Morgunblaðið - 10.09.2000, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913
207. TBL. 88. ÁRG.
SUNNUDAGUR 10. SEPTEMBER 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Sprengin^ í vörubíl verður 60 manns að bana í Kína
Oljdst hvort um slys eða
hryðjuverk var að ræða
Peking. AP, Reuters.
VÖRUBÍLL, hlaðinn sprengiefni, sprakk í loft upp
í borginni Urumqi í norðvesturhluta Kína á föstu-
dag og er talið að minnst 60 hafi farist. Vitað var um
rúmlega 170 manns sem slösuðust og eldtungumar
kveiktu í húsum og bflum í grennd við slysstaðinn.
Talið var að slys hefði valdið sprengingunni en ekki
var hægt að útiloka að um hryðjuverk hefði verið að
ræða, að sögn embættismanns er gaf upp nafnið
Zhang, sagði í frétt AP.
Ekki var skýrt frá atburðinum fyrr en í gær.
Hann varð um klukkan hálfsex síðdegis að staðar-
tíma á aðalgötunni í vesturhluta borgarinnar en þar
er mikil atvinnustarfsemi og var fj öldi fólks á götun-
um á leið heim úr vinnu. Sagt var að bfllinn hefði
verið að flytja sprengiefnið á ótiltekinn stað til að
láta eyða því. Heimildarmenn segja að oft sé farið
óvarlega með sprengiefni í Kína en mikið er notað
af því við hvers kyns byggingarframkvæmdir.
„Ég heyrði háan hvell og sá svarta reykjarbólstra
bera við himin,“ sagði einn sjónarvotta er nefndi sig
Chen. Hann vinnur hjá flutningafyrirtæki og sagð-
Reuters
Dráttarbill á leið með bflflak af slysstað í
borginni Urumqi í Xinjiang.
ist hafa hlaupið tveggja kflómetra leið frá skrifstofu
sinni til að sjá hvað gerst hefði. Hann taldi yfir 50 lík
og sá fjölmargt slasað fólk á gangstéttum og götun-
um. Maðurinn sagði að vörubfllinn hefði virst vera
herbQl. Starfsmaður á bráðavakt sjúkrahúss á veg-
um kolanámufyrirtækis sagði að margir hinna 90
sem þangað voru fluttir slasaðir hefðu misst sjón við
sprenginguna, einnig hefðu sumir misst útlim.
Lögregla girti staðinn af en um kvöldið var gatan
á ný opnuð fyrir umferð. Urumqi er höfuðborg í
Xinjiang-héraði sem er stórt en strjálbýlt svæði í
norðvesturhluta Kína. Þar hefur verið mikið um
andóf gegn stjómvöldum í Peking og jafnvel blóð-
ugar uppreisnir á seinni árum. Flestir íbúar í Xinji-
ang er Uighurar, þeir eru múslimar og tala tungu
sem er skyld tyrknesku en eru óskyldir Kínveijum.
Frá 1995 hafa herskáir aðskilnaðarsinnar úr röðum
Uighura staðið fyrir sprengjutilræðum og morðum
á Kínverjum og öðmm sem grunaðir hafa verið um
að vinna með Kínverjum. Stjórnvöld hafa reynt að
beija hreyfingu aðskilnaðarsinna niður en ekki haft
erindi sem erfiði.
Meirihluti íbúa í Ummqi er kínverskrar ættar og
þar hefur verið lítið um tilræði. En fyrir þrem áram
voru þrír strætisvagnar í borginni sprengdir í loft
upp samtímis, níu manns fórast og nær 70 slösuð-
ust. Mánuði síðar sprengdu aðskilnaðarsinnar Uig-
hura strætisvagn í Peking og slösuðust tíu manns.
Næsta lota fullveldisviðræðna
Danska stjórn-
in mætir ekki
til Færeyj’a
Þdrshöfn. Morgiinblaðiö.
DANSKA ríkisstjórnin hefur nú
lýst því endanlega yfir, að sér sé
ekki fært að mæta til Færeyja til
nýrrar samningalotu í viðræðunum
um fullveldi eyjanna. Næsti samn-
ingafundur mun því fara fram í
Kaupmannahöfn, rétt eins og þeir
þrír sem á undan em gengnir.
