa bráð hætta af efnunum heldur
er hugsanlega um að ræða áhrif sem
gætu komið fram við notkun i lengri
tíma. Við mat á hættu verður meðal
annars að líta á hvernig efnin eru
notuð og hvar, í hve miklu magni og
hversu fast bundin þau eru í vörunni.
Einnig er skoðað hvaða
möguleikar eru á að
nota önnur efni í stað-
inn. Rannsóknir sem
þessar taka langan
tíma og túlkun á niður-
stöðum er vandasöm.
Notkun
takmörkuð
Fyrsta skrefið sem
stjómvöld hér á landi
tóku til að takmarka
notkun þalata var f>Tr
á þessu ári þegar notk-
un þeirra var bönnuð í
leikfong og hluti úr
mjúku plasti, ætluð
bömum 3 ára og yngri.
Banninu var einkum beint að hlutum
sem ætla má að börn tyggi eða sjúgi.
Efnin em hættuleg fyrst og fremst
við inntöku en hætta af völdum
snertingar er talin mun minni. Nú er
verið að skoða hjá Evrópusamband-
inu notkun þalata í öðram vöram. Ef
talið verður nauðsynlegt að grípa til
frekari aðgerða munu þær koma til
framkvæmda hér á landi um leið og í
öðrum Evrópulöndum.
Þalötí
sólarvörum
Nýverið hefur notkun þalata í vör-
ur eins og sólarvöm verið gagnrýnd
en sú notkun er þó heimil samkvæmt
reglugerðum. Gagnrýnin beinist
einkum að því að hætta sé á að böm
fái krem upp í sig, t.d. með því að
setja fingur í munninn. I því sam-
bandi er rétt að taka fram að þalöt
eru ekki algeng í vörum af þessu tagi
og vandfundnar eru sólarvörur á
markaði hér á landi sem innihalda
þalöt. Astæða er til að leggja áherslu
á að afar mikilvægt er að notuð sé
sólarvöm þegar við á, ekki síst á
böm, því skaðsemi sólbmna er vel
þekkt. Sambandið á milli sólbaða og
húðkrabbameins er vel skilgreint og
í raun miklu betur heldur en sam-
svarandi hætta sem stafar af þalöt-
um. Samkvæmt reglugerð er skylt
að hafa fullkomna innihaldslýsingu á
umbúðum snyrtivöm. Þetta gerir
Forvarnir
Mikilvægt er að við
temjum okkur varúð við
notkun efnavara, segir
Bryndís Skúladóttir, og
notum þær ekki nema
þeirra sé þörf og förum
sparlega með.
neytendum kleift að velja vörur með
tilliti til innihaldsefna.
Löggjöfin
Löggjöf um eiturefni og hættuleg
efni er ætlað að halda utan um efna-
notkun og stuðla að farsælli notkun
efna.
Frá árinu 1981 hefur verið gerð
krafa um að ný efni fari ekki á
Evrópumarkað nema þau hafi verið
skoðuð með tilliti tij hættu fyrir
menn og umhverfi. I Evrópu em
skráð yfir 100.000 efni sem komu á
markað fyrir 1981. Líklegt má tejja
að um helmingur þeirra sé enn á
markaði. Einungis hluti þessara efna
hefur verið rannsakaður með tilliti til
áhrifa á heilsu manna og umhverfi.
Stjómvöld á evrópska efnahags-
svæðinu vinna nú að því að rannsaka
þau efni sem ófullnægjandi upplýs-
ingar em til um en sú vinna er tíma-
frek og henni miðar því hægt.
Mikilvægt er að við temjum okkur
varúð við notkun efnavara og notum
þær ekki nema þeirra sé þörf og för-
um sparlega með. Við þurfum að
vera meðvituð um að hér þarf ekki
allt að vera sem sýnist. Því er rétt að
sýna ávallt aðgætni í meðferð efna-
vöm, lesa vamaðarmerkingar og
fylgja notkunarleiðbeiningum. Einn-
ig er ástæða til að minna á að hættu-
leg efni skal geyma á öraggum stað.
