Morgunblaðið - 18.07.2000, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 2000 25
ÚRVERINU
Hildur Pctursdóttir, líffræðingur hjá Hafrannsóknastofnun, slakar hér
út háfi sem ætlaður er í það að safna dýrasvifi.
sem verið er að rannsaka á hverjum
tíma.
Til að sjá hvað er að gerast í flot-
trollinu erum við með höfuðlínusón-
ar sem er tæki sem tengt er við skip-
ið með kapli. Hann sýnir okkur
hvort trollið er klárt í sjónum og eins
opið á trollinu. Hann gefur líka
möguleika á því að horfa fram þann-
ig að við sjáum hvort fiskur er að
ganga inn í trollið eða hvort hann er
að fara framhjá og þá getum við
brugðist við því.“
Aðspurður hvort Árni Friðriksson
standi ekki jafnfætis öðrum nýleg-
um hafrannsóknarskipum segist
Árni telja svo vera. „Nú hafa Skotar
og Frakkar byggt nýlega mjög full-
komin rannsóknarskip og þau eru
mjög vel tækjum búin en ég veit
ekki til þess að þetta skip standi
þeim að baki. Þetta skip hefur búnað
til að stunda veiðarfærarannsóknir
sem er mun betri heldur en hjá þeim
og auk þess hafa þau engan búnað til
að geyma þann afla sem veiðist.
Skipið er einstaklega vel hannað,
bæði til gangs og togs, og það þarf
mjög lítið afl til að koma því vel
áfram. Sknifa skipsins er drifin
áfram af rafmótor og er því ákfalega
lítið vélarhljóð í skipinu sem er mik-
ilvægt þegar við erum að mæla við-
kvæm dýr sem eru ofarlega í sjón-
um.
Skrokkur skipsins er mjög falleg-
ur í laginu og minnir meira á frei-
gátu en togara enda gengur skipið
mjög vel eða um 16 mílur. Skrokkur-
inn er smíðaður með það að mark-
miði að fá sem best aðstreymi að
skrúfunni til að það myndist sem
minnst af hvirflum þegar við siglum
á mælingarferð sem er um 11 mflur.
Eins hefur tekist vel til með hönnun
skrúfunnar þar sem það er erfitt að
hanna skrúfu sem hentar bæði til að
knýja skipið hratt áfram og eins til
að toga vel.“
Ámi kveðst vera mjög ánægður
með prufutúrinn og segir að allt sem
að honum sneri hafi virkað vel. „Ég
er mjög ánægður með hvernig tókst
að afgreiða trollin, toga og hífa, og
eins lætur skipið vel að stjórn. Ég er
því ánægður með hvernig til tókst í
þessum túr. Auðvitað koma alltaf
fram einhverjir agnúar á búnaði
svona flókins skips og við þurfum
einhvern tíma til að lagfæra þessi
smáatriði.
Tilgangur þessa prufuleiðangurs
var að prófa vindukerfi skipsins,
veiðarfæri og þau fiskileitartæki
sem í skipinu eru. Með í för voru ís-
lenskir umboðsmenn og sérfræðing-
ar í þessu spilkerfi og eins sérfræð-
ingar í fiskileitartækjum og þetta
hefur allt staðist allar væntingar."
Rafdrifin skrúfa
Eins og áður sagði er vélin í Árna
Friðrikssyni ákaflega hljóðlát og
segir Atli Jörundsson vélstjóri að
það stafi af því að fjórar díselvélar
framleiði orku fyrir rafdrifinn
skrúfumótor. „Fjórar 1.080 kfló-
watta díselvélar framleiða rafmagn
fyrir allt skipið og skrúfumótorinn
sem er knúinn áfram af rafmagni.
Skrúfumótorinn skilar 3,3 mega-
watta afli sem skilar skipinu 16 mfl-
ur. Þetta er frekar óvenjulegt fyrir-
komulag um borð í skipi en það
hentar vel þegar skip þurfa að vera
lágvær út í sjóinn og er þetta því
fyrst og fremst notað í rannsóknar-
skipum og farþegaskipum. Díselvél-
arnar fjórar eru tengdar sjálfvirku
kerfi þannig að þær eru ekki í gangi
frekar en þörf er og koma því inn
eftir þörfum."
Atli segir að til að minnka titring
og hávaða í skipinu séu allar vélar á
tvöföldu púðakerfi og jafnframt eru
allar dælur á púðum þannig að
hvergi er járn í járn. Atli segir að í
stórum dráttum hafi búnaðurinn
virkað mjög vel. „Afivélarnar sjálfar
og skrúfubúnaðurinn hafa virkað vel
en það hefur ýmis aukabúnaður ver-
ið að stríða okkur eins og gengur í
nýju skipi en þetta hefur í megin-
dráttum virkað mjög vel.“
Guðmundur Svavar Jónsson er
líklega sá starfsmaður Hafrann-
sóknastofnunar sem hefur fylgt
skipinu hvað lengst eftir. Hann var
ritari byggingarnefndar skipsins og
var í forsvari fyrir eftirliti byggingar
skipsins úti í Chile en hann var einn-
ig eftirlitsmaður með smíði Bjarna
Sæmundssonar þegar hann var
smíðaður í Þýskalandi fyrir 30 árum.
