Morgunblaðið - 18.07.2000, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 18.07.2000, Qupperneq 6
6 PRIÐJUDAíiUH 18. J ÚLl iIUUU FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Varð að millilenda vegna bilunar BOEING 737-300 vél íslandsflugs millilenti í Brussel á sunnudag vegna bilunar, en vélin var á leið frá Keflavík til Rimini með farþega frá Samvinnuferðum-Landsýn. Einar Björnsson, flugrekstrarstjóri hjá íslandsflugi, segir að þrýsting- ur í farþegarými hafi lækkað það mikið að afráðið hafi verið að lenda, þó svo að þrýsingsbreyting- in hafi verið innan eðlilegra marka. í vélinni á sunnudag hélst loft- þrýstingur ekki stöðugur í farþega- rýminu og var því afráðið að lenda í Brussel til að athuga hvað ylli þessu ójafnvægi í þrýstingnum. I Ijós kom að um bilaðan einstefnu- loka var að ræða, en slíkir lokar virka sem þrýstijafnarar, og var skipt um lokann. Eftir 6 tíma bið hélt vélin áfram förinni til Rimini. Að sögn Einars eru menn ekki ennþá orðnir sáttir við viðgerðina og því eru flugvirkjar íslandsflugs nú að yfirfara vélina betur. Vélin hefur verið notuð í fragtflug fyrir DHL á næturnar og í farþegaflug á daginn. Matí á verstu skemmd- um í Holta- og Land- sveitarhreppi að Ijúka Fundað í vikunni FUNDAÐ verður með þeim sem verst urðu úti í Suðurlandsskjálftun- um í Holta- og Landsveitarhreppi nú í vikunni og þeim kynnt niðurstaða tjónamatsmanna Viðlagatryggingar. Hafa 6-8 íbúðir verið úrskurðaðar óíbúðarhæfar í hreppnum. Valtýr Valtýsson sveitarstjóri segir að fólk sé margt orðið frekar þreytt á biðinni. „Það er svo sem ekki furða að fólki finnist tjónamat ganga hægt. Öll bið er erfið, en hafa verður í huga að verkefnið er gríðar- lega viðamikið og erfitt,“ segir hann. Ferillinn gengur þannig fyrir sig að þegar tjónamatsmenn hafa kom- ist að niðurstöðu er kallað á fólk í viðtal þar sem farið er yfir útreikn- ingana. Þá gefst tækifæri til að gera athugasemd við matið. Sveitarfélög- in á skjálftasvæðinu hafa sameinast um óháðan ráðgjafa, verkfræðistof- una Línuhönnun, sem tjónþolar geta leitað til. Línuhönnun mun fara yfir niðurstöðu tjónamatsmanna fyrir þá sem þess óska. Ef athugasemdir koma fram verður málið skoðað enn frekar hjá Viðlagatryggingu, en ell- egar verður skrifað undir samning um bótagreiðslur. Það er svo geggjað að geta hneggjað FÁTT kætir klárinn meira en úti- vist á fögru túni og ekki spillir góð sprettan - græn og girnileg. Þessi hópur sýndist alltént sáttur við lífið og tilveruna þegar ljós- myndari var á ferð um Strandir nýverið. Hér forðum var sungið: „Það er svo geggjað að geta hneggjað - það er svo geggjað að geta það,“ og víst er að klárinn a tarna í forgrunni virðist glaðbeitt- ur geta tekið undir það. Loðnuvinnslan á Fáskrúðsfírði er enn lokuð Engin vinnsla í nærri tvær vikur EKKI hefur verið tekið á móti hrá- efni í Loðnuvinnslunni á Fáskrúðs- firði í rúmlega tvær vikur, eða síðan Verkalýðs- og sjómannafélag Fá- skrúðsfjarðar setti yfirvinnubann í verksmiðjunni. Stjórn Loðnuvinnsl- unnar setti verkbann viku seinna. Deilan snýst um þá ráðstöfun Loðnuvinnslunnar að keyra verk- smiðjuna á fimm manna vöktum, í stað sex manna vakta eins og áður hafði verið. Búið var að ganga frá kjarasamningum þegar ákvörðunin var tilkynnt, en verkalýðsfélagið sætti sig ekki við hana og setti yfir- vinnubann sem áður sagði. Ekki var skrifað undir samningana. „Okkur fannst þetta óviðunandi, þar sem búið var að reka verksmiðj- una með sex mönnum í mörg ár. Það hefur ekki orðið nein breyting í verksmiðjunni; tækni er öll hin sama Morgunblaðið/Friðþjófur og ekkert sem réttlætir fækkunina," segir Eiríkur Stefánsson, formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Fá- skrúðsfjarðar. Eiríkur segir að árið 1997, við síð- ustu kjarasamninga, hafi verið sett ákvæði í samningana um að vakt- menn yrðu ekki færri en sex til langs tíma. „Ef stjóm Loðnuvinnslunnar heldur því nú fram að fimm menn dugi, hefur verksmiðjan verið of- mönnuð í fimm ár,“ segir hann. Hann segir að samstaða starfsmanna og verkalýðsfélags sé algjör. Deilunni hefur verið vísað til ríkis- sáttasemjara, en ekki hefur verið boðað til fundar. „Ég sé ekki fram á að þéssi hnútur leysist í bráð,“ segir Eiríkur. Hann segir að stjórnendui’ Loðnuvinnslunnar hefðu betur byrj- að á því að spara í yfirbyggingu fyrirtækisins en fjölda verkamanna. Gísli Jónatansson, framkvæmda- stjóri Loðnuvinnslunnar, segir að það sé helgur réttur atvinnurekanda að ákveða fjölda starfsmanna sinna. „Þetta er ekki umsemjanlegt," segir hann. „Reyndar hafa verið fimm manns á annarri vaktinni síðan um áramót,“ segir hann. Samkvæmt hin- um óundirritaða samningi frá mán- aðamótunum fái starfsmenn Loðnu- vinnslunnar jafn mikla kjarabót og starfsmenn annarra verksmiðja, jafnvel meiri. Gísli segir ástandið vera algjörlega óviðunandi, en segist ekki vita hve lengi það geti varað án þess að valda varanlegum skaða. „Auðvitað hefur þetta valdið tölu- verðu tjóni. Þetta er tiltölulega nýtt fyi-irtæki sem má ekki við miklu. Þai' ofan á bætist að markaðir fyrir lýsi og mjöl eru mjög lélegir. Boltinn er núna hjá verkalýðsfélaginu." V egaframkvæmdir á Skagastrandarvegi Skagaströnd. Morgunblaðið. MIKLAR framkvæmdir standa nú yfir við lagfæring- ar á Skagastrandarvegi. Tvær einbreiðar brýr verða aflagðar og sett ræsi í stað- inn og þriðja einbreiða brúin verður breikkuð. Á vetrum hafa einkum verið tveir vegarkaflar sem valdið hafa erfiðleikum vegna snjóa á leiðinni milli Skagastrandar og Blöndu- óss. Annars vegar brekka við bæinn Hafurstaði og hins vegar brekka við Vindhæli. Báðar þessar brekkur verða nú teknar af með fyllingum og verður vegurinn við Haf- urstaði jafnframt færður upp á hæð ofan við bæinn til að koma í veg fyrir að snjór safnist í skafla á honum. Hér er um 1,5 til 2 kílómetra vegagerð að ræða sem felur í sér 80 til 90 þúsund rúm- metra efnisflutninga ef fyll- ingamar að ræsunum eru taldar með. Síðasta sumar var steypt ræsi undir brú við Vindhæli og nú verður keyrt að ræsinu og gilið þannig fyllt upp og vegurinn gerður í fullri breidd. Brúin yfir Hrafná við Skagaströnd verður síðan breikkuð í tvö- falda breidd en aðkeyrslan að henni verður óbreytt. Það er Steypustöð Blöndu- óss sem sér um framkvæmd- imar fyrir vegagerðina en áætlaður kostnaður er rúm- ar 40 milljónir. Verkinu á að vera lokið 1. október í haust. Eftir þessar framkvæmdir verður aðeins ein einbreið brú eftir á Skagastrandar- vegi, brúin yfir Laxá í Refa- sveit. Þar hafa oft orðið um- ferðarslys enda aðkeyrsla að henni sunnan frá blind og Morgunblaðið/Ólafur stórhættuleg, einkum fyiir ókunnuga. Ekki er þó kunn- ugt um nein áform um breyt- ingar á þeirri brú né að- keyrslunni að henni. Nauðsynleg áhugafólki um garðrækt • Jafnt fyrir byrjendur sem vana garðyrkjumenn. • 550 blaðsíður í stóru broti. • 3.000 litmyndir og skýringarteikningar. Sannkölluð aifræði garðeigandans 4> FORLAGIÐ Alver í Reyðarfírði, Fjarðabyggð Tillaga að matsáætl- un liggur frammi Laugavegi 18 • Sími 515 2500 • Siðumúla 7 • Simi 510 2500 SKIPULAGSSTOFNUN hefur til- kynnt að tillaga að matsáætlun vegna mats á umhverfisáhrifum ál- vers í Reyðarfirði, Fjarðabyggð, liggi fyrir. Allir geta kynnt sér til- löguna og lagt fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skrif- legar og berast eigi síðar en 31. júlí 2000 til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Þar fást ennfremur nánari upplýsingar um mat á umhverfisáhrifum. Skipulagsstofnun hefur leitað umsagnar Fjarðabyggðar, Austur- Héraðs, Náttúruverndar ríkisins, Byggðastofnunar, Ferðamálaráðs, Hafrannsóknastofnunar, Heilbrigð- iseftirlits Austurlands, Hollustu- verndar ríkisins, Landgræðslu rík- isins, Náttúrufræðistofnunar íslands, Siglingastofnunar, Skóg- ræktar ríkisins, Veðurstofu Is- lands, Vegagerðarinnar, Veiði- málastjóra, Veiðistjóraembættisins, Þjóðhagsstofnunar og Þjóðminja- safns Islands. Einnig hefur mats- áætlunin verið kynnt Fellahreppi og Norður-Héraði. Áætlunin fáanleg Hægt er að óska eftir eintökum af tillögunni hjá Reyðaráli hf., Síðumúla 28 í Reykjavík, og hjá Skipulagsstofnun í Reykjavík, sem og á bæjarskrifstofum Fjarða- byggðar. Tillagan er einnig að- gengileg á heimasíðu Reyðaráls hf: http://www.reydaral.is. Ákvörðun Skipulagsstofnunar um tillögu framkvæmdaraðila að matsáætlun mun liggja fyrir í síð- asta lagi 4. ágúst 2000.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.