Morgunblaðið - 04.07.2000, Síða 65
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 2000 65
FÓLK í FRÉTTUM
Stutt
Endur í
umferðinni
► ANDAFJÖLSKYLDA olli sex bfla
árekstri þegar hún reyndi að ganga
yfir hraðbraut í Sviss um helgina.
Ökumaður á A13-hraðbrautinni í
austurhluta Sviss sá endurnar á veg-
inum og nauðhemlaði. Ökumönnum
bfla fyrir aftan tókst ekki að stöðva
farartæki sín í tæka tíð og afleiðing-
in varð fjöldaárekstur.
Fjórir slösuðust, þar á meðal van-
fær kona. Hún var flutt á sjúkrahús
með þyrlu og eignaðist þar hraustan
strák.
Hnerraði sex
milljón sinnum
► BRESKUR maður hnerraði mörg
hundruð sinnum á dag í 37 ár. Þegar
hann var orðinn 52 ára tókst læknum
loks að finna út hvers vegna.
Hann hafði leitað til 60 lækna áður
en skýring á hnerranum fékkst hjá
lækni sem sérhæfir sig í mataræði.
Skýringin lá í morgunverðinum. All-
an tímann hefur hann borðað hafra-
ríkt múslí í morgunverð en maðurinn
var einmitt greindur með ofnæmi fyr-
ir höfrum og eggjarauðu.
Maðurinn gerir ráð fyrir að hafa
hnerrað um sex milljón sinnum á æv-
inni. „Ég hnerraði mörg hundruð
sinnum á dag, allt árið,“ sagði hann í
viðtali við dagblaðið Times. „Þetta
var verulega þreytandi. Ég þráði svo
að finna lausn á vandamálinu að ég
tók mér sex mánaða frí frá vinnu og
fór í rannsókn á sex sjúkrahúsum.“
Patrick er nú í fyrsta sinn frá því
hann var 15 ára laus við hnerrann.
Hann íhugar að lögsækja bresk heii-
brigðisyfirvöld vegna málsins.
Stálu af
drottningunni
► SEX þjónar úr starfsliði Ehsabet-
ar Bretadrottningar eru nú í haldi
og sæta rannsókn
vegna gruns um
að hafa stolið
kampavínsflösk-
um sem drekka
átti í konunglegu
afmæli, sam-
kvæmt heimild-
um slúðurblaðs-
ins News of the
World. Sagan
segir að einn
þjónanna hafi verið staðinn að verki
þar sem hann fyllti farangursrýmið
á bflnum sínum af Krug-kampavíns-
fiöskum. Flaskan af slíkum mjöði
kostar tæpar ellefu þúsund krónur.
Lítil hafmeyja
í Noregi
► BERBRJÓSTA, Ijóshærð mær
sem kemur sér á hverju sumri fyrir á
steini við norskan fjörð fangar
óskipta athygli ferðamanna um svæð-
ið.
„Einn maður gerði sér lítið fyrir og
stakk sér í sjóinn og synti til mín,“
segir Line Óxnevad, 37 ára, tveggja
bama móðir, um starf sitt. „En flestir
láta sér nægja að horfa og klappa."
Öxnevad setur á sig hárkollu og sporð
til að líkast haftneyju og kemur sér
fyrir á steini við Lyse-fjörðinn í Vest-
ur-Noregi nokkrum sinnum á sumri.
Það var ferðamálaráð staðarins sem
átti hugmyndina að uppákomunni.
,;Mér var svolítið kalt síðast," játaði
Öxnevad. „Ég og litla hafmeyjan í
Kaupmannahöfn erum einu hafmeyj-
amar sem ég veit um.“ Samkvæmt
þjóðsögunni syngja hafmeyjar til að
laða sjómenn til sín í undirdjúpin en
Öxnevad segist ekki kunna að syngja.
„Kannski tek ég með mér kassettu-
tæki næst,“ sagði hún.
i -.m mtm m mmm » mi m
Biðin vel
þess virði
Aðdáendur hljómsveitarinnar Bon Jovi
hafa verið þolinmóðir. Loksins geta þeir
tekið gleði sína á nýjan leik því glæný
breiðskífa hefur litið dagsins ljós.
