Morgunblaðið - 25.08.2000, Blaðsíða 32
32 FÖSTUDAGUR 25. ÁGÚST 2000
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ
Framtíðarör-
yggi Reykja-
víkurfhigvallar
MÁLEFNI Reykja-
víkurflugvallar hafa
verið til umfjöllunar í
mörgum greinum hér í
Mbl. undanfarið.
Ástæðan er að nú fer
fram meiriháttar við-
hald/endurnýjun á
flugbrautum í hjarta
Reykjavíkur. Áður en
þessar aðgerðir hófust
fóru af stað mótmæli
um stöðu vallarins í
hjarta Reykjavíkur.
Sumir vildu flytja inn-
anlandsflug til Kefla-
víkur en aðrir vildu
nýjan flugvöll í Skerja-
fjörð. Þessar umræður þróuðust yfir
á viðkvæmt stig um afstöðu okkar í
Reykjavík til fólksins úti á landi og
aðkomu þess til höfuðborgar sinnar.
í allri umræðunni hefur aðalatriði
þessa máls enn ekki komið fram,
hver grundvallartilgangur Reykja-
víkurflugvallar er og verður í næstu
framtíð.
Málefni Reykjavíkurflugvallar
heyra annars vegar undir borgar-
stjóm Reykjavíkur fyrir hönd okkar
í Reykjavík og hins vegar undir sam-
gönguráðherra Islands fyrir hönd
ríkisstjórnar fslands og Islendinga
almennt. Ekki er hægt að ætlast til
þess að ráðherra hafi sérþekkingu í
flugmálum eða flugrekstri og á það
sama við um borgarstjóm Reykja-
víkur. Það er því alvarlegt mál þegar
sérfræðingar æðstu embættismanna
ríkis og sveitarfélaga í flugmálum
plata opinbera fulltrúa fólksins í
landinu til að trúa því að Reykjavík-
urflugvöllur sé byggðavandamál
okkar í Reykjavík og fólksins úti á
landi.
Reykjavíkurflugvöllur var, er og
verður varaflugvöllur fyrir Keflavík-
urflugvöll og þær flugvélar sem nota
Keflavíkurflugvöll sem aðalflugvöll.
Þetta ættu æðstu embættismenn
þjóðarinnar að vita. Það viðhald sem
nú fer fram á flugbrautum Reykja-
vikurflugvallar er í beinum tengslum
við þetta aðalatriði málsins.
gsm 897 3634
hrif á nmlagíuggatjöldum.
Sameining slökkvi-
liðs Reykjavíkur og
Reykjavíkurflugvallar
er til að undirstrika
þessa staðreynd. Það
viðhald sem nú fer
fram á flugbrautum
Reykj avíkurflugvallar
er framkvæmt með það
i huga að flugbrautir
geti tekið við stórum og
þungum flugvélum í
neyðartilfellum.
Áhættuþáttur þessa
máls er að Reykjavík-
ur- og Keflavíkurflug-
völlur eru á sama veð-
ursvæðinu og gætu
lokast á svipuðum eða sama tíma.
Þegar borgarstjóm Reykjavíkur
fór fram á það við samgönguráð-
herra að erlendar flugvélar notuðu
Keflavíkurflugvöll sem aðalvöll, þá
varð Reykjavíkurflugvöllur um leið
að varaflugvelli og alvarleg slysa-
hætta varð að veruleika í Reykjavík
Reykjavíkurflugvöilur
Reykjavíkurflugvöllur
var, er og verður vara-
flugvöllur fyrir Kefla-
víkurflugvöll, segir
Guðbrandur Jónsson,
og þær flugvélar sem
nota Keflavíkurflugvöll
sem aðalflugvöll.
því að flugvél fer fyrst á aðalvöll, ef
hann lokast fer hún næst á varavöll
sem nú verður í Reykjavík og ef báð-
ir lokast, hvað þá?
Öryggi æðstu embættismanna
þjóðarinnar
Sérfræðingar ríkisstjómar ís-
lands í flugmálum ættu að vita að
ríkisstjómir erlendra ríkja tak-
marka flugumferð að og yfir aðsetur
æðstu embættismanna ríids og sveit-
arfélaga svo að ekki verði úr harm-
leikur.
Þetta á ekki við um ísland. Skrif-
stofa forseta Islands, alþingi íslend-
inga og ráðhús Reykjavíkur eru í
beinu aðflugi og brottflugi fyrir flug-
brautina norður-suður í hjarta
Reykjavíkur, þar eru einnig tveir
skólar fyrir utan allt annað. Til að
auðvelda aðflugið á hættutíma að
Guðbrandur Jónsson
WJU8+
húsnæði æðstu embættismanna ríkis
og Reykjavíkurborgar hefur verið
komið fyrir aðflugsvita á húsþaki við
hliðina á alþingi íslendinga. Þar
fljúga flugvélar yfir í fjarlægð frá
embættismannabústöðum sem er
aðhlátursefni fyrir flugöryggis-
nefndir^ allra siðmenntaðra þjóða,
nema Islendinga sem hafa enga
sjálfstæða flugöryggisnefnd ríkis og
sveitarfélaga sem á að hafa eftirlit
með flugráði og Flugmálastjórn.