„Það má segja að ég hafi fylgt þessu
alla leið og það er gaman að sjá hann
loksins kominn heim. Mér líst vel á
skipið þó svo að eitt og annað þurfi
að lagfæra eins og gengur með nýja
hluti. Þetta er vel útbúið skip sem á
eftir að gagnast okkur vel.“
Guðmundur hefur unnið hjá Haf-
rannsóknastofnun í tæp 40 ár og hef-
ur verið í forsvari fyrir breytingum á
skipum auk þess að vera rannsókn-
armaður. Hann segir að rannsókn-
araðstaðan sé mjög góð í nýja skip-
inu og mun stærri og betri heldur en
í þeim eldri.
„I skipinu er að finna rannsókn-
arrými á þremur þilförum. Þegar
fiskur hefur verið veiddur er hon-
um komið niður í vinnslusal sem er
ekki aðeins aðgerðarsalur heldur
er fiskurinn mældur, vigtaður og
viðeigandi sýni tekin. Þegar búið er
að taka sýni og blóðga fiskinn er
hann settur ofan í lest.“ Inn af
vinnslusalnum koma þrjár rann-
sóknarstofur sem hver hefur sitt
hlutverk. I fiskirannsóknarstofu
segir Guðmundur að unnin sé for-
vinnsla á sýnum sem tekin voru í
vinnslusalnum. Þá er einnig smá-
sjárherbergi og efnafræðistofa til
vinnslu á þeim sýnum sem tekin
eru. „Hér verður unnið úr sýnum í
smásjá sem ýmist koma frá fiski-
rannsóknarstofunni eða annars
staðar frá. Frammi í vinnslusal og í
fiskirannsóknarstofunni erum við í
svokölluðu blautrými en smásjár-
stofan er á þurru svæði.
Einnig er sérstök efnafræðistofa í
skipinu þar sem hægt er að vinna
með öll þau efni sem við koma rann-
sóknum sem fara fram um borð í
skipinu."
Meira um rafeindatæki
nú en áður
I skipinu er að finna litla kompu
sem aðeins er ætluð til seltugrein-
ingar og segir Guðmundur að
kompan sé hitastýrð vegna þess að
þau mælitæki sem þar eru notuð
séu mjög næm fyrir hita. í rann-
sóknarrými skipsins er einnig að
finna verkstæði fyrir tæknimenn
Hafrannsóknastofnunar og segir
Guðmundur að nauðsynlegt sé að
geta gert minniháttar viðgerðir um
borð. „Þetta hefur breyst geysilega
mikið undanfarin ár. Áður var mest
um hefðbundin tæki eins og hita-
mæla og slíkt en nú er mest allt
komið yfir í rafeindatæki og því
nauðsynlegt að hafa aðstöðu til að
gera minniháttar viðgerðir á tækj-
um ef með þarf.“
Rannsóknarrýmið er að mestum
hlutu á tveimur þilförum og er lyfta
á milli þeirra til að flytja sýni. Guð-
mundur segir að rannsóknarrýmið á
efra þilfarinu sé meira fyrir innsöfn-
un sýna á meðan hið neðra er meira
fyrir úrvinnslu. Rannsóknarstofa
sem liggur beint inn af þilfarinu er
ætluð undir rannsóknir á dýrasvifi
en þar inn er flest það tekið sem
kemur til rannsókna inn af þilfari.
Á efra þilfarinu er einnig að finna
hita- og birtustýrt herbergi og er
ætlunin að vera með stórt kar þar til
að hafa lifandi sýni í. Þar er einnig
að finna stórt herbergi til sjótöku en
stórar dyr eru á stjórnborðssíðu
skipsins til að hægt sé að slaka þar
út þeim útbúnaði sem til þarf. Inn af
sjótökuherberginu er síðan ein
rannsóknarstofa til sem notuð er í
ýmiss konar frumvinnslu.
Árni Friðriksson leggur af stað í
sína fyrstu rannsóknarferð í dag en
ætlunin er að rannsaka sfld, loðnu og
kolmunna í þeirri ferð sem reiknað
er með að taki rúman hálfan mánuð.
útbor,
Fyrsta greiðslál
nóvember 2000
Lán í allt að
60 mánuði
A notuðum bílum
frá Ingvari Helgasyni hf. og Bílheimum ehf.
Útsölulok
fimmtudaginn 20. júlí
£3 on Oj\nn]Lj\Oj.\Lj\^\
úir3n=5fi3'’/3‘]i 1 1 - -Sírni