Morgunblaðið - 05.08.2000, Side 75
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 5. ÁGÚST 2000 75
BREF TIL BLAÐSINS
KIRKJUSTARF
Frá Karli V. Matthíassyni:
UNGAN þekkti ég mann sem fór á
fyrsta fylliríið sitt um verslunar-
mannahelgina. Hann drakk
brennivín sem vinur hans, tveimur
árum eldri hafði reddað. Þessi
ungi maður, þessi persóna, var 15
ár drengur. Hann var á útihátíð á
Húsafelli og hafði lokið landsprófi,
var á leiðinni í menntaskóla fullur
tilhlökkunar og eftirvæntingar.
Þessi ungi maður man ekki margt
annað frá úthátíðinn, en það
augnablik þegar hann datt niður í
tjaldinu þar sem hann var að
drekka vínið forboðna og sofnaði
löngum svefni. Hann missti af
Gunnari Þórðar, Rúnari Júl og
fleiri tónlistarmönnum sem spiluðu
fyrir dansi um kvöldið. Já, það
voru margir sem hófu drykkjuferil
sinn á þessari hátíð og enn er það
svo að margir hefja drykkjuferil
sinn á útihátíðum.
Þegar menn eru að reikna eitt-
hvað út sem hefur tapast tala þeir
stundum um glataðar vinnustund-
ir. Hvað glatast margar vinnu-
stundir hjá ungu fólki undir tví-
tugu vegna drykkju þess? Og við
getum líka velt því fyrir okkur
hvað margar vinnustundir glatast
almennt í landinu vegna áfengis-
neyslu. Eru til tölur um það
hversu margt fólk flosnar upp úr
námi vegna þess að Bakkus kon-
ungur er að taka völdin í lífi þess?
Ég hef hitt marga framhaldsskóla-
nema sem hafa aðspurðir í öllum
tilvikum getað sagt mér frá vinum
sem hafa hætt í skólanum eða átt í
mesta basli með nám sitt vegna
áfengis- eða fíkniefnaneyslu. Þetta
á einnig við um fólk sem hefur ver-
ið komið lengra í námi sínu. Það
hefur ekki getað lokið því og jafn-
vel þvælst á milli deilda og skora.
Nokkur orð
til þín
Margir hefja drykkjuferil sinn á útihátíðum, segir Karl V. Matthi'asson.
Spyrjum nú annarrar spurning-
ar: Hvað glatast margar gleði- og
ánægjustundir við áfengisþambið?
Höfum við ekki oft séð hvernig
fólk umbreytist frá því að vera
gott og yndislegt í það að verða
kolbrjálað og vitlaust, sýnandi of-
beldi og óheiðarleika við áfengis
eða vímuefnaneysluna? Það eru
mörg dæmi þess að börn líða fyrir
drykkju foreldra sinna en nú beina
menn einnig sjónum að því að for-
eldrarnir líði fyrir drykkju og
vímuefnaneyslu barnanna. Er
þetta allt ekki orðið nokkuð öfug-
snúið? Menn verða að gera sér
grein fyrir því að lífsleikninám
grunnskólans og framhaldsskólans
verður að beinast á mjög sterkan
og kröftugan hátt gegn áfengis- og
vímuefnaneyslu. Það er svo oft
þannig að menn tengja það ekki
hvernig dýrðarljómi bullulífs og
bjórþambs getur umbreyst í hið
ömurlegasta líf fíkniefnaheimsins.
Það er margsannað að hvert ár
sem líður í lífí unglings án áfengis-
og fíkniefnaneyslu er gífurlega
þýðingarmikið og jákvætt. í stað
þess að vera í fjötrum og óró
áfengis- eða fíkniefnaeftirvænting-
ar lifir unglingurinn heibrigðu og
góðu lífi, ef allt er eins og það á að
vera.
Nú er mesta útihátíðarhelgin að
ganga í garð og fjöldi manna hefur
birgt sig upp fyrir þessa hátíð.
