Morgunblaðið - 10.09.2000, Blaðsíða 18
18 SUNNUDAGUR 10. SEPTEMBER 2000
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Norræna húsið
Alþjóðlega bókmennta-
hátíðin sett í dag
ALÞJÓÐLEGA bókmenntahátíðin
2000 verður sett í dag kl. 15 í
Norræna húsinu. Avörp ílytja Ri-
itta Heinamaa forstjóri Norræna
hússins og formaður fram-
kvæmdanefndar hátíðarinnar,
Helgi Hjörvar forseti borgar-
stjórnar, Björn Bjarnason
menntamálaráðherra, Thor Vil-
hjálmsson rithöfundur og Gúnther
Grass nóbelsverðiaunahafi í bók-
menntum 1999. Við setninguna
leika Gunnar Kvaran og Selma
Guðmundsdóttir tónlist fyrir selló
og píanó eftir Marie-Thérésia von
Paradis, Jean Sibelius og íslenskt
þjóðlag útsett fyrir selló og píanó
af Hafliða Hallgrímssyni.
Almenn dagskrá bókmenntahá-
tíðarinnar hefst, í kvöld með upp-
lestri í Iðnó. Þar lesa úr verkum
sínum skáldin Gunther Grass, Er-
lend Loe frá Noregi, Ólafur Jó-
hann Ólafsson, Kristín Ómarsdótt-
ir og Thor Vilhjálmsson. Erlendu
höfundarnar lesa á frummálinu en
íslenskri þýðingu verður varpað á
tjald jafnóðum. Upplesturinn í
Iðnó hefst kl. 20.30.
Morgunblaðið/Rristinn Ingvarsson
Myndlistarkonan Erla Þórarinsdóttir.
M-2000
Sunnudagur 10. september
Erla Þórarinsdóttir
sýnir í Hallgrímskirkju
NORRÆNA HÚSIÐ KL. 15
Alþjóðleg bókmenntahátíð í Reykja-
vík
Setning hátíðarinnar þar sem Gunter
Grass, nóbelsverölaunahafí verður
meðai þeirra sem ávarpa gesti.
IÐNÓ KL. 20.30
Upplestur Gunter Grass, Erlend Loe,
Ólafs Jóhanns Ólafssonar Thors Vil-
hjálmssonar og Kristínar Ómarsdótt-
ur.
Hátíðin stendur til 16. september.
www.nordice.is
LISTASAFN REYKJAVÍKUR - HAFNAR-
HÚSKL.16
cafe9.net
Katrín Sigurðardóttir verður með
frumsömdu orðabókina sína. Með
nýrri orðabók vill Katrín ryðja úr vegi
tjáningarhindrunum og búa til oróa-
bók þarsem öll orð eru leyfð en ekki
einungis þau sem er að finna í út-
gefnum oröabókum. Allirgeta tekið
þátt ígerð bókarinnar.
www.cafe9.net
www.takesyou.to/dictionary
NORRÆNA HÚSIÐ KL. 12
Atþjóðleg bókmenntahátíð í Reykja-
vík
Hádegisumræður þar sem Gúnter
Grass, Slawomir Mrozek og Matthías
Johannesen fjalla um bókmenntir og
tjáningarfrelsi.
IÐNÓ KL. 20.30
HÓTEL BORG KL. 15
Jazzhátíð Reykjavíkur
Tvöfaldur kvartett Reynis Sigurðs-
sonar.
ÍSLENSKA ÓPERAN KL. 20.30
Lokatónleikar með Dave Holland-
kvintettinum sem tileinkaðireru
minningu Jacob Holland, sem lést
sviplega í liðinni viku.
http://go.to/ReykjavikJazz
TJARNARBÍÓ KL.20.30
Dóttir skáldsins - Á mörkunum
Önnur sýning á Dótturskáldsins eftir
Svein Einarsson.
HEIÐMÖRK KL. 13.30
Heiðmörk 50 ára - Sveppaferð
Sveppaferð þar sem áhersla er lögð
á kennslu og tínslu. Ferðin hefst við
Fjölskyldurjóðríð við Heiðarveg.
www.heidmork.is
www.reykjavik2000.is, wap.olis.is
UpplesturLinn Ullmann, Ingo
Schulze, Diddu og Ingibjargar Har-
aldsdóttur.
Hátíðin stendur til 16. september.
www.nordlce.is
www.reykjavik2000.is, wap.olis.is
Hláturgas
til Selfoss
FARANDSÝNINGIN Hláturgas,
læknaskop frá vöggu til grafar, verð-
ur opnuð á Heilbrigðisstofnuninni á
Selfossi, mánudaginn 11. september
kl. 15.
