Morgunblaðið - 25.08.2000, Síða 18

Morgunblaðið - 25.08.2000, Síða 18
18 FÖSTUDAGUR 25. ÁGÚST 2000 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI f ——------------------------------------ Ford með um- fangsmikla kynn- ingu á Islandi FORD Motor Company heldur nú ráðstefnu hér á landi þar sem stjómendur Ford halda meðal annars fyrirlestra sem bera heitið Global Trends 2000. Ráðstefnan hófst í gær og lýkur henni í dag, en í tilefni af ráðstefnunni var fjölda blaðamanna frá Evrópu og Bandaríkjunum boðið til íslands. Þá var Ford með sérstaka sýningu á vörulínu Ford, Volvo og Think rafbílum á Þingvöllum í gær, en þessir bflar verða einnig sýndir hjá Brimborg í dag auk Think raf- hjóla og Ford Escape jeppans. í alþjóðlegri fréttatilkynningu frá Ford Motor Company segir meðal annars að Island sé einstak- ur staður í Evrópu sakir náttúru þess og orkulinda. „Mörg markaðsfyrirtæki og auglýsing- astofur hafa skoðað nýja strauma sem koma frá íslandi og í nýrri grein um ísland í blaðinu Bazaar er sagt að ísland sé litla landið með stóra hugmyndirnar. Ford valdi þennan „heita“ stað til þess að kynna framtíðarstefnu Ford í flutningum, hönnun, á Netinu og í umhverfismálum. Á ráðstefnu Ford í Listasafni Is- lands í gær voru flutt mörg erindi um þessi atriði. Art Redmond, framkvæmdastjóri markaðssviðs Ford, flutti erindi um helstu áherslur í bflaframleiðslu í heim- inum. I erindi Redmonds kom meðal annars fram að breytt aldurssamsetning í Banda- ríkjunum og Evrópu myndi hafa veruleg áhrif á bflaiðnaðinn, stór hluti bandarísku þjóðarinnar væri fólk sem væri eldra en sextugt og það ætti eftir að íjölga verulega í þeim hópi. Þetta væri hópur sem hefði mun meiri fjárráð en eldri borgarar höfðu áður, og raunar væri kaupgeta þess meiri en hjá ungu fólki á aldrinum 25 til 34 ára. Eldra fólkið væri auk þess mun heilbrigðara en áður og mun virkara. Það væri því ljóst að taka þyrfti mið af kröfum þess hóps við framleiðslu á bflum. Annað atriði sem Redmond benti á er hversu mikilvægu hlut- Morgunblaðið/Amaldur Ford, Volvo og Think-rafbflar voru kynntir á Þingvöllum í gær. verki konur gegna þegar kemur að því að kaupa bfl. Þær stjórna fjármálum heimilanna miklu fremur en karlar og taka þarf til- lit til þess og því má búast við að framleiðendur mæti þörfum kvenna í enn ríkara mæli en verið hefur. Þá taldi Redmond að Netið og vaxandi notkun þess myndi gera auknar kröfur til framleið- enda. Neytendur væru nú í miklu betri aðstöðu til þess að bera sam- an mismunandi bfla og verð á bfl- um. Á Netinu væri auk þess fjöldi heimasíðna þar sem fjallað væri um bfla og eiginleika þeirra þann- ig að neytendur væru mun betur upplýstir en áður þegar kæmi að sjálfum kaupunum. Þá mætti og vænta þess að þeir gerðu kröfu til þess að geta fengið varahluti og aðra þjónustu allan sólarhringinn og alla daga vikunnar á Netinu; samband viðskiptavinarins við framleiðenda eða söluaðila stæði því mun lengur en áður hefði ver- ið. Rekstrarhagnaður Samherja hf. 379 milljónir króna Talsvert betri af- koma en í fyrra Samherji hf. llpjfeú Úr milliuppgjöri samstæðu 2000 Rekstrarreikningur jan.-júni 2000 1999 Breyting Rekstrartekjur Milljónir króna Rekstrargjöld Afskriftir Fjármagnsliðir Hagn. af reglulegri starfsemi. 