„ÞAÐ VAR aldrei ætlunin að bíða
svona lengi með næstu plötu,“ afsak-
ar söngvari hljómsveitarinnar Bon
Jovi sig, sjálfur Jon Bon Jovi, en átt-
unda plata sveitarinnar, Crush, kom
út á dögunum, fimm ámm eftir að
síðasta breiðskífa sveitarinnar leit
dagsins ljós.
En meðlimir hljómsveitarinnar
hafa haft öðmm hnöppum að hneppa
og sjálfur hefur Jon Bon Jovi verið ið-
inn við kvikmyndaleik undanfarin ár.
Hvar pössum við
inn í myndina?
Babb kom í bátinn þegar Universal
Music Group gleypti útgáfufyrirtæk-
ið Mercury sem hafði gefið allar plöt-
ur Bon Jovi út. Árið 1998 lést síðan
Bmce Fairbafrn, sá hinn sami og ætl-
aði að framleiða plötuna. Platan var
þó komin langt í vinnslu það ár en
kom ekki fyrir augu og eyru almenn-
ings fyrr en 20 mánuðum síðar.
En svona er tónlistarbransinn
margslunginn. „Við voram búnir að
gera allt tilbúið," segir Jon. „Allt í
einu er klippt á okkur því ég sagði við
útgefandann; „Áður en ég vil gefa
plötumar mínar út hjá Def Jam/Is-
land vil ég vita hverjir í fjáranum
þessir náungar em. Hvar pössum við
inn í myndina?" Svo þar til allt féll í
ljúfa löð á ný hélt ég sem fastast í
Cmsh. Ég ætlaði þó ekki að bíða
svona lengi en þegar upp er staðið er
ég feginn að ég gerði það.“
Sænskur tónlistargúrú
Eitt erfiðasta verkefnið sem með-
limir Bon Jovi stóðu frammi fyrir á
sínum tíma var að velja eftirmann
Fairbafrns. Jon og gítarleikarinn
Richie Sambora enduðu á því að
framleiða plötuna sjálfir í samstarfi
við nýliðann Luke Ebbin eftfr að hafa
eytt blóði, svita, tárum og tíma í ör-
væntingarfulla leit. I þeim hópi sem
til greina kom var Max Martin,
sænski gúrúinn sem margir segja að
eigi hvað mestan heiður að baki
frama Backstreet Boys og Britney
Spears. Þrátt fyrir að koma úr svo
óíðm tónlist varð niðurstaðan sú, að
New Jersey-búamir í Bon Jovi eru komnir aftur á kreik.
Martin samdi fyrsta lag Crush sem
gefið var út á smáskífu, It’s My Life,
ásamt Bon Jovi og Sambora.
„Við vildum fá hann til liðs við okk-
ur en hann sagði: „Ég hef aldrei unn-
ið með hljómsveit eins og ykkur, allt-
af með nýliða. Og ég hef aldrei unnið
með alvöm trommur og gítara." Við
trúðum honum ekki í fyrstu en hann
sagði: „Nei, aðeins trommuheila." En
hann hjálpaði okkur eins og hann
treysti sér tál, eyddi með okkim
tveimur dögum, það var spennandi
fyrir okkur alla og við lærðum hver af
öðrum.“
Tónleikaferðalag Bon Jovi um
heiminn hefst 12. júlí í Tókýó í Japan,
þaðan verður haldið til Évrópu og
loks til Bandaríkjanna í lok septem-
ber.
Greiðslukjör
við allra hæfi
Subaru Forester WA - árg. 1998
Ekinn 65.000 km - Verö kr. 1.5 80.000
VW Passat 1.6 GL - árg. 1998
Ekinn 59.000 km - Verö kr. 1.260.000
Honda Civic 1.5 LSI - árg. 1998
Ekinn 27.000 km - Verö kr. 1.370.000
Nissan Primera COM - árg. 1999
Ekinn 8.000 km - Verö kr. 1.590.000
Opið:
mán.-fös
kl. 09-18
lau.
kl. 12-17
Nissan Micra LX - árg. 1993
Ekinn 123.000 km - Verö kr. 490.000.
VW Golf 4 1.8 WD - árg. 1998
Ekinn 52.000 km - Verð kr. 1.330.000.
BILAHUSIÐ
Simi 5SB 5300