Morgunblaðið - 25.08.2000, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 25.08.2000, Blaðsíða 22
22 FÖSTUDAGUR 25. ÁGÚST 2000 URVERINU ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Meira flutt af varanlegum aflaheimildum á fískveiðiárinu 31 þúsund tonn af þorski flutt á milli skipa FLUTNINGUR á aflahlutdeildum aflamarksskipa í þorski á fiskveiði- árinu sem senn rennur sitt skeið á enda jókst lítillega frá fiskveiðiár- inu 1998/99. Alls voru flutt 15,1% aflahlutdeilda í þorski á milli flski- skipa á fískveiðiárinu, borið saman við 12,7% á síðasta fískveiðiári. Miðað við úthlutað aflamark má ætla að alls hafí um 31.513 tonna kvóti verið færður á milli skipa á fiskveiðiárinu, borið saman við um 26.749 tonn á síðasta fiskveiðiári. Þess ber að geta að þetta eru veltu- tölur, sem þýðir að séu sömu afla- hlutdeildirnar fluttar á milli skipa oftar en einu sinni á fiskveiðiárinu eru þær taldar í hvert sinn sem þær eru fluttar. Flutningar á þorskafla- hlutdeild urðu mestir á fiskveiðiár- inu 1997/98, eða 31,3%, áður en ný lög um Kvótaþing og 50% árlega veiðiskyldu ári tóku gildi. Flutningur aflahlutdeilda í öðr- um tegundum en þorski hefur lítið breyst frá fiskveiðiárinu 1998/99. Þannig voru flutt um 13,9% afla- hlutdeildar í ýsu, borið saman við 12,2% á síðasta fiskveiðiári, og 12,6% aflahlutdeildar í ufsa, en var 11,5% árið áður. Hins vegar var flutningur af aflahlutdeild í karfa töluvert meiri á yfirstandandi fisk- veiðiári en árið á undan, var 10,8% nú en aðeins 4,4% fiskveiðiárið 1998/99. Þá jókst flutningur á afla- hlutdeild í steinbít úr 13,5% í 19,6% og í grálúðu úr 3,5% í 11,2%. Eins hefur flutningur á kolategundum, s.s. skarkola, langlúru og sandkola, aukist töluvert á milli fiskveiðiára. Verið að hagræða Að sögn Brynjars ívarssonar, hjá kvótamarkaði Báta og búnaðar ehf., er erfitt að henda reiður á því hvers vegna tilfærslur í karfa, grá- lúðu og steinbít hafa aukist á miili fiskveiðiára. Fyrst og fremst séu útgerðir að hagræða í kvótastöðu sinni. „Eins gæti verið að karfa- veiði hafi verið meiri en menn gerðu ráð fyrir og þeir því þurft að kaupa sér meiri heimildir. Eins hefur kolakvóti verið skertur það mikið að það tekur því varla fyrir marga að hefja veiðar á þessum tegundum sérstaklega. Þær sam- einast því á færri aðila,“ segir Brynjar. Þá voru alls 6,5% af þorskafla- hlutdeild krókabáta flutt á milli báta á fiskveiðiárinu, 1,6% í ýsu, 1,2% í ufsa og 5,1% í steinbít. Viðskipti með aflamark á Kvóta- þingi Islands hafa aukist nokkuð síðustu daga. Þannig hafa verið seld um 760 tonn af þorski í þessari viku, borið saman við tæpt 381 tonn í allri vikunni þar á undan. Við- skiptaverð á þorski á Kvótaþingi í gær var 99,97 krónur. Samtals flutningur aflahlutdeilda milli skipa á fiskveiðiárunum 1991-00 Allartölurlprósentum '91/92 '92/93 '93/94 '94/95 '95/96 '96/97 '97/98 '98/99 '99/00 Þorskur 10,6 13,0 6,7 18,1 18,7 11,8 31,3 12,7 15,1 Ýsa 11,0 16,6 7,2 18,3 18,1 11,2 27,9 12,2 13,9 Ufsi 10,3 14,2 9,2 12,8 17,9 10,0 28,8 11,5 12,6 Karfi 8,3 12,6 9,7 8,1 16,0 5,9 30,6 4,4 10,8 Steinbítur _ - - - - 18,4 43,0 13,5 19,6 Grálúða 3,1 10,3 4,2 9,9 15,4 8,1 34,7 3,5 11,2 Skarkoli 10,7 18,1 10,3 17,1 11,6 11,5 24,8 14,0 21,4 Langlúra - - - - - 3,8 9,9 19,8 15,8 Sandkoli - - - - - - 2,9 7.3 21,1 Skrápflúra - - - - - - 23,7 13,5 9,6 Síld 12,0 16,6 12,0 25,0 43,2 16,7 28,8 17,7 17,6 Loðna 2,9 6,7 9,4 2,7 11,2 3,8 21,0 18,0 6,4 Humar 22,1 14,1 7,5 30,7 17,2 20,9 19,2 12,1 12,4 Úthafsrækja 14,7 15,2 13,3 22,6 24,9 20,2 44,4 28,1 27,0 Hér er um að ræða veltutölur. Það þýðir að séu sömu aflahlutdeildimar fluttar milli skipa oftar en einu sinni á fiskveiðiárinu eru þær taldar i hvert sinn sem þær eru fluttar. Krókabátar eru ekki meðtaldir. Stofn- fundur LÍF LAUGARDAGINN 26. ágúst n.k. verður haldinn