Morgunblaðið - 05.08.2000, Síða 31

Morgunblaðið - 05.08.2000, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. ÁGÚST 2000 31 Síðasta myndin af Pourquoi-pas?, tekin af varðskipi. Kl. 15.30 á leið út fyrir Garðskaga fellur barómetrið lóð- rétt. Ofsaveður skellur á og þeir snúa við. Svarti reykurinn kemur af vondum kolum sem skipið hafði tekið á ísafirði 15. ágúst. stefnuna). Um tvöleytið neyðumst við til að fara aftan við seinni togarann sem hefði sjálfur átt að víkja. Fellum stórmersseglið til að ná skipinu betur yfir og gerum viðvart um aðgerðina með flauti. Pourquoi pas? lætur illa að stjóm, stýrinu haldið í fastri stöðu í 1-2 mínútur og hljóðmerki gefið. Við sleppum fram hjá skipinu og höldum áfram sömu stefnu sem fyrr. Drögum aftur upp mersseglið. Ekki dregur úr rokinu. Skipið veltur og heggur. Milli kl. 2.30 og 3 sjáum við öðru hverju Ijós sem enginn getur áttað sig á. Gerum samt ráð fyrir að það sé Akra- nes. LE CONNIAT gefur skipun um að lóða (dýptin í eftirfarandi röð: 30.35.45) Samtímis reynum við að breyta stefnu og stýra nær vindi. Þetta reynist ógerlegt, skipið kemst ekki fyrir vind. Við breytum stefnu ogkúvendum. Fram til klukkan 4 er ekkert lát á rokinu en nálin á barometrinu fer að stíga. Mersseglið er í tætlum og gaff- allinn í rána í sundrn1. Klukkan fjögur leysir Floury fyrsti stýrimaður mig af og ég fer niður til að skipta um fot og hvfla mig. Meðan ég var í burtu til kl. 4.30 brotnaði toppurinn á aftur- siglunni og dró með sér loftnetið. Allt samband við umheiminn er því rofið þar sem sjólagið er slíkt að ekki er hægt að gera við. Klukkan á slaginu fimm, við dagrenningu, fer ég á fætur og held upp í brú. LE CONNIAT skipherra biður mig þá um að fara undir þiljur til að sækja kortið af norðvesturströndinni við Island. Sem ég er að leita að kortablaði 74 heyri ég hróp ofan úr stjómpalli. Ég fer út og sé að við erum innan um brimlöðr- andi skerjaklasa sem þetta mikla dimmviðri hafði hulið sjónum. Skip- stjórinn gefur skipun um að bæta í ferð. Ég hljóp að kappanum niður í vélarrúmið. PIRIOU yfirvélstjóri svarar mér að vélin snúist fyrir fullu afli. Skipstjórinn reynir að stýra til að komast út úr þessu löðri. Klukkan 5.15 tekur POURQUOI-PAS? tvisv- ar sinnum niðri. Strókamir gjósa upp af gufukatlinum og vélin er orðin ónothæf. Geysistór alda reið yfir brúna og kastaði til stóra björgunar- bátnum og laskaði hann. Litli bátur- inn með mótor er settur út, skjól- borðslistinn á stjómborða brotinn. Bátsmanninn LE GUEN tekur út og VAUCELLES háseti slasast illa í andliti. Á nokkmm mínútum hefur skipið farið yfir þröskuldinn og er aft- ur á floti en í gagnstæða stefnu. Raf- virkinn BILLY fer í könnunarleið- angur niður í lest og gerir skipherra grein fyrir að þar sé allt tómt. Sama útkoma úr tveimur öðmm könnunar- leiðöngmm. Skipherra lætur ræsa alla út og fara í björgunarvesti. Hann áttar sig á að engin leið er til að reyna að bjarga LE GUEN. Hann gefur skipun um að hífa upp stórsegl- ið og fokkumar. Aðeins er hægt að koma upp stagfokkunni og jagar- anum. Úm kl. 5.35 gefur skipherra skipun um að varpa akkerum, fyrst á bakborða og svo á stjómborða. Sú skipun er ekki framkvæmanleg, keðj- urnar dragast hratt. Skipið hægir svolítið en kl. 5.45 steytir það og brotnar á klettaskeri um 1,5 mflu fjarlægð frá landi sem við grillum í öðra hverju. Skipherrann lætur sjó- setja doríumar og bátana sem eftir em. Frá brúnni heyrist upphrópun „Vesalings drengimir mínir!