Morgunblaðið - 25.08.2000, Blaðsíða 16
16 FÖSTUDAGUR 25. ÁGÚST 2000
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Dagskrá Lista-
sumars a
BARNAÓPERAN Sæmi sirkus-
slanga, önnur sýning, föstudaginn
25. ágúst kl. 20, 3. sýning 26. ágúst
kl. 14 og 4. sýning kl. 17 sama dag.
Aðgangur kr. 1.000 fyrir 12 ára og
yngri og kr. 1.200 fyrir fullorðna.
Hópafsláttur (10 stk) kr. 800. Miða-
sala í samkomuhúsinu/leikhúsinu frá
og með þriðjudeginum 22. ágúst.
Hinn 25. ágúst kl. 20:30 er bók-
menntavaka í Deiglunni. Ljóðadag-
ski-á um Þorstein frá Hamri. Að-
gangur ókeypis.
Hinn 26. ágúst kl. 20:30 í Safnað-
arheimili Akureyrarkirkju. Klass-
ískir tónleikar. Bergensemble. Tone
Hagerup klarínett, Jörg Beming
selló, Signe Bakke píanó.
Aðgangurkr. 1.000
Hinn 29. ágúst kl. 20 í Deigiunni.
Fagurtónleikar. Ólöf Sigríður Vals-
dóttir syngur við undirleik Helgu
Bryndísar Magnúsdóttur. Aðgangur
kr. 1.000. Þessir tónleikar eru jafn-
framt lokatónleikar á sumrinu og
verður Listasumri slitið að tónleik-
unum loknum.
Myndlist:
Hinn 26. ágúst kl. 16 í Kompunni
opnuð myndlistarsýningar Hen-
Akureyn
riettu Van Egten. Hinn 29. ágúst kl.
16 í Ketilhúsinu. opnuð sýningar
Heimis Freys Hlöðverssonar á Aud-
io-visual list.
Ketilhúsið, efri hæð. „Tímans
rás.“ Rúrí sýnir verk unnin út frá
gömlum ljósmyndum og rennandi
vatni. Sýningin stendur til 27. ágúst.
Opið daglega frá kl. 14-18. Lokað
mánudaga. Aðgangur er ókeypis.
Ketilhúsið, neðri hæð. List- og
handverkssýningin „Val Höddu“.
Samsýning 8 list- og handverks-
kvenna. Sýningin stendur til 27.
ágúst. Opið daglega frá kl. 14-18.
Lokað mánudaga. Aðgangur er
ókeypis.
Deiglan. Myndlistarsýning Elvu
Jónsdóttur. Sýningin stendur til 27.
ágúst. Opið daglega frá kl. 14-18.
Lokað mánudaga. Aðgangur er
ókeypis.
Audio visual art gallery Listasum-
ars, Deiglan, neðri hæð. 2 Video-
verk eftir John Hopkins. „Book of
one thousand Buddhas“ og „John
Hopkins neoscenes: a selection of
video works - 1989-99.“ Sýningin
stendur til 27. ágúst. Opið daglega
frá kl. 14-18. Lokað mánudaga. Að-
gangur er ókeypis.
Olafur
þremur
ÓLAFUR Sveinsson myndlistar-
maður hefur í sumar sýnt olíu- og
akrýl-málverk í Ráðhúsinu á Dal-
vík en sýningunni lýkur um næstu
mánaðamót. Sýningin er opin á af-
greiðslutíma ráðhússins.
Ennfremur hengai uiafur verk
sín upp í kaffistofu Húsasmiðj-
unnar við Lónsbakka nýverið en
sýnir á
stöðum
þar sýnir hann átján verk, vatns-
liti, tréristur og akiýl-málverk.
Þá sýnir Ólafur eitt olíumálverk
og þrjár vax-olíumyndir á pappír í
Línukaffi, útikaffihúsi í göngugöt-
unni í Hafnarstræti á Akureyri.
Myndirnar eru þó innandyra.
Þessum sýningum lýkur einnig
í ágústlok.
Námskeið í verkefnastjóriiun
með Microsoft Project
Námskeiðið verður dagana 21. og 22. sept. nk. á Akureyri
Markmið námskeiðs:
Þátttakendur læra að þekkja og meðhöndla lykilatriði í verk-
efhastjómun og vinna með þau í Microsoft Project.
Efni ásamt almennum grunnatriðum sem farið er í:
«■ Verkefnastjómun
«■ Vinnuferlið
»• CMP-aðferðin
PERT-aðferðin
«■ Bundna leiðin
«■ Jöfnun álags á starfsmenn
«■ Kostnaður við styttingu verkþátta
«- Framvindustýring
«■ Endurskoðun áætlunar
«■ Skýrslugerð og miðlun upplýsinga
Kennsluefni:
Byggt er á bókinni „Verkefhastjómun — Stjómun tíma, kostnaðar
og gæða”. Bókin og CD-diskur með Microsoft Project hugbú-
naðinum til reynslu í 60 daga fylgja með námskeiðinu.
Kennari: Eðvald Möller rekstrarverkfræðingur
Innritun og allar nánari upplýsingar:
Tölvufræðslan — Furuvöllum 13 c 600 Akureyri
nám sem nítist Símar 462 7899 °g 896 5383 — Póstfang: helgi@nnett.is
Menningarnótt verður haldin á Akureyri um helgina
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Vonast er eftir Qölda fólks í miðbæinn á laugardaginn, en myndin er tekin á menningarnótt á síðasta ári.