form- legur stofnfundur LIF, Landssambands íslenskra fiskiskipaeigenda. Fundur- inn verður haldinn á veit- ingastaðnum Kænunni við bátahöfnina í Hafnarfírði og hefst hann kl. 15:30. Kosin verður stjórn á fundinum auk þess sem stefna í helstu baráttumálum félagsins verður mótuð. Þá verður á fundinum kynnt uppkast að lögum og samþykktum fé- lagsins. Morgunblaðið/Gunnar Flosi Jakobsson, Jón Pétursson skipstjóri og Finnbogi Jakobsson framan við hið nýja skip. Nýtt skip í flota Bolvíkinga Bolungarvík - Nýtt línuveiðiskip, Þorlákur ÍS 15, kom til heima- hafnar í Bolungarvík um sl. helgi. Skipið er smíðað í Pólandi en eig- andi þess er útgerðafyrirtækið Dýri hf., sem er í eigu bræðranna Finnboga og Flosa Jakobssona. Þorlákur ÍS er fyrsta nýsmíð- aða skipið sem kemur til Bolung- arvíkur síðan 1984. Samið var um smfði skipsins ( desember sl. og var það formlega afhent eigend- um þess 9. ágúst. Skipið, sem er 150 lestir að stærð, er búið til línuveiða með norskri beitningavél af gerðinni BSG, sem er til muna einfaldari að allri gerð en þær beitningavél- ar sem algengast er að hafi verið notað hingað til. Skipið er mjög vandað að allri gerð og vel búið tækjum og vist- arverur áhafnarinnar vandaðar. Skipstjóri á Þorláki ÍS er Jón Pétursson og afleysingar- skipstjóri Egill Jónsson. Vélstjóri er Baldvin Sigurðsson. Sjö manna áhöfn verður á skipinu, sem held- ur væntanlega til veiða um næstu helgi. Utgerðafyrirtækið Dýri hefur verið í eigu þeirra bræðra Finn- boga og Flosa frá árinu 1991 þeg- ar þeir keyptu það ásamt vélskip- inu Haferninum. Haförninn var gerður út af félaginu fram til árs- ins 1994, þegar hann var seldur og félagið keypti Guðnýu ÍS, sem seld var til Hornafjarðar í aprfl sl. Fullveldisviðræður Færeyinga við Dani SÞ spurðar um þátttöku þriðja aðila Þórshöfn. Morgunblaðið. SKRIFSTOFA lögmanns Færeyja hefur skrifað aðalstöðvum Samein- uðu þjóðanna í New York og beðið um að fá útskýrt hvaða reglur gildi um þátttöku þriðja aðila í samning- um milli tveggja þjóða. Fyrirspumin mun vera send að beiðni Hogna Hoydal, ráðherra sjálfstæðismála í landsstjórninni. í bréfinu er bent á að fulltrúar Færeyinga og Dana hafi nú átt þrjá fundi til að ræða fullveldissamninga en þótt landsstjórnin hafi undirbúið sig vel og viðunandi meirihluti sé fyrir fullveldishugmyndum lands- stjórnarinnar hafi danska stjómin ekki sýnt raunverulegan vilja til að semja. Stjómarandstaðan í Færeyjum, Sambandsflokkurinn og Jafnaðar- mannaflokkurinn, hafa mótmælt því harðlega að beiðnin skyldi borin fram en Hoydal segist vilja leggja áherslu á að beiðnin til SÞ sé ekki pólitísks eðlis. „Við vitum að ekki er raunhæft að við fáum SÞ til að taka þátt í viðræð- unum við Dani þar sem um er að ræða innanríkismál þjóðanna beggja og danska stjórnin hefur sagt að hún vilji ekki milligöngu þriðja aðila. En við viljum vita hvaða alþjóðalegar reglur gildi þegar þriðji aðili tekur þátt í viðræðum tveggja þjóða og þess vegna hafa embættismenn snúið sér til SÞ,“ sagði Hoydal. Hann benti enn fremúr á að á síð- asta fundinum með Dönum í Kaup- mannahöfn hefðu fulltrúar Færey- inga skýrt frá því að reglur um aðild þriðja aðila yrði kannaðar. „Við sögðum einnig skýrt að við vildum gjaman að þriðji aðili væri viðstadd- ur fundina. Þetta gerðum við þegar við reyndum að koma af stað samn- ingum um efnahagslegan aðlögunar- tíma en þá vildi danska stjórnin ekki hvika frá þeirri ákvörðun að aðlög- unartíminn gæti í mesta lagi orðið fjögur ár. Þeir vilja ekki ræða aðra tölu, líklega ekki heldur eitt ár og allt situr nú fast,“ sagði ráðherrann. Bréfið til SÞ er dagsett 27. júlí og þingmenn stjómarandstöðunnar gagnrýna mjög að utanríkismála- nefnd Lögþingsins skuli ekki hafa verið höfð með í ráðum og enginn af stjómmálaleiðtogunum á þingi hefur verið upplýstur um