Morgunblaðið - 25.08.2000, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 25.08.2000, Qupperneq 46
MORGUNBLAÐIÐ 46 FÖSTUDAGUR 25. ÁGÚST 2000 MINNINGAR + Innilegar þakkir færum við öllum þeim, er sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, ÞÓRÐAR ÞORSTEINSSONAR fyrrverandi bónda á Grund í Svínadal. Sérstakar þakkir til ailra sem vinna á Héraðssjúkrahúsinu á Blönduósi fyrir alla um- hyggju og hlýju sem þau sýndu honum. Megi Guð vera með ykkur öllum. Guðrún Jakobsdóttir, Lárus Þórðarson, Valdís Þórðardóttir, Ragnhildur Þórðardóttir, Þorsteinn T. Þórðarson, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. + Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, JÓHANNESAR SIGFÚSSONAR, Engihjalla 1, Kópavogi, áður til heimilis á Álfaskeiði 70, Hafnarfirði. Kristín Sigurðardóttir, Sigríður V. Jóhannesdóttir, Stefán Baldursson, Sigfús Jóhannesson, Guðbjörg Árnadóttir, Sigurlaug J. Jóhannesdóttir, Sigurður Þ. Karlsson, Sigurður G. Jóhannesson, Yvonne Williams, Sigþór Ö. Jóhannesson, Gíslína G. Hinriksdóttir, Sigrún Ósk Jóhannesdóttir, Ólafur Kr. Sigurðsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Innilegar þakkir tii allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, JÚLÍUSAR INGIBERGSSONAR, Glaðheimum 12, Reykjavík. Einnig viljum við senda sérstakar þakkir til allra í Heimahlynningu Krabbameinsfélagsins. Elma Jónsdóttir, Fanney Júlíusdóttir, Erlendur Magnússon, Júlíus R. Júlíusson, Anna María Hjartardóttir, Magnús Bergsson, Elma Björk Júlíusdóttir, Júlíus Örn Júlíusson, Fanney Júlíusdóttir. + Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okk- ur samúð, vináttu og hlýhug við andlát ást- kærrar móður, tengdamóður, ömmu, systur og frænku, ÁSTU BJÖRNSDÓTTUR. Gunnar Haraldsson, Ásthildur Guðjohnsen, Gunnhildur Eva og Stefanía, Kristveig Björnsdóttir, Björn Jóhannsson, Guðrún R. Daníelsdóttir, Sigríður Jóhannsdóttir, Baldvin M. Frederiksen, Sveinn Jóhannsson, Soffía Guðmundsdóttir, Guðrún Jóhannsdóttir, Þorvaldur Bragason. Lokað verður í dag, föstudaginn 25. ágúst, eftir hádegi, vegna jarðarfar- ar (RISAR BJÖRNSDÓTTUR. Friðrik A. Jónsson ehf., Eyjarslóð 7. ÞÓRA ÞORSTEINSDÓTTIR + Þóra Þorsteins- dóttir fæddist á Grund í Svínadal, Austur-Húnavatns- sýslu 19. september 1908. Hún lést á Landspítalanum Fossvogi 16. ágúst síðastliðinn. Foreldr- ar hennar voru hjón- in Þorsteinn Þor- steinsson, f. 4. desember 1842, d. 21. ágúst 1921 og Ragn- hildur Sveinsdóttir, f. 27. júlí 1871, d. 24. febrúar 1951, bænd- ur á Grund. Alsystkini Þóru voru Ingiríður, starfsmaður á Land- spitalanum, f. 4.10. 1902, d. 29.10. 1990, unnusti hennar var Þorsteinn Sölvason sem dó úr lömunarveiki 1924; Steinunn, f. 15.8. 1905, d. 5.10. 1993, verkakona í Alþýðu- brauðgerðinni og Rúgbrauðsgerð- inni. Dóttir hennar er Ásta Sigfús- dóttir, f. 9. ágúst 1930; Guð- mundur, f. 11.10. 1910, bóndi á Syðri-Grund, kona hans er Guðrún Sigurjónsdóttir hús- freyja, f. 16.7. 1922. Þeirra börn eru drengur, f. 12.6. 1944, d. 12.6. 1944, Valgerð- ur, f. 18.12. 1945, Sig- rún, f. 18.9. 1947, Þor- steinn, f. 27.11. 1952 og Sveinn Helgi, f. 17.1. 1956; Þórður, f. 27.6.1913, d. 8.8.2000, bóndi á Grund. Kona hans var Guðrún Jak- obsdóttir, húsfreyja, f. 2.10.1921. Börnþeirra eru Lárus, f. 3.7.1942, Valdís, f. 5.9. 1943, Ragnhildur, f. 12.11. 1951 og Þor- steinn Trausti, f. 11.5. 1959. Hálf- systkini Þóru samfeðra voru stúlka, f. 9.7. 1867, d. 9.7. 1867; Oddný, húsfrú í Reykjavík, f. 31.8. 1868, d. 24.11. 1934; Ingiríður, ógift, f. 3.2.1871, d. 11.6.1894; Þor- steinn, bóndi á Geithömrum, f. 12.3. 1873, d. 27.1. 1944; Jakobína, húsfrú í Hnausum, f. 3.5. 1876, d. 3.5. 1948; Jóhanna, kennslukona í Reykjavík, f. 29.5. 