Margir hafa lagt mikið á sig til að
koma sinni tegund á framfæri og
gera það enn. Þeir bjóða fram
vímuefni í ýmsum umbúðum öl,
vín, pillur og hvaðeina. Ég á þá
heitu von að sem flest 15 ára börn,
sem enn eru ekki farin að drekka
og dópa, komist hjá því um þessa
verslunarmannahelgi. Ég hvet alla
þá sem eiga yngri vini að ota ekki
að þeim víni. Eg hvet þá til að
segja: „Við skulum vera heil um
þessa helgi. Við skulum vera við
sjálf því öl er annar maður.“
Guð gefi okkur öllum góða og
heila verslunarmannahelgi.
KARL V. MATTHÍASSON,
prestur.
Ekki vera
svona vond
við krakkana
Frá Sverri Páli Erlendssyni:
FRAMUNDAN er verslunar-
mannahelgin, eina ferðina enn. Og
eina ferðina enn keppast hags-
munaaðilar hér og þar um að fá
sem flesta gesti til að eyða pening-
unum sínum og færa björg í bú, en
það er alltaf sama happdrættið,
enginn veit fyrir hvert fólkið
streymir.
En enn eina ferðina er líka haf-
inn söngur sem er afskaplega
hvimleiður og hjáróma og falskur.
Satt að segja vonaðist maður til að
þetta lag yrði ekki leikið í þetta
sinnið, en því miður, það er orðin
staðreynd. Blöðin eru blásin út af
viðvörunum og hörmungarsögum
sem gefa fátt í skyn annað en að ef
unglingar skemmti sér um verslun-
armannahelgina verði þeir hver og
einn að eitulyfjaneytendum, þeim
verði nauðgað og þeir verði sjálfum
sér og þjóðinni til skammar.
Fimmtudaginn 3. ágúst hrópa blöð-
in og útvörpin: Nei! Enga unglinga
hingað! Við viljum ekki sjá neina
unglinga á þessari hátíð! Hingað
verður engum unglingum leyft að
koma! Ef hingað koma einhverjir
unglingar þá mun lögreglan senda
þá heim til sín! Og jörð skelfur og
uppi er fótur og fit hér og þar
vegna þess að einhverja grunar að
ef til vill komi einhverjir unglingar
þangað af því að þeir mega ekki
vera annars staðar. Hvað er að
gerast? Hvers vegna eru vandamál
undanfarinna útihátíðahelga allt í
einu unglingunum sjálfum einum
að kenna? Eiga unglingar á íslandi
ekki foreldra (sem yfirleitt eru full-
orðnir, a.m.k. í árum talið)? Eru
það börn og unglingar sem kaupa
áfengi handa jafnöldrum sínum?
Er það ekki fullorðið fólk sem
smyglar eiturlyfjum og selur þau
hálfþroskuðum krökkum til að geta
hugsanlega hagnast á því að þeir
verði ógæfufólk? Eru það ungling-
ar sem ganga um nauðgandi og
meiðandi á hátíðunum? Éru allir
búnir að gleyma því að meirihluti
fyllibyttna og slagsmálahunda á
útihátíðum er kominn talsvert upp
fyrir unglingsárin?
Nei. Hvernig stendur á því að
hagsmunaaðilar hér eða þar hafa
gefist upp á því verki sem hafið
var, til dæmis á Akureyri, að bjóða
unglingum upp á vandaða
skemmtidagskrá og veita þeim
vörn og umhyggju í stað þess að
hrekja þá í burtu og segja þeim að
éta það sem úti frýs? Datt ein-
hverjum í hug að með einu penna-
striki væri hægt að láta íslenska
unglinga hætta að prófa að smakka
bjór? Datt einhverjum í hug að
með einu pennastriki væri hægt að
breyta hefð eins og að skemmta
sér öls við pel um verslunarmanna-
helgi? Og ef það, hvers vegna dattt
mönnum þá í hug að hægt væri að
skrúfa fyrir neyslu unglinga en
ekki þeirra sem komnir eru á þann
aldur að geta farið á fyllirí löglega?
