Morgunblaðið - 25.08.2000, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 25.08.2000, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. ÁGÚST 2000 25 ERLENT Bandaríkj astj órn gagnrýnd fyrir að veita Kólumbíu fé til að uppræta eiturlyfjastarfsemi Umbætur í mannréttinda- málum sagðar hunsaðar AP Liðsmcnn úr skæruliðasveitum hreyfingarinnar AUC við æfingar. ÞRÁTT fyrir ákafa gagnrýni sam- þykkti Bill Clinton Bandaríkjafor- seti í vikunni að kólumbíska hernum yrði veittur 1.3 milljarður banda- ríkjadala til stuðnings baráttunni gegn eiturlyfjasmygli og skæruliða- starfsemi. Stærstur hluti fjárhagsað- stoðarinnar verður í formi Black Hawk og Huey herþyrlna sem nota á til eftirlits á þeim svæðum landsins þar sem kókaínrækt fer fram, auk þjálfunar hermanna. Frumforsend- ur aðstoðarinnar eru þó að styðja við bakið á lýðræðis- og efnahagsþróun í Kólumbíu auk þess sem stjórnvöld- um er ætlað að bæta ástand í mann- réttindamálum. Gagmýnin hefur sprottið upp vegna þess að fjárhags- aðstoðin var samþykkt jafnvel þótt stjórnvöld í Kólumbíu hafí enn ekki hrint í framkvæmd ákveðnum mann- réttindaumbótum, sem kveðið er á um í löggjöf Bandaríkjaþings. Hafa alþjóðleg og kólumbísk mannrétt- indasamtök sakað Bandaríkjastjórn um að gera mikil mistök og telja fjár- hagsaðstoðina munu setja mannrétt- indaþróun í landinu miklar skorður. Er fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykkti fjárhagsaðstoðina, í júlí sl., voru þau skilyrði m.a. sett að Kól- umbíustjórn yrði að hrinda í fram- kvæmd viðamiklum réttarumbótum auk annarra mannréttindaákvæða sem sum hver hafa þegar komið til framkvæmda. í síðustu viku beitti utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna sér hins vegar fyrir því að litið yrði fram hjá þeim umbótum sem kveðið var á um í lagafrumvarpinu og Kól- umbíustjórn ætti enn eftir að hrinda í framkvæmd og taldi að frekari seinkun myndi aðeins gera hernum erfiðara um vik í baráttu sinni við skipulagða eiturlyfjastarfsemi. Jafn- framt fjárhagsaðstoðinni mun Clint- on halda til Kólumbíu í næstu viku og sýna Andres Pastrana, forseta Kól- umbíu, og áætlunum hans stuðning sinn. Um 80% alls kókaíns sem smyglað er til Bandaríkjanna er ræktað í Kólumbíu. Skuldbindingar eru orðin tóm Mannréttindasamtökin Human Rights Watch hafa gagnrýnt ákvörð- un forsetans harðlega og hafa fullyrt að Kólumbíustjórn hafí ekki náð að uppfylla neinar af þeim forsendum sem fulltrúadeildin gerðu að skilyrði. Jose Miguel Vivanco, talsmaður samtakanna, sagði að engum af þeim fímm forsendum mannréttindaum- bóta sem getið er um í frumvarpinu hafi verið hrint í framkvæmd. „Und- anþága sem lítur fram hjá bágu ástandi mannréttinda í Kólumbíu sendir skýr skilaboð til stjórnvalda og öryggissveita þeirra um að skuld- bindingar Bandaríkjamanna í mann- réttindamálum séu h'tið annað en orðin tóm,“ sagði Vivanco. Banda- ríska dagblaðið Washington Post greindi frá því í vikunni að um 100 frjáls félagasamtök í Kólumbíu hafi sameinast í að mótmæla „Kólumbíu- áætlun" Pastranas, þar sem herör verður skorin upp gegn eiturlyfja- smygli, og fjárhagsaðstoð Banda- ríkjamanna. Hafa samtökin t.a.m. miklar áhyggjur af því að fjárhags- aðstoð Bandaríkjamanna muni falla í skaut dauðasveitum sem eru langt til hægri í kólumbískum stjórnmálum og berjast gegn skæruliðum marx- ista. Dauðasveitir lifa í vellystingum Daily Telegraph greindi frá því í gær að hinar ólöglegu Sjálfsvarnar- sveitir Kólumbíu (AUC) hafi um þessar mundir náð til sín miklum mannskap, um 7000 málaliðum, sem fari mikinn. Höfuðstöðvar sveitanna er að finna í útjaðri borgarinnar Puerto Asis, þar sem skipuleg eitur- lyfjastarfsemi hefur reynst gjöful at- vinnugrein, og er staðsetningin ekki tilviljun. Greinir blaðið frá því að höf- uðstöðvar