Morgunblaðið - 25.08.2000, Side 68

Morgunblaðið - 25.08.2000, Side 68
ÍM Reiknaðu með framtíðinni Sameinaöa líftryggingarfélagiö hf. MORGUNBLAÐW, KRINGLUNNI 1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181, PÓSTHÓLF3040, ÁSKRIFT-AFGREWSLA1691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTII FÖSTUDAGUR 25. ÁGÚST 2000 VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK. Morgunblaðið/Jón Páll Ásgeirsson Enn minnkar Kolbeinsey VARÐSKIPSMENN á Óðni heimsóttu útvörð ís- lands, Kolbeinsey, heim á dögunum og gerðu mælingar á stærð eyjarinnar. Kom í ljós að eyjan lætur enn undan síga fyrir ágangi sjávar og er nú vart svipur hjá sjón frá því sem var fyrir rúmum áratug. Vísindamenn hafa spáð því að Kolbeinsey verði horfin ofan í sjóinn áður en langt verður liðið á 21. öldina. Á myndinni er Davíð Höskulds- son, háseti á Óðni, við mælingar í Kolbeinsey. Umferð- arátak bar ár- angur LÖGREGLAN í Reykjavík stóð í gær fyrir umferðarátaki undir yfir- ski'iftinni „slysalaus dagur“. Mark- miðið var að fækka óhöppum með því að hafa lögregluna sýnilegri og virkja almenning. Hafði lögreglan meiri viðbúnað við umferðareftirlit en nokkru sinni fyrr en 50 lög- reglumenn voru á umferðarvakt á 26 ökutækjum. Eins og búast mátti við varð dagurinn ekki óhappalaus. Hins vegar sýndu tölur um kvöldmatar- leytið að tekist hefði að fækka óhöppum frá sama degi í fyrra. Þá höfðu orðið 15 umferðaróhöpp og slys á fólki í tveimur tilfellum. I gær höfðu orðið sjö óhöpp um kvöldmatarleytið en ekkert slys. Að meðaltali hafa 16 umferðar- óhöpp verið bókuð daglega það sem af er þessu ári. Karl Steinar Valsson aðstoðaryf- irlögregluþjónn sagði eðlilegra að miða við tölur tryggingafélaganna í fyrra, sem hljóðuðu upp á 39 óhöpp 26. ágúst, þar sem líklegt væri að lögregla fengi vitneskju um fleiri óhöpp nú vegna hins mikla viðbún- aðar. Hvað sem öllu liði væru óhöpp miklu færri nú en endranær og því væri tilganginum náð. ■ Slysalaus dagur/6 Orkuveitan og Virki undirrita viljayfírlýsingu Islendingar leggja hitaveitu í Beijing BORGARYFIRVOLD í Beijing, höfuðborg Kína, hafa undirritað viljayfirlýsingu við Orkuveitu Reykjavíkur og Virki hf. um að fyrirtækin aðstoði Beijing-borg við lagningu hitaveitu í borginni. Samninganefnd frá Kína er vænt- anleg í næsta mánuði og þá er búist við að skrifað verði undir ít- arlegra samkomulag um verkefnið. Alfreð Þorsteinsson, stjórnarfor- maður Orkuveitunnar, segir málið enn á frumstigi en er bjartsýnn á framvindu verkefnisins. Viðræður milli borgaryfirvalda í Beijing og íslensku fyrirtækjanna hófust snemma í sumar fyrir milli- göngu Ólafs Egilssonar, sendi- herra íslands í Kína. Alfreð segir að Kínverjar áformi að leggja hita- veitu í tveimur borgarhlutum Beij- ing. Annar þeirra heitir Lishuiqiao, en þar hyggjast Kínverjar sækja um að halda Ólympíuieikana árið 2008. Einnig stendur til að leggja hitaveitu í hverfi Beijing sem ligg- ur að Kinamúrnum en þar hefur mikil ferðaþjónusta byggst upp á síðustu árum. Á hvorum stað mun hitaveitan þjóna nokkur hundruð þúsund íbúum. Alfreð segir að ef af samningum verði muni Orkuveitan og Virki stýra verkefninu og leggja til verkfræði- og jarðvísindaþekk- ingu auk þess sem þau muni út- vega fjármagn að hluta. Einnig sé hugsanlegt að þau taki þátt í rekstri hitaveitunnar og í þjálfun starfsmanna. „Það sem Kínveija vantar sárlega er þekking sem Is- lendingar búa yfir á þessu sviði.“ í Beijing eru lághitasvæði sem Kínverjar hyggjast virkja. „Það er töluverð mengun í Beijing. Þeir hafa verið að nota brúnkol til hús- hitunar og auk þess hefur mengun frá bílaumferð aukist," sagði Al- freð. Morgunblaðið/Golli Geir Jón Þórisson yfírlögregluþjónn og Ingimundur Einarsson varalögreglusljóri voru við umferðareftirlit í gær. Niðurstaða rannsóknar norræns starfshóps Mikil neysla koffíns FRUMSYND I DAG fl I ifli jí " w í | s 4 mtm w :** jí UGL &■ fiiUltlMi MfUK eykur líkur á fósturláti ÞORKELL Jóhannesson, prófess- or í lyfjafræði og eiturefnafræði, segir það vera niðurstöðu norræns starfshóps sem rannsakað hefur málið að barnshafandi konum sem innbyrða mikið af koffíni sé frekar hætt en öðrum við fósturláti fyrir 22. viku meðgöngu. Þorkell segir starfshópinn byggja þessar niður- stöður á úrvinnslu gagna sem til voru á Norðurlöndunum og stend- ur til að birta skýrslu um niður- stöðurnar með haustinu. I rannsóknunum kemur einnig fram að börn mæðra sem innbyrða mikið koffín eru léttari en önnur við fæðingu. Þorkell segir að þær konur sem voru rannsakaðar fái að stærstum hluta koffín úr kaffi. Orkudrykkir, sem mikið hafa verið í umræðunni, séu það nýtilkomnir á markaðinn að þeir séu ekki farnir að hafa áhrif á rannsóknir. Þorkell segir að þeg- ar rætt er um mikla koffínneyslu sé verið að tala um yfir 400 mg af koffíni á dag. Að hans sögn eru að meðaltali 85 mg af koffíni í kaffi- bolla, með talsverðum frávikum, þannig að mikil koffínneysla telst vera fimm til sex bollar. Þorkell segir ekki liggja fyrir hve marga bolla af kaffi Islending- ar drekki að meðaltali daglegá, enda segi þannig tölur litla sögu þar sem fólk drekki mjög mismikið af kaffi. Þorkell segir að auk áhrifa koffíns á barnshafandi konur séu vísbendingar um að ýmis fylliefni í kaffi hafi slæm áhrif á hreyfingar fósturs og hjartslátt.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.