Höfundur er efnaverkfræðingur og
scrfræðingur hjd Hollustuvernd
rfkisins.
Bryndís
Skúladóttir
Hefur þú áhuga á að kaupa íbúð eða hús á Spáni?
-HOMES-A-GOLF
Viking - Casa-Expo*Costablanca
Sími 0034 96 676 50 42.
http://www.viking-homes.com
Netfang: viking-homes@visual.es
LAUFAS
fasteignasala
Suöurlandsbraut 46, sími 533 1111
Laufás hefur tekið að sér kynningu fyrir
fasteignasöluna Viking-Homes & Golf.
Fyrirtækið er í eigu norrænna aðila með
m.a. íslenskum starfskröftum. Fyrirtækið
hefur selt fasteignir við góðan orðstír frá
1982. Viking-Homes & Golf selur notaðar
og nýjar fasteignir á Costa Blanca, svæð-
inu í Torrevieja og víðar. Leitið upplýsinga
um viku skoðunarferð. Á þessu svæði eru
m.a.:
... og þrjár hvítar
strendur.
Þrír góðir 18 holu
golfvellir
Notkun fjár-
muna Viðlaga-
tryggingar
LÖG um Viðlaga-
tryggingu íslands vora
sett á Alþingi í maí
1992. Þetta em mikils-
verð lög sem hafa hvað
eftir annað sannað gildi
sitt. Þó hafa ósjaldan
spunnist harðar deilur
rnn túlkun laganna og
notkun þeirra miklu
fjármuna sem stjóm
Viðlagatryggingar hef-
ur úr að spila.
Bjarni heitinn Bene-
diktsson forsætisráð-
herra sagði eitt sinn í
ræðu eða grein að okk-
ur bæri að fara að lög-
um landsins en ef við
væram ósátt við þau ættum við að
reyna að fá þeim breytt. Ég hripa
þessar línur í Moggann til að benda á
nauðsyn breytinga á lögum Viðlaga-
tryjggingar.
I 21. grein laganna um Viðlaga-
tryggingu íslands segir orðrétt:
„Stjóm stofnunarinnar er heimilt að
veita fé til rannsókna og til að styrkja
framkvæmdir sem ætlað er að vama
eða draga úr tjóni af völdum náttúra-
hamfara. Arleg heildarfjárveiting í
þessu skyni má þó ekki vera meiri en
5% af bókfærðum iðgjöldum síðasta
árs.“
Ekki veit ég hver vora bókfærð ið-
gjöld Viðlagasjóðs á síðasta ári en 5%
af þeim gjöldum er vafalaust drjúg
fjárhæð. Fróðlegt væri að vita hve
stóram hluta hennar hefur verið varið
til forvama og þá til hvers konar for-
vama. Um þetta er spurt vegna nokk-
urra árangurslausra tilrauna undir-
ritaðs til að fá stuðning Viðlaga-
tryggingar við framkvæmdir til að
tryggja betur líf og limi sjúklinga og
starfsfólks Heilsustofnunar NLFÍ í
Hveragerði gegn afleiðingum land-
skjálfta.
Fyrir nokkram áram var ákveðið
að ganga skipulega til þess verks, að
gera húsakynni Heilsustofnunar ör-
uggari og hættuminni í fyrirsjáanleg-
um jarðskjálftum, einkum í ljósi auk-
innar hættu á sterkum Suður-
landsskjálfta.
Keypt var fullkomin rafstöð af
gjaldþrota fiskeldisfyrirtæki enda
rafmagnsleysi fylgifiskur jarðhrær-
inga. Leitað var stuðnings Viðlaga-
tryggingar vegna kaupanna en beiðn-
inni hafnað.
