Morgunblaðið - 10.09.2000, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
SUNNUDAGUR 10. SEPTEMBER 2000 39
SIGURBJÖRG JÓHANNA
AÐALSTEINSDÓTTIR
+ Sigurbjörg Jö-
hanna Aðal-
steinsdóttir fæddist í
Reykjavík hinn 20.
janúar 1914. Hún lést
á Dvalarheimilinu
Hlíð að morgni 3.
september síðastlið-
ins. Hún var dóttir
hjónanna Aðalsteins
Hjartarsonar, f. 22.9.
1889, d. 12.11. 1918
og Bjarm'nu Ólafs-
dóttur, f. 20.6. 1875,
d. 4.12. 1935 en þeim
varð þriggja barna
auðið. Elst var Kat-
rín Aðalheiður, f. 15.9. 1910, d.
5.10. 1937, þá Jóhanna og yngstur
var Magnús Lárus, f. 5.4.18.
Jóhanna giftist Aðalbimi Aust-
mar, f. 31.1. 1912, d. 17.2. 1969
hinn 15. júlí 1937. Börn þeirra em:
1) Magnús, f. 15.5.
1941. Eiginkona hans
er Ragna Björg Magn-
úsdóttir, f. 18.3. 1941.
Börn þeirra eru:
Magnús Már, f. 9.4.
1964. Sambýliskona
hans er Kristín Haf-
steinsdóttir, f. 2.10.
1963. Sonur þeirra er
Bjarki Már, f. 31.1.
1996. Hanna Guðrún,
f. 30.11. 1965. Eigin-
maður hennar er Pét-
ur Axel Valgeirsson, f.
19.3. 1957. Böm
þeirra em: íris, f. 12.8.
1988, Magnús Valur, f. 9.8. 1991.
Birkir Már, f. 24.8. 1976. 2) Svana,
f. 6.9. 1946. Eiginmaður hennar er
Páll Pálsson, f. 19.6. 1946. Börn
þeirra eru: Björn Heiðar, f. 9.1.
1963. Sambýliskona hans er
Kristrún Linda Björnsdóttir. Synir
þeirra eru Bjöm Elvar, f. 5.10.
1986 og Haukur, f. 29.3.1991. Áður
átti Björn dótturina Elvu Bryndísí,
f. 3.4.1984. Viðar Þór, f. 31.8.1964.
Sambýliskona hans er Sólveig
Styrmisdóttir og eiga þau dóttur-
ina Ástu Rakel, f. 2.6. 1998. Áður
átti Viðar Gunnar Pál, f. 10.4.1989
og Guðrúnu Ásu, f. 11.10.1990. Jó-
hann Ingi, f. 1.1. 1966. Eiginkona
hans er Erna Magnúsdóttir, f. 13.5.
1966. Dætur þeirra em Karen, f.
11. 5. 1989 og Harpa, f. 2.4. 1998.
Aðalbjörn, f. 13.3.1969. Eiginkona
hans er María Arngrímsdóttir.
Böm þeirra eru Páll Amar, f. 30.7.
1990, Helgi Freyr, f. 9.9. 1994 og
Svana Rún, f. 4.4.1998.
Utfor Jóhönnu fer fram frá Ak-
ureyrarkirkju mánudaginn 11.
september og hefst athöfnin
klukkan kl. 13.30.
Kveðja frá
barnabörnum
Autterísölum.
Æfiskeið runnið.
Horfin sól bak við höf og lönd.
Síðustu kveðjur,
síðustu þakkir
reika hljóðar á heljar strönd.
Seint erað muna,
seinteraðþakka
Ijós og yl eftir liðinn dag.
Pó heyrði’ ég á hausti
hjartnæmastóma
svanahljóð eftir sólarlag.
Vaxinviðhlýju
hjartkærrar móður
þráðir þú sólskin og fagnaðarfund.
Sárteraðvita
sumar þitt liðið.
Laufm fólnuð og lokuð sund.
(Siguijón Friðjónsson.)
