Morgunblaðið - 04.07.2000, Page 72

Morgunblaðið - 04.07.2000, Page 72
Eignaskipti Ráðgjöf ehf Gerð eignaskiptayfiriýsinga Sími 5886944 MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RnSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTII ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 2000 VERÐ í LAUSASÖLU150 KR. MEÐ VSK. BBmHBpi&p - : k' Morgunblaðið/J6n Svavarsson Heather Mills og Paul McCartney yfirgefa Perluna og stíga upp í bílaleigubíl í gærkvöldi. Paul McCartney staddur á Islandi Einar Þorsteinsson, með gitarinn, beið ásamt vini sfnum Steindðri Frf- mannssyni fyrir utan Perluna. Hann hugðist spila lagið Blackbird, af plötunni „The Beatles" frá 1968, fyrir Sir Paul. „Ég var að Iæra að spila lagið og vildi fá að vita hvort ég gerði það rétt. Hvern á maður að spyrja þeirrar spurningar annan en höfundinn sjálfan?" BÍTILLINN Sir Paul McCartney, einn þekktasti tónlistarmaður ald- arinnar, er nú staddur hér á landi. Einkaþota hans lenti á Reylgavík- urflugvelli í fyrrakvöld. Með honum í för er vinkona hans, fyrirsætan Heather Mills, en hún hélt fyrirlestur á ráðstefnu breska i fyrirtækisins Landmark um jarð- sprengjur í Perlunni í gærkvöldi. McCartney lenti í bobba er hann hugðist yfirgefa Perluna í gær- kvöldi og áttaði sig ekki á hægri umferðinni, en í heimalandi hans er sem kunnugt er vinstri umferð. Hann beygði yfir á vinstri akrein Suðurhlíðar, en áttaði sig skjótt og hélt áfram fór. Ljósmyndari eins dagblaðsins var að veita honum eft- irför. Mikil leynd hefur hvílt yfir ferðum McCartneys, en hann fer ferða sinna á bílaleigubíl. Paul McCartney var lagahöfund- ur, söngvari og bassaleikari í einni frægustu hljómsveit allra tíma, The Beatles. Hljómsveitin sló í gegn á sjöunda áratugnum og upphófst þá hið svokallaða bítlaæði. Hvorki fyrr né síðar hafa hljómsveitir náð því- líkum vinsældum. Berst gegn jarðsprengjum Árið 1970 var tilkynnt um enda- lok The Beatles og síðan hefur McCartney, auk þess að njóta vel- gengni sem tónlistarmaður, helgað sig baráttu í umhverfis- og dýra- verndunarmálum. Eiginkona hans, Linda McCartney, lést fyrir rúmum tveimur árum, en hún var sömuleið- is þekkt fyrir störf í fyrrgreindum málaflokkum. Heather Mills er einnig kunn fyrir góðgerðastarf- semi, en hún missti annan fótinn við hné í bílslysi árið 1993. Hún hefur látið mikið að sér kveða í baráttu gegnjarðsprengjum, sem hafa vald- ið miiljónum manna útlimamissi. Stofnun ham- farasjóðs lögð til NEFND sem skipuð var af umhverfisráðherra í byrjun árs 1997 hefur lagt til að tek- ið verði heildstætt á málefn- um náttúruvár þannig að lög um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum verði endur- skoðuð og nái til varna gegn allri náttúruvá. Nefndin leggur til að starfssvið ofanflóðasjóðs verði útvíkkað og hann hugs- anlega nefndur hamfarasjóð- ur. Jafnframt að forvarnar- hlutverk verði í höndum sjóðsins og að hlutverk Við- lagatryggingar íslands verði eingöngu að bæta það tjón sem orðið hefur. Tillögur verða kynntar ríkisstjórn á næstunni Lagt er til að hlutverk stjórnar