4.698 3.954 -444 126 413 4.552 3.813 -454 40 336 +3,2% +3,7% -2,2% +215,0% +22.9% Tekju- og eignarskattar Áhrif dóttur- og hlutdeildarfél. Aðrar tekjur og gjöld -209 -13 175 -136 11 0 +53,7% Hagnaður ársins 379 200 +89,5% Efnahagsreikningur 30.06. OO 31.12.99 Breyting Eignir samtals Milljónir króna Eigið fé 14.534 13.915 +4.4% 5.081 4.658 +9,1% Skuldir 9.453 9.257 +2.1% Skuldir og eigið fé samtals 14.534 13.915 +4,4% Kennitölur og sjóðstreymi 2000 1999 Breyting Eiginfjárhlutfall 35% 33% Veltufjárhlutfall Veltufé frá rekstri Milljónir króna 1,20 563 1,09 580 -2,9% REKSTRARHAGNAÐUR Sam- herja hf. fyrstu sex mánuði ársins 2000 nam 379 milijónum króna, sam- anborið við 200 milljóna króna hagn- að á sama tímabili í fyrra, sem er 90% hækkun á milli ára. Hagnaður móðurfélagsins fyrir skatta nam 607 milljónum á þessu ári en 336 milljón- um á síðasta ári. Rekstrartekjur samstæðunnar voru 4.698 milljónir samanborið við 4.552 milljónir í fyrra og rekstrargjöld námu 3.954 milljón- um í ár en 3.813 milljónum á síðasta ári. Fjármagnsliðir voru jákvæðir um 113 milljónir en meðal þeirra er færður söluhagnaður af hlutabréfum í Skagstrendingi hf., samtals að fjár- hæð 201 milljón. Hagnaður af reglu- legri starfsemi samstæðunnar fyrir skatta nam 413 milljónum króna. Eignir samstæðunnar þann 30. júní síðastliðinn námu 14.534 millj- ónum króna. Eigið fé nam 5.081 milljón og hafði aukist um 423 millj- ónir frá áramótum og heildarskuldir voru 9.453 milljónir. Eiginfjárhlut- fall var 35% og veltufjárhlutfall 1,20. í tilkynningu frá félaginu segir að töluverður bati haíi orðið á rekstri dótturfélagsins DFFU í Þýskalandi fyrir afskriftir og fjármagnsliði. Vegna neikvæðrar þróunar á fjár- magnsliðum hafi afkoma félagsins af reglulegri starfsemi hins vegar versnað frá sama tímabili í íyrra. Fé- lagið hafi verið gert upp með hagnaði á tímabilinu sem rekja megi til sölu Wiesbaden, eins af frystiskipum fé- lagsins. Þá segir að unnið hafi verið markvisst að því að hagræða í rekstri DFFU og að sala Wiesbaden hafi verið liður í því. Þá hafi verið ákveðið að nýta uppsjávarheimildir DFFU á næsta ári en þær hafi ekki verið nýtt- ar af félaginu undanfarin tvö ár. í því skyni hafi stjórn Samherja ákveðið að seþ'a Þorstein EA til DFFU. í tilkynningunni segir að dóttur- fyrirtæki Samherja 1 Skotlandi, Onward Fishing, hafi verið rekið með lítils háttar tapi Haft er eftir Þorsteini Má Bald- vinssyni, forstjóra Samherja, í til- kynningu félagsins, að hann sé sátt- ur við rekstur Samheija, miðað við ytri aðstæður. Afkoma móðurfélags- ins hafi verið góð og veltufé frá rekstri hafi aukist lítillega. Frysti- skipaútgerð hafi gengið vel og verð á frystum sjávarafurðum hafi verið hátt á fyrri hluta ársins. Hins vegar hafi verð á mjöli og lýsi verið lágt og afkoma í uppsjávarveiðum og vinnslu því ekki verið sem skyldi. Hvað varði rækjuvinnslu þá hafi á tímabilinu verið ráðist í umfangsmiklar breyt- ingar á verksmiðju félagsins á Akur- eyri og að þær séu farnar að skila bættri nýtingu og afköstum. Þor- steinn Már segir að varðandi starf- semina í Þýskalandi hafi mikið verið gert á fyrri hluta ársins til að bæta reksturinn og að hann búist við að rekstur þar verði verulega betri en á síðasta ári. Upplýsingar um milli- uppgjör á vefnum Á VIÐSKIPTAVEF Morgun- blaðsins er nú í boði sú þjónustu að lesendur geta skoðað þau kort sem birtast í