Morgunblaðið - 05.08.2000, Síða 84

Morgunblaðið - 05.08.2000, Síða 84
84 LAUGARDAGUR 5. ÁGÚST 2000 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Ronan Keating úr Boyzone gefur út sóióplötu Söngur frá hjartanu Söngvarinn Ronan Keating hefur dvalið án félaga sinna úr strákasveitinni Boyzone í hljóðveri undanfarið. Fyrsta sólóplata hans, sem ber heitið Ronan, kemur í verslanir hér á landi innan skamms. Ronan Keating saknaði félaga sinna í Boyzone þegar hann vann að nýju sólóplötunni. RONAN Keating er eflaust þekktasta andlit drengjanna í Boyzone. Hann giftist æskuástinni sinni, Yvonne, fyrir tveimur árum og nýjustu fregnir herma að þau eigi von á öðru barni sínu innan skamms. Þess er vænst að plata hans rati beinustu leið í toppsæti breska breiðskífulistans enda á Boyzone gríðarlega miklu fylgi að fagna. Einn á ferð x „Það komu mörg nöfn til greina á plötuna," segir Ronan. „En mér fannst ég ekki hafa efni á að taka neina sjensa. Fólk verður að gera sér grein fyrir því að nú er ég einn á ferð og besta aðferðin til þess er að kalla plötuna Ronan, þá fer það ekki framhjá neinum.“ Þegar þú hlustar á plötuna nú þegarhún erfullgerð, afhverju ertu mest stoltur? „Ég held ég verði að segja að jþetta sé það besta sem komið hefur í'rá mér sönglega séð. Ég get hlustað á lögin og hugsað að ég hefði ekki getað gert þau betur, sungið þau betur. Ég hefði ekki getað gert þessa hluti fyrir ári, ég er mjög stoltur af þessu.“ Þegar er fyrsta smáskífulagið af plötunni, Life Is A Rollercoaster, kom út fyrir um mánuði fór það á topp breska listans. „Þetta er popp- lag og ég ákvað að gefa það fyrst laganna út á smáskífu því við í Boyzone höfum aðallega verið þekktir fyrir ballöður. Með þessu var ég að reyna að aðskilja mig frá því sem ég hef gert með Boyzone. Ég hef eitt sex árum í að reyna að syngja eins og 35 ára gamall maður, . núna er kominn tími til að fólk fái að heyra í mér, 23 ára. Lagið fjallar líka um líf mitt, hvernig það er að vera stanslaust í rússibana." Saknar Boyzone Hvemig hefur það verið fyrir þig að skilja við Boyzone og reyna fyrir þérí tónlistinni ein þíns liðs? „Sem betur fer héldum við í Boyzone tónleika í desember og jan- úar svo við vorum mikið saman um jólin. Síðan fór ég til Los Angeles til að klára plötuna og núna er ég mjög upptekinn við að kynna hana. Það hefur verið mjög skrítið að hafa strákana ekki með í þessu. Ég sakna þeirra, ég sakna allra góðu stund- >anna sem við eigum saman á ferða- lögum. Við erum ákveðnir að halda áfram í hljómsveitinni en í augna- blikinu erum við að gera okkar eigin hluti, hver í sínulagi. Út þetta ár verðum við allir að vinna að pers- ónulegum verkefnum. En ég kann vel að meta frelsið og að vera einn við stjórnvölinn." Gætir þú kannski vanist tilhugs- uninni að vera einn? „Það var mjög róandi að eyða tveimur mánuðum einn í Los Angel- es og gott að geta unnið þegar mað- ur vildi. Ég kom miklu í verk en gat samt eytt tíma með syni mínum og Yvonne. Þetta var mun eðlilegri vinnutími sem ég gat stjórnað sjálf- gr. En í hreinskilni sagt þá var eins og það vantaði á mig vinstri hand- legginn. Því ég hef virkilega gaman af því að koma fram með Boyzone, ferðast og hitta fólk. Það er stór hluti af mér og hefur verið undan- farin sjö ár. í þrjá mánuði gerði ég hins vegar ekki neitt af þessu og ég saknaði þess óneitanlega." Að láta fólki líða vel Keating dvaldist í Nashville í Bandaríkjunum við upptökur plöt- unnar og fékk hann marga stórlaxa til liðs við sig. „Ég samdi sum lögin í Nashville, sum voru samin fyrir mig og ég samdi önnur í samvinnu við aðra. Þeir Gary Baker, Steve Diamond og Jason Bloom sömdu með mér og þeir hafa nú samið fyrir t.d. Dolly Parton og önnur stór nöfn. Ég vildi hafa mikinn kraft í þessari plötu, láta fólk hlæja, dansa og líða vel.