Morgunblaðið - 18.07.2000, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 18.07.2000, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 2000 51 ------------------------V UNNUR EINARSDÓTTIR + Unnur Einars- dóttir fæddist á Berustöðura í Ása- hreppi, Rangárvalla- sýslu, 15. október 1922. Hún lést á heimili sínu Sól- vangsvegi 1 í Hafnar- firði 5. júlí síðastlið- inn. Foreldar hennar voru Ingigerður Þor- steinsdóttir frá Beru- stöðum, húsfreyja í Skaftafelli og Hafn- arfirði, f. 14. júní 1896, d. 1. janúar 1973, og Einar Eyj- ólfsson frá Hvammi á Landi, kaupmaður í Reykjavik, f. 23. september 1897, d. 2. september 1959. Systkini Unnar eru: 1) Bald- ur Óskarsson, f. 28. mars 1932. 2) Elsa Einarsdóttir, f. 16. júlí 1935. 3) Eyjólfur Einarsson, f. 17. ágúst 1940. 4) Árni Einarsson, f. 13. júlí 1943. 5) Hilmar Einarsson, f. 31. maí 1949.6) Ingvi Sævar Oddsson, f. 3. janúar 1942. Unnur giftist 9. desember 1950 Ólafi M. Magnússyni húsa- smíðameistara úr Hafnarfirði og bjuggu þau alla tíð í Hafnarfirði, lengst af í Birkihvammi 2. Þau eignuðust tvö börn: 1) Magnús, f. 13. desember 1952, jarðfræðingur, kvæntur Björgu Ei- ríksdóttur og eiga þau tvær dætur, Gerði, f. 18. nóvem- ber 1978, hún á soninn Þórberg, f. 14. júlí 1999 og Unni, f. 2. mars 1983. 2) Ingigerður, f. 4. desem- ber 1954, hjúkrunarfræðingur, gift Haraldi Ágústssyni og eiga þau tvö börn, Maríu, f. 16. mars 1979, og Ólaf, f. 9. maí 1985. Útför Unnar fer fram frá Hafn- arfjarðarkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. Unnur Einarsdóttir verður jarð- sett í dag. Hún kvaddi þennan heim fyrirvaralaust á heimili sínu í Hafn- arfirði hinn 5. júlí sl. Þótt ég hafi und- anfarin ár átt heima fjarri ættland- inu höguðu örlögin því svo til að ég hitti þessa ágætu frænku mína fáein- um dögum fyrir andlátið, glaða og hressa að vanda. Unnur bar alveg sérstaka um- hyggju fyrir vinum og vandamönn- um. Þessa naut ég og fjölskylda mín í ríkum mæli allt frá því ég man fyrst eftir henni til hinstu stundar. Úm- hyggja hennar og ræktarsemi við móður mína aldraða var aðeins eitt af dæmunum. Hún og eiginmaður hennar Ólafur Magnússon tóku líka ýmsum, sem í erfiðleikum áttu, opn- um örmum, opnuðu þeim heimili sitt og veittu stuðning með öðrum hætti. Einstæðingar áttu þar athvarf, svo oggestir og gangandi. Eitt sinn rýmdu þau aðalhæðina í húsi sínu, fluttu sig á hina neðri og buðu mér og fjölskyldu minni til dvalar yfir jóla- hátíðir. Þannig gátu afi og amma, sem bjuggu í Sviss, verið með fjöl- skyldu dótturinnar, sem bjó í Banda- ríkjunum, og haldið sameiginleg jól í sínu „rétta“ umhverfi í Hafnarfirði. Þetta eru örfá dæmi um gjafmildi og umhyggju fyrir öðrum, sem komu fram í öllu, jafnt í smáu sem stóru. Unnur og Ólafur voru miklir unn- endur íslenzkrar náttúru. Þau ferð- uðust um landið og þekktu nánast hverja þúfu, hvort sem var í byggð eða óbyggðum. Kannski var ekki að undra að Unnur nyti vel fegurðar landsins þar sem hún var að mestu leyti alin upp í einni fallegustu nátt- úruperlu