Morgunblaðið - 18.07.2000, Síða 40
,40 ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 2000
HESTAR
MORGUNBLAÐIÐ
Rósir og
þyrnar
Vinsælasta sjónvarpsefnið er drykkju-
venjur Islendinga, varla erhaldið
opnunar- eða einkasamkvœmi svo að
tökumenn séu ekki mættir til að leyfa
hífuðum að tjá sig við þjóðina.
>
ISLENSK fjölmiðlaflóra
dafnar og blómstrar eins
og annar gróður. Sumt
eru flflar og hundasúrur,
eins og gengur, en ef vel
er að gáð má koma auga á rósir og
hressilegar kryddjurtir í garðinum
góða. Nýir afleggjarar skjóta
reglulega rótum og þannig er
reynt að halda áhorfendum, hlust-
endum og lesendum við efnið.
En það er einhver óróleiki í
garðinum. Fram hjá þvi verður
ekki litið að í flóru íslenskra fjöl-
•» ’ miðla kraumar vaxandi mótþrói.
Nýjar rásir og rit virðast hafa það
að markmiði að koma á óvart, helst
að hneyksla; í stuttu máli að ganga
á svig við flest þau viðmið sem
tíðkast hafa í geiranum hingað til.
VIÐHORF
Eftir
Sigurbjörgu
Þrastardóttur
Ekki ein-
asta að hand-
heldar mynda-
vélar hafi tekið
við af þrífæti í
sjónvarpi og
handritum kastað fyrir róða í út-
varpi. Um er að ræða uppbrot
hefðarinnar í mun víðari skilningi.
Uppreisnin virðist hvorki meira né
minna miðast við að grafa undan
uppeldisgildum og siðferðisviðmið-
um sem hingað til hafa ráðið ríkj-
um í útvarpi, sjónvarpi og prent-
miðlum. Það er líkt og ofvöxtur sé
hlaupinn í allt það sem áður var
álitið illgresi í íslenskri fjölmiðlun.
Einu sinni var samasemmerki
milli tungutaks í fjölmiðlum og
þess sem kallaðist „vandað mál“.
Málfarsráðunautur Ríkisútvarps-
ins og prófarkalesarar prentmiðl-
anna yfirfóru það sem sent var út
til fólksins, enda skyldu miðlamir
setja gott fordæmi í málnotkun.
Nú er aftur á móti hægt að lesa í
blöðunum um „megabeibs" og
„iiberkúl gæja“, auk þess sem
næstum þarf að texta dagskrárliði
í sjónvarpi, þar sem ungir tungu-
fossar koma við sögu. Nafn einnar
yngstu sjónvarpsstöðvarinnar,
Popp TiVí, hnykkir á þessari mál-
farsbyltingu og sýnir svo ekki
verður um villst að hreintungu-
stefna á ekki lengur upp á pall-
borðið.
Einu sinni var einbeiting höfuð-
kostur útvarpsþula. Þættir sam-
anstóðu af ómenguðum röddum,
tónlist og vönduðum áhrifshljóðum
- annað var klippt burt. Nú er ekki
aðeins leyfilegt að geispa og flissa í
útsendingu, heldurvirðastum-
sjónarmenn frjálslegustu þáttanna
keppast við að tyggja, ropa, rífast,
rymja, leysa vind og bölva í hljóð-
veri. Og ef svo illa vill til að hljóð-
nemamir grípa ekki herlegheitin
gera umsjónarmennimir hlé á
annars óskipulögðu máli sínu til
þess að lýsa því sem á gengur.
Einu sinni báru Ijósvíkingar
virðingu fyrir viðmælendum sín-
um, sýndu þeim í það minnsta
lágmarkskurteisi. Nú er í tísku að
gera lítið úr þeim sem hringja í
hressustu þættina. Helst ber að
hafa hlustendur að fíflum með ólík-
indatali eða - og þetta er ein vin-
sælasta aðferðin á nýjustu út-
varpsstöðinni - bíða ekki eftir því
að hlustendur hringi heldur
hringja endurtekið í grunlaust fólk
út í bæ og bulla þar til í fólkið fyk-
ur. Ekki þykir síður snjallt að taka
nafntogað fólk í sjónvarpsviðtal og
reyna á þolinmæði þess með
nýmóðins spumingum.
Sniðugast af öllu þykir þó að tala
illa um fjarstadda í beinni út-
sendingu, fara niðrandi orðum um
hinar ýmsu stofnanir og hvetja
fólk jafnvel til þess að hrækja
framan í ákveðna embættismenn,
eins og gert var í útvarpsþætti á
sunnudaginn. Þannig er nú komið
fyrir kurteisinni.