Tillögur í
flugöryggismálum
Samgönguráðherra telur það
tímafrekt mál að flytja kennslu og
æfíngaflug út fyrir Reykjavík. For-
maður flugráðs ætti að bjóða ráð-
herra með sér austur að Selfossi og
skoða flugvöllinn þar sem nokkrir
metnaðarfullir einstaklingar hafa
byggt upp. Hér gætu byggðasjónar-
mið ráðherra notið sín. Það verður
ódýrt og einfalt mál að bæta þar alla
aðstöðu til flugkennslu og æfinga-
flugs. Það mætti jafnvel gera flug-
völlinn að varaflugvelli fyrir Reykja-
vík eða Keflavík, minni flugvélar í
ferjuflugi.
Reykjavíkurflugvöllur er og verð-
ur varavöllur fyrir Keflavíkurflug-
völl, en það þarf að takmarka hverjir
fá að nota Reykjavíkurflugvöll sem
varavöll með reglugerð svo að
áhættuþættir verði augljósir.
Reykjavíkurflugvöllur verður
áfram bækistöð fyrir innanlandsflug
og fær þannig tvöfalt hlutverk.
Þegar ríkisstjórn Islands og borg-
arstjórn Reykjavíkur hafa skoðað
hvernig aðrar þjóðir fara að í flugör-
yggismálum um flug að og yfir æðstu
stjómsýslusetur verður flugumferð
takmörkuð í Reykjavík við flugvéla-
tegundir sem nota stuttar flugbraut-
ir, eru kraftmiklar, klifra hratt og
bratt og koma hátt og bratt inn til
lendingar. Flugvélar Flugfélags Is-
lands uppfylla ekki þessi skilyrði.
Koma þarf upp aðvörunarkerfi í
húsnæði í áðurnefndum stjórnsýslu-
setrum komi til þess að flugvél noti
Reykjavíkurflugvöll í neyðartilfell-
um svo að fólk geti forðað sér í tíma.
Höfundur býr i miðborg Reykjavíkur
og er þyrluflugstjóri.
Innlegg í
umræður um
auglýsingamál
Á SÍÐASTLIÐNUM
dögum hafa birst
nokkrar greinar um
auglýsingar og tengd
málefni og langar mig
til að skrifa nokkrar lín-
ur um þau.
Mikið hefur verið
skrifað um auglýsingar
í dagblöðum og sjón-
varpi en næstum ekk-
ert verið skrifað um
merktar auglýsinga-
vörur sem árangursrík-
an auglýsingamiðil.
Merktar auglýsinga-
vörur eru í stöðugri
sókn sem árangursrík-
ur auglýsingamiðill og samkvæmt
rannsókn sem gerð var við Háskól-
ann í Heidelberg kom eftirfarandi
niðurstaða í ljós.
Auglýsingar
Merktar auglýsinga- og
gjafavörur sem „áþreif-
anleg auglýsing“, segir
Þráinn Birgir Meyer, er
mjög áhrifaríkur
auglýsingamiðill.
Merktar auglýsinga- og gjafavör-
ur sem „áþreifanleg auglýsing" er
mjög áhrifaríkur auglýsingamiðill.
Einnig kom í Ijós að merktar gjafa-
vörur falla viðskiptavinum einstak-
lega vel í geð og hafa varanleg já-
kvæð áhrif á afstöðu til gefanda.
Einnig gáfu niðurstöður í ljós að
yfir 70% þeirra aðila
sem fengið höfðu gefn-
ar merktar auglýsinga-
og gjafavörur höfðu
meðhöndlað gjafavör-
una yfir 10 sinnum.
Að auki mundu 98%
þeirra sem fengið
höfðu vöruna afhenta
ennþá eftir vörunni sex
vikum eftir afhendingu.
Að jákvætt viðhorf
til gefanda vörunnar
margfaldast ef varan
höfðar til viðkomandi
markhóps í starfi eða
leik.
Að margar merktar
auglýsinga- og gjafavörur falla við-
skiptavinum og velunnurum vel í geð,
löngu eftir móttöku vörunnar.
Að yngri viðskiptavinir eru já-
kvæðari gagnvart merktum auglýs-
ingavörum en eldri kynnslóðin, þó
báðir hópar meti gjöf sem hvatningu
til viðskipta eða jákvæðs viðhorfs til
gefanda.
Að sífellt fleiri og fleiri fyrirtæki
og stofnanir fjárfesta hlutfallslega
meira í dag en áður í merktum
auglýsinga- og gjafavörum en sjón-
varps- og dagblaðaauglýsingum.
Niðurstaðan leiddi því tvímælalaust í
Ijós að rétt val á auglýsingavöru og
falleg áletrun merkt fyrirtæki eða
stofnun er hagkvæmur auglýsinga-
kostur fyrir fyrirtæki og stofnanir og
falla viðskiptavinum og velunnurum
einkar vel í geð í langflestum tilfell-
um.
