Morgunblaðið - 25.08.2000, Blaðsíða 24
24 FÖSTUDAGUR 25. ÁGÚST 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Fyrstu net-
bankaræn-
ingjarnir
handteknir
London. AFP.
TALSMENN Egg, fyrsta breska [
netbankans, viðurkenndu í gær að
bankinn hefði verið fórnarlamb |
tölvuþrjóta sem höfðu á brott með
sér nokkur þúsund pund í net-
bankaráni fyrr á árinu.
Játning Egg kom á sama tíma
og lögregla greindi frá því að þrír
menn, sem grunaðir eru um net-
bankaránið og fleiri tölvuglæpi,
hefðu verið handteknir í kjölfar
sex mánaða rannsóknar.
Spillir trausti
Netbankaránið þykir enn frekar
draga úr trú almennings í Bret-
landi á öryggi netbanka, þó tals-
maður Egg segði tölvuþrjótana
ekki hafa náð að hafa á brott með
sér nema lága fjárhæð og að sú
upphæð hefði ekki verið tekin af
reikningi einhvers viðskiptavinar
bankans. Áður hafði Prudential,
móðurfyrirtæki Egg, sent frá sér ,
yfirlýsingu þar sem staðfest var að
tölvuþrjótar hefðu komist inn í |
bankann, en að þeir hefðu ekki 1
stolið neinu fé.
í viðtali við eina af útvai-ps-
stöðvum BBC sagði Gary Clifton-
Marshall, rekstrarstjóri Egg, að
reynt hefði verið að stofna falska
reikninga og þeir notaðir til að fá
aðgang að fé bankans. „Sem betur
fer erum við með öflugt kerfi sem
hindrar að slíkt eigi sér stað,“
sagði Clifton-Marshall. Að sögn
Prudential gerði þróað fjársvika- |
varnarkerfi netbankans Egg kleift
að veita lögreglu ítarlegar upplýs-
ingar er síðar leiddu til handtöku
hinna grunuðu.
Aðrir neita
í kjölfar netbankaránsins hafa
aðrir breskir bankar sent frá sér
yfirlýsingar þar sem þeir neita að
tölvuþrjótar hafi reynt að komast
inn í kerfi þeirra. Lögregla er hins
vegar ekki á sama máli og sagði í 1
gær að rannsóknir bentu til þess
að aðrir netbankar kynnu að hafa
verið rændir á sama hátt.
Tölvusérfræðingar eru þá á
þeirri skoðun að það sé einungis
tímaspursmál hvenær netbankar
verði rændir í stórum stíl. Barry
Collins, ritstjóri tölvutímaritsins
PC Pro, sagði netbanka vera hinn
nýja vettvang tölvuþrjóta. „Séu
kerfin ekki fullkomlega örugg þá
er alltaf hætta á að glæpamenn I
ræni netbanka," sagði Collins.
Ættingjar sjóliðanna sem drukknuðu um borð í Kúrsk sigldu á slysstað í gær
Ásökunum fjölgar enn
Moskvu, Oslií. Reuters, AP.
AÐSTANDENDUR sjóliðanna 118
sem fórust með kjamorkukafbátnum
Kúrsk vörpuðu í gær blómsveigum á
hafið yfir staðnum þar sem kafbátur-
inn sökk fyrir 12 dögum.
Ættingjar hinna drukknuðu höfðu
sniðgengið opinberar sorgarathafnir
í fyrradag, þegar þjóðarsorg var lýst
yfir í Rússlandi til að heiðra minn-
ingu skipverja Kúrsk. Á miðviku-
dagskvöld lýsti Vladimír Pútín, for-
seti landsins, því yfir í sjónvarpi að
hann fyndi til sektar og ábyrgðar á
örlögum sjóliðanna. Einn blómsveig-
anna, sem varpað var i Barentshaf í
gær, var frá Pútín, en að beiðni ætt-
ingjanna fór hann sjálfur ekki á vett-
vang.
Yfirlýsing Pútíns í sjónvarpinu í
fyrrakvöld var fyrstu opinberu um-
mæli hans um Kúrsk-málið eftir að
endanlega var kveðið upp úr með það
á mánudag, að enginn hefði lifað slys-
ið af. Auk þess að lýsa hryggð sinni
og samúð notaði hann þó tækifærið
til að svara fullum hálsi gagnrýni
sem hann hefur sætt vegna meints
fálætis og rangra viðbragða við slys-
inu, og brá hlífisskildi yfir herinn.
Svo virðist sem almenn reiði rúss-
nesks almennings í garð forystu-
manna ríkisins vegna meintra mis-
taka þeirra í kjölfar slyssins bitni
lítið á vinsældum Pútíns forseta. í
niðurstöðum skoðanakönnunar, sem
birtar voru í Moskvu í gær en gerð
var um síðustu helgi, nýtur Pútín
trausts um 65% þjóðarinnar. Þetta
hlutfall er einu prósentustigi lægra
en það var í síðustu könnun, eftir því
sem dagblaðið Segodnya hafði eftir
Júrí Levada, forstjóra stofnunarinn-
ar sem gerði könnunina.
