Morgunblaðið - 25.08.2000, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 25.08.2000, Blaðsíða 10
10 FÖSTUDAGUR 25. ÁGÚST 2000 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Rótarýklúbbar auðkenna sjö forna kirkjustaði í Reykjavfkurprófastsdæmum Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Karl B. Guðmundsson, fyrrverandi forseti bæjarstjórnar á Seltjarnamesi og fólagi í Rótarýklúbbi Selljamamess, afhjúpaði minnisvarðann. Minnisvarði afhjúp- aður við N esstofu í TILEFNI þess að þúsund ár em liðin frá kristnitöku íslendinga hafa rótarýklúbbar í Reykjavík, Kópa- vogi og á Seltjaraaraesi ákveðið að koma fyrir varanlegum merkingum við foraa og aflagða kirkjustaði í Reykjavíkurprófastsdæmunum. Fyrsti minnisvarðinn var afhjúpað- ur í gær, fimmtudaginn 24. ágúst, við Nesstofu á SeKjarnamesi, en Rótarýklúbbur Seltjarnarness ann- aðist framkvæmdina. Verkefnið er unnið í samstarfi við undirbúningsnefnd kristnitöku- hátíðar Reykjavíkurprófastsdæm- anna og er ætlunin að minnisvarð- arnir standi um ókomna tíð. Á næstu vikum verða til viðbótar reistir minnis varðar á sex stöðum þar sem kirkjur stóðu fyrr á tímum, en það er í Aðalstræti, á Laugar- nesi, Gufunesi, Hólmi, í Engey og við bæjarrústir Breiðholtsbæjar. Minnisvarðarnir eru úr íslensku stuðlabergi, hver rúmlega metri á hæð og efst er komið fyrir steyptri koparplötu, þar sem greint er frá þvf að á viðkomandi stað hafi staðið kirkja á ákveðnu tfmabili íslands- sögunnar. Fyrsti minnisvarðinn var afhjúp- aður þar sem kirkjan í Nesi á Sel- Ijamaraesi stóð á sínum tíma rétt við bæjardyr Nesstofu. Karl B. Guð- mundsson, fyrrverandi forseti bæj- arstjómar á Selljamaraesi og fé- lagi í Rkl. Selljaraarness, afhjúpaði minnisvarðann. Klúbbarnir sem standa að þessu menningarsögulega verkefni eru Rótarýklúbbur Reykjavfkur, Rkl. Reykjavík Miðbær, Rkl. Kópavogs, Rkl. Reykjavík Austurbær, Rkl. Breiðholts, Rkl. Árbæjar og Rkl. Seltjamarness. Hönnuður minnis- varðarðanna er Gísli B. Björasson, útlitshönnuður og félagi í Rótarý- klúbbi Breiðholts. Islending- ur til Hali- fax í dag SLÆMT veður tafði för íslendings á leið hans til Halifax í Nova Scot- ia í fyrradag. í gær var veður betra. Óhagstæð veðurskilyrði í fyri’adag og á miðvikudagskvöld hafa þó þau áhrif að því er fram kemur í skipsdagbók skipsins í gær, að skipið mun ekki koma til hafnar á tilsettum tíma í dag. í stað þess að koma til Halifax klukkan sjö í morgun, gera skip- verjar ráð fyrir að koma til Halif- ax síðdegis í dag. Þar mun Sturla Böðvarsson samgönguráðherra taka á móti íslendingi. Áhöfn ís- lendings „er enn undir áhrifum frá hjartfólgnum kveðjum við brott- förina frá ... Port de Grave,“ segir í dagbókinni. Skipið hélt þaðan á mánudagskvöld og fylgdu um 90 skip og bátar af öllum stærðum og gerðum íslendingi úr höfn. Fyrir flotanum fór skúta með Brian Tobin, forsætisráðherra Nýfundnalands, um borð ásamt Charles Furey samgönguráðherra og John Efford sjávarútvegsráð- herra og Sturlu Böðvarssyni. Sturla segir það hafa verið mjög áhrifamikið að vera viðstaddur há- tíðina í Port de Grave. „Þarna var ótrúlegur fjöldi fólks og stemmn- ingin minnti á þjóðhátíðardag ís- lendinga. Svo virðist sem för ís- lendings og upprifjun á ferðum víkinganna veki mikla athygli hér á þessu svæði.“ Borgarlögmaður um Alfreð Þorsteins- son og málefni Línu.Nets Ekki vanhæfur samkvæmt túlk- un sveitarfélaga I MINNISBLAÐI borgarlög- manns tíl Alfreðs Þorsteinssonar borgarfulltrúa kemur fram að samkvæmt skýringum Sambands íslenskra sveitarfélaga við sveita- stjómarlög leiði seta í stjóm fyrir- tækis eða félags ekki til vanhæfis sveitarstjómarmanns sitji hann í stjórninni eingöngu í krafti hluta- fjáreignai- sveitarfélagsins. Alfreð óskaði eftir áliti borgar- lögmanns í tilefni af fyrirspum Guðlaugs Þórs Þórðarsonar borg- arfulltrúa í fræðsluráði um hæfi Alfreðs sem formanns stjómar Innkaupastofnunar tU þess að taka þátt í afgreiðslu tUlögu sem snerti málefni Línu.Nets hf. þar sem Al- freð er stjómarformaður. í minnisblaði Hjörleifs B. Kvar- an borgarlögmanns segir að í 3. grein stjómsýslulaga, sem fjallar um vanhæfisástæður, segi að um sérstakt hæfi sveitarstjómar- manna fari eftir sveitarstjómar- lögum og eigi 3. greinin því ekki við þegar ijallað sé um hæfi sveitar- stjómarmanna tU meðferðar máls. Þá segir í minnisblaðinu að um hæfi sveitarstjómarmanna