Morgunblaðið - 05.08.2000, Síða 1

Morgunblaðið - 05.08.2000, Síða 1
176. TBL. 88. ÁRG. LAUGARDAGUR 5. ÁGÚST 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Drottn- ingarmóð- irin hyllt UM 40.000 manns vottuðu bresku drottningarmóðurinni Elísabetu virðingu sína á 100 ára afmæli hennar í gær og sést hún hér ásamt Karli prins á leið sinni til Bucking- hamhallar. „Drottningarmóðirin gerði mikið fyrir okkur á tímum síðari heimsstyrjaldarinnar," sagði Valerie Hall sem mætt var auk Ijölda annarra til að óska henni til hamingju. En þess má geta að einn af fylgdarhestum vajgns drottning- armóður ber heitið Island. Elisabet er móðir núverandi drottningar og ekkja Georgs sjötta, konungs Breta er lést 1953. Móðirin nýtur mikilla vinsælda meðal al- mennings, hún þykir gamansöm og hefur viðurkennt að sér þyki gott að fá sér öðru hveiju gin. Hún tjáir sig sjaldan opinberlega þótt hún sýni jafnan áhuga á að ræða við al- menning. Vinsældir hennar eru þó ekki hvað síst raktar til tengsla sem hún og eiginmaður hennar mynd- uðu við almenning í stríðinu. Skiptar skoðanir eru þó um rétt- mæti konungdæmisins og sagði Mo Mowlam, fyrrverandi Norður- Irlandsmálaráðherra og liðsmaður Verkamannaflokksins, í viðtali við timaritið New Statesman fulla þörf á að fjölmiðlar og almenningur íjölluðu um málið. Atökin á Mólúkka-eyjum SÞ sendi frið- argæzlulið MANNRÉTTINDANEFND Indó- nesíu, sem nýtur mikillar virðingar bæði þar í landi og utan þess, lagðist í gær á sveif með öðrum aðilum, sem hafa með síauknum þunga óskað eft- ir því að friðargæzlusveitir á vegum Sameinuðu þjóðanna verði sendar til að skakka leikinn á Mólúkka-eyjum, að sögn BBC. Þar hafa róttækir múslimar á undanfömum mánuðum rekið „heilagt stríð“ gegn kristnum íbúum eyjanna. Indónesíska lögreglan bjargaði í gær að minnsta kosti þúsund kristn- um flóttamönnum, sem höfðu farið í felur í frumskóginum í fjallahlíðum Mólúkka-eyja er múslimskir víga- menn brenndu bæ þeirra til grunna. Um 4.000 íbúar bæjarins Waai, um 35 km norður af Ambon, héraðshöf- uðborg eyjanna, eru enn taldir vera í felum, en vígamennirnir eyddu því sem eftir var af bænum sl. sunnudag. Um 4.000 manns samtals eru nú talin hafa fallið í valinn í átökum trúarhópanna á Mólúkka-eyjum, öðru nafni Kryddeyjum, frá því rót- tækir múslimar hófu herför gegn kristnum fyrir um 19 mánuðum. Um hálf miHjón manna hefur misst heim- ili sín, að sögn AFP-fréttastofunnar. Ákall mannréttindanefndar Indó- nesíu eftir hjálp SÞ er fyrsta dæmið um að indónesísk ríkisstofnun kalli beinlínis á erlenda íhlutun á Mó- lúkka-eyjum. Talsmaður nefndar- innar, sem heyrir beint undir forseta Indónesíu, Abdurrahman Wahid, sagði að friðargæzlulið SÞ ætti að vera skipað venjulegum lögreglu- mönnum, helzt frá grannlöndunum í Suðaustur-Asíu. Dregur talsmaður mannréttinda- nefndarinnar enga dul á það, að nefndin telji slíka íhlutun nauðsyn- lega vegna þess að Indónesíustjórn hafi mistekizt að binda enda á voða- verkin. Spm’ningin um hvort kalla eigi eft- ir erlendri aðstoð til að stilla til friðar er pólitískt mjög viðkvæm í Indónes- íu, þar sem skammt er liðið síðan In- dónesar urðu að sætta sig við að tapa yfirráðum yfir Austur-Tímor. Lék erlent friðargæzlulið sem sent var til A-Tímor stórt hlutverk í því ferli. ---------------------- Hvalveiðar Japana Hótað hörð- Fjöldi ólöglegra innflytjenda á Spáni vex hratt Stjórn Aznars herð- ir innflytjendalög1 Madrid, Búdapest, Aþenu. AP, AFP, Reuters. AP Spænskur þjóðvarðliði með hóp af ólöglegum innfiytjendum á strönd- inni í grennd við bæinn Tarifa á Suður-Spáni. Concorde-slysið Aðskota- hlutur á brautinni SÉ RFRÆÐIN GAR sem rannsaka hrap Concorde-þot- unnar í Frakklandi fyrir skömmu segja að fundist hafi um 40 sm langur hlutur úr málmi á flugbrautinni sem ekki sé úr flugvélinni, að sögn fréttavefjar BBC. Rannsóknarstofnun slysa í Frakklandi, BEA, segir enn- fremur að fundist hafi skurður á leifum af hjólbarða úr þot- unni. Hefur þetta ýtt undir vangaveltur um