Höfundur er rekstrarhagfræðingur
og starfar sem framkvæmdastjóri
hjá Eðalpennum ehf. við markaðs-
setningu á merktum auglýsinga-
vörum.
Þráinn Birgir Meyer
Vinstrimennska Alfreðs
ALFREÐ Þorsteinsson, borgar-
fulltrúi R-listans, er yfirlýsingaglað-
ur þessa dagana.
Hann lætur sér ekki nægja að
lýsa því yfir að Framsóknarflokkur-
inn muni áfram verða handbendi
vinstri aflanna í borgar-
stjórn. Á forsíðu DV sl.
föstudag lýsir Alfreð
yfir áhuga á að Fram-
sóknarflokkurinn
myndi vinstri stjórn á
landsvísu og telur
framhald á núverandi
ríkisstjórnarsamstarfi
nær útilokað eftir
næstu alþingiskosning-
ar.
Bætir ekki
stöðu flokksins
Þessar yfirlýsingar
Alfreðs munu ekki
verða til þess að bæta
stöðu Framsóknar-
flokksins, allra síst á
höfuðborgarsvæðinu. Það er stað-
reynd, að þátttaka framsóknarfélag-
anna í Reykjavík og Alfreðs Þor-
steinssonar í R-listanum hefur
stórskaðað flokkinn. Ekki bara í
Reykjavík, heldur líka á landsvísu.
Því það er með ólíkindum að flokkur
sem hefur verið að reyna að mark-
aðssetja sig sem miðjuaflið í íslensk-
um stjórnmálum skuli láta sig nán-
ast hverfa í lang fjölmennasta
sveitarfélagi landsins, og það inní
hræðslubandalag vinstri aflanna, R-
listann. Enda minnkar fylgi flokks-
Súrefiiisvönir
Karin Herzog
Vita-A-Kombi olía
ins hratt í Reykjavík skv. öllum
skoðanakönnunum, þrátt fyrir mikla
fólksflutninga (þ. á m. framsóknar-
manna væntanlega) af landsbyggð-
inni til höfuðborgarsvæðisins.
Sérstaða Framsóknarflokksins í
borgarstjórn er engin
orðin og flokksstarf í
Reykjavík hverfandi,
einkum nú eftir brott-
hvarf Finns Ingólfs-
sonar.
Áframhaldandi
ríkisstj órnarsam-
starf
Sem fyrr segir vill
Alfreð gera meira en
að tryggja sósíademó-
krötum og öðrum til
vinstri áframhaldandi
yfirráð í borgarstjórn
Reykjavíkur. Hann
vill heimfæra þessa
vinstrimennsku á
landsvísu og mynda
rfkisstjórn með Evrópusambands-
innuðum krötum og róttækum
vinstri-grænum eftir næstu alþing-
iskosningar. Þvílík pólitísk framtíð-
arsýn í upphafi nýrrar aldar! Von-
andi talai' hér einungis Aifreð
Þorsteinsson sem borgarfulltrúi R-
listans og málsvari úreltra vinstri-
mennsku viðhorfa, sem ekkert á
skylt við þjóðleg og frjálslynd miðju-
viðhorf í dag. Þess vegna á ekki að
taka þessa yfirlýsingu alvarlega. Til
marks um það vísa þeir báðir henni
á bug, þeir Páll Pétursson félags-
málaráðherra og Kristinn H. Gunn-
arsson, þingflokksformaður Fram-
sóknarflokksins, í DV sl. laugardag.
Páll Pétursson segir réttilega ekk-
ert lát á ríkisstjórnarsamstarfi,
enda gangi samstarfið vel. Þessu til
viðbótar má benda á að ríkisstjórn
Stjórnmál
Þátttaka Framsóknar-
flokksins í R-lista-
samkrulli vinstrimanna
í Reykjavík, stór-
skaðar, segir Guð-
mundur Jónas
Kristjánsson, bæði
ímynd flokksins
ogfylgí-
sú sem nú situr hefur notið mikils
meirihluta fylgis þjóðarinnar allt frá
byrjun, skv. skoðanakönnunum. Það
er því fráleitt eins og stundum heyr-
ist að ríkisstjórnarþátttaka Fram-
sóknarflokksins með Sjálfstæðis-
flokki skaði flokkinn. Miklu fremur
má segja að þátttaka Framsóknar-
flokksins í R-lista samkrulli vinstri-
manna í Reykjavík stórskaði bæði
ímynd flokksins og fylgi.
Framboð
í Reykjavík
Þess vegna hefur formaður Fram-
sóknarflokksins, Halldór Ásgríms-
son, talað fyrir framboði flokksins í
næstu borgarstjórnarkosningum.
Því ef flokkurinn verður ekki sýni-
legur í langstærsta kjördæmi lands-
ins í næstu sveitarstjórnakosn-
ingum er sýnt að dagar hans verða
brátt taldir sem mikilsmegandi
þjóðlegu miðjuafli í íslenskum
stjórnmálum.
Höfundur er hókhaldari.
Guðmundur Jónas
Krisljánsson