1879, d. 13.7. 1957; Sigurbjörg, húsfrú í Hnaus- um, f. 29.5. 1879, d. 4.11. 1948. Þeirra móðir var Guðbjörg Sigurð- ardóttir. Þóra ólst upp á Grund og gekk í barnaskóla í Svínavatnshreppi. Hún missti föður sinn 13 ára en unnusti Ingiríðar, Þorsteinn Sölva- son, hjálpaði ekkjunni við búskap- inn. Árið 1924 gekk lömunarveiki yfir landið og þá lamaðist Þóra á báðum fótum og var rúmliggjandi í heilt ár. Hún fékk aftur mátt í vinstri fótinn en hægri fóturinn var alla tíð lamaður upp í mjöðm. Hún flutti 17 áratil Reykjavíkurtil móð- urbróður síns, Þórðar Sveinssonar, yfirlæknis á Kleppsspítala og bjó hjá þeim hjónum, Ellen og Þórði, um hríð. Hún hóf störf 1. mars 1927 við Miðstöð Bæjarsímans í Reykja- vik, flyst á Landsímann 1932, skip- uð eftirlitsmaður við langlínuaf- greiðsluna 1949 og starfaði þar til starfsloka 1. sept. 1978. Hún hélt heimili með systrum súium og syst- urdóttur, lengst af á Flókagötu 7 í Reykjavík. Þóra var mikil hann- yrðakona og listræn í verkum sín- um. Hún var víðlesin og fróð og fylgdist grannt með þjóðmálum. Utför Þóru fer fram frá Kópa- vogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Jarðsett verður í Gufii- neskirkjugarði. Þóra frænka okkar var bráð- greind kona, rökföst og fróð. Hún hafði áhuga á öllu mannlegu og fylgdist vel með öllum sínum ætt- mennum. Ef við hringdum í Þóru gátum við fengið allar nýjustu frétt- ir af okkar fólki. Hún var miðstöð upplýsinga fyrir alla fjölskylduna rétt eins og þegar hún vann við miðlun símtala á Landssímanum. Við viðruðum hugmyndir okkar og áætlanir við hana og það mátti reiða sig á að hún hefði skoðun á málinu. Hún leyfði sér hiklaust að vera ósammála okkur en við gátum alltaf stólað á stuðning hennar ef í harð- bakka sló. Þóru höfum við þekkt alla okkar ævi. Ófáa sunnudagana sátum við hjá þeim systrum á Flókagötunni og röðuðum í okkur góðgæti. Peys- ur og sokka, húfur og vettlinga fengum við í farteskið og spotta- sokkarnir hennar voru víðfrægir. Svo voru það grýluleikimir með svarta sjalið, Svarti Pétur, Langa- vitleysa og bollastellið bak við sóf- ann. Þóra var ein sú gjafmildasta manneskja sem við höfum kynnst. Hún studdi okkur systkinin og marga aðra sem hún taldi þurfa á stuðningi að halda. Jólin voru okkur mikið tilhlökk- unarefni, alltaf var gaman að taka upp gjafirnar frá Flókagötunni og hefð fyrir jóladegi hjá þeim á Flók- anum. Hún átti litla jólakirkju sem við trekktum upp og lítið jólatré sem stóð upp á skattholinu hennar. Fyrir ofan skattholið, sem hún verndaði gegn rispum af miklum móð, voni myndirnar af okkur syst- kinunum alveg frá fæðingu og stof- an skreytt með föndri skólaáranna sem við höfðum gefið henni í gegn- um tíðina. Við minnumst hennar sitjandi í horninu á stofunni sinni, með borðið sitt fyrir framan sem hún notaði til að hífa sig upp, prjón- ana sína á vinstri hönd og útvarpið á þá hægri. Þrátt fyrir lamaðan fót fór hún lengst allra sinna ferða í strætó og bjó á annarri hæð í fjölbýlishúsi. Baráttu hennar við fötlun sína lauk aldrei og fram á síðasta dag ætlaði hún að standa upp og fara heim af sjúkrahúsinu. Án aðstoðai- systur- dóttur sinnar, Ástu, hefði henni aldrei tekist að búa heima við svo lengi sem raun var á. Við elskuðum Þóru og grátum nú með söknuði. Hverja hringjum við nú í þegar heim er komið úr ferða- lagi? Við sóttum alltaf til hennar styrk og stöðugleika og var hún einn af þessum föstu punktum í lífi okkar. Hún var alltaf ung í anda og hætti aldrei að styðja, ögra og unna. Vertu sæl Þóra okkar, við munum ætíð minnast þín með gleði í hjarta. Svo skal tveggja sálna þrá söngs í hljóma beygja. Víst er gott að þekkja þá, þótt þeir verðí að deyja. Þó að skilji hönd frá hönd hinzta kveðjustundin, hrökkva aldrei hjartans bönd hafs við bláu sundin. (Halla Loftsdóttir.) Guðrún Birna, Þórir, Una Eydís og Ragnhildur Lára Finnsbörn. Flugurnar suða í hvítabjartri birtu sólar og endurkastsins af bæj- arveggnum. Það er heitt. Tíminn silast áfram og stendur nánast kyrr. Við krakkarnir sitjum í grasinu og fylgjumst í þögulli eftirvæntingu með þjóðveginum fram dalinn. „Nú hljóta þær að fara að koma. Er þetta ekki græni Willis-jeppinn hans Þórðar þarna í miðjum ryk- mekkinum á veginum?