“. PAR- AT læknir hefur farið til að leita að björgunarbelti LE CONNIATS skipstjóra en ekki fundið. Hans síð- asta svar er: „Það gerir ekkert tiL“ Skipið sígur hratt að aftan. Við reyn- um að dæla en það er ekki til neins. Vatnið stígur of hratt. Um kl. 6 hefur sjórinn náð upp á miðja brú og ýtir við stóra bátnum, ég fer í sjóinn. Þá vom enn eftir í brúnni skipherramir tveir, fyrsti stýrimaður og PARAT læknir. Ég hangi á doríu hálffullri af sjó en í henni era þegar JAOUEN háseti og bátsmaðurinn POCHIC. Eftir 30 metra sekkur báturinn undir okkur. Ég gríp um viðarbút úr báti og fleyti mér á honum ásamt JAOU- EN háseta. Þegar mig ber upp á öldukamb sé ég land og hús. Ég reyni að hvetja JAOUEN háseta en hann getur ekki fylgt mér. Brátt næ ég í PERON há- seta sem er með bjarghring. Við syndum saman að landganginum sem við komum auga á fram undan. Eftir að hafa náð í stigann syndum við í átt- ina til lands sem okkur finnst vera nær og nær. Eftir 5 mínútur er PER- ON orðinn örmagna, gefur tvisvar eða þrisvar sinnum frá sér “Hou hou“, lyftir höndum til himins og hverfur snögglega í hafið fyrir aug- unum á mér. Um klukkan níu er mér bjargað af ungum íslenskum bónda. Ég kom til meðvitundar um kl. 12 eft- ir að hafa fengið aðdáunarverða að- hlynningu hjá allri fjölskyldunni. Ég hringdi strax í ræðismann Frakka í Reykjavík til að tilkynna um sjóslysið og láta vita af mér. Strax og ég gat komist út fór ég niður á ströndina þaðan sem enn mátti sjá á stórmastrið af POURQUOI-PAS? Litla stund hjálpaði ég við leitina að hinum dmkknuðu og að hlynna að líkunum en brátt neyddist ég til að fara og leggja mig. Daginn eftir, 17. september, kom læknir úr Borgar- nesi til að líta á mig. Skömmu seinna kom ræðismaður Frakka á staðinn og þar sem ég hafði nú náð mér bar ég kennsl á líkin sem reyndust vera 22 talsins þama. Ég var fluttur til Reykjavíkur á hesti, í bfl og síðan á danska varðskip- inu Hvítabiminum og kom þangað 18. september. Ég bý í ræðismanns- bústaðnum þar sem ég hlýt bestu umönnun og er sýnd margvísleg sam- úð. Þannig lauk Eugene Gonidec skýrslu sinni fimm dögum eftir sjó- slysið á Mýmm og á þriðja degi eftir að hann kemur í bæinn. Gólettur franska flotans, Etoile og Belle Poule, sem fluttu þennan merka landgang utan, vora hér í heimsókn í tilefni af siglingakeppni frá Paimpol og menningarborginni Reykjavík. Þær fylgdu íslendingi út á Élóann síðdegis 17. júní en vom beðnar um að setja ekki upp segl fyrr en litla víkingaskipið sæist ekki leng- ur úr landi en þá lensuðu þær með fullum seglum og þessum glæsilega seglabúnaði til baka og af mikilli list úti á sundunum. Ert þú með smá appelsínuhúð eða kannski bara mikla? Er húð þín sIöpp eftir mearun eða meðaönau? Ef eitthvað af þessu á við þig þá er SILHOUETTE ALLTAF LAUSNIN! Súrefnisvörur Karin Herzog Switzerland ...ferskir vindar t umhirðu húðar 2 fyrir 1 tn London í haust Flug alla fimmtudaga og mánudaga í október og nóvember í haust. frá kr. Nú bjóðum við ótrúlegt tilboð á fyrstu sætun- um til London í vetur. Þú bókar 2 sæti, en greiðir aðeins fyrir 1 og kemst í haustferð til London á lægra verði en nokkru sinni fyrr. London er í dag ein eftir- sóttasta borg heimsins, enda býður hún það besta í listum, menningu, nætur- lífí og verslun. Heims- ferðir bjóða nú sjötta vet- urinn í röð beint leiguflug til London, en við höfum stórlækkað verðið fyrir íslenska ferðalanga til þessarar mestu heimsborgar Evrópu. Aldrei fyrr höf- um við boðið jafh góða gististaði þeir sem bóka strax til þessarar eftir- sóttustu borgar heimsins, tryggja sér £!£*< betra verð en nokkru sinni fyrr. Fáðu bæklinginn sendann Aðeins 200 sæti á þessu ótrúlega tilboði 2 fyrir 1 Þú bókar 2 saeti en greiðir aðeins fýrir 1. Gildir aðeins fyrir tak- markað sætaframboð í eflirfarandi brottfarir, m.v. útflug á mánudegi, heimflug á fimmtudegi: 08. okt 30 sæti 16. okt 30 sæti 23. okt 30 sæti 30. okt 30 sæti 06.nóv 30 sæti Topp gististaðir Pembridge Palace í Bayswaier ••••Hilton London Metropole. Rétt hjá Oxford stræti Verðkr. 11*900 Flugsæti kr. 23.800 / 2 - 11.900 p.mann. Skattar kr. 3.790 p. mann, ekki innifaldir HEIMSFERÐIR Verðkr. 29.300 3 nætur, flug og gisting á Bayswater Inn. Skattar kr. 3.790 p. mann, ckki innifaldir. Austurstræti 17, 2. hæð sími 595 1000 www.heimsferdir.is I
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.