bréfið. Edmund Joensen, leiðtogi Sambandsflokks- ins, segir að umrætt bréf sé eins og sprengja í væntanlegum umræðum á þingi um samband Færeyja við Danmörku. Joannes Eidesgaard, formaður jafnaðarmanna, segir enn- fremur að með bréfinu séu afar óheppileg skilaboð send umheimin- um. Báðir munu þeir ætla að taka málið upp í utanríkismálanefndinni. Poul Nymp Rasmussen, forsætis- ráðherra Danmerkur, hefur tjáð sig um bréf færeysku embættismann- anna og segir að danska stjómin sjái sem fyrr enga ástæðu til að þriðji að- ili verði þátttakandi í samningum Dana og Færeyinga um fullveldi hinna síðarefndu. Næsti fundur í Færeyjum? Alls hafa samningafundirnir verið þrír og segir Hoydal að verið sé að ræða hvenær næst eigi að hittast. Fullvíst þykir samt að þeir verði ekki fyrr en að lokinni þjóðar- atkvæðagreiðslu í Danmörku 28. september um aðild að myntsam- starfi Evrópusambandsins. Hoydal vill að næsti fundur verði í Færeyj- um, því hafi Danir heitið á síðasta fundi. Nyrup Rasmussen hefur lagt til að dómsmálaráðherra Dana, Frank Jensen, fari til Færeyja og þar verði útkljáðar deilumar um færeyskan ríkisborgararétt, sem er eitt af ágreiningsefnunum. Hefur Hoydal sagt að ef hugmyndin tefji ekki íyrir eiginlegum samningavið- ræðum um fullveldi séu Færeyingar reiðubúnir að eiga sérstaka fundi um þrengri svið viðræðnanna. Nýtt félag um norska olíuhagsmuni Yrði fjórða stærsta olíufyrirtæki heims RÁÐUNEYTI olíumála í Noregi hyggst leggja til að stofnað verði nýtt eignai'haldsfyrirtæki utan um eignarhlut ríkisins í Statoil þegar það verði einkavætt að hluta og nýja fyrirtækið annist jafnframt eignir ríkisins 1 olíu- og gaslindunum. Það yrði fjórða stærsta olíufyrirtæki heims, að sögn Bergens Tidende. 01- av Akselsen, olíu- og orkumálaráð- herra, vildi að sögn AFP-fréttastof- unnar ekki tjá sig um þessi áform þar sem ekki hefði verið tekin loka- ákvörðun. Málið verður rætt á landsfundi Verkamannaflokks Stolt- enbergs í nóvember. Jens Stoltenberg forsætisráð- herra skýrði frá því í sjónvarps- viðtali á þriðjudag að þriðjungur af hlutafé ríkisins í Statoil yrði seldur en ekki kom fram í máli hans hve- nær það yrði. Gert er ráð fyrir að um 56 milljarðar norskra króna, um 450 milljarðar íslenskra króna, fáist fyr- ir hlutabréfin en Statoil er nú að öllu leyti í ríkiseigu. Stoltenberg benti á að eftir sem áður myndi ríkið eiga ráðandi meirihluta í fyrirtækinu og jafnframt að að það myndi hafa á sinni hendi full yfirrráð allra olíu -og gaslindanna í norskri lögsögu. Heimildarmenn segja þó að einnig sé rætt um að einkavæða að hluta ríkiseignina í olíu- og gaslindunum. Auk Statoil á norska ríkið 44% í Norsk Hydro sem einnig stundar ol- íuvinnslu. Hefur síðustu mánuði ver- ið rætt um að til greina kæmi að sú eign yrði einnig hluti af væntanlegu risafyrirtæki í olíuiðnaðinum auk Statoil og olíu- og gaslindanna. Forstjóri Statoil, Olav Fjell, lýsti í gær ánægju sinni með áformin en stjóm fyrirtækisins lagði þegar í ágúst í fyrra til einkavæðingu að hluta. Fjell hefur áður lagt áherslu á að fengnir verði öflugir samstarfs- aðilar á sviði olíuframleiðslu til að kaupa hlut í Statoil en einnig að aðr- ir fjárfestar á almennum fjármála- mörkuðum geti átt hlut í fyrirtæk- inu þegar það verði einkavætt að hluta og farið að stunda viðskipti með hlutafé í Statoil á almennum verðbréfamörkuðum. Hann segir að öllum möguleikum sé haldið opnum. „Þetta er hlutfalhð sem við höfum verið að ræða síðasta hálfa árið og er mjög áhugavert," sagði hann. Fjell hefur sagt i samtali við Dagens Næringsliv að ljóst sé að eigandinn, ríkið, ákveði hvemig staðið verði að sölunni en jafnframt að í höfuðstöðv- um Statoil velti menn fyrir sér ýms- um möguleikum, m.a. samstarfi við íyrirtæki utan Evrópu. ■
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.