landsins, Skaftafelli í ðræf- um. Það er e.t.v. ekki úr vegi að minna á að Skaftafell þess tíma var í sveit afgirtri óbrúuðum stórfljótum á báða vegu, til austurs jafnt sem vest- urs og engin jökulánna innan sveitar hafði verið brúuð. Samt var gest- kvæmt á Böltanum í Skaftafelli. Þangað bar að erlenda sem innlenda gesti, sem komu ríðandi undir leið- Erfisdrykkjur h P E R L A N Sími 562 0200 H «* H H H H H H H H iiiiiiiiiiiiiii: sögn stjúpa Unnar, Odds bónda Magnússonar, yfir Skeiðará ef hún var væð, eða yfir Skeiðarárjökul. Seinna komu þeir einnig úr austri eftir flug að Fagurhólsmýri, oftast ríðandi, yfir allar jökulámar að Skaftafelli og þá leið kom ég reyndar sjálfur til sumardvalar í Skaftafelli, tólf ára gamall. Ekki veit ég hvaða leið Ólafur fór að Skaftafelli, en þar fann hann frænku mína Unni og þar tókust með þeim ástir. Ferðalög Unnar og Ólafs um óbyggðir landsins voru ævintýri, sem þau lýstu með litskyggnum á dásam- legum stundum á heimili sínu, sem festust mér í minni á unglingsárun- um. Þau voru meðal frumherjanna í óbyggðaferðum og ótrúlegt hvað þau komust á Skódanum sínum, áður en þau skiptu yfir í jeppa. En Únnur og Ólafur heimsóttu ekki bara öræfi ís- lands. Hin byggðu ból urðu ekki út- undan og vina- og kunningjafjöldinn um land allt er ótrúlegur. Fyrir bragðið var þekkingin á fólkinu í landinu meiri en títt er um flesta. Unnur var rammíslenzk. Hún kunni til allra búskaparverka upp á íslenzk- an máta og samkvæmt íslenzkri hefð. Allt sem hún tók sér fyrir hendur gerði hún af alúð og allt blómstraði í kringum hana. Vorið var tími sáning- ar og haustið tími uppskeru og slát- urgerðar. En auk hinna sterku ís- lensku róta var Unnur líka sigld, eins og það hét á þeim tíma. Rúmlega tvítug varð hún samferða móður minni með okkur systkinunum til Svíþjóðar. Þetta var trúlega annað eða þriðja ár reglulegra flugferða til meginlands Evrópu. Ferðin sjálf var mikið ævintýri. Að flugi loknu til Kaupmannahafnar tók við járn- brautarferð, sem hófst með því að lestin ók upp í skip. Þetta voru nýj- ungar fyrir ungmeyna úr Öræfum og kaupstaðarstrákinn níu ára gamlan. Um sumarið gekk Unnur í lýðhá- skóla í Svíþjóð þar sem kennd voru SOLSrElNAK Legsteinar í Lundi við Nýbýlaveg, Kópavogi Sími 564 4566 GARÐH EIMAR B'LÓMABÚÐ • STEKKJARBAKKA 6 X SÍMI 540 3320 V tfisdrykkjur í Veislusalnum Sóltúni 3, Akógeshúsinu, fyrir allt aó300 manns. EINNIG LETTUR HADEGISMATUR ru AE MFUKAFFI OG TERTU A EFTIR - SAMA VERÐ VEISLAN G3 . slo8í3 ,rra'réSa 7«kkut " "atinu I Glœsilegar veitingar frá Veislunni AusturslrSnd 12 «170 Selljarnarnes • Simi: 561 2031 • Fax: 561 2008^ VEITINGAELDHÚS www.veislan.is _ _ — cg bókleg fög jafnt og handmennt. Þar lærði hún að vefa. Mörgum stundum varði hún síðan við vefstólinn og óf jafnt nýtilega sem fallega hluti. Unnur og Ólafur bjuggu sér fagurt og gott heimili. Þangað var gaman og gott að koma. Þar ólu þau upp börnin sín, Magnús og Ingigerði, í góðu um- hverfi og við gott og umhyggjusamt atlæti. Systkinin tvö komu oft við hjá