Og myndmiðlar virðast hafa tek-
ið síbyljusvima útvarpsins til fyrir-
myndar. Vinsælasta sjónvarpsefn-
ið er drykkjuvenjur íslendinga,
varla er haldið opnunarhóf eða
einkasamkvæmi svo að tökumenn
séu ekki mættir til að leyfa hífuð-
um að tjá sig við þjóðina. Á Sýn er
tónninn gefinn strax í sjónvarps-
sal, þáttastjómendur með höfiið-
verk sitja þar með bjór í hönd og
bjóða áhorfendum svo í partí að
þætti loknum.
Það athyglisverðasta er að bak-
við meint kæruleysi virðist mót-
þrói miðlanna afar meðvitaður,
eins og slagorðin sýna. Boðorð
Popp TíVí „Ekki gera eins og
mamma þín segir“ gengur í ber-
högg við boðorðið „Heiðra skaltu
foður þinn og móður“ og auglýs-
ingin „Það er gott að glápa - tón-
list allan sólarhringinn" ögrar við-
teknu viðhorfi um að mikið
sjónvarpsáhorf sé óhollt ungu
fólki.
Annars er það útvarpsstöðin
Radíó sem einna skýrast áréttar
uppreisnina gegn oíd hefðarinnar
með yfirlýsingunni „Radíó - anti-
útvarp“. Þar á bæ er markvisst
leikið á gamlar hefðir um leið og
farið er yfir það sem einu sinni
töldust velsæmismörk. I liðinni
viku vom tveir þáttastjómendur
ósáttir við hlut sinn á heimasíðu
stöðvarinnar og höfðu þá þetta að
segja í útsendingu:
D: „Nú fer ég og drep þessar
kellingarsem sjá um þessa helvítis
heimasíðu!"
P: „Nei, nei, við erum íútvarpi
hér; það er bannað að segja
„drepa" og það er bannað að segja
„keÚingar".
D: Stúta þessum konum, þá...
P: Já, þetta ermun betra.
Þannig gera fjölmiðlamenn
nýma tíma djörfung sína og dug sí-
fellt að umræðuefni. Þeir hlífa eng-
um, era aldrei tepralegir, blóta ef
þeim sýnist... Þeir smjatta á öllu
því sem einu sinni þótti tabú að
tala um í fjölmiðlum og skapa þar
með ný viðmið í geiranum.
Og kannski er þetta óhjákvæmi-
leg þróun. Nauðsynleg útrás.
Kannski er æskilegt að villigerðið
vaxi saman við rósimar og myndi
nýja sprota í garðinum. Gott ef það
mun ekki meira að segja vera hlut-
verk frjálsra fjölmiðla að ögra,
skapa og ryðja nýjar brautir.
Fyrst eftir að fjölmiðlun var gefin
frjáls á Islandi varð margt til þess
að hneyksla: sjónvarp á fimmtu-
dögum, popplög allar nætur,
fréttamenn sem yrtu hvor á annan
í beinni útsendingu! Nú er
sjónvarpið ekki bara öll kvöld held-
ur á morgnana líka, popplög leikin
á jóladag og fréttatímamir fullir af
tilsvöram. Og yfir þvi era allir
hættir að kvarta.
Upp í hugann koma Orð kvölds-
ins, Reykjavíkurbréf, Deiglan...
Verða hátíðleiki, yfirvegun og
kurteisi flokkuð með illgresi eða
rósum, næst þegar íslenska fjöl-
miðlaflóran verður tekin út?
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Afrek Þulu frá Hólum hafa engin áhrif á folaldið hennar sem gengur undir annarri hryssu á Hólum.
Nýorðnar mæður á
fullu á landsmóti
Hvernig má það vera að hryssur sem voru í
fremstu röð á nýafstöðnu landsmóti hesta-
manna eignuðust folald í vor? Ásdís
Haraldsdóttir komst að því að þannig er því
háttað með þær Þulu frá Hólum og Þotu frá
Hólum. Þær eignuðust báðar folald í vor án
þess að ganga með það sjálfar.
Þula og Þota gengust báðar undir
fósturvísaflutning í fyrravor. Fóst-
urvísar úr þeim voru fluttir í aðrar
hryssur sem gengu með folöldin
og köstuðu þeim í vor. Þessar úr-
valshryssur hafa því verið í fullri
þjálfun sjálfar í vetur. Þær stóðu
sig vel á landsmótinu og vöktu
mikla athygli.
Kastaði fyrsta af
þremur folöldum sjálf
Þula er átta vetra, undan Kol-
finni frá Kjarnholtum og Þóru frá
Hólum. Hún stóð efst í flokki
hryssna sjö vetra og eldri auk þess
sem hún kom fram sem afkvæmi
Kolfinns sem fékk heiðursverðlaun
fyrir afkvæmi á mótinu.
