Morgunblaðið - 04.07.2000, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 2000 49
UMRÆÐAN
Nú er nóg
komið
FRÁ SÍÐASTA
fundi Jafnréttis-
ráðs sem haldinn
j var í lok maí þar
sem félagsmála-
' ráðherra tilkynnti
ráðsmönnum og
starfsfólki þá
ákvörðun sína að
flytja hina nýju
Jafnréttisstofu út
á land hefur margt
verið sagt sem
betur hefði verið
ósagt látið. Flutn-
ingur stofunnar er
vandmeðfarinn,
öfgar á báða bóga
eru ekki viðkom-
andi málaflokki til framdráttar.
Við val á staðsetningu þarf að
Jafnréttisráð
Ég get engan veginn
tekið undir neikvæð
ummæli, segir Elín R.
Líndal, sem fallið hafa
um starfsmenn skrif-
stofu jafnréttismála.
skoðast hverju sinni hvert umfang
og eðli starfseminnar er. Ef það er
gert hef ég fulla trú á að starfsemi
opinberra stofnana, þar með talið
Jafnréttisstofu, geti þrifist og
blómstrað á landsbyggðinni. Þar
sem og annars staðar er fólk sem
er tilbúið að takast á við krefjandi
og framsækin verkefni.
Jafnréttisstofa sem og
aðrar stofnanir byggir
mest á því starfsfólki
sem þar starfar hverju
sinni ásamt því fjármagni
sem skaffað er til að-
gerða.
Sem formaður Jafn-
réttisráðs sl. fimm ár hef
ég starfað með því fólki
sem nú lætur af störfum
við flutning skrifstofunn-
ar. Þann tíma hefur
skrifstofan verið mönnuð
mjög hæfu starfsfólki.
Umrætt starfsfólk hefur
viðamikla þekkingu og
hefur unnið mjög vel að
framgangi jafnréttismáía þennan
tíma. Því getur undirrituð engan
veginn tekið undir neikvæð um-
mæli sem fallið hafa um starfs-
menn skrifstofu jafnréttismála.
Eðlilega geta verið skiptar skoð-
anir á því hverju sinni hvar helstu
áherslur liggja, svo sem erlent
samstarf, samstarf við jafnréttis-
nefndir sveitarfélaga, vinnumark-
aðinn og svo mætti áfram telja, því
starfsemin er fjölþætt og viðamik-
il.
En það skal upplýst að á þessum
árum hefur ekki komið fram
óánægja með þau fjölmörgu verk-
efni sem skrifstofan hefur unnið
fyrir ráðuneytið, eða komið ábend-
ing frá félagsmálaráðuneytinu um
að með öðrum hætti skyldi unnið
en gert var.
Svo mörg eru og verða þau orð.
Höfundur erfyrrv. form.
Jafnréttísráðs.
EIÍnR.
Lrndal
Onákvæmur Davíð
ÞAD ER ágætt að
Davíð Oddsson, fyrr-
verandi borgarstjóri í
Reykjavík, skuli hafa
blandað sér í umræður
um kosningaúrslit í
Reykjavík. Umfjöllun
hans er samt mjög tak-
mörkuð og þar með
ónákvæm þar sem hann
kýs að fjalla aðallega
um úrsht kosninga þeg-
ar hann er borgar-
stjóraefni sjálfur, þ.e.
1982,1986 og 1990 en í
öll skiptin hlaut Sjálf-
stæðisflokkurinn meiri-
hluta atkvæða.
En hvað með öll hin skiptin þegar
Sjálfstæðisflokkurinn hélt völdum
með minnihluta kjósenda á bak við
sig? Þegar úrslit borgarstjórnar-
kosninga frá 1930, þegar Sjálfstæðis-
flokkurinn býðm- fyrst fram, til ársins
1978, en það eru 13 kosningar, eru
skoðuð kemur í ljós að í 7 kosningum
hafði Sjálfstæðisflokkurinn minni-
hluta atkvæða á bak við sig en hélt
völdum í öll skiptin nema eitt, þ.e. ár-
ið 1978. Sjálfstæðisflokkurinn er í
minnihluta 1934, 1942, 1946, 1954,
1966,1970 og 1978. Athyglisvert er að
skoða í þessu samhengi
að Bjarni Benediktsson
sem kosinn var borgar-
stjóri árin 1942 og 1946
var ekki með meirihluta
kjósenda á bak við sig.
Tilkoma Reykjavík-
urlistans markar tíma-
mót í tvennum skiln-
ingi. í fyrsta lagi
tryggir hann að öll at-
kvæði andstæðinga
Sjálfstæðisflokksjns
nýtist til fulls. í öðru
lagi er í fyrsta sinn boð-
ið upp á borgarstjóra-
efni. Davíð Oddsson
slapp við að mæta sam-
eiginlegu liði andstæðinganna með
borgarstjóraefni. Spyrja má hvort
honum hefði tekist að bera sigurorð
af slíku mótframboði á sinni tíð með
jafn öflugu borgarstjóraefni og Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir er.
Það breytir því aftur á móti ekki að
Davíð Oddsson reyndist vel sem
borgarstjóri. Hann getur hins vegar
ekki ætlast til þess að Framsóknar-
flokkurinn komi Sjálfstæðisflokknum
til hjálpar í Reykjavík með því að
kljúfa sig út úr Reykjavíkurlistanum
þótt ágætlega fari á með ráðherrum
Alfreð
Þorsteinsson
Hreinn kroppur
alltaf ailwtanaf
„Sturta"án vatns, sápu og handklæðis
8 stórir rakir.„Sports & Leisure Wash"
þvottaklútar.
Frabært í bílinn, fellihýsið, bakpokann,
bátinn, töskuna eða hvar sem er.
Verstöðin ehf.
Sliuris
& Leisnre
lfllMll
Suðurlandsbraut 52,
s. 588 0100
Fást um land allt.
Borgarstjórn
Tilkoma Reykjavíkur-
listans, segir Alfreð
Þorsteinsson, markar
tímamót.
Sjálfstæðisflokks og Framsóknar-
flokks. Það er allt annað mál og kem-
m- borgarstjórnarmálum ekkert við.
Höfundur er borgarfulltrúi
í Reykjavík.
Vega dagur í Lyfju Lágmúla
Ráðgjöf frá kl. 14-17 í dag
Kemurþér beint að efninu!
o
*
Ótvíræður kostur þegar draga á úr ólykt.
Lykteyðandi innan frá, vinnur gegn
andremmu, svitalykt og ólykt vegna
vindgangs, kemur lagi á meltinguna.
LYFJA
Lyf á lágmarksverði
Lyfja Lágmúla • Lyfja Hamraborg ® Lyfja Laugavegi
Lyfja Setbergi* Útibú Grindavík*
:
öruggir félagar í umferð