Morgunblaðið - 18.07.2000, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ
HESTAR
ÞRIÐ JUDAGUR 18. JÚLÍ 2000 41
Heimsmeistaramótið í Austurríki 2001
Haldið í 200 ára gam-
alli hestamiðstöð
HEIMSMEISTARAMÓT íslenskra
hesta verður haldið í Stadl Paura í
Austurríki næsta sumar. George W.
Fink, framkvæmdastjóri mótsins,
kom hingað til lands fyrir skömmu til
að kynna mótið.
Stadl Paura hefur verið hestamið-
stöð í um 200 ár og er þekktust fyrir
hrossarækt og sýningar, en lengst af
var þar stóðhestastöð í eigu ríkisins.
Staðurinn var einkavæddur árið 1997
og hefur austurríska hestamiðstöðin
Stadl Paura tekið við nýju hlutverld
sem miðstöð fyrir þjálfun, sýningar,
menningu og þjónustu.
Gert er ráð íyrir að á mótið komi
þátttakendur og áhorfendur frá um
20 þjóðum, en það fer fram dagana 12.
til 19. ágúst2001.
Heimsmeistaramótsnefndin leggur
áherslu á að mótið verði ekki aðeins
viðbui’ður á sviði hestaíþrótta heldur
einnig menningarlegur og þar verði
mikið og öflugt félagslíf mótsdagana,
íslenski hesturinn og ísland verði
kynnt sérstaklega þannig að dagskrá-
in höfði ekki eingöngu til hestafólks,
heldur einnig almenns ferðafólks.
Að sögn er hestamiðstöðin í Stadl
Paura vel í stakk búin til að halda mót
á borð við heimsmeistaramótið. Þar
eru margar byggingar sem hýsa
stjómstöð, aðstöðu fyrir fréttamenn,
dýralækna og jámingamenn. Þar em
hesthús og aðstaða fyrir reiðskóla,
bæði innan húss og utan, kappreiða-
braut og fjölbreyttar útreiðaleiðir.
Auk þessa verða tveir hringvellir og
skeiðbraut lögð fyrir mótið. Þar að
auki verður sett upp safn fyrir „Heim
hestanna" og höggmynda- og lista-
verkagarður er á svæðinu.
Margt verður gert til að koma til
móts við þarfir mótsgesta. Auk þess
að geta fylgst með keppninni og kyn-
bótadómum verður boðið upp á ýmis
skemmtiatriði og uppákomur. Meðal
annars opnunarhátíð í upphafi móts-
ins og skrúðgöngu í lokin, galasýn-
ingu, tónleika, diskótek ogýmsar sýn-
ingar.
Bamaland, dýragarður, sirkus og
fleira er sérstaklega hugsað fyrir
yngstu kynslóð áhorfenda.
Nánari upplýsingar um heims-
meistaramót íslenskra hesta í Aust-
urríki 2001 er að finna á slóðinni
http://www.pferdezentrum-stadlpau-
ra.at/.
Hestamiðstöð Islands
opnar heimasíðu
Hestamiðstöð íslands í Skagafirði
hefur opnað heimasíðu á Netinu
með greinargóðum upplýsingum
um stofnunina, markmið hennar og
verksvið, skipulagsskrá og verk-
efnalista.Á verkefnalista Hesta-
miðstöðvarinnar er tilgreint hvaða
verkefni liggja fyrir.
Með gæðaátaki á hrossaræktar-
búum er ætlað að hjálpa þeim sem
að slíkum búum standa að bæta
framleiðslu og afkomu. Verður boð-
in ráðgjöf um framleiðslu,
markaðssetningu og sölu. I fyrstu
verður unnið með sex til átta búum
í Skagafirði áður en þjónustan
verður boðin á landsvísu. Þetta
verkefni er unnið í samstarfi við
Hólaskóla og Hrossaræktarsam-
band Skagafjarðar.
Þá er sagt frá því að í bígerð sé
að reisa íslenska hestinum veglegt
safn þar sem saga hestsins, notkun
hans og eiginleikar verða sýnd á lif-
andi hátt. Þar er einnig ráðgert að
bjóða upp á aðstöðu til vísindarann-
sókna á íslenska hestinum. Verk-
efnið er í athugun hjá Hestamið-
stöð íslands og er gert ráð fyrir að
frumkönnun á því hversu umfangs-
mikið verkið getur orðið, áætlanir
um kostnað og tekjumöguleika
ásamt staðarvali, verði lokið 15.