foreldrum mínum, því við vorum grannar allt frá æsku minni og nú, áratugum seinna, eru þau bestu vinir okkar hjónanna. Unnur var perla af manni. Vinátta hennar og hjálpsemi og stuðningur við okkur hjónin var okkur ómetan- legur allt frá því við settum niður bú okkar í Hafnarfirði. Við Irma þökk- um henni þetta allt. Við söknum hennar nú. Hún hverfur á braut þeg- ar við erum rétt um það bil að koma heim. Ég flyt Ólafi, Magnúsi og Ingi- gerði og fjölskyldum þeirra innilegar þakklætis- og samúðarkveðjur frá mér og Irmu og fjölskyldu okkar. Vertu sæl Unnur. Kjartan Jóhannsson. Elsku Unnur, það var erfitt að trúa því að þú værir farin. Ég var að tala við þig deginum áður og þú sagð- ir mér að Astrid hefði fengið hvíld- ina. Svo ferð þú fjórum dögum á eftir henni, ótrúlegt en satt. Þú sem varst alltaf svo virk og hraust. Svo varstu búin að fara austur, í heimsókn til fólksins þíns og í sveitina til Óla bamabarnsins þíns, það var allt svo gaman. Mig langar að þakka þér fyrir allt. Ég kom inn í þína fjölskyldu mjög ung, þú tókst mér svo vel og vildir allt fyrir mig gera. Þú kenndir mér svo margt, að búa til slátur, kæfu, súrmat, baka úr geri, prjóna fallegar flíkur og allt um garðrækt. Þú varst svo vel að þér í þessu öllu og mörgu fleiru. Það voru margar ferðimar sem þú fórst fyrir jólin til að gleðja gamalt fólk og einstaklinga, það tilheyrði jól- unum. Ég gleymi því ekki þegar þið Óli voruð að fara í tjaldútilegu á Skódan- um með litlu börnin ykkar, það voru ekki margir sem gerðu það í þá daga. Það var alltaf gott að koma til ykk- ar Óla, ég þakka þér fyrir allt. Elsku Óli, Guð blessi þig og þín yndislegu börn og barnabörn. Þurý. Þegar það rann upp fyrir okkur að Unnur amma væri dáin varð okkur fljótlega hugsað til þess hvað við er- um í raun heppnar að hafa fengið að Varanleg minnlng er meitluð ístein. m S. HELGAS0NHF STEINSMIÐJA Skemmuvegi 48, 200 Kóp. Sími: 557-6677 Fax: 557-8410 Netfang: sh.stone@Vortex.is kynnast henni. Það eru svo margir á okkar aldri sem hafa ekki átt þess kost að kynnast ömmum sínum og öf- umjafnnáið og við. Unnur amma hefur alla okkar ævi verið stór hluti af okkar lífi. Hún hef- ur fylgst með okkur í námi og leik. Þeir eru ófáir kórtónleikamir sem hún hefur komið á til að hlusta á okk- ur systumar og alltaf var jafn gaman að sjá hana sitja í salnum. Við systumar dvöldum oft hjá ömmu og afa í Birkihvamminum, ekki síst þegar við vorum komnar í skóla. Það var alltaf gott að koma til ömmu í hádeginu, borða með henni og afa og spila jafnvel eftir hádegis- matinn eða fylgjast með henni vefa. Ekki síður á Unnur góðar minningar frá því að hafa spilað félagsvist með eldri borgurum í Álfaskeiðinu en amma sá um þá starfsemi. Það þótti nokkuð merkilegt að Unnur var að- eins sex eða sjö ára og bara nokkuð slungin við spilamennskuna. Amma var mikið náttúrubam og alltaf var jafn gaman að ferðast með henni og ekki síðri eru minningarnar um „Apastaði" eða sumarbústað hafnfirskra iðnaðarmanna við Apa- vatn. Þangað fórum við oft Ö0 fjögur