Morgunblað- inu um milliuppgjör félaga sem skráð eru á Verðbréfaþingi ís- lands. Með því að slá inn nafn viðkomandi félags í reitinn „leita að fyrirtæki" koma fram ýmsar upplýsingar um viðkom- andi fyrirtæki. Ef þar er smellt á hnapp sem nefnist milliupp- gjör birtist kort með helstu lyk- iltölum úr rekstri viðkomandi félags fyrir fyrstu sex mánuði ársins. Samskip færa út kvíarnar í Rússlandi SAMSKIP-RUSSIA GmbH hafa tekið við umboði fyrir DAL-Trans- port í Rússlandi en DAL-Transport er alþjóðlegt skipa- og flutningafé- lag og er hluti af Deutsch-Africa- Linien Gmb. Að sögn Guðmundar P. Davíðssonar, framkvæmdastjóra sölu- og markaðssviðs Samskipa, er DAL-Transport mjög stórt alþjóð- legt flutningafyrirtæki sem er bæði í skiparekstri en kaupir einnig skipapláss hjá öðrum skipafélögum líkt og Samskip og geti því boðið upp á alheimsflutninga þótt megin- markaður þess sé Afríka. H. DAL leggur áherslu á stærstu hafnir Af- ríku og siglir félagið vikulega frá Evrópu til hafna á borð við Cape Town í Suður-Afríku, Lagos í Níg- eríu, Dakar í Senegal og Mombasa í Kenýa. Vaxandi markaður í Rússlandi Að sögn Guðmundar hafa flutn- ingar Samskipa til Rússlands snúist um eigin flutninga en það muni breytast með samningnum við DAL-Transport þar sem teknir verði upp flutningar til Rússlands fyrir aðra aðila. Því verði væntan- lega um aukin umsvif Samskipa í Rússlandsflutningum að ræða. Guðmundur segir að samningurinn hafi mikið gildi fyrir félagið og styrki stöðu þess og veiti því aukin markaðstækifæri í flutningum til og frá Rússlandi enda sé um vax- andi markað að ræða. Guðmundur segir að Samskip bjóði upp á vikulegar gámasigling- ar frá meginhöfnum Evrópu til Pétursborgar á Eystrasaltsströnd Rússlands en mjög mikið af gáma- innflutningi til og frá Rússlandi og Evrópu fari um höfnina í Péturs- borg og hún sé því einkar mikil- væg. Þá séu Samskip einnig með eigin siglingar frá Rotterdam til Múrmansk auk þess sem frystiskip flytjí fiskafurðir og þá einkum sfld frá framleiðendum í Norður-Nor- egi til Rússlands. Reka þrjár skrifstofur í Rússlandi Guðmundur segir að Samskip reki nú þrjár skrifstofur í Rúss- landi sem sinni þjónustu við sigl- ingaleiðirnar frá meginhöfnum Evrópu en skrifstofurnar séu í Sankti Pétursborg, Moskvu og Múrmansk og á þeim starfi um þrjátíu manns. Það sé því ljóst að Samskip leggi mikla áherslu á flutninga til og frá Rússlandi og samningurinn við DAL-Transport sé í raun viðurkenning á því að fé- lagið hafi mikla og góða þekkingu í flutningum á þessu svæði. Pharmaco selur í Opnum kerfum PHARMACO hf. hefur selt hlutafé að nafnverði 4,3 milljónir króna í Opnum kerfum hf. á verðinu 51. Söluandvirðið var því 219,3 milljón- ir króna og að sögn Sindra Sindra- sonar, framkvæmdastjóra Pharm- aco og stjórnarmanns í Opnum kerfum, er meirihluti þessarar upp- hæðar söluhagnaður, enda hefur Pharmaco átt lengi í Opnum kerf- um og kom inn í fyrirtækið þegar gengið var mun lægra en nú. Ástæðu sölunnar segir Sindri alls ekki vera vantraust á Opin kerfi, heldur sé fyrirtækið að verða sér úti um fé vegna fyrirhugaðra kaupa á hlutum í Balkanpharma, en ætl- unin sé að gera Balkanpharma að dótturfyrirtæki Pharmaco. Eftir kaupin er eignarhlutur | Pharmaco hf. í Opnum kerfum 35.848 krónur að nafnverði.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.