ágúst nk.
Greint er frá því að Hestamið-
stöð íslands hefur keypt hlutafé í
Flugu hf. sem ætlað er að byggja
og reka reiðhöll á Sauðárkróki.
Reiðhöllin er m.a. hugsuð til að
skapa aðstöðu fyrir verklega
kennslu í hestamennsku, en gerður
hefur verið samstarfssamningur
við Hólaskóla og Fjölbrautaskóla
Norðurlands vestra um tilrauna-
kennslu í hestamennsku og reið-
mennsku við FNV á vorönn 2001.
Könnun á hestatengdri
ferðaþjónustu
Að síðustu er fjallað um könnun
sem fer af stað í ár á gæðum hesta-
tengdrar ferðaþjónustu og gert er
ráð fyrir að ljúki haustið 2003.
Einnig verður í haust farið af stað
með tilraunaverkefni þar sem
nokkrum aðilum í hestatengdri
ferðaþjónustu verður safnað saman
undir eitt merki í markaðssetningu.
I skipulagsskrá er greint frá
hlutverki og markmiðum Hesta-
miðstöðvarinnar, hverjir eru stofn-
endur, hvernig stjórn og fulltrúa-
ráð skuli skipað o.s.frv.
Heimasíðu Hestamiðstöðvar ís-
lands er að finna á slóðinni
www.horses.is.
Spurningar og svör
um íslenska hestinn
Félag hrossabænda hefur gefið út
bæklinginn The Icelandic Horse -
The Answers to Your Questions. I
bæklingnum eru birtar spumingar
um hvaðeina sem snýr að íslenska
hestinum og svör við þeim á ensku.
Bæklingurinn hefur áður verið gef-
inn út í Þýskalandi og er hann þýdd-
ur af þeim James Joicey og Clive
Phillips, en Hulda G. Geirsdóttir
stjómaði verkefninu. Útgáfa bæk-
lingsins á ensku er unnin í samvinnu
við bresku Islandshestasamtökin.
Spui’ningai’ í bæklingnum era
mjög margvíslegar og þegar hann
er skoðaður nánar má segja að svör
fáist við flestum þeim spumingum
sem gætu vaknað hjá þeim sem
áhuga hafa á þessu hestakyni. Sem
dæmi má nefha er spurt: Hvað era
íslenskir hestar? í stuttu en ítarlegu
svari kemur m.a. fram að þetta séu
smávaxnir hestar, þó ekki af smá-
hestakyni, vegna þess að þeir séu
alvöra reiðhestar sem fullorðið fólk
getur riðið. Einnig er spurt hvemig
maður eigi að velja sér hest, hvort
hægt sé að keppa á þeim og þá í
hvaða keppnisgreinum, um sjúk-
dóma, hvemig geðslag þeir hafi og
gangtegundir svo eitthvað sé nefnt.
Bæklingurinn er þegar farinn í
dreifingu í Bretlandi og hafa bresku
Islandshestasamtökin dreift honum
til allra sinna félagsmanna auk
ferðaþjónustufyrirtækja og fleiri.
Einnig hefur bæklingnum verið
dreift í Bandaríkjunum.
Að sögn Huldu G. Geirsdóttur,
markaðsfulltrúa Félags hrossa-
bænda, lá bæklingurinn frammi á
landsmótinu. Auk þess komu marg-
ir erlendir landsmótsgestir við á
skrifstofu Félags hrossabænda og
tóku með sér bæklinga. Þá mun fé-
lagið sjá um að bæklingurinn liggi
frammi á öllum sýningum og sam-
komum sem FH tekur þátt í í
enskumælandi löndum.
Hulda sagði að þeim sem mark-
aðssetja hesta í þessum löndum
væri velkomið að koma við á skrif-
stofunni og fá bæklinga.
Jarðarber
Fyrír helgina kom til okkar hjóna góður
gestur og færði okkur marga bakka af
gómsætum jarðarberjum segir Kristín
Gestsdóttir, og það var jarðarberjaveisla
alla helgina.