frændsystkinin og þá var ýmislegt sér til gamans gert eins og að veiða, fara í göngutúra og ef ekki viðraði var spilað eða lesið innan dyra. Þegar við vorum yfir nótt í Birki- hvamminum sem annars staðar var alltaf farið með bænimar fyrir svefn- inn og það var amma sem fyrst fór með Gerði í sunnudagaskólann að- eins þriggja ára. Seinna fylgdi Unn- ur litla svo með. Þó að amma væri í raun sveita- stelpa var hún líka svolítil heimskona^ því að hún hafði mjög gaman af því að ferðast jafnt innanlands sem utan. Við áttum þess kost að vera með þeim afa og ömmu í tveimur utan- landsferðum. Annars vegar þegar við fómm með Norrænu til Færeyja og hins vegar þegar þau heimsóttu okkur í Glasgow. í þessum ferðum var gaman að vera á gangi með henni því að hún var alltaf jafn áhugasöm um umhverfi sitt. Einna kærastar em okkur þó minningarnar um jóladagsboðið í Birkihvamminum og svo síðar í Höfn. Þar hittumst við alltaf öll í há> deginu á jóladag, borðuðum jóla- steikina og ekki vomm við háar í loft- inu þegar við urðum fullgildir púkkspilarar. Eitt emm við mjög þakklátar fyrir. Við öll hátíðleg sem önnur tækifæri sem fjölskyldan kom saman vomm við krakkarnir alltaf fullgildir þátttakendur. Amma talaði alltaf við börn á sama hátt og hún tal- aði við fullorðið fólk. Þegar við voram litlar ræddi maður oft málin við ömmu í eldhúsinu á meðan afi lagði sig eftir hádegismatinn og fékk svo far með honum aftur í skólann í hvítu Lödunni þeirra. Þessar minningar munu lifa með okkur og við munum seint þreytast á því að rifja þær upp. . Gerður og Unnur. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, INGIBJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR frá Ferjubakka, síðast til heimilis á Miðbraut 1, Seltjarnarnesi, lést á hjúkrunarheimilinu Víðinesi föstudaginn 14. júlí síðastliðinn. ___________________ Jarðarförin fer fram frá Borgarneskirkju föstudaginn 21. júlí kl. 14.00 Ragnhildur Jónsdóttir, Rúnar E. Geirsson, Þórhildur B. Einarsdóttir, Sæmundur Guðmundsson, Elsa G. Friedlander, barnabörn og barnabarnabörn. t Elsku litli sonur okkar og bróðir, ARON OTTÓ ALEXANDERSSON, lést á Landspítalanum mánudaginn 3. júlí. Hann var jarðsunginn frá Fossvogskapellu föstudaginn 14. júlí. Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug. Guðbjörg Guðlaugsdóttir, Alexander Þórsson, Thea Líf Alexandersdóttir. t Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi, GUÐNIÞÓRÐARSON gullsmiður, til heimilis að Egilsgötu 22, Reykjavík, andaðist á Landspítalanum, Fossvogi aðfara- nótt sunnudagsins 16. júlí. Jónína Jónsdóttir, Kristín Guðnadóttir, Einar Hermannsson, Guðni Einarsson, Árni Einarsson. t Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir, ÞRÚÐUR JÓNfNA SIGURÐARDÓTTIR, síðast til heimiiis á Egilsbraut 7, Neskaupsstað, lést föstudaginn 30. júní sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Fyrir hönd aðstandenda, Sigurður Rafn Bjarnason, Ólafur Þór Bjarnason, Guðrún Ólafsdóttir, Birna Geirmundsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.