“ Sumarið var eiginlega ekki byrj- að fyrir alvöru fyrr en þær systur Inga, Steina og Þóra voru komnar rétt eins og farfuglar norður yfir heiðar til að taka þátt í bústörfum og heyskap með bræðrum sínum og fjölskyldum þeirra á Grund og Syðri-Grund. Það lifnaði svo sannarlega yfir heimilisfólkinu á báðum bæjunum þegar systurnar og Ásta, dóttir Steinu, þirtust færandi hendi með góðgæti af ýmsu tagi, stranga af dagblöðum og uppfullar af fréttum um menn og málefni. Hlátrasköllin í Ingu heyrðust þar sem hún var á ferð yfir lækinn með heitar kleinur í svuntunni. „Fáðu þér kleinu rýjan mín og láttu svo kýrnar suður og upp fyrir hliðið“. Máltækið „margar hendur vinna létt verk“ sannaðist oft við mörg erfið störf á Syðri-Grund svo sem á mörgum sveitabýlum um miðja tuttugustu öldina þar sem tækni nú- tímabúskaparhátta var á næsta leiti. Fjöldi krakka og unglinga fóru í sveit, lærðu að vinna og kynntust lífinu af eigin reynslu. Þannig var því einnig varið um strákpjakk úr vesturbænum og frænda sem send- ur var í sveit á Syðri-Grund. Þóra var alvörugefin en hlý og væn kona sem öllum vildi gott gera og leysa úr hverjum vanda eftir bestu getu.Hún hafði á fermingar- aldri fengið mænusótt og lömun. Hennar hlutskipti í lífinu varð því að þurfa að ganga í hárri spelku og sat því oft við gluggann heima í bæ við handavinnu og prjónaskap í sumarfríi frá störfum sínum á Sím- anum. En hún kvartaði aldrei og tók af lífi og sál þátt í lífsbaráttu fólksins í sveitinni. Hún var ein af þeim, hafði af illri nauðsyn og fyrir dutlunga örlaganna flutt á mölina en hjartað var fyrii’ norðan. Nítján ára hafði hún hafið störf símastúlku við bæjarsímann í Reykjavík, fáum árum síðar við Landssímann sem varð hennar starfsvettvangur til eftirlaunaaldurs 1978. Dugnaður, vandvirkni og nægjusemi voru aðalsmerki hennar. Þóra var mikil hannyrðakona og lopapeysur hennar voru mjög vand- aðar og eftirsóttar. Hún las mikið og var fjölfróð og minnug til ævi- loka. Þær systur bjuggu ásamt Ástu fyrst á Grettisgötunni og síðar á Flókagötunni. Þær Inga og Steina eru látnar fyrir nokkrum árum en þær Þóra og Ásta nutu dyggrar að- stoðar Sigrúnar Guðmundsdóttur og fjölskyldu hennar. Árin hafa liðið og þverrandi þrek og heilsa sóttu að. Þóra hefur um nokkurt skeið notið góðrar aðhlynningar á öldrun- ardeild Landspítala - háskóla- sjúkrahúss í Fossvogi. Þórður, yngri bróðir Þóru, er lát- inn fyrir fáum dögum og nú kveðj- um við þóru Þorsteinsdóttur hinstu kveðju.Gengin er þrautseig og elju- söm kona sem alla ævi hlaut að búa við fötlun sem þó aldrei beygði hana eða bugaði. Far þú í friði. Fjölskyldum þeirra Þóru og Þórðar sendum við samúðarkveðj- ur. ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga er andlát verður Útfararstjórar okkar búa yfir áratuga reynslu af störfum við útf ararþ j ónustu. Sjáum um útfarir á allri landsbyggðinni. Sverrir Einarsson úlfararstjóri, sími 896 8242 Útfararstofa íslands, Suðurhlíð 35, Fossvogi. Sími 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is Sverrir Olsen útfararstjóri. Baldur jFrederiksen útfararstjóri, 'sími 895 9199 Uggi Agnarsson.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.