“ Keating einsetti sér að gera góða poppplötu og lagði allt í sölumar. „Jafnvel þótt það þýddi að ég yrði að fá aðra til að semja lögin, það var mjög mikilvægt fyrir mig að gera eins góða plötu og ég mögulega gat. Ég er viss um að fólk á eftir að verða agndofa er það heyrir plötuna, hún er fordómalaus og frá hjartanu." Hljómsveitin Boyzone kemur frá Irlandi en þaðan á einnig hljóm- sveitin Westlife rætur sínar að rekja og er Keating heilinn á bak við þá sveit. „Það hefur verið draumi líkast að vinna með Westlife, ég er mjög stoltur af strákunum í sveitinni, þeir hafa lagt einkar hart að sér. Reynsla mín í tónlistarheiminum hefur nýst þeim en ég er samt ekki þessi mark- aðsmaður sem allir halda að ég sé. Ég flæktist í þetta, valdi tónlistina, notaði mitt nafn og gaf góð ráð varð- andi útlit, var listrænn ráðgjafi." Hvað erþað besta við starf þitt? „Sem listamaður kann ég best að meta að syngja fyrir fólk og heyra það syngja fyrir mig til baka. Það er toppurinn á tilverunni. Það er frá- bært, töfrum líkast, að heyra fólk syngja lögin sem maður hefui’ sam- ið.“ Heldur þú að þið í Boyzone hafíð fjarlægst hver annan undanfarið? „Við höfum verið saman í hljóm- sveitinni í sex ár og höfum upplifað allt saman. Núna erum við að upplifa líflð og tilveruna hvor í sínu lagi. Ég held að þegar við komum saman aft- ur á næsta ári verði það öðruvísi, hlutimir verða aldrei eins aftur. En ég held að það sé af hinu góða. Þann- ig koma ferskar hugmyndir til sög- unnar. En við höfum alls ekki þrosk- ast frá hver öðrum, þvert á móti.“ Morgunblaðið/Ámi Sœberg „Andi tónleikanna skilar sér afar vel til hlustandans og það er nánast eins og K.K. og Magnús standi ljdslifandi við rúmgaflinn þinn, plokk- andi gítarana og syngjandi af hjartans ást og innlifun," segir Amar Eggert m.a. í dómnum um tónleikaplötu KK og Magnúsar Eiríkssonar. Bláma- fléttur af bestu gerð TQ]\LIST Geislailiskur LIFAÐ OG LEIKIÐ Lifað og leikið, tónleikaplata K.K. & Magnúsar sem tekin var upp í Salnum í Kópavogi 19. maí 2000. K.K. leikur á gftar og munnhörpu ásamt því að syngja og Magnús Eir- íksson leikur og á gítar og syngur. Þeim til aðstoðar eru þeir Þórir Baldursson (Hammondorgel og harmónikka) og Ásgeir Óskarsson (trommur). Lög og textar eru eftir K.K. og Magnús Eirfksson með eft- irfarandi undantekningum: Lagið „Everyday I have the blues“ er eftir Chatman, textann við „Jesús Krist- ur og ég“ á Vilhjálmur frá Skáholti og Pétur K. á textann við „Grand Hótel“ ásamt K.K. Upptökumaður var Jón Skuggi. 65,32 mín. Skifan gefur út. GÓÐUR rómur var gerður að tón- leikum K.K. og Magnúsar Eiríksson- ar í Salnum, Kópavogi, í vor. Til allr- ar hamingju voru hljómleikarnir hjjóðritaðir og enn meiri gæfa, okkur til handa, var fólgin í þeirri ákvörðun að gefa þá út í formi hljómdisks. „Lifað og leikið" er nefnilega ein allra besta tónleikaplata sem ég hef á minni lífsfæddri ævi heyrt. Hljómurinn á plötunni er svo ótrú- lega góður að hann nálgast það að vera hálfgerður senuþjófur. Upp- takan nálgast fullkomnun, allt sem á að heyrast er kristaltært og hljóm- urinn er í fullkomnu samræmi við stemmninguna, sem er ljúf og inni- leg; á stundum lágstemmd en á það þó til að verða fjörug og rífandi. Ándi tónleikana skilar sér afar vel til hlustandans og það er nánast eins og K.K. og Magnús standi Ijóslifandi við rúmgaflinn þinn, plokkandi gítarana og syngjandi af hjartans ást og inn- lifun. Stemmningin hefur greinilega verið afar góð og gefandi á þessum tímamótatónleikum. K.K. og Magnús hafa áður starfað saman að tveimur hljóðversskífum, hvar þeir hafa leitt skáldhesta sína saman og skapað lög og leik í sam- einingu. I Kópavoginum tróðu þeir hins vegar aðra slóð, léku sígildar perlur, hvor úr safni annars, og lögin af samstarfsplötunum voru látin liggja á milli hluta að mestu. Það er skemmtilegt að heyra Magnús radda með K.K. í frábærum lögum hins síð- arnefnda eins og t.d. „Vegbúi“, „Bein leið“ og „Lucky One“. Sama gildir er á hinn veginn er