AUC séu í líkingu við óðul eiturlyfjabaróna Medéllin-hringsins og að áætlað hafi verið að AUC, auk annarra svipaðra sveita, hagnist um 650 milljónir dala á eiturlyfjastarf- semi á hverju ári. Einn foringja AUC hafnaði því í samtali við blaðið að sveitfrnar stunduðu eiturlyfjasmygl en sagði að þær væru þess í stað að- eins milliliður í eiturlyfjaviðskiptum. Sagði hann enn fremur hróðugur að hann skilaði allri þeirri sérþjálfun sem hann hefði hlotið í Fort Worth og Fort Benning í Bandaríkjunum til liðsmanna sinna. Kókaínbændur í héraðinu fullyrtu hins vegar að liðs- menn AUC væru í mikilli samkeppni við skæruliðasveitir marxista um kókaínbirgðir til sölu. Liðsmönnum AUC, sem flestir eru fyrrum hermenn, lögreglumenn, skæruliðar og fangar, hefur orðið mun meira ágengt í baráttunni við skæruliða en Kólumbíuher að und- anförnu og telur einn talsmanna hersins að það sé tvennt sem sameini liðsmenn ÁUC: hatur á skæruliðum mapdsta og græðgi. Á síðasta ári voru tæplega 2000 manns myi’tir í 403 árásum í landinu og hefur um helmingur þessara árása verið rakinn til AUC. Stefnumið ESB Washington Post greinir frá því að í næsta mánuði muni Evrópusam- bandið (ESB) auk Kanada, Japans og Sviss hefja viðræður við kólumb- íska ráðamenn um hvemig stuðningi við umbótaáætlanir Pastranas for- seta verði best varið. Talið er að ríkin muni veita Kólumbíustjórn um 900 milljónir dala í fjárhagsaðstoð en að- eins Spánverjar hafa lýst því yfir að þeir hyggist styðja „Kólumbíu-áætl- unina“. Hin ríkin hafa lýst yfir efa- semdum um að hin mikla áhersla stjórnvalda á herinn sé best til þess fallin að stemma stigu við skipu- lagðri glæpastarfsemi og þróun mannréttindamála og vilja auka samskipti kólumbískra stjómvalda og frjálsra félagasmataka. Hafa þau jafnvel sagt að hugsanlega verði rætt við fulltrúa skæraliðasveita mai-xista svo tryggt verði að stefnumið komist til framkvæmda. Kafarar kvikmynda flak Estoniu Stokkhólmi, AFP. KÖFUNARLIÐ undir forystu bandarískra sérfræðinga byrjuðu í gær að kafa niður að flaki ferjunnar Estonia þar sem hún liggur á alþjóð- legu hafsvæði á botni Eystrasalts. Þvert á eindregna andstöðu yfir- valda í heimalöndum þeirra sem fór- ust með ferjunni héldu þátttakendur í köfunarleiðangrinum sínu striki, en kveikjan að honum var efasemdir um að allt hefði verið með felldu við opinbera rannsókn á slysinu, sem varð þegar ferjan var á leið frá Tall- inn í Eistlandi til Stokkhólms fyrir sex árum. 852 drakknuðu. „Það fer kafari frá okkur niður að flakinu í dag,“ staðfesti Jutta Raabe, einn leiðangursmanna, í samtali við AFP um gervihnattasíma frá vett- vangi. „Þetta gengur vel. Seinna í dag fara tvö tveggja manna kafara- teymi niður til að kvikmynda skipið. Við munum síðan væntanlega nota kvöldið og nóttina til greiningar og rannsókna,“ sagði Raabe. Leiðangursstjórinn, Bandaríkja- maðurinn Gregg Bemis, segist vilja „komast að hinu sanna“ um orsök þess að Estonia sökk. „Hann heldur að við séum að leyna einhverju, og það er móðgandi," sagði Mona Sahl- in, varaiðnaðarmálaráðherra Sví- þjóðar á miðvikudag. Samkvæmt niðurstöðu hinnar op- inbera rannsóknar á slysinu vora gallar í opnunarbúnaði hins opnan- lega stefnis bílferjunnar aðalástæða þess að ferjan fylltist skyndilega af sjó og sökk. Erfitt hefur hins vegar reynzt að kveða niður ýmsar aðrar tilgátur um orsökina, þar á meðal að sprenging hefði orðið um borð. GUNTHER LAMBERT Utsalan hefst i dag. enMew Ármúla 10 • Sími 553 1531 afsláttur af nýjum handverksmunum frá GUNTHER LAMBERT. Hvort sem þú ert að leita að breyttum eða óbreyttum Isuzu getum við boðið þér tilboð svo um munar á Isuzu dögum Stórsýning hjá Bílheimum Opið til kl. 20:00 í kvöld Tilboðsverð á Isuzu dögum
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.