Morgunblaðið - 18.07.2000, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 2000 53
------------------------r
var hér í gær en ekki í dag. Hver dag-
ur er gjöf.
Þegar ég hugsa til baka til þess
tíma sem við hittumst fyrst minnist
ég þess að hafa fundið kraftinn sem
var eins og undir niðri því framkom-
an var látlaus og fáguð. Hann var
tæplega tveimur áratugum eldri en
ég þótt það væri ekki augljóst. Yfir
honum var einhver æskuljómi og
hann átti til að breiða bros yflr and-
litið sem var ávísun á fjörið sem bjó
með honum þó hann færi vel með
það. Hann var gleðimaður - kunni að
gleðjast á góðri stund. Og hann var
hrifnæmur - bar skyn á tilfinningar
fólks og setti sig gjama í spor ann-
arra.
Hann var afreksmaður í íþróttum
því árum saman keppti hann í al-
menningshlaupum og var á meðal
fremstu manna í sínum aldursflokki.
Hann var snarpur og skaust milli
hæða eins og elding. Leitaði maður
eftir nærveru hans stóð hann stund-
um fyrir framan mann áður en færi
gæfist á að leggja á símtólið þó að
nokkrar hæðir væru á milli okkar.
Við kynntumst við sérstakar aðstæð-
ur. Eyddum saman löngum stundum
í upphafi síðasta áratugar. Við vorum
þá nýlega orðnir samstarfsmenn í
uýjum banka, íslandsbanka. Hann
átti mörg ár að baki í bankanum og
hafði fjölbreytta reynslu, hafði feng-
ist við margt. Örlögin höguðu því
þannig að allt í einu vorum við orðnir
samverkamenn í risaverkefni. Við
stóðum í eldlínu sameiningar
stærstu bankaútibúa hérlendra, úti-
bús fyrrum Útvegsbanka í Austur-
stræti og útibús fyrrum Iðnaðar-
banka í Lækjargötu. Allt haustið og
fyrri hluta vetrar 1990 stóð undir-
búningurinn með ótal fundum og
ráðstefnum. Ég fann fljótt að þama
fór einn þeirra sem hugsa fyrst og
tala svo. Undantekningarlítið hlust-
aði hann vandlega og tók oftast ekki
til máls fyrr en öllum hliðum hafði
verið velt upp. Þá dró hann saman
helstu staðreyndir og leiddi svo rök
að niðurstöðunni sem þá var ein-
hvem veginn svo augljós. Svona
fundi áttum við marga. Úrlausnar-
efnin vom líka óteljandi. Tæknileg
mál, mál sem snertu viðskiptavini og
mál sem snertu samstarfsmenn. I
þeim síðastnefndu tókst honum hvað
best upp. Og í samskiptum við starfs-
menn hins nýja útibús var hann af-
burða lipur og leysti margan vanda
þótt ekki færi það hátt. En það var í
gegnum þetta samstarf sem með
okkur myndaðist vinátta og traust.
Nokkmrn missemm síðar skildu leið-
ir og hann fór til að stýra útibúi bank-
ans í Garðabæ. Þar mætti viðskipta-
vinum sama Ijúfmennskan og hann
beitti í Lækjargötunni. Síðar tókst
hann á hendur fjölbreyttari verkefni
innan bankans og safnaði í reynslu-
bmnninn. Við héldum vináttunni,
þegar við hittumst rifjuðum við
gjama upp umbrotatímana í Lækjar-
götunni forðum. í daglegu amstri síð-
ari árin lengdist í sambandinu á milli
okkar þó að íslandsbanki væri hús-
bóndi okkar beggja. Það er auðvelt
gái menn ekki að sér.
Og vegna kynna okkar Þorsteins
kynntust líka konur okkar. Þor-
steinn var vel kvæntur maður. Þau
vom svo ólík en samt svo lík. Hann
hægur og yfirvegaður - hún hrif-
næm og opin. Fullkomið jafnvægi.
Mér fannst samband þeirra Sigríðar
fallegt. Gagnkvæm virðing og full-
nægja. Margir em í stanslausri leit
að hamingjunni sem ekki er langt
undan ef þeir hætta að leita. En þau
Sigga og Steini voru ekki að leita -
þau höfðu það sem þau vildu og
þurftu. Þau vom seint í sínu hjóna-
bandi blessuð með barnaláni. Ég
býst við að aðeins þeir sem þurft
hafa að bíða eftir þeirri dýrð geri sér
grein fyrir láninu sem þeir njóta
þegar loksins gefst. Þetta vissi Þor-
steinn og engum duldist að fjölskyld-
an var honum allt. En nú er þátttöku
hans lokið og svo skyndilega. Enn
ein veðrabrigðin í tilvemnni.
íslandsbanki sér á eftir traustum
starfsmanni til 32 ára. Samstarfs-
menn sakna góðs félaga. Börnin
syrgja kæran föður og eiginkona
harmar góðan mann. En hann skilur
eftir minninguna.
Og svo gleðina síðar meir.
