Morgunblaðið - 18.07.2000, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 18.07.2000, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 2000 13 Bjarni Siffurjónsson, bifvélavirki á Akureyri, kom að slysstaðnum við Hólsselskfl Morgunblaðið/Kristján Hinir slösuðu voru fluttir fluglciðis frá flugvellinum við Grímsstaði á Fjöllum á Landspítalann í Fossvogi. Erlendu ferðalangarnir athuga með farangur sinn í húsnæði Rauða krossins á Akureyri, eftir bænastund og fund með áfallahjálparteymi FSA í gær. Með þeim á myndinni, annar f.v. er Svanur Eiríksson ræðis- maður Þýskalands á Akureyri. Bilstjórinn kom í veg fyrir að ekki fór verr BJARNI Sigurjónsson, bifvélavirki á Akureyri, kom ásamt konu sinni, Sigríði M. Jóhannsdóttur, að slysstaðnum við Hólsselskíl, skammt frá Grímsstöðum á Fjöll- um, sl. sunnudag. Bjarni sagðist £ samtali við Morgunblaðið þess fullviss að bflstjóri rútunnar hefði komið í veg fyrir að ekki fór verr er rútan valt af brúnni. Bjarni, sem hefur yfir 30 ára reynslu í fagi sínu, taldi að bflstjórinn hefði misst vald á rútunni eftir að fjaðrablað vinstra megin að framan brotnaði en við það hefðu framhjólin rifið í stýris- ganginn. Hann taldi að rútan hefði verið nánast kyrrstæð er hún valt út af brúnni, þar sem afturendi hennar hafnaði í ánni. Bjarni sagði það líklegast að augablað fjaðrar- innar hefði brotnað um það leyti sem rútan fór inn á brúna eða rétt áður og í kjölfarið hefði krókblað fjaðrarinnar húkkast af festingum með fyrrgreindum afleiðingum. „Það er alls ekki óalgengt að fjaðrir brotni á þessum íslensku vegum en það var mikil óheppni að það skyldi gerast einmitt á þessum stað.“ Bjarni og Sigríður voru að koma austan af fjörðum á húsbíl sínum er þau urðu vör við hvers kyns var. Þau settu sig í samband við lög- regluna á Húsavík, sem óskaði eftir að þau færu á slysstaðinn, en bæði starfa þau innan Rauðakrossdeild- arinnar á Akureyri. Þau hlúðu að hinum slösuðu í húsbfl sínum ásamt fleira fólki sem þarna hafði komið að. Bjarni sagði að aðkoman hefði ekki verið góð en skipulag á vett- vangi verið í mjög góðu lagi. „Þarna kom að mikið af læknum og hjúkrunarfólki en fólkið í rútunni var mikið skrámað og í talsverðu sjokki.“ Bjarni sagði að fólkið í rútunni hefði allt verið nokkuð fullorðið en það hefði verið einstaklega yfiiveg- að og elskulegt í alla staði. Hann sagði jafnframt að aðgerðum á vettvangi hefði verið stjórnað af festu og fagmennsku en við nokkuð erfiðar aðstæður, enda slysið nokk- uð langt frá mannabyggðum. Sigurður Sigurðsson, slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður á Akur- eyri, var staddur í fríi á Húsavík þegar hann frétti af slysinu og hélt hann þegar á vettvang. Sigurður sagði að aðkoman hefði verið hörmuleg. Þarna hefði verið mikið af slösuðu fólki en starfið á vett- vangi hefði gengið mjög vel. „Það var ferðafólk sem veitti fyrstu hjálpina og m.a. var settur upp tjaldvagn fyrir farþegana. Fólkið var mikið skorið og nokkuð var um beinbrot, enda hefur það kastast til og hvað á annað við fallið af brúnni, sem hefur vafalaust verið 4-5 metr- ar.“ Höfum átt von á að þessi staða kæmi upp Sigurður sagði að þótt aðstæður á vettvangi hefðu ekki verið mjög þægilegar hefði björgunarstarf gengið mjög vel fyrir sig. „Við sem erum í þessu starfi höfum alltaf mátt eiga von á að þessi staða kæmi upp og höfum í raun búið okkur undir það.“ Alls fóru tveir sjúkrabflar og níu sjúkraflutningamenn frá Slökkviliði Akureyrar á staðinn, auk þess sem viðbótarmannskapur var kallaður á slökkvistöð vegna hugsanlegra flutninga frá flugvelli á FSA. Brúin var byggð 1937 BRÚIN yfir Hólsselskíl var byggð árið 1937 og samkvæmt upplýsing- um Vegagerðarinnar er hún 3,30 metar á breidd. Vegurinn frá Grímsstöðum á Fjöllum og niður að Dettifossi er sumarvegur sem er lokaður 7-8 mánuði á ári. Ofaní- burður í veginum er víða lítill og sumstaðar er vegurinn niðurgraf- inn. Reynt hefur verið að hefla hann yfir sumarmánuðina og var hann sfðst heflaður þremur dögum fyrir slysið. Einar Hafliðason, verkfræðingur hjá Vegagerðinni, sagði að Vega- gerðin hefði sett í forgang að fækka einbreiðum brúm á hringveginum, en einnig hefði talsvert af gömlum brúm utan hringvegarins verið sett í ræsi. Markvisst væri unnið að fækk- un á einbreiðum brúm. Einar hafði ekki upplýsingar um að brúin yfir Hólsselskfl hefði verið á áætlun Vegagerðinnar um brýr sem yrðu endurnýjaðar á næstu árum. Ekki náðist í fulltrúa Vegagerðar- innar á Norðurlandi sem hefur með viðhald á veginum að gera. Þakka viðbrögð hjálpar- sveita Varautanríkisráðherra Þýska- lands, Dr. Christoph Zöpel, sem dvelur á íslandi um þessar mundh', átti í gær viðræður við framkvæmdastjóra Almanna- varna ríkisins, Sólveigu Þor- valdsdóttur, og framkvæmda- stjóra Rauða Krossins, Sigrúnu Arnadóttur, þar sem hann, fyr- ir hönd þýsku ríkisstjórnarinn- ar, þakkaði skjót og mikilvæg viðbrögð íslenskra hjálpar- sveita við björgun hinna slös- uðu úr bílslysinu við Hólssel. Rannsókn á rútuslysinu við Holsselskfl í fullum gangi Talið að rútan hafí lent á brúarstólpa LÖGREGLAN á Húsavík vann áfram í gær að rannsókn á um- ferðarslysinu á brúnni yfir Hóls- selskíl en rannsókn á vettvangi lauk í fyrrinótt. í gær voru teknar skýrslur af farþegum og ökumanni rútunnar og stóð sú vinna enn yfir seinni partinn í gær. Sigurður Brynjólfsson, yfirlög- regluþjónn á Húsavík, sagði það liggja nokkuð ljóst fyrir að rútan hafi lent utan í öðrum brúarstólp- anum, trúlega með afturhásingu, er henni var ekið inn á brúna og að það sé í rauninni orsök slyssins. „Síðan er eitthvert orsakasam- hengi á milli þess að bíllinn lendir á stólpanum og fer svo út í gegn- um handriðið." Sigurður sagði að þótt það væri ekki endanlega staðfest sé líkleg- ast að frambitinn hafi brotnað undan rútunni við það að fara út í gegnum handrið brúarinnar. Enn meiri afsláttur áður en við flytjum Opið á laugardögum frá kl. 10-14 mraanon Reykjavíkurvegi 64 • Hafnarfirði • Sími 565 1147
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.