Nú hefur hún Jóhanna amma okk-
ar kvatt þetta líf. Vafalaust hefur
hún verið hvíldinni fegin og sporlétt
gengið til endurfunda við Aðalbjörn
afa. Eftir standa ljúfar og fagrar
minningar. Við kveðjum þig, amma,
með kærri þökk fyrir allt og allt. Guð
blessi minningu þína.
Magnús Már, Hanna Guðrún
og Birkir Már.
Ég fel í forsjá þína,
Guð faðir, sálu mína,
þvínúerkomin nótt.
Um ljósið lát mig dreyma
ogljúfaenglageyma
öll bömin þín, svo blundi rótt.
(MatthíasJoch.)
Sunnudagsmorguninn 3. septem-
ber var litla herbergið í Hlíð baðað
geislum sólarinnar. Tengdamóðir
mín, Jóhanna, hafði hvatt þetta líf.
Friðurinn einn ríkti. Margar minn-
ingar sækja á hugann eftir 37 ára
samvistir og er ein sú fyrsta er ég
stóð ásamt verðandi eiginmanni mín-
um á stigapallinum í Sólvöllum 17
með smáhnút í maganum og var
kynnt fyrir foreldrum hans sem tóku
mér af einstakri vinsemd og alúð,
þannig að kvíði varð óþarfur. Jó-
hanna var einstaklega glæsileg kona
og bar klæðaburður hennar og nán-
asta umhverfi allt merki mikillar
smekkvísi. Ógleymdar eru hannyrð-
irnar sem hún vann af miklu listfengi
og skreyta heimili okkar Svönu
mörg þeirra verka. Gaman var að
fletta gömlu myndaambúmunum og
skoða tískuna þegar hún var ung
stúlka í Reykjavík en þar var hún
fædd og alin upp. Rifjaði hún oft upp
bernsku- og æskuár sín og bar þá
nafn vinkonunnar góðu, Svönu Vil-
hjálmsdóttur oft á góma en þær ól-
ust upp á Bergstaðastrætinu og
gengu í gamla Miðbæjarskólann.
Skautahlaup á ísilagðri Tjörninni var
uppáhald þeirra og var ekki laust við
að tengdamamma gerðist nokkuð
skáldleg þegar hún var að lýsa leikj-
um þeirra undir stjömubjörtum
himni.
Þó að vík hafi orðið milh vina síðar
á ævinni hélst vinskapur þeirra með-
an báðar lifðu.
Ung kynntist Jóhanna sorginni.
Árið 1918 missti hún föður sinn úr
spönsku veikinni. Móðir hennar,
Bjarnína, var þá orðin ein með börn-
in þrjú, Aðalheiði 10 ára, Jóhönnu 4
ára og Magnús 8 mánaða. Jóhanna
fór snemma að vinna fyrir sér og
starfaði í mörg ár á Kleppsspítalan-
um á næturvöktum því að það gaf
meira í aðra hönd. Þetta gerði hún
meðal annars til að geta stutt bróður
sinn sem var sjúkur orðinn af berkl-
um og lá á Vífilsstöðum. Með þeim
systkinum var afar kært.
En það varð skammt stórra högga
á milli því að á þremur árum missti
hún móður sína og bæði systkin, síð-
ast Magnús í byrjun árs 1939. Eftir
stóð hún ein 25 ára gömul en frænd-
fólk hennar í móðurætt veitti henni
ómældan stuðning og hélt hún nánu
sambandi við það alla tíð. Um þetta
leyti kynnist hún Aðalbirni Austmar
frá Akureyri og fluttu þau norður
um sumarið og gengu í hjónaband
15. júlí 1939. Lengst af bjuggu þau í
Sólvöllum 17 og eru mér minnis-
stæðar heimsóknir þangað og var oft
glatt á hjalla þegar öll barnabörnin
voru þar saman komin. Ekki má
skiljast við þessi minningabrot án
þess að geta þess hvað hún var flink í
matargerð og kökuskreytingum og
fékk ég margar uppskriftirnar úr því
búi. Mann sinn missti hún 1969. Hún
naut góðrar heilsu næstu árin og
stundaði meðal annars verslunar-
störf.