Jón Þórisson framkvæmdastjóri
Íslandsbanka-FBA.
t
Elskulegur sonur okkar, bróðir og mágur,
JÓNAS SIGURÐUR KONRÁÐSSON,
frabakka 20,
Reykjavík,
sem lést á heimili sínu laugardaginn 8. júlí,
verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu fimmtu-
daginn 20. júlí kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en
þeim, sem vilja minnast hans, er bent á SOS-barnaþorpin.
Konráð Páll Ólafsson, Ingigerður St. Óskarsdóttir,
Guðjón Árni Konráðsson,
Jóna Ósk Konráðsdóttir, August Hákansson,
Guðmundur Kristinn Konráðsson.
t
Ástkær sambýlismaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
ÁRSÆLL KARLSSON,
sem lést á St. Jósefsspítala föstudaginn 14. júlí,
verður jarðsunginn frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði
á morgun, miðvikudaginn 19. júlí, kl. 13.30.
Fyrir hönd vina og vandamanna,
Einara Sigurðardóttir,
Aðalheiður Ársælsdóttir, Flemming Hansen,
Karl Ársælsson, Ragnhildur Vilhjálmsdóttir,
Þröstur Ársælsson
og barnabörn.
t
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, sonur
og bróðir,
ÞORSTEINN BRYNJÚLFSSON
bankamaður,
Meðalbraut 6, Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Háteigskirkju í dag,
þriðjudaginn 18. júlí, kl. 13.30.
Sigríður I. Magnúsdóttir,
Brynjúlfur og Bergþóra,
Ingrid Sigfússon,
Aðalsteinn Brynjúlfsson,
Bryndís Brynjúlfsdóttir,
Hersteinn Brynjúlfsson.
t
Móðir okkar, stjúpmóðir, tengdamóðir, amma
og langamma,
HULDA PÁLÍNA VIGFÚSDÓTTIR,
Eskihlíð 10,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Háteigskirkju fimmtu-
daginn 20. júlí kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en
þeim sem vilja minnast hennar, er bent á Geðhjálp eða aðrar líknar-
stofnanir.
Guðrún Erla Skúladóttir, Jóhannes Gíslason,
Nanna Eiríksdóttir,
Kristín Valdimarsdóttir, Halldór Kjartansson,
Björn Valdimarsson, Mariska van der Meer,
Margrét Birna Valdimarsdóttir, Valur Símonarson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Eiginkona mín og móðir okkar,
UNNUR EINARSDÓTTIR,
Sólvangsvegi 1,
Hafnarfirði,
verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju í dag,
þriðjudaginn 18. júlí, kl. 15.00.
Ólafur Magnússon,
Magnús Ólafsson,
Ingigerður Ólafsdóttir
og fjölskyldur.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð, vináttu og hlýhug vegna andláts og
útfarar ástkærrar móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
SIGRfÐAR PÉTURSDÓTTUR BLÖNDAL,
síðast til heimilis
í Seljahlíð.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Seljahlíðar fyrir
góða umönnun.
t
Móðir okkar og tengdamóðir,
ÞÓRDÍS JÓNA GUÐJÓNSDÓTTIR,
Litlu-Ávfk,
Árneshreppi,
sem lést mánudaginn 10. júlí, verður jarðsett frá Árneskirkju miðviku-
daginn 19. júlí kl. 14.00.
Ágústa Sveinbjörnsdóttir,
Sigursteinn Sveinbjörnsson,
Lýður Sveinbjörnsson,
Sigríður Sveinbjörnsdóttir,
Sveinbjörn Sveinbjörnsson,
Jón Guðbjörn Guðjónsson
og tengdabörn.
t
Við fráfall og útför
OTTÓS A. MICHELSEN,
Miðleiti 5,
Reykjavík,
viljum við af alhug þakka þeim fjölmörgu, sem
sýndu minningu hans virðingu og fjölskyldunni
samúð og hlýhug.
Guð blessi ykkur öll.
Gyða Jónsdóttir,
Óttar Ottósson,
Kjartan Ottósson,
Helga R. Ottósdóttir, Stefán S. Guðjónsson,
Geirlaug Ottósdóttir, Grímur Guðmundsson,
Theodór Ottósson, Árný Elíasdóttir
og barnabörn.
Svanfríður H. Blöndal, Þorsteinn Pétursson,
Pétur H. Blöndal,
Kristín H. Blöndal, Karl Örn Karlsson,
Hjörtur H. Blöndal,
Lárus H. Blöndal, Valgerður Baldursdóttir, c
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Þökkum innilega fyrir einstakan hlýhug og stuðning sem okkur var sýnd-
ur við fráfall og útför
STEINUNNAR ÁRNADÓTTUR,
Bergþórugötu 6b,
Reykjavík,
og
STEFÁNS ÓLA ÁRNASONAR,
Marbakkabraut 16,
Kópavogi.
Jóhann Ásgeirsson, Rannveig Gísladóttir,
Karólína Hreiðarsdóttir, Stella Stefánsdóttir,
Guðrún Hreiðarsdóttir, Lára Stefánsdóttir,
Birgir Þór Birgisson, Karólína Stefánsdóttir,
Jón Einar Jóhannsson, Guðleif Þ. Stefánsdóttir,
Hallfríður Jóhannsdóttir,
Guðmundur Árnason, Guðbjörg Árnadóttir
og fjölskyldur.