Aníinn Kallsberg, lögmaður
Færeyinga, og Poul Nyrap Ras-
mussen, forsætisráðherra Dan-
merkur, hafa komizt að samkomu-
lagi um að næsti fundur fari fram í
stjórnarráðinu í Kaupmannahöfn
hinn 26. október næstkomandi.
I bréfi til danska forsætisráð-
herrans lýsir lögmaðurinn þó von-
brigðum sínum yfir því að fulltrú-
um dönsku stjórnarinnar skyldi
einnig í þetta sinn reynast ókleift
að mæta til Færeyja, þótt um það
hefði verið talað.
Kallsberg lýsir því einnig í bréf-
inu til Rasmussens, að landstjórn-
in hyggist ekki, að svo komnu
máli, hefja máls á hugmyndum um
efnahagslegt millibilsfyrirkomulag,
sem yrði lykilatriði hvers konar
samkomulags um færeyskt sjálf-
stæði frá Danmörku, þar sem Dan-
ir leggja færeyska landssjóðnum
til milljarða á hverju ári.
Poul Nyrup Rasmussen hefur
staðið fast á því, að vilji Færeying-
ar sjálfstæði yrði skrúfað fyrir
fjárstuðninginn frá Danmörku á
fjórum árum hið mesta. Færeying-
ar vilja fá lengri aðlögunartíma.
Kallsberg tilkynnir ennfremur
danska forsætisráðherranum að
landstjórnin hyggist vinna að því
upp á eigin spýtur að finna lausn á
hinni efnahagslegu hlið vænt-
anlegra sambandsslita.
Með alla burði
alþjóðlega samkeppni
Saga sem
ab mestu er
ósögð 28
Gíslar úr haldi
Islamskir skæruliðar á Filipps-
eyjum leystu í gær úr haldi fjóra
evrópska gísla. Fólkið hafði verið
í haldi í 140 daga. Á myndinni
sést Þjóðverjinn Marc Wallert,
sem fékk frelsi í gær, með honum
er embættismaður Filippseyja-
stjórnar, Robert Aventajado.
MORGUNBLAÐIÐ10. SEPTEMBER 2000
690900
090000
NESJAMENNSKA ÞEIRRA SMÁU,
NESJAMENNSKA ÞEIRRA STÓRU
Castro
ánægður
með
handtakið
New York. AP.
FIDEL Castro, forseti Kúbu,
sagðist í gær vera ánægður
með að hafa tekið í höndina á
Bill Clinton Bandaríkjafor-
seta á fimmtudag. Sagðist
forsetinn hafa staðið í röð
annarra þjóðarleiðtoga sem
Clinton var að heilsa.
„Ég gat ekki hlaupið á
brott til að koma í veg fyrir
að hann heilsaði mér,“ sagði
Castro á fundi með banda-
rískum aðdáendum sínum í
Riverside-kirkju í Harlem.
„Ég heilsaði honum með mik-
illi virðingu og kurteisi. Hann
galt í sömu mynt og ég þokaði
mér áfram í röðinni. Það hefði
verið fáránlegt og ruddaskap-
ur að haga sér á annan hátt.
Þetta tók aðeins um 20 sek-
úndur."
Kúbverski forsetinn sagðist
vera ánægður með að hafa
sýnt gestgjafa leiðtogafundar-
ins virðingu og komið fram
eins og siðaður maður.
Castro hafði ekki áður tjáð
sig um handtakið sem vakti
mikla athygli og hefur verið
túlkað sem tákn um að sam-
skipti ríkjanna séu að skána.
Bandarískir embættismenn
gerðu á hinn bóginn lítið úr
atvikinu og sögðu í fyrstu að
forsetarnir hefðu ekki tekist í
hendur. Castro hafði aldrei
fyrr hitt að máli bandarískan
forseta en hann hefur sjálfur
verið við völd á Kúbu óslitið í
41 ár.