að málmhlut- urinn, sem fannst á flugbraut- inni, hafi valdið því að barðinn sprakk. BEA hefur nú slegið því föstu að eldurinn sem kviknaði í þotunni hafi ekki orðið laus í hreyfli. ■ Breytingar ekkí/28 SPÆNSKA stjórnin hefur ákveðið að hunsa mótmæli mannréttinda- hópa og herða ákvæði innflytjenda- laga sem sett voru í janúar. Jose Maria Aznar forsætisráðherra segir að gildandi lög veiti útlendingum svo víðtæk borgaraleg réttindi að Spánn sé að verða fyrirheitna landið í aug- um innflytjenda, einkum blásnauðra Afríkumanna. Það sem af er árinu hafa tæplega 7.000 manns reynt að komast ólöglega til Suður-Spánar en allt árið í íýrra voru þeir aðeins um 5.500. Samkvæmt núgildandi lögum um réttindi útlendinga með aðsetur á Spáni njóta þeir sömu réttinda og spænskir borgarar. Þeir eiga kröfu á menntun, heilsugæslu og annarri þjónustu í sama mæli og Spánverjar. Ennfremur hafa útlendingar sem hafa laumast inn í landið en ekki fengið landvistai'leyfi ýmis mann- réttindi sem verða nú afnumin. Má nefna fundafrelsi, rétt til að efna til opinberra mótmæla og ganga í stétt- arfélög. Smyglarar athafnasamir Stjórnvöld segja að tækifærið sem gömlu lögin veiti hafi orðið til að hvetja fátæka Afríkumenn til að komast yfir Gíbraltarsundið, hvað sem það kosti. Afbrotamenn græði auk þess mikið fé á að smygla inn- flytjendum til landsins. Lögreglumenn í Ungverjalandi handtóku á fimmtudag og fostudag alls um 100 ólöglega innflytjendur á þrem stöðum í landinu. Var fólkið frá Afganistan, Kína, Indlandi, Nepal og Sómalíu og ferðaðist í stórum vöru- flutningabílum og sendibílum. Gríska lögreglan handtók í vikunni 64 innflytjendur frá Pakistan, Irak og fleiri Asíulöndum er reyndu að komast á land á eynni Andros. Að sögn þýska tímaritsins Der Spiegel sjá albanskir smyglarar um ólöglegan flutning á um 100.000 manns árlega frá Albaníu og Svart- fjallalandi til Suður-Ítalíu. Margir reyna síðan að komast norður eftir landinu og yfir Alpafjöllin til Þýska- lands. Miklir skógareldar Los Angeles, Barcelóna, Aþenu. AP, AFP. SLÖKKVILIÐ í tíu ríkjum Banda- ríkjanna hafa undanfarna daga bar- ist við mikla skógarelda á vestur- ströndinni og er talið að þetta séu verstu eldar á svæðinu í meira en áratug. Meira en 1,5 milljónir hektara skóglendis hafa eyðilagst í hamför- unum í þeim ríkjum sem verst hafa orðið úti: Kalífomíu, Texas, Mont- ana, Utah, Wyoming og Idaho. Víða hafa íbúar þurft að flýja heimili sín og hafa sjónarvottar sagt frá því að logarnir nái tugi metra í loft upp. Greint var frá því í gær að skógar- eldar geisuðu nærri Barcelona á Spáni. Hafa þeir orðið einum manni að bana og eyðilagt 450 hektara lands. Þá logar víða í skógi á Grikk- landi. um við- brögðum Washington. Reuters. STJÓRNVÖLD í Bandaríkjunum hafa tjáð Japönum að þau muni bregðast hart við ef hinir síðarnefndu haldi til streitu að veiddar verði á Norður-Kyrrahafi tvær hvalateg- undir sem eru friðaðar samkvæmt bandarískum lögum. Japanir hættu hvalveiðum í at- vinnuskyni 1986 en stunda enn hrefnuveiðar í vísindaskyni. Afurð- imar eru seldar á innanlandsmarkaði en umhverfissamtökin World Wild- life Fund og stjórnir ríkja sem era andvíg hvalveiðum hafa gagnrýnt hrefnuveiðarnar og talið þær vera aðferð til að fara á svig við alþjóðlegt bann við veiðum í atvinnuskyni. „Við höfum sent Japönum skila- boð. Við munum grípa til mjög harkalegra aðgerða ef við komumst að því að þeir séu í raun og vera að veiða búrhval og skorareyði,“ sagði Norman Mineta, ráðherra viðskipta- mála, í Washington á fimmtudag. Ráðherrann sagði að nú þegar væri vandlega fylgst með japanska hval- veiðiflotanum. Að sögn Bandaríkja- manna hafa engar þjóðir veitt tvær áðurnefndar hvalategundir síðan 1987. Bandarískir embættismenn hafa sagt að stjórnvöld í Washington myndu ef til vill beita viðskiptalegum refsingum gegn japönskum sjávar- afurðum og fleiri vöram ef friðaðir hvalir yrðu veiddir. MORGUNBLAÐIÐ 5. ÁGÚST 2000
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.