snúið og sameinast þeir sem einn maður í sfgildum perl- um Magnúsar eins og „Braggablús", „Ef þú ert mér hjá“ og „Blús í G“. Það er greinilegt við áhlustun að samhæfni þeirra félaga hefur verið með afbrigðum góð á tónleikunum, K.K. og Maggi eru afslappaðir og rennsli lagana er bráðgott og átaka- laust. Hinir þrautreyndu aðstoðar- menn, trymbillinn víðförli Ásgeir Óskarsson og Hammondundrið Þór- ir Baldursson kunna sitt fag svo um munar, bakka lögin upp á hárrétta vegu, eru ekki að trana sér fram fyr- ir heldur skreyta hvert lag á viðeig- andi hátt. Á plötunni eru heil fimmtán lög og heildartíminn fullar 65 mínútur. Hún er þó ekki mínútu of löng og heildar- útkoman er hinn áheyrilegasti pakki sem er ágæta budduvænn í ofanálag. Hér er fólk sannarlega að fá eitthvað fyrir sinn snúð. Hönnun umslags og allur frágangur er og til fyrirmynd- ar, hönnuðurinn pallo hefur verið að gera afar góða hluti í þeim geiranum undanfarin misseri. Frábær spilamennska, frábær lög og frábær hljómur gera þessa plötu að einum eigulegasta grip sem út hefur komið á þessu ári. Vel af sér vikið strákar! Arnar Eggert Thoroddsen MYNDBOND Mannsins veika hold Sakleysið (En plein coeur) Drama ★★ Leikstjóri: Pierre Jolivet. Handrit: Roselyne Bosch. Aðalhlutverk: Gérard Lanvin, Carole Bouquet. (101 mín.) Frakkland 1998. Góðar stundir. Bönnuð innan 12 ára. TVÆR ungar og óstýrilátar af- brotastúlkur fremja rán í skartgripa- búð vopnaðar leikfangabyssu. Önnur þeirra er handsöm- uð en hin sleppur. Sú sem undan kemst veit að um síðir muni upp um hana komast og því leitar hún til eins heitasta lögfræð- ingsins í bransan- um - ráðsetts há- stéttarmanns á besta aldri sem orðinn er heldur leið- ur á tilbreytingalitlu hjónabandi sínu. Hann fellur svipstundis fyrir þessari ungu og ráðlausu stúlku enda gullfalleg og ögrandi. Hann ákveður að verja hana og tekst að fá hana sýknaða méð því að láta ungan vin hennar bera ljúgvitni. Stúlkan stend- ur í þakkaskuld við bjargvætt sinn lögfræðinginn og ástir takast með þeim. Þegar vinur hennar ungi falast einnig eftir ástarlotum hennar myndast vofeiflegur ástarþríhym- ingur. Þótt hér sé á ferð endurgerð Brig- itte Bardot-myndarinnar En cas de malheur frá 1958 er ekki annað hægt en að líta á Sakleysið sem hið dæmi- gerða franska hádrama þar sem ástir og örlög ráða ríkjum og tilfinninga- þrunginn er nær yfirþyrmandi. Slík- ar myndir eru mörgum að skapi og ættu þeir að skoða hana þessa. En al- mennt séð ristir hún fremur grunnt og er einungis í meðallagi góð. Skarphéðinn Guðmundsson Sæt en daufleg Draumar um Joseph Lees (Dreaming of Joseph Lees) D r a m a ★% Leikstjóri: Eric Styles. Handrit: Catherine Linstrum. Aðalhlutverk: Samantha Morton, Rupert Graves og Lee Ross. (91 mín.) Bretland/Bandaríkin, 1999. Skífan. Bönnuð innan 16 ára. ERIC Styles mun hafa getið sér gott orð fyrir ýmis leikstjórnarstörf í sjónvarpi en Draumar um Joseph Lees er hans fyrsta kvikmynd. Þetta er sæt lítil ástarsaga með vandaða um- gjörð sem endur- skapar á smekkleg- an hátt það tímabil sem hún gerist á, þ.e. Bretland á sjötta áratugnum. Hún er lágstemmd og hæggeng, sem helst að mörgu leyti í hendur við þá bælingu sem ein- kennir sveitasamfélagið sem ástar- sagan á sér stað í. Sagan náði hins vegar ekki að grípa mig þar sem bæði handrit og leikstjórn eru víða veik á svellinu. Um miðbik myndarinnar verða til dæmis öfgafull umskipti á einni af þremur persónum ástarþrí- hymingsins, sem eru ótrúverðug og ólíkindaleg. Samantha Morton leikur aðalpersónuna og olli frammistaða hennar mér vonbrigðum eftir að hafa séð eftirminnilegan leik hennar í hlutverki mállausrar konu í nýjustu mynd Woodys Allens, „Sweet and Lowdown“. Éf til vill er leikur Mor- ton í Draumum um Joseph Lees lag- aður um of að hinu dauflega and- rúmslofti sem liggur yfir myndinni. Heiða Jóhannsdóttir
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.