sé fjall- að í 19. grein sveitai’stjómarlag- anna þar sem komi fram að sveit- arstjómarmanni beri að víkja sæti við meðferð og afgreiðslu máls þegar það varðar hann eða nána venslamenn hans svo sérstaklega að almennt megi ætla að vUjaaf- staða hans mótist að einhverju leyti þar af. Síðan segir að Samband ís- lenskra sveitarfélaga hafi gefið út sérstakar skýringar og athuga- semdir við sveitarstjómarlögin og þar sé fjaUað um setu sveitar- sfjómarmanna í stjóm fyrirtækis með þessum orðum: „Stjómarstaða eða seta í stjóm fyrirtækis eða félags getur einnig leitt til vanhæfis seitarstjómar- manns þegar sveitarstjómin fjall- ar um mál sem varða fyrirtækið eða félagið sérstaklega. Þetta á þó ekki við ef viðkomandi sveitar- stjómarmaður situr í stjórn við- komandi fyrirtækis eða félags sem fuUtrúi sveitarfélagsins, þ.e. hefur verið kjörinn tU þess af sveitar- stjominni eða situr t.d. í stjóm hlutafélags eingöngu í krafti hluta- fjáreignar sveitarfélagsins." Meint fíkniefnasmygl varðskipsmanna Óskað eftir að lögregla rann- saki málið FORSTJÓRI Landhelgisgæslunn- ar og tollstjórinn í Reykjavík lögðu í gær fram beiðni hjá lögreglu- stjóranum í Reykjavík um að fram fari lögreglurannsókn á sannleiks- gildi fréttaflutnings á Skjá einum í fyrrakvöld um meint fíkniefnamis- ferli varðskipsmanna. í fréttinni var vitnað í skýrslu frá starfsmanni tollstjóra um fram- burð starfsmanns Landhelgisgæsl- unnar á þá leið að varðskipsmenn neyttu fíkniefna og hefðu rætt leið- ir til að smygla slíkum efnum inn í landið. Hafsteinn Hafsteinsson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, sagði í sam- tali við Morgunblaðið að um leið og hann hefði frétt af málinu í gær hefði hann gengið á fund tollstjóra og fengið að lesa umrædda skýrslu sem tollstjóri hefði einnig fyrst frétt af í gær. í framhaldi af því hefðu þeir sameiginlega óskað eftir því við lögreglustjórann í Reykja- vík að fram færi lögreglurannsókn á málinu. Hafsteinn sagði bæði óskað eftir rannsókn á sannleiks- gildi staðhæfinganna og því hvern- ig skýrsla tollgæslunnar hefði komist í hendur sjónvarpsstöðvar- innar. Hann sagði að þeir tollstjóri hefðu einnig tilkynnt dómsmálar- áðherra þessar aðgerðir sínar. Kronan styrkt- ist heldur í gær KRÓNAN veiktist í fyrradag gagnvart Bandaríkjadal og varð hann dýrari en hann hefur áður orðið, eða 80,90 krónur. í lok dags hafði hann veikst aftur og loka- gildi miðvikudags var 80,35 krón- ur. í gær varð lítilsháttar veiking á gengi dals gagnvart krónu frá skráningu á miðvikudag og var lokagengi á millibankamarkaði 80,15 í gær. Opinbert viðmiðunar- gengi (sölugengi) var 80,69 krón- ur á miðvikudag en 80,65 krónur í gær. I gær birti Morgunblaðið frétt um þróun krónu gagnvart Banda- ríkjadal á miðvikudag og ræddi við Eirík Guðnason seðlabanka- stjóra um hana. Mistök urðu við vinnslu fréttarinnar, sem ollu því að seinni hluta hennar vantaði. Beðist er velvirðingar á þessu um leið og samtalið við Eirík er birt í heild. Eiríkur sagði að skýringarnar á veikingu krónunnar gagnvart Bandaríkjadal á miðvikudag væru tvær. Annars vegar sú að krónan hafi sigið í sumar, sérstaklega í júní og júlí. Hún sé þó enn í sterk- ari hluta bandsins, þ.e. sterkari en miðgengi það sem sett var við gengisfellingu árið 1993, en krón- unni er leyft að víkja 9% frá mið- gengi í báðar áttir. Hins vegar sagði Eiríkur að veikingin hefði orðið vegna þess að Bandaríkjadalur hafi hækkað gagnvart evru vegna þess að mikil trú sé á bandarísku efnahagslífi. Spurður um ástæður þess að Bandaríkjadalur hækkaði við þá ákvörðun Seðlabanka Bandaríkj- anna að hækka ekki vexti sagði Eiríkur að líklega væri skýringin sú að markaðurinn hafi þegar búist við því að vextir yrðu ekki hækkaðir. Seðlabankinn banda- ríski hafi þó sagt að meiri líkui’ væru á að vextir yrðu hækkaði næst en að þeir yrðu lækkaðir og það kynni að hafa átt þátt í styrk- ingu dalsins. Morgunblaðið/Helgi Jónsson Fréttam^nn frá Brasilíu í Olafsfirði Ólafsfirði - Fjúrir sjúnvarps- frúttamenn frá Brasilfu voru í ÓI- afsfirði um helgina og mynduðu til dæmis leik Leifturs og ÍBV á sunnudag. Þeir voru á ferð um landið og eru að gera tveggja tíma heimild- arþátt um ísland og að sjálfsögðu kemur Ólafsfjörður við sögu, þar sem hann er nú einu sinni orðinn heimsfrægur í Brasilíu, þökk sé fútboltanum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.