Og enn: Dettur einhverjum í hug
að þeir séu að leysa eitthvert
Hagsmunaaðilar ættu að bjóða unglingum upp á vandaða skemmtidag-
skrá og veita þeim vörn og umhyggju í stað þess að hrekja þá í burtu og
segja þeim að éta það sem úti frýs, segir Sverrir Páll sem er búinn að fá
nóg af neikvæðri umræðu um unglinga og verslunarmannahelgi.
vandamál með því að banna að
unglingar séu til um verslunar-
mannahelgina? Halda menn
kannski að það sé hægt að útrýma
unglingum - eða á að loka þá inni á
meðan „almennilegt fólk“ skemmt-
ir sér? Halda menn virkilega að ef
unglingar fá ekki að vera í Vest-
mannaeyjum, á Akureyri, Siglufirði
eða Neskaupstað, þá bara drekki
þeir sódavatn og mauli hafrakex?
Og hvar? Kannski bara heima í
garði í kaupstaðnum þar sem allir
eru famir í burtu? Einir, af því
þeir mega hvergi vera. Ég vona að
enginn sé svo vitlaus að halda það.
Þess vegna segi ég: Látum ekki
svona! Við eigum ekki að útiloka
rauðhært fólk. Eða blinda. Eða þá
sem nota gleraugu. Og ekki ungl-
inga. Með því að hrekja unglingana
í burtu erum við að stefna þeim í
bráðan voða og óvissu.
Ekki vera svona vond við krakk-
ana. Við eigum að vinna með þeim,
hjálpa þeim, fá þá til að vinna með
okkur. Við höfum ekki efni á að
rækta í þeim andstæðinga okkar.
Unglingar eru hvorki asnar, glæpa-
lýður né illmenni. Þeir eru fólk. Og
kannski er nauðsynlegt að skrifa
það með stómm stöfum: FÓLK.
SVERRIR PÁLL
ERLENDSSON,
menntaskólakennari á Akureyri.
Langholtskirkja.
Safnaðarstarf
Sumarferð
eldri borg-
ara Lang-
holtssóknar
HIN ái-lega sumarferð eldri
borgara í boði Kvenfélags
Langholtssóknar og leigubif-
reiðastöðvarinnar Bæjarleiða
verður farin miðvikudaginn 9.
ágúst. Eldri borgarar em beðn-
ir að mæta við safnaðarheimili
Langholtskirkju í síðasta lagi
kl. 12.45. Farið verður frá
kirkjunni kl. 13. Komist eldri
borgarar ekki til kirkjunnar af
einhverjum orsökum verða þeir
sem vilja sóttir heim. Þeir em
beðnir að hafa samband við
Svölu Sigríði Thomsen djákna í
síma 520 1314 eða 862 9162.
Samstarf kvenfélagsins og
Bæjarleiða hófst þegar séra
Árelíus Níelsson vígði leigu-
bifreiðastöðina árið 1955. Sam-
starfið er orðið langt og hefur
verið farsælt. Að þessu sinni er
ferðinni heitið að Hvanneyri í
Borgarfirði. Veitingar em í
boði Kvenfélags Langholts-
sóknar. Boðið er upp á leiðsögn
um staðinn og kostar hún 110
krónur á mann. Eldri borgarar
í Langholtssöfnuði em hvattir
til að koma og taka endilega
með sér gesti.
Frfkirkjan Vegurinn: Sam-
koman fellur niður vegna móts-
ins í Kirkjulækjarkoti.
Hjálpræðisherinn. Hjálp-
ræðissamkoma sunnudag kl.
20. Kafteinn Miriam Óskar-
sdóttir stjómar og talar. Verið
velkomin.
Ffladelfía. Vegna Lands-
móts hvítasunnumanna í
Kirkjulækjarkoti, Fljótshlíð
3.-7. ágúst fellur niður sam-
koma á sunnudag. Það er öllum
velkomið að koma austur og
taka þátt í mótinu með okkur.
Mán.: Marita-samkoman
fellur niður.
Fornsala Fornleifs — aðeins ó vefnum
Netfang: antique@simnet.is Sími 551 9130, 692 3499
Vef f ang:www.simnet.is/ antique
Grjóthálsi 1
Sími 575 1225/26