Rannsakað sem sakamál
Á skrifstofu ríkissaksóknara
Rússlands var staðfest í gær, að haf-
in hefði verið lögreglurannsókn á
slysinu.
Ásökunum í tengslum við málið
heldur áfram að fjölga. Yfirmaður í
norska hemum, sem stýrði norska
kafarateyminu sem tókst að opna
neyðariúgu Kúrsk og komast inn í
bátinn sl. mánudag, sagði í gær að
minnstu hefði munað að hann aflýsti
aðgerðinni vegna þess að Rússar
hefðu ítrekað gefið honum rangar
upplýsingar. Þessi ranga upplýs-
ingagjöf gat að hans mati stefnt ör-
yggi kafaranna í hættu. Um leið og
Rússar þáðu formlega tilboð Norð-
manna og Breta um aðstoð við björg-
unaraðgerðir þustu sérþjálfaðir kaf-
arar með háþróaðan búnað á
Syrgjandi móðir sprautuð niður
MYNDRÖÐIN, sem tekin er úr myndskeiði sjónvarps-
upptöku, sýnir hvemig móðir eins sjóliðanna sem fór-
ust með Kúrsk er sprautuð niður og borin burt af ör-
yggisvörðum eftir að hún í geðshræringu fór að hrópa
vettvang í Barentshafi í því skyni að
freista þess að bjarga skipveijum
Kúrsk úr prísundinni neðansjávar.
Þegar á hólminn kom, viku eftir að
báturinn sökk, varð hlutskipti þeirra
ekki annað en að staðfesta að allir um
borð í Kúrsk væru löngu drukknaðir.
John Espen Lien, ofursti í norska
hemum og talsmaður yfirstjómar
norska heraflans, sagði vandamálin
ekki hafa verið í samskiptum við
æðstu yfirmenn rússneska Norður-
flotans, heldur við lægra setta yfir-
menn, sem áttu að sinna verkstjórn á
vettvangi björgunarstarfsins. Vora
þessir lægra settu menn mjög óvissir
um hve miklar upplýsingar þeir
mættu láta hermönnum frá NATO-
ókvæðisorð að fulltrúum stjórnvalda á fundi sem hald-
inn var sl. föstudag með nokkrum aðstandcndum skip-
veija í bænum Vídajevo nyrst á Kólaskaga, heimahöfn
Kúrsk.
ríkjunum Noregi og Bretlandi í té.
Enn er óljóst hvað olli sprenging-
unni í Kúrsk, sem olli því að hann
sökk skyndilega án þess að áhöfnin
gæti sér nokkra björg veitt. Hátt-
settir talsmenn rússneskra yfirvalda
halda því fram, að líklegast hafi
Kúrsk lent í árekstri við erlendan
kafbát og það hafi komið af stað
sprengingunni sem grandaði honum.
Engar sönnur hafa verið færðar á
þessa tilgátu. Aðrir segja að líklega
hafi orðið bilun í afhleypibúnaði
tundurskeytis og sprenging orðið í
tundurskeytageymslunni.
Enn sem komið er hafa engar vís-
bendingar komið fram um að geisla-
vh-k efni leki úr Kúrsk, þrátt fyrir að
margir hafi áhyggjur af þeirri stað-
reynd að í bátnum em tveir kjama-
ofnar. Báturinn liggur á 108 metra
dýpi á mikilvægri fiskislóð.
Áhyggjur af geislavirkni
Nú þegar björgunartilraunum við
Kúrsk hefur verið hætt vara sér-
fræðingar í skipabjörgun við því að
það muni örugglega taka nærri því
heilt ár að undirbúa það með viðhlít-
andi hætti að lyfta flaki Kúrsk aftur
upp á yfirborð. Áður en nokkur til-
raun verði gerð til að hreyfa við flak-
inu verði að gera ýtarlega könnun á
ástandi bátsskrokksins, einkum og
sér í lagi með tilliti til hættunnar á
geislavirknileka.
160 leiðtojyar á 2000-fund SÞ
Tímamörk brýnd
fyrir ræðumönnum
Átta bítast
um ítölsk
UMTS-leyfi
Rdm. AFP.
ÁTTA fyrirtæki og samsteypur
hyggjast taka þátt í uppboði ít-
alska ríkisins á rekstrarleyfum
í hinu væntanlega UMTS-far-
símakerfi, eftir því sem tals-
menn Ítalíustjómar greindu
frá. Frestur til að tilkynna þátt-
töku rann út á hádegi í gær að
staðartíma. Reiknað er með að
uppboðið sjálft hefjist þó ekki
fyrr en í byrjun október og end-
anlega Jjóst hverjir beri sigur
úr býtum í kapphlaupinu um
rekstrarleyfin liggi ekki fyrir
fyrr en í lok ársins.