Nokkra síðar var ákveðið að líma
svokallaða Armor Coat plastfilmu á
allar rúður í húsnæði Heilsustofnun-
ar. Þessi filma kemur í veg fyrir að
gler þeytist í allar áttir ef hús skekkj-
ast og brotna en slys af völdum gler-
brota era mjög algeng í jarðskjálft-
um. Þar sem stofnunin hafði hér
nokkurt framkvæði í forvömum, sem
flokkuðust greinilega undir 21. grein
laga um Viðlagatryggingu, var sótt
um styrk. Beiðninni var hafnað. Einu
rökin fyrir synjuninni vora þessi:
„...enda telst styrkveiting af þessu
tagi ekki samrýmast ákvæðum laga
um Viðlagatryggingu". Þó segir í
fyrmefndri 21. gr. laganna: „Stjóm
stofnunarinnar er heim-
ilt að veita fé til rann-
sókna og tO að styrkja
framkvæmdir sem ætl-
að er að varna eða
draga úr tjóni af völdum
náttúrahamfara".
Þessum rökstuðningi
fyrir sjmjun var ekki
unað og umsóknin ít-
rekuð. En enn var
beiðninni hafnað. Og nú
var ástæða neitunar
öllu ítarlegri en áður og
í lok hennar segir orð-
rétt: „Stofnunin (þ.e.
Viðlagatrygging
br.höf.) viðurkennir út
af fyrir sig þau rök
Heilsustofnunar NLFÍ að klæðning á
rúðum í heilsustofnuninni með um-
ræddri plastfilmu kunni að geta kom-
ið í veg fyrir tjón af völdum þess að
gler splundrist í jarðskjálftum en
stjóm Viðlagatryggingar hefir þrátt
Viðlagatrygging
*
Akveða þarf hærri
hundraðshluta til for-
varna, segir Árni Gunn-
arsson, og í stað heim-
ildarákvæðis þarf að
koma skylduákvæði.
fyrir það eftir ítrekaða umræðu um
beiðni yðar af framangreindum
ástæðum samþykkt að hafna erind-
inu.“ Þær framangreindu ástæður,
sem vitnað er til, era þessar: „Stjóm
stofnunarinnar hefur því markað þá
stefnu að nýta þessa takmörkuðu
heimild til styrkveitinga til forvama
aðeins í óumdeildum tilvikum."
Þrátt fyrir þessi viðbrögð Viðlaga-
tryggingar var forvarnastarfi haldið
áfram í Heilsustofnun NLFI með það
að markmiði að koma í veg fyrir slys
ogtjón.
I stofnuninni era að jafnaði 140 til
150 sjúklingar og á annað hundrað
starfsmenn. Það er mikilvægt að allt
þetta fólk fái búið við fyllsta öryggi.
Það hlýtur að vera hagur Viðlaga-
sjóðs og þjóðarinnar allrar að reynt
sé með öllum ráðum að draga úr tjóni
og þar með útgjöldum vegna náttúru-
hamfara.
Og er þá komið að erindi þessa
pistils. Það er nauðsynlegt og skyn-
samlegt að gera breytingar á lögum
um Viðlagatryggingu Islands, eink-
um á 21. greininni, sem áður var
nefnd. Akveða þarf hærri hundraðs-
hluta til forvama og í stað heimild-
arákvæðis þarf að koma skyldu-
ákvæði. Tillaga, sem stefnir í þessa
átt, mun hafa verið lögð fram á Al-
þingi og væntanlega fær hún af-
greiðslu á næsta þingi.
Ámi Gunnnrsson er framkvæmda-
stjóri Heilsustofnunar NLFÍ
Árni
Gunnarsson
Armúl« 38, ÍPB Bayfc|«vlk, Siml: 588-501D
SLIM-LINE
dömubuxur frá
gardeur
OÓuntv
tískuverslun
v/Nesveg, Seltj., s. 561 1680