Morgunblaðið - 18.07.2000, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 2000 31
LISTIR
Fjármálaævintýri barnanna
Magnús Einarsson við
litskyg'gnuvélina.
Litskyggnusýn-
ing á Húsavík
MAGNÚS Einarsson heldur lit-
skyggnusýningu (slide show) á Húsa-
vík dagana 17.-22. júlí í húsakynnum
Leikfélags Húsavíkur kl. 20:30 og 22.
Sýningin felur í sér 420 htskyggn-
ur af náttúru íslands á öllum árstíð-
um sem sýndar eru með fjórum sam-
tengdum slidesýningarvélum, auk
þess sem tónverkið Pláneturnar eftir
G. Holst stýrir því hvemig litskyggn-
umai- birtast hver á fætur annarri.
Pláneturnar em í sjö þáttum í þess-
ari röð: Mars, Venus, Merkúr, Júpít-
er, Satúrnus, Úranus og Neptúnus,
en hverri plánetu fylgja litskyggnur
af náttúm íslands.
Sýningin stendur yfir í eina
klukkustund og er aðgangseyrir kr.
1000.
BÆKUR
It a r n a b ó k
FELIX OG KAUPHALL-
ARÆVINTÝRIÐ
eftir Nikolaus Piper. Islensk
þýðing: Arthúr Björgvin Bollason.
Æskan, 1999 -330 s.
PENINGAR, hlutabréf, fjármál og
vextir em mikið í umræðu allra vest-
rænna landa í dag og því kannski ekki
alveg út í hött að barnabókahöfundur
flétti þessi mál inn í efni skemmti-
legrar barna- og unglingabókar. Sag-
an hefst á vonbrigðum þýska stráks-
ins Felix þegar hætta verður við
sumarferðalag vegna íjárhagsvanda
foreldranna. Þótt hann sé ekki nema
12 ára tekur hann þá ákvörðun að
hann skuli verða ríkur og með þessa
staðfóstu ákvörðun hefjast þeir, hann
og vinur hans Peter, handa við þetta
ákveðna verkefni. Þeir reyna fyrir sér
með ýmiss konar hugmyndum sem
geti aflað þeim fjár og sífellt reikna
þeir út hvað þeir geti fengið í vexti af
þeim fjármunum sem þeim tekst að
vinna sér inn. Þeir taka stelpuna Gi-
anna í hópinn og em þar með búnir að
fjölga hluthöfum. Þau slá garða,
keyra út bollur úr bakaríinu og setja
upp lítið hænsnabú og selja eggin, en
það sem þau fá fyrir þetta em aðeins
smápeningar. Þeir fá svo aðstoð frá
gömlum vini þeirra sem selur forn-
muni og brátt fara hjólin að snúast.
Sagan er mjög spennandi og börn-
in lenda í miklum ævintýmm þegar
þau þurfa að glíma við aðila sem hafa
svikið út úr þeim peninga. Einnig
reynir mikið á vináttu þeirra þegai-
bjátar á. Persónusköpunin er góð og
bömin em venjulegar persónur með
sín vandamál og viðfangsefni svo les-
andi kynnist þeim vel. Þau reyna
hvemig það er að lifa í samkeppnis-
þjóðfélagi þar sem þau verða að
bregðast við ýmiss konar uppákom-
um, eins og t.d. þegar einn vinur
þeirra fer að undirbjóða þjónustu
þeirra. Fjallað er um ýmiss konar
þjóðfélagsleg vandamál sem tengjast
nútímanum, t.d. þrýsting sem blaða-
maður, faðir eins af söguhetjunum,
verður fyrir þegar hann vill fletta of-
an af óvinsælu misferli þar sem valda-
miklir menn eiga í hlut. Einnig er ýj-
að að vandamálum úr sögu
Þýskalands þegar bömin reyna að
hafa upp á eiganda dýrmætra eigna
sem fundust í fomsölu vinar þeirra.
Viðbrögð nútíma þýskra unglinga við
því að þurfa ef til vill að skila auð-
ævum sem hafa verið ranglega höfð
af mönnum í stríðinu verður viðfangs-
efni sögunnar á mjög mannlegan
hátt.
Við fyrstu sýn kann þetta að þykja
sérkennilegt viðfangsefni í bamabók,
en höfundurinn vefur þekkingu um
fjármál og hlutabréfamarkað inn í
frásögnina og þessi fræðsla kemur
fram sem svör við spumingum sem
bömin bera sjálf upp og þurfa að fá
svar við. Sá sem les þessa bók sem
spennusögu getur gert það án þess að
láta truflast af fjármálafræðslunni, en
sá sem hefur áhuga á að skilja hluta-
bréfamarkað og hvernig peningar
em ávaxtaðir, ásamt þeirri áhættu
sem fylgir fjárfestingunum, fær
þama mikinn fróðleik og skemmti-
lega fram settan. í bókarlok er orða-
safn þar sem helstu hugtök era skýrð.
Einnig era þar geíin orðatiltæki, um-
mæli og jafnvel biblíutilvitnanir um
peninga og í-íkidóm, og væntanlega
hefur þýðandi bætt við tilvitnun úr
Hávamálum um að auður sé valtastur
vina.
Þýðingin er á vönduðu og kjarn-
miklu máli og þótt hér sé fjallað um
efni sem bömum er ef til vill lítið
kunnugt er málfarið aldrei þvingað
né tilgerðarlegt.
Það era heldur fáar þýskar barna-
bækur sem koma út á íslensku og er
þetta því vel þegin viðbót fyrir utan
það að efni hennar á mjög svo vel er-
indi til íslenskra barna og unglinga
sem era að byrja að skilja þau við-
fangsefni sem samfélög, eins og það
íslenska, era svo gagntekin af.
Sigrún Klara Hannesdóttir
MAUVIEL
Koparpottar og -pönnur
Frönsk gæðavara (uppáhald fagmanna)
PIPAR OG SALT
Klapparstíg 44 f Sími 562 3614
Sýningar- og
reynsluakstursbílar
Á STÓRLÆKKUÐU
VERÐI
FYRSTIR K0MA FYRSTIR FÁ
Þeir sem hafa hraðar hendur geta nú tryggt sér bíl af
bestu gerð á enn lægra verði. í nokkra daga seljum við
með góðum afslætti nokkra bíla sem notaðir hafa verið
á sýningum og í reynsluakstri.
Fyrstir koma, fyrstir fá. Ekki missa af þessu tækifæri.