Skorað á fólk að
fjölmenna í bæinn
MENNINGARNÓTT á Akureyri
verður haldin næstkomandi laugar-
dag í miðbæ Akureyrar. Það eru
Miðbæjarsamtökin á Akureyri sem
standa fyrir menningamótt og njóta
við það stuðnings ýmissa fyrirtækja
og stofnana. Sigurður Hróarsson,
talsmaður menningarnætur á Akur-
eyri, sagði að meginskemmtiatriðið á
menningamótt væri að fólk fjöl-
mennti í bæinn og skapaði skemmti-
lega stemmningu innan um menn-
ingarviðburði af ýmsum toga.
Talsmenn menningarnætur segja
að markmiðið með menningamótt sé
að efla mannlíf í miðbænum, bjóða
upp á list og menningu og einnig að
kynna alla þá þjónustu og verslun
sem boðið er upp á í niiubær.lim.
Tónlist, ádrepa,
skák og draugar
Meginhluti dagskrárinnar verður
á milli kl. 20 og 24, en ýmiss konar
menningardagskrá hefst fyrr um
daginn og einnig munu aðrir dag-
skrárliðir teygja sig inn í nóttina.
Dagskráin er hins vegar á þá leið að
Norðuróp sýnir bamaóperana
Sæma sirkusslöngu kl. 14 og 17 í
Samkomuhúsinu. Skákmót verður
síðan í Landsbankanum og hefst það
kl. 20. Á sama tíma verður hlaupa-
hjólakeppni í miðbænum, en skrán-
ing fer fram í versluninni Style fyrr
um daginn.
I Amtsbókasaftiinu flytur Aðal-
steinn Bergdal ádrepuna „Er eitt-
hvað vit í því“ og hefst hún kl. 20:30.
Um kvöldið leikur Nafnlausi hópur;
inn ljúfa tónlist í göngugötunni. í
Listasafninu á Akureyri dansar As-
ako Ichiashi við undirleik Hannesar
Guðrúnarsonar gítarleikara. Ball-
ettinn hefst kl. 21:30.
í miðbænum kl. 22 verður tísku-
sýning frá verslununum Centro og
ísabellu. Einnig verður gerð atlaga
að heimsmeti með því að mynda
lengsta hlaupahjólaorm í heimi.
Auk þess verður óvænt uppákoma
í göngugötunni frá Norðurópi. Þeir
sem ekki hræðast drauga geta hins
vegar farið á reimleikasýningu í
Minjasafninu kl. 22:30.
Fjölbreytt dagskrá
Ótímasettir dagskrárliðir eru
einnig fjölmargir. Nefna má að eld-
gleypar leika lausum hala í miðbæn-
um, boðið verður upp á djass á Bláu
könnunni og Kaffi Tröð, auk þess
sem Jazztríó Akureyrar spilar á
Græna hattinum. Auður Haralds rit-
höfundur flytur gamanmál i Bókvali
og harmonikkuleikur verður við
Gistiheimili Ákureyrar og Skrautlu.
Listasafnið verður opið til 22 og
þar er síðasta sýningarhelgi á
Dyggðunum sjö. Punturinn verður
opinn og starfsemin kynnt. I List-
fléttunni verður Jenný Valdimar-
sdóttir leirlistakona að störfum.
Einnig verða vinnustofur opnar í Gil-
inu.
Hljómsveitin PKK spilar í Lands-
símahúsinu og Nýjabíó verður með
miðnætursýningar á kvikmyndinni
Coyote Ugly. Einnig bjóða veitinga-
húsin upp á kræsingar með menn-
ingarlegu ívafi og sérstök fjölskyldu-
tilboð verða á boðstólum. Auk þess
verða skemmtistaðirnir opnir fram á
nótt líkt og venjulega.
Aðstandendur menningamætiu-
voru þess fullvissir í samtali við
Mórguiibmuið í gær að roenningar-
nótt á Akureyri yrði til frambúðar.
Sigurður Hróarsson sagði að vissu-
lega hefði fyrirvarinn verið stuttur í
ár, en menn kæmu að þessu með
krafti og hann vonaðist eftir góðri
aðsókn. „Ef við ætlum að fá hlutfalls-
legi fleiri gesti en Reykvíkingar
fengu um síðustu helgi, þá verða að
koma meira en fimm þúsund manns í
miðbæinn á laugardaginn. Ég vil hér
með skora á Akureyringa að fjöl-
menna í miðbæinn, rölta um og njóta
menningar í bland við verslun og
þjónustu,“ sagði Sigurður.
Listasumar 2000
Ljóðadagskrá um
Þorstein frá Hamri
Pétur Krístjánssori
og gargið
skemmta föstudags- og
laugardagskvöld
ÞORSTEINN frá Hamri sækir Ak-
ureyringa heim og les eigin Ijóð á
síðastu bókmenntavöku listasumars
2000 sem verður í Deiglunni, Kaup-
vangsstræti 23 í kvöld, föstudags-
kvöldið 25. ágúst en það hefst kl.
20.30. Aðrir flytjendur á þessari bók-
menntavöku em Guðbrandur Sig-
laugsson, Jón Laxdal og Sigurður
Jónsson.
Aðgangur er ókeypis og era allir
velkomnir á meðan húsrúm leyfir.
Síðustu dagar útsölu
- enn meiri verðlækkun
Opið virka daga 8:00-18:00 og
laugardaga frá kl. 10:00-16:00
- Næg bílastæði -
ELLINGSEN
Grandagarði 2 | Reykjavík | sími 580 8500 | fax 580 8501 | ellingsen@ellingsen.is
II II