Lágmarksbyrjunarboð verð-
ur 4000 milljarðar líra, andvirði
148 milljarða króna. Fimm
rekstrarleyfi verða veitt, og
búast sérfræðingar við því að
hvert þeirra verði selt fyrir sem
svarar á bilinu 250-320 millj-
arða króna. Þannig muni ítalski
ríkissjóðurinn fá sem svarar á
bilinu 1200-1600 milljarða
króna í kassann fyrir leyfin.
AÐALSKRIFSTOF A Sameinuðu
þjóðanna í New York hefur brýnt
það fyrir væntanlegum ræðumönn-
um á árþúsundamóta-leiðtogafundi
SÞ (Millcnnium Summit), sem boð-
aður hefur verið í byrjun septem-
ber, að hafa ávörp sín stutt.
Á þriðjudag, í kjölfar þess að
Hugo Chavez, forseti Venesúela,
tilkynnti að hann hygðist halda 30
mínútna ræðu, varaði talsmaður SÞ
við því, að fundurinn gæti dregizt
óhóflega á langinn - gæti orðið allt
að þriggja vikna langur - ef menn
virtu ekki tilmæli um hámarks-
ræðutíma. Chavez hafði sagt í við-
tali við dagblaðið E1 Nacional, að
það jafnaðist á við pyndingar ef
hann ætti að gera sér að góðu að
tala ekki lengur en í fímm mínútur.
Sagðist Chavez vilja tala fyrir
„heimi jafnaðar og sanngirni" og
til þess þurfí hann hálftima.
Gert er ráð fyrir að 160 þjóða- og
ríkisstjórnaleiðtogar stígi í pontu á
fundinum, sem hefst hinn 6. sept-
ember og til stendur að ljúki tveim-
ur dögum síðar. Gangi áætlanir eft-
ir verður þetta stærsti
leiðtogafundur allra tíma.
„Þegar leiðtogarnir verða komn-
ir hér saman getum við ekki annað
en gefið út vinsamleg tilmæli svo að
við neyðumst ekki til að vera hérna
í þrjár vikur í stað þriggja daga,“
hefur AFP eftir Fred Eckhard,
talsmanni SÞ.
Að sögn Kofi Annan, fram-
kvæmdastjóra SÞ, er mjög mikil-
væg^ að árþúsundamótafundurinn
veiti aðildarþjóðum samtakanna
tækifæri til að treysta heitin á
grundvallargildi stofnsáttmála SÞ
og til að gefa alþjóðlegu samstarfi
nýjan kraft.
Fyrir íslands hönd mun Davíð
Oddsson forsætisráðherra flytja
ávarp á fundinum. Með honum í ís-
lenzku sendinefndinni verða Ólafur
Davíðsson, ráðuneytissfjóri for-
sætisráðuneytisins, og Albert Jóns-
son, ráðgjafi forsætisráðherra.
Barak biðlar til Likud um þjóðstjórn
Shas boðar
eigin byltingu
Jcrúsalcm. AFP.
EHUD Barak, forsætisráðhema
Israels, hvatti í gær hægrimenn í
stjórnarandstöðunni til að ganga til
liðs við n'kisstjórn sína og styðja
áætlanir um samfélagsumbætur.
Hafa fulltrúar sefardím-gyðinga,
sem era gyðingar af miðausturlensk-
um og n-aftískum uppruna, hótað að
hefja sína eigin byltingu ílandinu.
Barak sagði í útvarpsviðtali í gær
að mögulegt væri fyrir Likud-flokk-
inn, sem er í stjórnarandstöðu, að
ganga til liðs við ríkisstjórnina, og
mynda þjóðstjóm, ef ekki næðust
samningar við Palestínumenn. Ariel
Sharon, leiðtogi Likud, aftók hins
vegar að þetta væri mögulégt.
Stjórn Baraks . hefur verið án
meirihluta á þingi síðan fjöldi flokka
sagði skilið við hana í kjölfar friðar-
fundar Baraks og Yassers Arafats,
forseta heimastjómar Pal-
estínumanna, í Bandaríkjunum fyrr í
sumar. Hefur hvorki gengið né rekið
í friðarumleitunum síðan, og í síð-
ustu viku sneri Barak sér að innan-
landsmálum og lagði til að gerð yrði
„veraldleg bylting" í ísrael sem m.a.
fæli í sér samþykkt stjórnarskrár.
Þessar hugmyndir Baraks vöktu
andmæli heittrúaðra gyðinga og |
flokka þeiira, m.a. Shas-flokksins, |
sem er þriðji stærsti flokkurinn á |
þingi. Barak hyggst afnema ýmis B
forréttindi strangtrúaðra, t.d. und-
anþágu frá herþjónustu.
En Barak og stuðningsmenn hans,
sem margir era gyðingar af evópsk-
um upprana, sk. ashkenazi-gyðing-
ar, standa frammi fyrir harðri and-
spyrnu frá sefardím-gyðingunum,
sem eiga undir högg að sækja í kjöl-
far þess að hæstiréttur staðfesti fc,
fangelsisdóm yfir stofnanda Shas-
flokksins, sem berst fyrir hagsmuh- I
um sefardím-gyðinga.