Morgunblaðið - 25.08.2000, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 25.08.2000, Blaðsíða 62
ÍSLENSKA AUCLÝSINCASTOFAN HF. 62 FÖSTUDAGUR 25. ÁGÚST 2000 MORGUNBLAÐIÐ NÝTT ALOE VERA PLUS + Sérstaklega hannað fyrir íslenskt veðurfar og viðkvæma húð pianta full af næringu Gæðavottað Aloe Vera 300% öflugra ALOE VERA PLUS+ - margfalt öflugra en áður Fæst í stórmörkuðum og apótekum • Niko heildverslun hf, sími 568 0945 FÓLK í FRÉTTUM Lítil og ljóðræn mynd Morgunblaðið/Jim Smart Ámi Sveinsson, Hálfdán Theodórsson og Þorgeir rúlluðu myndinni inn. Eldsnemma að morgni föstudags fyrir verslun- armannahelgi hittast -------------------------?— tvær týndar sálir á BSI. Þorgeir Guðmundsson er að taka upp stutt- mynd. BSI er vinnutitill stuttmyndar sem Þorgeir Guðmundsson kvikmynda- gerðarmaður er að taka upp á þeim sögufræga stað. Þorgeir er við kvikmyndanám á meistarastigi við Columbia-háskól- ann í New York. „Þetta er önnur af tveimur stuttmyndum sem ég þarf að gera til að ljúka náminu núna, og ég býst við að hún verði rúmar 20 mínútur að lengd.“ BSÍ fjallar um tvær manneskjur sem tengjast inni á BSÍ fostudaginn fyrir verslunarmannahelgina. Þær eru svolítið utangarðs og eiga það eitt sameiginlegt. Þær gætu átt séns saman en örlögin reynast önnur. Myndin gerist eldsnemma um morguninn áður en nokkuð fólk er komið þangað inn, nema sjoppukerl- ing og rútubflstjóri, sem Guðrún Gísladóttir og Eyvindur Erlendsson leika. Þau eru heimamenn á staðn- um og líta hin tvö svolitlu hornauga. „í aðalhlutverkunum eru Þórunn Magnúsdóttir sem leikur stelpu sem er að koma af næturskralli og er nýbúin að missa meydóminn, og Þórir Bergsson, sem leikur mann sem strýkur ofan af geðdeild Lands- spítalans,“ segir Þorgeir. „Þórir lærði kvikmyndaleik í Hollywood en sneri sér nýverið að öðru, skellti sér nefnilega í kokkinn í Köben og starfar við það nú. Þetta þóttu mér að sjálfsögðu ekkert annað en með- mæli og ég hafði rétt fyrir mér þar. Hann skilaði finni vinnu. Þórunn stóð sig líka frábærlega. Hún er mjög fótógenísk. Myndavélin elskar hana og hún gat sett sig á mjög ein- milupa Stjörnuspá á Netinu ^mbl.is _/KLL.T/Kf= EIT-TH\SAO FJÝTT beittan hátt inn i þetta hlutverk sem er nærgöngult og að mörgu leyti erfitt.“ BSI er algjör snilld Þorgeir er sjálfur höfundur hand- ritsins. „Þetta er svona lítil, falleg og ljóðræn mynd. Lýríkin er fyrst og fremst myndræn, samtöl eru í lágmarki og hegðun persónanna segir meira en orðin. Eg var úti í New York þegar ég samdi handritið og mig langaði að gera aðra af þessum tveimur mynd- um á Islandi. Eg fór fyrst að hugsa um tökustaðinn og þá kom BSÍ upp í hugann einhverra hluta vegna. Eg tengdi síðan spítalann við, sem er hinum megin við götuna, og svo vildi ég hafa einhvem að koma neðan úr bæ.“ - Er BSÍ einn af þínum upp- áhaldsstöðum? „Já, hann er náttúrulega afskap- lega bíólegur, algjör snilld og það var mjög gaman að taka upp þar. Við erum reyndar ekki búnir, okkur vanar einn sólardag í viðbót og ég sé ekki að hann komi í bráð.“ - Var ekkigaman íupptökunum? „Þetta var rosalega gaman og frá- bært fólk sem ég plataði út í þetta ævintýri með mér. Ekki bara leik- arana, heldur tökuliðið líka. Töku- maðurinn Hálfdán Theodórsson er algjör snillingur. Hann er sá heitasti í bransanum," segir Þorgeir. „Hann hefur verið aðstoðartökumaður í öll- um kvikmyndum íslensku kvik- myndasamsteypunnar seinustu ár. Hann er rosalega góður." Mætti ekki kjaftur „Við reyndum að taka daginn sem myndin gerist á, föstudaginn fyrir verslunarmannahelgina, en það var ekki kjaftur á staðnum. Við biðum allan daginn, ætluðum bara að taka ef það væri stemmning en það var ekkert. Það fóru allir í flugvélum og einkabílum, þannig að við urðum að búa stemmninguna til viku síðar.“ - Hvernig hafa fastagestirnir tekið ykkur? „Bara vel og það var mjög gaman að kynnast þeim. Margt forvitnilegt fólk. Það voru allir mjög almenni- legir við okkur, og sérstaklega Bjarni Geir, sem rekur veitinga- staðinn. Hann leyfði okkur alveg að leika lausum hala. Það þurfti að spila aðeins í kringum fólkið. Meiri- hlutinn af myndinni gerist þegar enginn á að vera á staðnum fyrir ut- an persónurnar fjórar. Það reyndi svolítið á þolinmæði starfsfólksins. Við vorum sífellt að stöðva umferð- ina. Þannig að þegar við vildum ekki hafa fólk þá var fólk á staðnum, og þegar við þurftum á því að halda, þá mætir ekki kjaftur,“ segir Toggi og hlær. „En þetta er samt búið að gangamjögvel." Hringbrautinni lokað - Er ekki mun auðveldara aðgera mynd hér en íNew York? „Jú, að gera bíó á íslandi er ofsa- lega þægilegt að því leytinu til að allt er eitt símtal í burtu. Ekkert mál er að fá leyfi til að framkvæma ótrúlegustu hluti. Við tókum t.d. eitt skot þegar stelpan er að ganga og vildum fá flugvél sem lendir akkúrat á flugbrautinni við Vatnsmýrarveg- inn. Eg var bara í beinu sambandi við flugturninn í GSM-símanum, og svo kveiktu þeir á ljósunum á flug- turninum þegar við sögðum til. Rosalega flott. Og löggan kom og lokaði Hringbrautinni fyrir okkur á meðan á þessu stóð. Maður gæti aldrei gert þetta úti. Hér er bara all- ir í símaskránni og til í að vera með.“ -Áað sýna BSÍ í bíó? „Já, hún er tekin upp á Super 16 filmu og mig langar til að sýna hana í bíó. en hún er heldur löng núna. Ég var að hugsa um að halda henni í tíu mínútum því þá yrði auðveldara að fá hana sýnda á undan einhverri bíó- mynd. En rúmar 20 mínútur hentar hins vegar betur fyrir sjónvarp. Þannig að hún verður sýnd einhvers staðar," segir Þorgeir Guðmunds- son að lokum, og þá er bara að byrja að hlakka til.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.