Þota er fimm vetra, einnig und-
an Kolfinni, en móðir hennar er
heiðursverðlaunahryssan Þrá frá
Hólum, sem er jafnframt amma
Þulu. Þota kom fram sem afkvæmi
beggja foreldra sinna á mótinu.
Þula hefur átt þrjú folöld.
Fyrsta folaldið gekk hún með sjálf.
Það er fjögurra vetra gömul
hryssa, Gerpla, undan Jó frá
Kjartansstöðum. Tvö seinni folöld-
in voru flutt sem fósturvísar í aðr-
ar hryssur. Það eldra er tveggja
vetra hestur, Gýmir frá Hólum,
undan Loga frá Skarði, og það
yngra fæddist í vor og er undan
Kraflari.
Heiðursverðlauna-
forfeður í röðum
Folald Þotu sem fæddist í vor er
hennar fyrsta afkvæmi. Það er
undan Markúsi frá Langholtsparti
sem er undan Orra frá Þúfu.
Óneitanlega hljóta miklar vonir að
vera bundnar við þetta folald ef
miðað er við afköst foreldranna á
mótinu, Þotu og Markúsar sem
sigraði með yfirburðum í B-flokki
gæðinga, afanna Orra og Kolfinns,
sem báðir fengu heiðursverðlaun
fyrir afkvæmi og ömmunnar Þrá-
ar, sem einnig fékk heiðursverð-
laun fyrir afkvæmi.
Ekki má gleyma því að Þrá er
undan heiðursverðlaunahestinum
Þætti frá Kirkjubæ og Kolfinnur
undan heiðursverðlaunahestinum
Hrafni frá Holtsmúla sem fengu
reyndar báðir heiðursverðlaun fyr-
ir afkvæmi á sama landsmótinu,
árið 1982 á Vindheimamelum.
Beðið með
fósturvísaflutninga í ár
Víkingur Gunnarsson, deildar-
stjóri hrossabrautar við Hólaskóla,
sagði í samtali við Morgunblaðið
að engir fósturvísaflutningar hefðu
verið gerðir í vor. Þrátt fyrir að
margir sýndu áhuga á því að taka
þátt í verkefninu hentaði tímasetn-
ingin ekki þar sem margir voru að
sýna hryssur sínar í kynbótadómi
og síðan á landsmótinu. Víkingur
sagði að þónokkrir hefðu aftur á
móti sýnt áhuga á að koma með
hryssurnar frekar næsta vor, enda
ætti það ekki að trufla þjálfun
þeirra fyrir næsta landsmót, sem
verður eftir tvö ár, ef eigendurnir
hefðu áhuga á að sýna þær þar.
Félag tammngamanna
gefur út kynningarrit
Félag tamningamanna hefur gefið
út kynningarrit í tilefni 30 ára af-
mælis félagsins og landsmótsins.
í ritinu er meðal annars gerð ít-
arleg grein fyrir samstarfi FT og
Hólaskóla um þróun náms í
hestamennsku.í greininni er rak-
in saga þessa samstarfs en jafn-
framt er gerð grein fyrir nýju
námsskipulagi sem tekið verður
upp á Hólaskóla næsta haust.
Verður boðið upp á allt að 5 anna
nám á þremur áram. Farið er yfir
námslýsingu, hvernig námsgrein-
ar skiptast á annir og markmið
námsins.
Stjórn FT fjallar í grein sinni
m.a um félagið sjálft, félagafjölda,
tilgang félagsins, markmið og
helstu verkefni félagsins. Þau eru
m.a. fólgin í að samræma mennta-
og prófgráðakerfi fyrir íslands-
hestamennsku á Norðurlöndun-
um, vinna að stigun reiðkennslu
frá fyrstu stigum byrjenda til
efsta stigs atvinnumanna og þátt-
taka í átaksverkefni landbúnaðar-
ráðherra og samtaka hestamenns-
kunnar um gæðastefnu í ræktun,
tamningu, þjálfun sölu, kynningu
og notkun íslenska hestsins.
Auk þess er m.a. birt í ritinu
ávarp núverandi formanns FT,
Ólafs H. Einarssonar, rætt er við
Friðþjóf Þorkelsson um félags-
búning FT, birt er félagatal FT
og fyrsti formaður félagsins, Sig-
urjón Gestsson, ávarpar lesendur.
Félögum í FT hefur fjölgað
mjög á undanförnum 10 árum.
Þeir voru 94 árið 1990 en eru nú
380.