Það er ekki alltaf sem maður læt-
ur eftir sér að braðla með jarð-
arber, en þótt jarðarberin séu
hvað best bara með rjóma og flór-
sykri má búa til margt gott úr
þeim og draga svolítið úr rjóman-
um. Þegar ég fór að lesa mér til
um jarðarber rakst ég á frásögn
af fagurri frú með fallega húð sem
baðaði sig í jarðarberjavatni, en í
hvert baðvatn fóru 10 kg af mörð-
um berjum - það má reyna. Efna-
fræðingar miðalda töldu þau allra
meina bót og að þau stuðluðu að
langlífi. í þeim er mikið af C-víta-
míni auk ýmissa steinefna. Vafa-
laust hefur dregið eitthvað úr holl-
ustu þeirra innfluttu berja, sem
hér era algengust í búðum, en við
kaupum þau aðallega vegna
bragðsins og útlitsins því fátt er
girnilegra en fagurrauð jarðar-
ber.
í Evrópu var farið að rækta
jarðarber strax á 13. öld. 5-6 teg-
undir þekktust þá og era þau jarð-
arber sem nú eru ræktuð af þeim
stofnum sem hafa verið kynbætt-
ir. í byrjun 18. aldar voru góð og
stórvaxin afbrigði jarðarberja
flutt til Frakklands frá Bandaríkj-
unum, Kanada og Chile.
Á 19. öld vora jarðarber mjög
vinsæl og meira en 600 afbrigði
m-ðu til sem enn er verið að endur-
bæta með víxlfrjóvgun. Mér er
ekki kunnugt um hvenær fyrst
var farið að rækta jarðarber hér á
landi en á fimmta áratugnum voru
þau ræktuð á Seyðisfirði. Stund-
um hafa fengist íslensk ber yfir
sumartímann, en þau ber sem hér
eru seld eru yfirleitt innflutt.
Margir rækta sín ber heima í
garði með góðum árangri. Systir
mín hefur gert það í mörg ár og
fær mikla uppskera, en ég hefi
aldrei lagt í slíka ræktun. Þótt
land mitt sé stórt hentar það ekki
vel til jarðarberjaræktunar.
Ég bjó til stóra jarðarberja-
tertu með rjóma og jógúrt.
Tveggja ára ömmustrákur brosti
út að eyrum þegar hann sá tert-
una og hóf að syngja afmælissöng-
inn. Hann gat ekki skilið að svona
fín terta væri á borðum þegar
ekkert væri afmælið.
Jarðarberjaterta
75 g lint smjör eðo smjörlíki
100 g sykur
__________3 eggjarauður__________
__________3 msk. nýmjólk_________
___________125 g hveiti__________
___________1 tsk. lyftiduft______
3 eggjahvítur
100 g sykur saman við hvítumar
______1 peli jarðarberjaiógúrt
1 peli rjómi
_________3 blöð matorlím_________
__________fersk jgrðarber________
1. Hrærið lint smjör eða smjör-
líki með sykri. Blandið saman
eggjarauðum og nýmjólk, hellið
smám saman út í og hrærið á milli.
2. Hrærið hveiti og lyftiduft út í.
3. Teiknið hring á bökunar-
pappír, 22 sm í þvermál. Smyrjið
deiginu jafnt á hringinn.
4. Þeytið eggjahvíturnar,
blandið sykrinum smám saman út
í og hrærið á milli, smyrjið þunnt
lag af marengs ofan á botninn og
sprautið háa toppa af honum allt í
kring ofan á botninn svo að góður
kantur myndist.
5. Hitið bakaraofn í 160°C,
blástursofn í 140-150°C, og bakið
neðarlega í ofninum í eina klst.
Fylgist með svo að ekki brenni.
Kælið og losið af pappírnum og
setjið á fat.
6. Leggið matarlímið í bleyti í
kalt vatn í 5 mínútur, vindið upp
og setjið í bolla og setjið ofan í
sjóðandi vatn svo að bráðni.
Hrærið síðan út í jógúrtina. Þeyt-
ið rjómann og blandið saman við.
Hellið inn í marengshringinn.
7. Þvoið jarðarberin, takið lauf-
ið af og skerið í tvennt. Raðið þétt
ofan á rjóma/jógúrtblönduna,
skurðflötur snúi upp.