hamfarasjóðs verði að hafa frumkvæði við vinnu að verkefnum, veita styrki og halda saman upplýsingum um árangur þeirra verkefna sem styrkir eru veittir til. Tillögur nefndarinnar, sem m.a. studdist við tillögur sér- fræðinga á sviði jarðskjálfta og jarðskjálftaverkfræði, verða kynntar í ríkisstjórn á næstunni. ■ Hamfarasjóður/10 Skaftahliö 24 • Simi 530 1800 Fax 530 1801 • www.aco.is Morgunblaðið/Ami Sæberg Sjóvá-Almennar hækka bílatryggingar um 29% IÐGJÖLD á lögboðnum ökutækja- tryggingum hjá Sjóvá-Almennum hækkuðu í gær um að meðaltali 29%. Kaskótryggingar hækkuðu um leið um 15%. Bifreiðaiðgjöld taka mið af búsetu en ný flokkun í áhættusvæði gerir það að verkum að iðgjöld hjá íbúum Akraness, Hveragerðis, Sel- foss, Eyrarbakka, Stokkseyrar og Þorlákshafnar hækka um allt að 60%. Tryggingar þeirra sem búa á Austurlandi og í dreifbýli hækka ’ekki. Einar Sveinsson framkvæmda- stjóri Sjóvár-Almennra segir að hækkun á iðgjöldum lögbundinna ökutækjatrygginga megi rekja til stóraukinnar tjónatíðni en auk þess hafi kostnaður við hvert tjón vaxið talsvert. Iðgjaldahækkun hafi því verið nauðsynleg. „Lögboðnar öku- tækjatryggingar hefðu þurft að hækka um 40%. Við stígum skrefið upp í 29% og teljum að það megi ekki styttra vera,“ segir Einar. Hann segir góð- ærið eina af ástæðunum fyrir ið- gjaldahækkunum. Bílum hafi fjölg- að, þeir séu dýrari og viðgerðarkostnaður því meiri. Hækkanir fyrirhugaðar hjá öðrum tryggingafólögum Nauðsynlegar umbætur hafi hins vegar ekki verið gerðar á samgöngu- kerfinu. Kaupmáttaraukning undan- farinna ára hafi einnig leitt til þess að örorkubætur hækka. Hjá öðrum tryggingafélögum fengust þær upplýsingar að iðgjöld myndu að öllum líkindum hækka á næstunni en ekki væri enn vitað hversu miklar þær yrðu. Vátryggingafélag íslands og Tryggingamiðstöðin hf. hyggjast breyta áhættusvæðum sínum til samræmis við breytingamar sem Sjóvá-Almennar gerðu enda em breytingamar byggðar á könnun sem tók mið af gögnum frá flestum tryggingafélögunum. Neytendasamtökin og Félag ís- lenskra bifreiðaeigenda furða sig á þessum miklu hækkunum og kalla eftir því að ríkisstjómin láti rann- saka tryggingamarkaðinn. Hækkan- imar séu mun meiri en búast hefði mátt við og bent er á að iðgjöld hafi í fyrra hækkað um a.m.k. 35%. Astæð- an var þá sögð ný skaðabótalög. ■ Aukin tíöni/11 Gengið frá að lokinni kristnihátíð UNNIÐ var hörðum höndum að því í gær að ganga frá að lokinni kristnihátíðinni á Þingvöllum sem fram fór um helgina. Um 30 þúsund manns sóttu hátíð- ina sem fór í alla staði mjög vel fram. Mjög þrifalega var gengið um hátíðarsvæðið. Engin óhöpp urðu og umferð til og frá svæðinu gekk mjög greiðlega fyrir sig. Einmuna veðurblíða var á Þing- völlum og helsta verkefni sjúkraliða var að hlúa að fólki með sólbruna. ■ Kristnihátíð/C ACO flytur í Skaftahlíð 24 Verslun ACO. skrifstofur og verkstæði er flutt i Skaftahlið 24 við gamla Tonabæ. Komdu og kynntu þér úrval hágæða tölvubúnaðar i nýrri og glæsilegri verslun. Opið 9-18 virka daga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.