Á sýningunni er að finna fjölda
skopteikninga eftir innlenda og er-
lenda höfunda, en af íslenskum
teiknurum má nefna Þorra Hrings-
son, Hallgrím Helgason, Brian Pilk-
ington, Gísla Ástþórsson og Halldór
Baldursson. Það er Islenska menn-
ingarsamsteypan art.is sem stendur
að þessari farandsýningu sem er í
boði Glaxo Wellcome á íslandi.
TONLIST
S a I u r i n n
SÖNGTÓNLEIKAR
Lög eftir Sigfús Halldórsson og
ítalskir söngvar eftir Crescenzo,
Toselli, Marechiare, Donaudy,
Leoncavallo, Denza, Pennino, Curt-
is, Mario, Rossini, Gastaldon & Ard-
iti. Sigrún Hjálmtýsdóttir sópran,
Bergþór Pálsson barýton; Jónas
Ingimundarson, píanó. Fimmtudag-
inn 7. september kl. 20.
HALLANDI sumri fylgir sú innri
omun við versnandi veðurfari að
tónlistarlífið eflist og dafnar með
lækkandi sól. Tíbrár-starfsemi að-
steðjandi vertíðar í Tónlistarhúsi
Kópavogs hófst með opnunartónleik-
um 29. ágúst og mun státa af hvorki
meira né minna en sex mismunandi
tónleikaröðum í vetur. Á líklega elztu
rótum stendur sá hefðarstólpi er Við
slaghörpuna nefnist, og undir þeim
fomierkjum vora tónleikamir á
fimmtudag; að venju með Jónas Ingi-
mundarson við hljóðfærið og með
toppsöngvarana Bergþór Pálsson og
Sigiúnu Hjálmtýsdóttur í forsvari
raddlistar. Sterk samstæða, sem
minnkaði ekki að vinsældum við að
íyrri hluti var helgaður ópusum
Kópavogsheiðursborgaranum heitna,
Sigfúsi Halldórssyni, og sönglagap-
erlum hans, sem nær ógemingur hef-
ur reynzt að slíta til agna, þótt þess
hafi mikið verið freistað á undanförn-
um áratugum. ítölsku sönglög seinni
hlutans vora og mörg hver velþekkt
og elskuð, og því ekki að undra að
hvert áheyrandasæti var þaulskipað
umrætt fimmtudagskvöld.
Hefði Sigfúsi Halldórssyni hlotn-
azt lengra líf, hefði hann náð áttræðu
á þessu hausti, og var tímasetning
tónleikanna því vel viðeigandi. Af lög-
unum sautján eftir hann sem hér
vora í boði gat auk alþekktra smella
eins og Tondeleyó og Dagný einnig
að heyra minna þekkt lög, sem sum
mættu að ósekju heyrast oftar, t.a.m.
Ljóð, enda þótt hin kunnustu hafi um
skeið komizt hættulega nærri of-
SÝNING á verkum Erlu Þórarins-
dóttur verður opnuð í Hallgríms-
kirkju í dag, sunnudag, kl. 12.15.
í rýmum málverkanna er ljós og
tími, sá tími sem það tók að mála
þau og fyrir ijósið að umbreyta
silfrinu. Þau eru ekki sérstaklega
máluð í trúarlegum tilgangi en í
þeim má finna skírskotanir til fyr-
irbrigða sem tengjast trú, endur-
tekningu tímans og helgiathafna,
guð hinna fögra lista, drauminn um
Maríusetur og til Pantheon - hof
allra guða. Verkin eru:
Tímarými; haustjafndægur 1999-
vorjafndægurs 2000, olíulitur og
blaðsilfur á striga. 180x180 cm.
keyrslu. Með henni má spilla jafnvel
beztu lögum.
En nú, þegar frá líður, lítur loks út
fyrir að íjóminn af lögum Sigfúsar
ætli að standast þessa miskunnar-
laustu prófraun vinsældanna og
halda varanlegum sessi á hinu vand-
skilgreinanlega sviði milli sígrænna
alþýðulaga og fagurtónlistar sem
sumir hafa kennt við „millimúsík".
Þar hefur vitanlega ekki heldur spillt
fyrir með bókmenntaþjóðinni, að tón-
skáldið valdi sér einatt góða texta.
Það var ekki sökum að spyrja, að
góðsöngvuram kvöldsins tókst að
langflestu leyti glimrandi vel upp í
þessum litlu gimsteinum, og mátti
varla á milli laga sjá. Þó var stundum
sem flæði hendinga virtist hafa mátt
vera ögn lausara í sér og tónmyndun-
in opnari í samræmi við aðgengilegan
söngstíl laganna, því þegar mest lét
var óperastuðningurinn nánast eins
og í hertu skrúfstykki, ekki sízt á
veikustu tónum, sem áttu í þokkabót
til að hverfa í hálfþurram hljómburði
salarins á leið upp að svölum. Þá var
Bergþór framan af í sterkara lagi í
dúettum, en það jafnaðist þó síðar
meir.