Þegar heilsu hennar tók að hraka
fyrir nokkrum árum flutti hún í Hlíð,
þar sem hún naut frábærrar umönn-
unar starfsfólks þar og eru því færð-
ar innilegar þakkir frá fjölskyldunni.
Að lokum þakka ég tengdaforeldr-
um mínum samveruna. Blessuð sé
minning þeirra.
Ibigna.
It
LEGSTEINAR
Komið og skoðið
í sýningarsal okkar eða
fáið sendan myndalista
MOSAIK___________________
Hamarshöföi 4, 112 Reykjavik
sími: 587 1960, fax: 587 1986
Vesturhlíð 2
Fossvogi
Sími 551 1266
www.utfor.is
Þegar andlát
ber að höndum
Önnumst alla þætti útfararinnar.
Við Útfararstofu kirkjugarð-
anna starfa nú 14 manns
með áratuga reynslu við
útfaraþjónustu. Stærsta
útfararþjónusta landsins
með þjónustu allan
sólarhringinn.
Prestur
Kistulagning
Kirkja
Legstaður
Kistur og krossar
Sálmaskrá
Val á tónlistafólki
Kistuskreytingar
Dánarvottorð
Erfidrykkja
%
UTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA EHF.
OSWALDS
sími 551 3485
ÞJÓNUSTA ALLAN
SÓLARHRINGINN
AÐALSTRÆI I -íK • 101 REVKJAVÍK
Díivið Ingev Óláfitr
Útfaumtj. Útfararstj. Útfararstj.
LÍKKISTUVINNUSTO FA
EYVINDAR ÁRNASONAR
1899
+
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
JÓHANNA AÐALSTEINSDÓTTIR,
verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju mánu-
daginn 11. september kl. 13.30.
Magnús Aðalbjörnsson, Ragna Magnúsdóttir,
Svana Aðalbjörnsdóttir, Páll Pálsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir til ykkar allra sem sýnduð okkur samúð og vináttu við
andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
JÓHANNESAR ÓLA GUÐMUNDSSONAR
gullsmiðs,
frá Gnýstöðum, Vatnsnesi,
Ásvallagötu 35, Reykjavík.
Aðalheiður Jóhannesdóttir,
Svanhildur Jóhannesdóttir,
Valur Jóhannesson, Sigrún Pétursdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför okkar ástkæra,
VIKTORS MAGNÚSSONAR
hjarta- og lungnavélasérfræðings.
Sérstakar þakkir til starfsfólks gjörgæslu-
deildar Landspítalans, Fossvogi.
Ida Anna Karlsdóttir,
Hulda Guðrún Þórólfsdóttir,
Sonja Viktorsdóttir,
Annalísa Magnúsdóttir, Kristján Gr. Tryggvason,
Gunnar Már Kristjánsson,
Hermann Kristjánsson, Guðborg A. Guðjónsdóttir,
Signý Ó. Kristjánsdóttir,
Þórólfur Jónsson, Guðný Laxdal
og aðrir aðstandendur.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför ástkærs eigin-
manns míns, föður okkar, tengdaföður,
afa og langafa,
STEFÁNS JÓNASSONAR
frá Vogum, Mývatnssveit,
Gullsmára 9, Kópavogi.
Aðalheiður Hannesdóttir,
Guðfinna Sjöfn Stefánsdóttir, Guðgeir Einarsson,
Sigríður Stefánsdóttir, Reynir Ólafsson,
Aðalheiður Guðgeirsdóttir, Birgir Blandon,
Stefán Reynisson,
Gylfi Reynisson
og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir til allra þeirra fjölmörgu sem
sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og
útför elskulegrar eiginkonu minnar, móður
okkar, tengdamóður og ömmu,
FRÍÐAR SIGURÐARDÓTTUR,
Fjarðarási 9,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Selásskóla fyrir
ómetanlega aðstoð og einnig starfsfólks á deild
Guð blessi ykkur öll.
Sigurgeir Jóhannsson,
Jóhann Sigurgeirsson,
Sigurður Örn Sigurgeirsson, Guðmunda Bima Ásgeirsdóttir,
Sigurgeir Sindri Sigurgeirsson, Kristín Kristjánsdóttir,
Gauti Sigurgeirsson
og barnabörn.