I ítölsku lögunum var annað uppi á
teningnum, því að þar átti ópera-
tæknin betur við, og hvert lagið var
öðra glæsilegra við ýmist perlandi
ferskan eða dúnmjúkt syngjandi
píanóleik Jónasar Ingimundarsonar,
þótt ekki væri að vísu allt jafn hárná-
kvæmt spilað. Skammt varð nú milli
hápunkta og lögin allmörg, en til að
nefna eitthvað mætti tilfæra Ijúfan
„sotto voce“ söng Bergþórs í vel-
þekktum valsi Tosellis, Rimpianto,
sem Sigrún lék ekki síður eftir í hinu
fljótandi 0 del mio amato ben eftfr
Donaudy. Hún tók Mattinata
Leoncavallos með glæsibrag, og í
Occhi di fata eftir Denza mátti m.a.
heyra fágætan en fallegan sléttsöng
hjá Bergþóri.
Hugljúfur vals Ernestos de Curtis,
Non ti scordar di me, naut fislétts
flæðis hjá Sigrúnu.
Hún var ugglítið í hérlendum sér-
flokki hvað varðar pianissimosöng á
efsta sviði í Lucia luntane eftir Mario,
og hin sópanda tarantella Rossinis,
La danza, sveik engan sem áður hef-
Rúm Appollós; tileinkað M.D.
1998, olíulitur og blaðsilfur á striga.
170x290 cm.
Mynd Maríu; maí-nóvember
1999, olíulitur og blaðsilfur á striga.
160x130 cm.
Staður; mars 1998-nóvember
1999, olíulitur og blaðsilfur á striga.
180x130 cm.
Erla er fædd í Reykjavík. Hún
lauk námi frá Konstfack-skólanum
í Stokkhólmi árið 1981 og hefur
haldið fjölda sýninga hér heima og
erlendis. Sýningin stendur til
mánudagsins 27. nóvember og er
opin alla daga klukkan 9-18. Að-
gangur er ókeypis.
ur heyrt Diddú í slíkum ham. Berg-
þór söng síðan Musica proibita Gast-
aldons með karlmennskulegri tign,
og síðust á skrá varð Sigrún með
kossaflensavalsi Arditis, II bacio, sem
lagði salinn að velli, og raunar ekki í
fyrsta skipti þetta kvöld.
Eftir þessa ágætu frammistöðu var
óneitanlega svolítill andklímax að
kattardúettinum sem aukalagi, þrátt
fyrir margar skemmtilegar fettur og
tilþrif söngvaranna, því í eyrum
a.m.k. hinna tónleikasæknari áheyr-
enda er hætt er við að fari að slá í
grínið eftir 20.-30. skiptið.
Hví svona lúna lummu, þegar nóg
er til af öðram gamantvísöngvum?
Ríkarður Ö. Pálsson
Aukatónleik-
ar í Salnum
AUKATÓNLEIKAR í Salnum
til heiðurs Sigfúsi Halldórssyni
verða annað kvöld, mánudags-
kvöld, kl. 20. Miðasala í Salnum
kl. 13-18.
Þjóðleiðin
yfír Breiða-
merkurjökul
Á JÖKLASÝNINGUNNI á Horna-
firði á þriðjudagskvöld mun Sigurð-
ur Bjömsson á Kvískerjum flytja er-
indi um þjóðleiðina yfir Breiða-
merkuijökul.
Sigurður er fæddur á Kvískerjum
í Öræfum, einn af 9 systkinum sem
þar ólust upp í byrjun 20. aldar. At-
hygli systkinanna á Kvískerjum
gagnvart umhverfi sínu er annáluð
og hafa þau notið virðingar fræði-
manna fyrir rannsóknir.
Fyrirlesturinn verður í bíósalnum
og hefst kl. 20. Jöklasýningin er sam-
starfsverkefni Hornafjarðar og
Reykjavíkur, Menningarborgar
Evrópu árið 2000.
' ' I /
a íl o t t a
fcM*fc» turm*it» »»lu
VfMíhoðtíílU á atóf'mom WáU 75, ín IverlutibíS '4 tkíiu'
Ht»» gerk iístrbi ÍKÍMietnarnít í hhitveiáateiknum
átt&IU,
Matámíb; Cet* ktfki Vt-krkeri í því ab aftpMa
paS et *b vet* iióttamst&uf,
15 tímat í mimtðí.
nm/em kt, mm »ð Hv&ih&Hit m,
Vpptyríti&ir * 551 tme ! »61 »397
iHt k#deHd.i'e<lcf osi
Mánudagur 11. september
Á vængjum vinsælda